Bændablaðið - 10.02.2022, Qupperneq 57
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. febrúar 2022 57
Hér er uppskrift að barnateppinu
Jörð úr smiðju Ingibjargar
Sveinsdóttur.
Stærð: 65 x 65 cm eftir strekkingu
Garn: Dís frá Uppspuna, 100% íslensk ull (í 100 g
eru 440 m). Grunnlitur: 75 g Litur á
kanti: 55 g
Prjónar: 80 cm hringprjónn nr. 3,5.
Prjónafesta í mynstri á miðju teppis: 22 L x 26
umf gera 10x10 cm.
Byrjað er á því að prjóna miðju teppisins, fram
og til baka. Síðan er prjónaður kantur utan um
allt teppið. Lesið alla uppskriftina áður en byrjað
er að prjóna.
Skýringar:
S prjónið slétt
B prjónið brugðið
Y slá uppá
Uppfit
Fitjið upp 101 L með grunnlit.
Miðja
Prjónað með grunnlit. Prjónað er fram og til baka
þar til stykkið er u.þ.b. ferhyrnt eða ca 45 cm.
Síðasta umferð er á réttunni.
Umf 1 og 3 réttan. Prjónið slétt. Umf 2 rangan. 1S
*(3Bs, Y, 1B), 1S*.
Umf 4 rangan. 1S, 1B, 1S (3Bs, Y, 1B), 1S*, 1B, 1S.
Skýringar: 3Bs, Y, 1B, í sömu lykkju = Þrjár
lykkjur prjónaðar brugnar saman og búnar til þrjár
nýjar um leið. Aðferðin er eftirfarandi: Prjónið
3 lykkjur brugnar saman en hafið þær áfram á
vinstri prjóni, sláið uppá, prjónið síðan þessar 3
lykkjur brugnar saman aftur og sleppið upphaflegu
lykkjunum af vinstri prjóninum. (Video á youtube,
leitið að Daisy stitch).
Umf 1 og 3 réttan. Prjónið slétt. Umf 2 rangan. 1S,
*(3Bs, Y, 1B), 1S*.
Umf 4 rangan. 1S, 1B, 1S, *(3Bs, Y, 1B), 1S*, 1B, 1S.
Taka upp lykkjur á hliðum
Haldið áfram með grunnlit. Byrjið á því að auka
út um 1L í enda prjónsins. Setjið prjónamerki.
Takið því næst upp 102 L á hverri hlið og setjið
prjónamerki á öll horn. Alls eru 408 L á
prjóninum. Prjónið eina umferð
slétt.
Kantur
Prjónað með lit fyrir kantinn.
Önnur hver umferð (sléttar
tölur) er prjónuð slétt.
Affelling
Fellt er af með tveimur
þráðum af lit fyrir kantinn.
Affelling er gerð á eftir-
farandi hátt: Takið fyrstu
lykkjuna framaf eins og
hún sé prjónuð brugðin,
1S, *prjónið þessar tvær
lykkjur saman með því
að setja vinstri prjóninn
inn í lykkjurnar að fram-
anverðu og prjóna þær
saman að aftanverðu
með hægri prjóninum,
prjónið næstu lykkju*.
Endurtakið þar til allar
lykkjur hafa verið
prjónaðar saman á
þennan hátt. Slítið
bandið frá og dragið í gegnum síðustu lykkjuna.
Frágangur
Gangið frá endum, þvoið teppið í volgu vatni,
kreystið vatnið úr, leggið til þerris og teygið laus-
lega í uppgefin mál.
Fleiri uppskriftir eftir hönnuð er að finna á Ravelry:
https://www.ravelry.com/designers/ingibjorg-
sveinsdottir
Barnateppið Jörð
HANNYRÐAHORNIÐ
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
5 3 2 4
5 7 1 8
4 8 9 6
2 1 7
1 9 5 8 6 4
6 9 3
6 8 9 2
4 9 7 3
7 1 5 3
Þyngst
7 4 2
5 8 2 6
9 5 6 1
4 1 3 5
8 1
6 7 8 9
6 9 8 2
1 7 4 5
3 5 6
1 8 5 7
3 1 2
4 9
8 7 2
2 1
4 6 3
6 3
9 7 8
3 5 6 2
5 8 3 2 1
5 6
9
3 5
7 1 9
4 8
3
6 7
2 9 3 8 5
Skemmtilegast
í hringekju
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Dís
er framleidd í Uppspuna,
fjölskyldurekinni
smáspunaverksmiðju í
Lækjartúni við Þjórsárbrú.
Ullin sem notuð er í dís er
100% íslensk, er yfirleitt
alltaf af lömbum og klippt
af okkar eigin kindum.
Við einbeitum okkur að
sauðalitunum eins og
kindurnar gefa okkur, en
litum aðeins líka.
Dís má nota i margskonar
verkefni og er vinsæl í sjöl
eða fíngerðan fatnað.
Prjónastærð fer eftir
verkefninu sem hún er ætluð til.
Allt frá 1,5 mm og upp í 5,0 mm.
Dís má kaupa hjá okkur í Uppspuna, á www.uppspuni.is,
á netfanginu hulda@uppspuni.is eða í síma 846-7199
Við sendum um allt land sem og út fyrir landsteinana.
Brynhildur Katrín er fjörug hesta-
stelpa sem býr í sveit og hefur
gaman af dýrum og Youtube.
Nafn: Brynhildur Katrín Franz
dóttir.
Aldur: 6 ára.
Stjörnumerki: Ljón.
Búseta: Ölvisholt í Flóahreppi.
Skóli: Flóaskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Mér finnst skemmtileg
ast að vera í hringekju.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hestar, sérstaklega folöld.
Uppáhaldsmatur: Hakk og spagettí.
Uppáhaldshljómsveit: Billie Eilish.
Uppáhaldskvikmynd: Trolls World
Tour.
Fyrsta minning þín? Þegar ég var
2 ára að hoppa í fangið á mömmu í
sófanum.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Nei, en mér finnst gaman
að hlaupa og mig langar að læra á
gítar.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Lögga.
Hvað er það klikkaðasta sem
þú hefur gert? Að fara í FlyOver
Iceland.
Gerðir þú eitthvað skemmtilegt í
sumar? Fór í rússíbana.
Næst » Ég skora á Óla frænda minn
að svara næst.