Bændablaðið - 07.07.2022, Síða 56
56 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
Þau Ólöf Ósk Guðmundsdóttir
og Hafþór Finnbogason fluttu í
Miðdal og tóku við búrekstrinum
af foreldrum Ólafar í júní 2020,
en þar á undan bjuggu þau á
Hvanneyri og störfuðu bæði við
Landbúnaðarháskóla Íslands.
Býli: Miðdalur.
Staðsett í sveit: Kjós.
Ábúendur: Hafþór Finnbogason og
Ólöf Ósk Guðmundsdóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra): Við
eigum tvö börn, Agnesi Heiðu, 5 ára
og Guðmund Ara, sem er alveg að
verða 3 ára.
Svo eru það kisurnar Prinsessa og
Simbi og svo er nýjasti fjölskyldu-
meðlimurinn hún Sítróna,
hvolpurinn okkar!
Stærð jarðar? 800 ha
Gerð bús? Kúabú fyrst og fremst.
Fjöldi búfjár og tegundir? 36
árskýr, 35 vetrarfóðraðar ær, 15
hross og 14 hænur.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Allir dagar byrja og enda í fjósinu.
Þess á milli eru öll hin verkefnin
unnin, sem eru ólík eftir árstíma.
Í maí tökum við líka á móti
leikskóla- og skólahópum sem koma
að skoða sveitina.
Ólöf vinnur að hluta utan bús og
keyrir suma daga á Hvanneyri til að
kenna við LbhÍ.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? Það er allt skemmtilegt
þegar það gengur vel og að sama
skapi leiðinlegast þegar eitthvað
bilar eða brotnar og þarf að stoppa
verkið til að gera við.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm
ár? Hafþór vill fylla hesthúsið af
nautum og reiðskemmuna af vélum,
en hann fær það ekki í gegn …
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í útflutningi íslenskra búvara?
Áhersla á íslenskan uppruna og
ferskleika.
Hvað er alltaf til í ísskápnum? Smá
afgangur af lambablóðsóttarlyfi …
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Ef börnin eru spurð,
er það grjónagrautur og slátur.
Foreldrarnir eru enn þá hrifnari
af lambasteik með miklu af
heimaræktuðum, ofnsteiktum
kartöflum.
Eftirminnilegasta atvikið
við bústörfin?
Þegar verknemarnir vöktu
okkur síðasta sumar um
miðja nótt því þær höfðu
sjálfar vaknað við baul við
svefnherbergisgluggann.
Svo stukkum við öll út
á náttfötunum að smala
kúnum úr garðinum …
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Miðdalur
Það er gaman að grilla en við lifum
ekki á grillkjötinu einu saman
eða fisknum eða hverju því sem
grænmetisætur setja á grillið. Það
þarf meðlæti.
Kartöflur eru klassískar, hvort
heldur sem þær eru í heilu lagi,
annaðhvort innpakkaðar í álpappír
eða skutlað berum á teinana. Hvort
tveggja ljómandi gott.
Líka hægt að búta kartöflur sem
ekki eru of mjölkenndar, eins og
t.d. rauðar eða primier, niður og
annaðhvort vanda sig við að missa
þær ekki í eldinn eða notast við
pönnu eða grillgrind. En við erum
ekki að fara að gera kartöflur og
heldur ekki maískófla, sem líka eru
ljómandi á grillið – enda erum við
ekki að fara að grilla neitt í dag.
Við ætlum að búa til hrásalat og
það tvær tegundir. Annað er klassískt
mæjónessalat sem hentar með nánast
öllu í heiminum en hitt er ferskt og
svo til þurrt salat.
Frábært með fiski, svíni eða
kjúklingi og er það allra besta sem
hægt er að setja á taco.
Byrjum á mæjónesunni áður en
hún verður gul.
Klassískt hrásalat
Það sem þarf í þetta salat er hvítkál,
laukur, edik, salt og smá sykur fyrir
þá sem hann kjósa. Hægt að sleppa
honum.
Hlutföllin er einfalt að muna
því í þetta salat fara 1 partur af
hvítkáli, 1 partur af meðalstórum
lauk og 1 partur af ediki. Í þessu
tilfelli og flestum reyndar, þar sem
hvítkálshausar eru stórir, dugir að
nota ¼ kálhaus og þar af leiðandi ¼
af lauk og jú ¼ dl af ediki.
Einar Jónsson, garðyrkjubóndi
á Reykjabakka við Flúðir, sem er
einn af þeim sem skaffar okkur
Íslendingum ferskt hvítkál hvert
sumar, segir að til þess að láta kálið
endast lengur í ísskáp, ef ekki á
að nota allan hausinn í einu, sé að
plokka kálblöðin af eitt og eitt í einu
og geyma svo óskorinn hausinn í
ísskápnum. Þannig geymist hann
von úr viti.
Til að gera salatið er laukurinn
saxaður smátt og settur út í edikið
ásamt salti og sykri fyrir þá sem þola
ekki edikið einsamalt.
Laukurinn súrsast örlítið í
vökvanum og missir laukstinginn
fyrir vikið. Á meðan það gerist eru
kálblöðin plokkuð af og skorin í
þunnar ræmur. Því lengri og þynnri
því flottara er salatið á borði.
Hægt að rífa í rifjárni eða
matvinnsluvél ef kunnáttunni með
hníf er ábótavant eða þolinmæðin.
Kálræmurnar fara í stóra skál
ásamt laukjukkinu og mæjónesi
blandað saman við. Kannski 2, 3
eða 4 matskeiðar til að byrja með
og bæta frekar mæjó við þetta, ef
það er of þurrt. Saltið mun svo draga
vökva úr kálinu þannig að ef salatið
er gert daginn áður en á að neyta þess
getur myndast smá pollur í botninn
sem gott er að hella af áður en það
er borið fram.
Salatið er best eins til tveggja
daga gamalt en er líka ferskt og gott
alveg eftir klukkutíma.
Ferskt hrásalat
Hér á landinu bláa er sem betur fer
hægt að fá hvítkál allt árið um kring
en við erum sérstaklega dekruð um
mitt sumar þegar sumarkál kemur frá
nokkrum grænmetisbændum. Það
kál hentar alveg sérstaklega vel í
þetta ferska hrásalat. Hefðbundið
hvítkál hentar auðvitað líka vel.
Alveg eins og í uppskriftinni að
klassísku hrásalati, rífum við blöðin
af kálhausnum frekar en að skera
hann í báta. Nema von sé á 10–20
manns í mat.
Skerið slatta af blöðum um ¼
af hvítkálshaus í þunnar ræmur,
hálfan lauk líka. Skerum laukinn
eins þunnt og skurðartæknin leyfir
og svo eins og einn sæmilega sterkan
eldpipar, t.d. jalapenjó. Því næst er
uppáhaldskrukkan af súrum gúrkum
tekin fram. Eftir smekk þarf að saxa
5-10 skífur smátt. Þeir sem ekki vilja
súrar gúrkur geta notað pæklaðan
jalapenjó í staðinn.
Hrært saman í skál ásamt klípu
af salti og slettu af safanum af
gúrkunum. Ekki stórri slettu, þetta
á að vera frekar þurrt. Þetta er svo
geymt í að minnsta kosti klukkutíma,
best yfir nótt.
Súru gúrkurnar og saltið draga
vökva úr lauknum og hvítkálinu
sem mýkist og blandast allt í ferskt
draumasalat. Rétt áður en salatið er
borið fram er gott að kreista örlítið
af ferskum límónusafa yfir.
Það mun enginn hringja á
lögguna þótt það sé notuð sítróna í
staðinn fyrir límónuna.
Hressilegt hrásalat
Haraldur Jónasson
haradlur@gmail.com
Klassískt mæjónessalat. Þeir sem vilja endilega setja gulrót í hrásalatið sitt gera það en það verður hringt á lögguna
ef notaður er ananas. Mynd / Hari
¼ hvítkálshaus
¼ meðalstór laukur
¼ dl edik
3-4 msk. mæjónes
1 tsk. salt
1 msk. sykur
Klassískt hrásalat
¼ hvítkálshaus
½ meðalstór laukur
5-10 sneiðar af súrri gúrku
Sletta af súrugúrkusafa
1 tsk. salt
Kreista af límónusafa
Ferskt hrásalat