Bændablaðið - 07.07.2022, Page 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 7. júlí 2022
UMHVERFISMÁL - TÍSKA
FUGLINN: SENDLINGUR
Sendlingur er gæfur og félagslyndur vaðfugl. Hann er lítill, frekar dökkur, lágfættur, með stuttan háls og frekar stuttan gogg. Hann er staðfugl og algengasti vaðfuglinn á Íslandi á veturna. Á
varpstöðvum eru sendlingar hógværir, láta áreiti lítið trufla sig og halda sér sem fastast við hreiðrið. Þeir færa sig jafnvel ekki fyrr en komið er alveg upp að þeim. Varpstofninn er metinn um
15.000 varppör. Þeir verpa helst til fjalla en einnig á annesjum og hrjóstrum á láglendi. Hreiðrin eru fremur lítilfjörleg á berangri upp við steina eða þúfur. Fuglarnir skiptast á að liggja á eggjunum
í fyrstu en karlfuglinn tekur síðan alfarið við og sér að mestu eða öllu leyti um uppeldi unganna. Ungarnir stoppa mjög stutt í hreiðrinu, þeir fara fljótlega á ról og geta strax byrjað að borða upp
á eigin spýtur. Rétt tæplega helmingur allra sendlinga í heiminum er að finna á Íslandi, við berum því mikla ábyrgð á þessum litla vaðfugli. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson
Ein sýnilegasta sjálfbærnis-
viðleitni tískuyfirvalda nútímans
er að endurvinna plast sem hreins-
að er af ströndum eða úr hafinu.
Bæði strigaskór og sundföt
tróna þar hæst sem endurunninn
varningur, en nú segja sérfræðingar
að þessi hugmynd sé ef til vill ekki
sú skynsamlegasta.
Samkvæmt upplýsingum af
vefsíðu Oceana, sem stofnað var
árið 2001, stærstu alþjóðlegu
hagsmunasamtökum sem einbeita
sér eingöngu að verndun sjávar,
kemur í ljós að yfirmenn þess telja
þetta ekki sérstaka lausn.
Láta samtökin hafa eftir sér, að
það sem þurfi til sé að minnka það
plast sem enn er verið að framleiða
í heiminum.
Það sé í raun varla hægt að
anna því að endurvinna í sífellu
plast úr sjónum þar sem hann
fyllist jafnóðum og sé því ekki um
útrýmingu plastvarnings að ræða.
Þetta sé vandamál sem fólk geri
sér ekki endilega grein fyrir og
forsvarsmenn tískunnar ekki heldur
þó þeir vilji sýna fram á sjálfbærni í
framleiðslu sinni.
Dropi í hafið
Benda samtökin meðal annars á Gap,
Adidas og Prada, sem loka augunum
fyrir þessum niðurstöðum, en m.a.
framleiðir Prada – og reyndar
fjöldi sundfatamerkja – sundföt úr
næloni sem búið er til úr fiskinetum
sem fargað hefur verið í sjóinn og
Adidas bæði sundföt og strigaskó úr
endurunnum plastúrgangi.
Í tilefni af alþjóðlegum degi
hafsins í byrjun júnímánaðar, kynntu
þessi vörumerki og önnur, vörur úr
plastúrgangi og tóku þátt í herferðum
sem lögðu áherslu á heilsu hafsins
– Adidas, til dæmis, stóð fyrir
hreinsun á ströndum, Prada studdi
stafræna væðingu Milazzo Sea
Museum og Gap setti á markað línu
af kreditkortum úr endurunnu plasti.
Er fyrirtækin þrjú hér að ofanverðu
voru innt eftir hvort raunveruleg
framtíðarstefna þeirra væri að halda
áfram óbreyttu ferli, sagði talsmaður
Adidas, skv. fréttamiðlum Vouge
Business, ... „að nota endurunninn
plastúrgang er bara einn mikilvægra
þátta er kemur að heildarstefnu okkar
um sjálfbærni“. Í samstarfi við
fyrirtækið Parley for the Oceans, sem
sérhæfir sig í úrvinnslu mengunar af
völdum plasts, stendur Adidas fyrir
söfnun plastúrgangs af ströndum
og strandsamfélögum áður en það
berst til hafsins og umbreytir því í
íþróttafatnað. Einnig stendur það
fyrir árlegum viðburði, Run for the
Oceans, sem miðar að því að miðla
fræðslu auk þess að hreinsa plast
og annan úrgang frá ströndum og
sjávarbyggðum.
Prada sendi frá sér yfirlýsingu
þar sem kom fram að 20% aukning
á milli ára (2020-21) hefði átt sér
stað við endurvinnslu plasts. Að fata-
og leðurvörudeildir fyrirtækisins
hafi farið eftir áætlun um að
breyta ónýtu plasti í endurunnið
eða „endurmyndað“ plast í hluta
varnings þeirra og pakkninga og að
því hafi, innan veggja Prada, árið
2021 plast með endurunnu innihaldi
náð 61 prósenti af alls 500 tonnum –
frá 49 prósentum árið 2020.
Gap, sem notar einnig endurunnið
plast í sundföt og aðrar vörur, svaraði
ekki beiðnum um athugasemdir.
Raunverulegur ávinningur?
Viðleitni stóru tískufyrirtækjanna
sem slíka má þó meta, enda
vaxandi þrýstingur almennings á
framleiðendur að bæta umhverfis-
fótspor sín og uppfylla sett markmið
þegar kemur að sjálfbærum
efnum sem þá draga úr sóun og
kolefnisfótsporum.
Með þetta í huga hafa því mörg
vörumerki snúið sér að endurunnu
plasti, enda endurunnið plast og öll
viðleitni sem dregur úr eða fjarlægir
plast úr sjónum yfir höfuð talin
jákvæð ákvörðun.
Gallinn er þó sá að of oft er
endurvinnsla framkvæmd samhliða
aukinni heildarplastnotkun, en þar
fellur möguleikinn fyrir endurunnið
plast, að skila raunverulegum
umhverfisávinningi.
Valkostir sem eru ekki plast
Áhugavert er að, þegar litið er til
smærri fyrirtækja í fataiðnaðinum,
má sjá að þau feta frekar þann veg
að nota alls ekkert plast annað en það
sem endurunnið er. Kjósa m.a. frekar
að hafa umbúðir og annað plastlaust.
Sundfatamerkið Seamorgens
(www.seamorgens.com fyrir
áhugasama) er dæmi um slíkt, en í
því fyrirtæki sést ekki annað plast
en plastúrgangurinn sem notaður
er í efni sundfatanna. Ekkert plast
er notað í pakkningar og þannig fá
viðskiptavinir sundföt sín afhent.
Eigendurnir, systurnar Angela og
Michelle Morgan, taka undir með
hafverndunarsinnum. „Þú getur ekki
kallað þig sjálfbært fyrirtæki bara
vegna þess að þú notar einfaldlega
endurunnið plast í vöruna þína. Allt
fyrirtækið verður að fylgja þeim
siðareglum og gæta þess að plast sé
ekki notað innan veggja þess.“
Annað merki, Masarà (www.
masaramilano.com), hefur það
markmið að ekkert plast skuli vera
í notkun í fyrirtækinu enda telja
eigendur að í mörgum tilfellum sé
hægt að finna valkosti sem þjóna
sama tilgangi og plast. Þeir kostir
séu að jafnaði aðeins dýrari en það
verður að hafa í huga að þau eru betri
valkostur fyrir umhverfið og því rétt
að hafa það í huga.
Varast þarf ranga markaðssetningu
Fyrir sjávarsérfræðinga kemur
niðurstaðan svo einmitt niður á
því hvort vörumerki séu að útrýma
heildarnotkun sinni á plasti eða ekki
– og hvernig þau miðla notkun sinni
á endurunnu plasti og sjálfbærni
þess til neytenda. Því meira sem
þeir markaðssetja það sem leið til
að bjarga umhverfi sjávar, þeim mun
meiri efasemdir hafa vísindamenn.
„Endurvinnsla er almennt góð, en
það er rangt að gefa fólki þá tilfinningu
að endurvinnsla sé nóg. Oft held ég
að það sé það sem fyrirtæki gera,“
segir Maddalena Bearzi, forseti og
meðstofnandi Ocean Conservation
Society. „Skilaboðin sem þeir ættu
að kynna eru: Dragðu úr neyslu þinni
eða notaðu ekki plast í fyrsta lagi.
Þegar þeir henda þessum fötum sem
eru úr endurunnu plasti lenda þeir
samt í sjónum.“ /SP
Höfum þetta bak við eyrað:
Endurvinnsla plasts bjargar ekki heiminum