Bændablaðið - 10.02.2022, Qupperneq 24

Bændablaðið - 10.02.2022, Qupperneq 24
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. febrúar 202224 ÁHUGALEIKHÚS Á ÍSLANDI √ Kardimommubær Freyvangsleikhússins verður frumsýndur þann 4. mars nk. að öllu óbreyttu. Upplýsingar um miðasölu er í síma 857-5598 en best er að fylgjast með fréttum þegar nær dregur næstu mánaðamótum. √ Þrátt fyrir óvissu vegna Covid-19 stefnir Þjóðleikhúsið á val á Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins næsta vor. Þjóðleikhúsið hefur verið í samstarfi við Bandalagið í tæpa þrjá áratugi með vali á leiksýningu úr smiðju áhugaleikfélaganna sem sérstaka athygli vekur. Í kjölfarið hefur viðkomandi félagi verið boðið að sýna í Þjóðleikhúsinu. Covid-19 hefur komið í veg fyrir valið síðastliðin tvö ár en að óbreyttu er stefnt á að velja sýningu á vori komanda. Að þessu sinni verður hægt að sækja um fyrir sýningar sem frumsýndar voru leikárin 2020-21 og 2021-22 fram til loka umsóknarfrests sem er 20. apríl 2022. Sótt er um á Leiklistar- vefnum. Dómnefnd á vegum Þjóðleikhússins mun velja þá sýningu sem nefndin telur sérstaklega athyglinnar virði og verður valið samkvæmt venju tilkynnt á aðalfundi BÍL sem verður haldinn í byrjun maí. Umsóknarform fyrir Athyglisverðustu áhugaleiksýningu ársins 2022 er tiltækt þegar félag skráir sig inn á vef bandalagsins, www.leiklist.is. Hvað er í gangi?! Leikfélög Grímsness og Biskupstungna skiptast á sýningarárum: Borg & Reykholt Þarna hafði leikstjórinn nýverið kennt mannskapnum að kýla hvert annað ...sviðið í Aratungu Myndir / Aðsendar Nágrannasveitarfélögin Borg í Grímsnesi og Reykholt í Biskupstungum hafa haldið þeim vana síðastliðin ár að skiptast á uppsetningum sýninga. Sýnt er við góðar undirtektir er birta fer af degi, oftast á bilinu febrúar, mars. Grímsnesingar voru meðal annars í fréttum Morgunblaðsins í árslok 1966, en þá höfðu félagsmenn Ungmennafélagsins Hvöt staðið í æfingum á leikritinu Maður og kona eftir Jón Thoroddsen. Alls átján manns voru í sýningunni og var mikil harka og kraftur í leikhópnum, en samkvæmt fréttinni lögðu sumir á sig margra km ferðalag til þess að mæta á æfingar. Búist var við fjölda manns á sýningu og fólk varað við að ferðast langar leiðir án þess að vera búið að tryggja sér miða. Á tímapunkti yfir árin síðan, lagðist áhugi fyrir leiklistinni þó niður. Einhverjar voru þó glæðurnar því árið 2015 var leikfélagið endurvakið í tilefni 50 ára afmælis félagsheimilisins Borgar og heitir nú Leikfélagið Borg. Gaman er að segja frá því að leikfélagið í nafni Hvatar, átti stóran þátt í að afla peninganna sem nýttir voru til við uppbyggingu félagsheimilisins sem nú hefur staðið í 57 ár. Síðan leikfélagið hóf starfsemi sína á ný hafa verið settar upp sýningarnar „Er á meðan er“ 2016, „Svefnlausi brúðguminn“ 2017 og „Rjúkandi ráð“ 2019. Formaður leikfélagsins, Guðný Tómasdóttir, segir að mikil áhersla hafi verið lögð á unglingastarf og nú sé kominn inn sterkur og áhugasamur unglingahópur. Leikfélagið Borg tekur einnig alltaf þátt í Grímsævintýrum – skemmtun sem haldin er árlega á Borg í Grímsnesi helgina eftir verslunarmannahelgi. Þar er flutt lítið leikrit tengt ævintýrunum auk þess sem prinsessurnar í þeim eru duglegar við að heilsa upp á gesti. Leikarahópurinn hefur verið oftast um 10-15 auk aðstoðarfólks sem er ómissandi partur af þessu. Jónas Jónasson í hlutverki leikstjóra Leikdeild Ungmennafélags Biskups- tungna í Reykholti var að sama skapi endurvakin eftir einhvern dvala, árið 1991, og frumsýndi íslenska gamanleikinn „Gripið í tómt“ eftir Pétur Eggerz, sem einnig leikstýrði verkinu. Hafa síðan þá verið regluleg sýningahöld öðrum til ánægju. Fyrst heyrist þó af leiklistartalent- um félagsins í ársbyrjun 1966 þar sem formaður var Björn Sigurðsson, bóndi í Úthlíð. Þá höfðu staðið yfir þriggja mánaða æfingar ameríska gamanleiksins „Er á meðan er“ í þýðingu Sverris Thoroddsen, eftir þá Moss Hart og George Kaufmann. Frumsýningin var í félagsheimilinu Aratungu og var leikstjóri hinn kunni útvarpsmaður Jónas Jónasson, en hann hlaut mikið lof og skv. blaðagrein Tímans þann 18. janúar sama árs kemur fram að blaðamanni þykir mikið til koma. „Efalaust er hlutur leikstjórans þó stærstur. Honum hefur tekizt, að byggja upp undragóða heildarmynd úr þeim efnivið, sem ekki er á allra meðfæri að fága svo vel, sem hér var gert. Án fórnfýsi fólksins, áhuga þess og félagsþroska hefði honum þó ekki tekizt, að byggja upp jafn eftirminnilega sýningu og raun varð á og halda hinum þrjú til fjögur hundruð áhorfendum, sem á frumsýningunni voru í vaxandi spennu allt frá því tjaldið var fyrst dregið frá, og þar til afi gamli talaði við drottin sinn í leikslok, þremur klukkustundum síðar.“ Leiktjöld sýningarinnar voru í höndum Jóns Dalman og Eiríkur Sveinsson var Ijósameistari og leiksviðsstjóri Þorfinnur Þórarinsson. Alls unnu um 30 manns að sýningunni en hlutverk í leikritinu sjálfu eru 19 talsins. Ef væri ég gullfiskur En aftur til nútímans. Frá þurfti að hverfa, eftir nokkrar sýningar leikfé- lags Borgar á síðasta ári – vegna far- aldurs Covid – en nú hefur Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna tekið upp þráðinn og æfir í félags- heimili Aratungu eins og enginn sé morgundagurinn. Um er að ræða uppsetningu á verkinu „Ef væri ég gullfiskur“ sem er spéfarsi eftir Árna Ibsen og mikil tilhlökkun í leikendum að sýna sig og sjá aðra. Áætluð sýning er þó ekki fyrr en nær dregur aprílmánuði, en aðstand- endur og leikarar gefa sig alla þessa dagana við æfingar og utanum- hald. Gott er að fylgjast með hér í Bændablaðinu er sýningar verða auglýstar. /SP byko.is YLEININGAR ERU LÉTTAR STÁL- KLÆDDAR SAMLOKUEININGAR SEM FÁST MEÐ ÞÉTTIFRAUÐS- EÐA STEINULLARKJARNA. Einingarnar eru sterkar og burðarmiklar og fást með mismunandi yfirborði og litum að eigin vali. Helstu kostir þess að nota samloku- einingar er auðveld og fljót uppsetning, auðveld þrif, mikil burðargeta, mikið einangrunargildi og er ódýr kostur ef miðað er við hefðbundnar lausnir. Yleiningar henta vel fyrir eldri gripahús þar sem skipta þarf út þak- og eða veggjaklæðningum. BALEX yleiningar eru framleiddar undir ströngu eftirliti samkvæmt viðurkenndum evrópskum stöðlum. Hafðu samband: bondi@byko.is YLEININGAR Á sviðinu gerast svo töfrarnir. Samlestur gengur vel í Aratungu enda úrvals áhugamenn þar á ferð.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.