Bændablaðið - 10.02.2022, Page 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. febrúar 202224
ÁHUGALEIKHÚS Á ÍSLANDI
√ Kardimommubær Freyvangsleikhússins verður
frumsýndur þann 4. mars nk. að öllu óbreyttu. Upplýsingar
um miðasölu er í síma 857-5598 en best er að fylgjast með
fréttum þegar nær dregur næstu mánaðamótum.
√ Þrátt fyrir óvissu vegna Covid-19 stefnir Þjóðleikhúsið
á val á Athyglisverðustu
áhugaleiksýningu ársins næsta
vor. Þjóðleikhúsið hefur verið í
samstarfi við Bandalagið í tæpa
þrjá áratugi með vali á leiksýningu
úr smiðju áhugaleikfélaganna sem
sérstaka athygli vekur.
Í kjölfarið hefur viðkomandi
félagi verið boðið að sýna í
Þjóðleikhúsinu. Covid-19 hefur
komið í veg fyrir valið síðastliðin tvö ár
en að óbreyttu er stefnt á að velja sýningu
á vori komanda. Að þessu sinni verður hægt að sækja um fyrir
sýningar sem frumsýndar
voru leikárin 2020-21 og 2021-22 fram til loka umsóknarfrests
sem er
20. apríl 2022. Sótt er um á Leiklistar- vefnum. Dómnefnd á
vegum Þjóðleikhússins mun velja þá sýningu sem nefndin telur
sérstaklega athyglinnar virði og verður valið samkvæmt venju
tilkynnt á aðalfundi BÍL sem verður haldinn í byrjun maí.
Umsóknarform fyrir Athyglisverðustu áhugaleiksýningu
ársins 2022 er tiltækt þegar félag skráir sig inn á vef
bandalagsins, www.leiklist.is.
Hvað er í gangi?!
Leikfélög Grímsness og Biskupstungna skiptast á sýningarárum:
Borg & Reykholt
Þarna hafði leikstjórinn nýverið kennt mannskapnum að kýla hvert annað ...sviðið í Aratungu Myndir / Aðsendar
Nágrannasveitarfélögin Borg
í Grímsnesi og Reykholt í
Biskupstungum hafa haldið þeim
vana síðastliðin ár að skiptast á
uppsetningum sýninga. Sýnt er við
góðar undirtektir er birta fer af
degi, oftast á bilinu febrúar, mars.
Grímsnesingar voru meðal
annars í fréttum Morgunblaðsins í
árslok 1966, en þá höfðu félagsmenn
Ungmennafélagsins Hvöt staðið í
æfingum á leikritinu Maður og kona
eftir Jón Thoroddsen. Alls átján manns
voru í sýningunni og var mikil harka
og kraftur í leikhópnum, en samkvæmt
fréttinni lögðu sumir á sig margra km
ferðalag til þess að mæta á æfingar.
Búist var við fjölda manns á sýningu
og fólk varað við að ferðast langar
leiðir án þess að vera búið að tryggja
sér miða.
Á tímapunkti yfir árin síðan,
lagðist áhugi fyrir leiklistinni þó niður.
Einhverjar voru þó glæðurnar því árið
2015 var leikfélagið endurvakið í
tilefni 50 ára afmælis félagsheimilisins
Borgar og heitir nú Leikfélagið Borg.
Gaman er að segja frá því að
leikfélagið í nafni Hvatar, átti
stóran þátt í að afla peninganna
sem nýttir voru til við uppbyggingu
félagsheimilisins sem nú hefur staðið
í 57 ár.
Síðan leikfélagið hóf starfsemi sína
á ný hafa verið settar upp sýningarnar
„Er á meðan er“ 2016, „Svefnlausi
brúðguminn“ 2017 og „Rjúkandi ráð“
2019. Formaður leikfélagsins, Guðný
Tómasdóttir, segir að mikil áhersla
hafi verið lögð á unglingastarf og nú
sé kominn inn sterkur og áhugasamur
unglingahópur. Leikfélagið Borg tekur
einnig alltaf þátt í Grímsævintýrum
– skemmtun sem haldin er árlega
á Borg í Grímsnesi helgina eftir
verslunarmannahelgi. Þar er flutt
lítið leikrit tengt ævintýrunum auk
þess sem prinsessurnar í þeim eru
duglegar við að heilsa upp á gesti.
Leikarahópurinn hefur verið oftast
um 10-15 auk aðstoðarfólks sem er
ómissandi partur af þessu.
Jónas Jónasson í hlutverki
leikstjóra
Leikdeild Ungmennafélags Biskups-
tungna í Reykholti var að sama skapi
endurvakin eftir einhvern dvala,
árið 1991, og frumsýndi íslenska
gamanleikinn „Gripið í tómt“ eftir
Pétur Eggerz, sem einnig leikstýrði
verkinu. Hafa síðan þá verið regluleg
sýningahöld öðrum til ánægju.
Fyrst heyrist þó af leiklistartalent-
um félagsins í ársbyrjun 1966 þar
sem formaður var Björn Sigurðsson,
bóndi í Úthlíð. Þá höfðu staðið yfir
þriggja mánaða æfingar ameríska
gamanleiksins „Er á meðan er“ í
þýðingu Sverris Thoroddsen, eftir
þá Moss Hart og George Kaufmann.
Frumsýningin var í
félagsheimilinu Aratungu og var
leikstjóri hinn kunni útvarpsmaður
Jónas Jónasson, en hann hlaut mikið
lof og skv. blaðagrein Tímans þann
18. janúar sama árs kemur fram að
blaðamanni þykir mikið til koma.
„Efalaust er hlutur leikstjórans
þó stærstur. Honum hefur tekizt, að
byggja upp undragóða heildarmynd
úr þeim efnivið, sem ekki er á allra
meðfæri að fága svo vel, sem hér
var gert. Án fórnfýsi fólksins, áhuga
þess og félagsþroska hefði honum
þó ekki tekizt, að byggja upp jafn
eftirminnilega sýningu og raun
varð á og halda hinum þrjú til
fjögur hundruð áhorfendum, sem
á frumsýningunni voru í vaxandi
spennu allt frá því tjaldið var fyrst
dregið frá, og þar til afi gamli talaði
við drottin sinn í leikslok, þremur
klukkustundum síðar.“
Leiktjöld sýningarinnar voru í
höndum Jóns Dalman og Eiríkur
Sveinsson var Ijósameistari og
leiksviðsstjóri Þorfinnur Þórarinsson.
Alls unnu um 30 manns að sýningunni
en hlutverk í leikritinu sjálfu eru 19
talsins.
Ef væri ég gullfiskur
En aftur til nútímans. Frá þurfti að
hverfa, eftir nokkrar sýningar leikfé-
lags Borgar á síðasta ári – vegna far-
aldurs Covid – en nú hefur Leikdeild
Ungmennafélags Biskupstungna
tekið upp þráðinn og æfir í félags-
heimili Aratungu eins og enginn sé
morgundagurinn.
Um er að ræða uppsetningu á
verkinu „Ef væri ég gullfiskur“ sem
er spéfarsi eftir Árna Ibsen og mikil
tilhlökkun í leikendum að sýna sig
og sjá aðra.
Áætluð sýning er þó ekki fyrr en
nær dregur aprílmánuði, en aðstand-
endur og leikarar gefa sig alla þessa
dagana við æfingar og utanum-
hald. Gott er að fylgjast með hér
í Bændablaðinu er sýningar verða
auglýstar. /SP
byko.is
YLEININGAR ERU LÉTTAR STÁL-
KLÆDDAR SAMLOKUEININGAR
SEM FÁST MEÐ ÞÉTTIFRAUÐS-
EÐA STEINULLARKJARNA.
Einingarnar eru sterkar og burðarmiklar og
fást með mismunandi yfirborði og litum að
eigin vali. Helstu kostir þess að nota samloku-
einingar er auðveld og fljót uppsetning, auðveld
þrif, mikil burðargeta, mikið einangrunargildi og er
ódýr kostur ef miðað er við hefðbundnar lausnir.
Yleiningar henta vel fyrir eldri gripahús þar sem
skipta þarf út þak- og eða veggjaklæðningum.
BALEX yleiningar eru framleiddar undir
ströngu eftirliti samkvæmt viðurkenndum
evrópskum stöðlum.
Hafðu samband: bondi@byko.is
YLEININGAR
Á sviðinu gerast svo töfrarnir. Samlestur gengur vel í Aratungu enda úrvals
áhugamenn þar á ferð.