Bændablaðið - 10.03.2022, Síða 27
Bændablaðið | Fimmtudagur 10. mars 2022 27
Aflvélar ehf. sérhæfir sig í sölu
á tækjabúnaði fyrir sveitarfélög,
verktaka, bændur, flugvelli og
vegagerð. Guðlaugur Eggertsson
sölumaður kynnti fulltrúum á
Búgreinaþingi hvað fyrirtækið
hefði upp á að bjóða.
Aflvélar bjóða m.a. upp á hinar
vinsælu Valtra dráttarvélar og ýmis
heyvinnutæki og annan búnað fyrir
verktaka og bændur frá Pronar og
fleiri fyrirtækjum.
Guðlaugur sagði að ástandið
úti í heimi af völdum Covid-
19, stórhækkanir á orkuverði
og nú síðast stríðið í Úkraínu
væri að hafa margvísleg áhrif á
framleiðendur vegna samdráttar í
íhlutaframleiðslu. Samt hafi gengið
ágætlega hjá þeim í Aflvélum að
útvega tæki, enda hafi þeir pantað
tímanlega.
„Þetta er mismunandi eftir
framleiðendum, sumir eru með mjög
langa biðlista,“ segir Guðlaugur.
Búvélar á Selfossi með Massey
Ferguson umboðið
Aflvélar ehf. í Garðabæ keyptu í
byrjun apríl 2020 þrotabú Jötunn
véla ehf. á Selfossi sem var m.a.
með umboð fyrir Massey Ferguson
dráttarvélar og tæki. Er það umboð
nú undir nafninu Búvélar.
Búvélar á Selfossi er sérhæft
sölu- og þjónustufyrirtæki á ýmsum
búnaði. Ívar Freyr Hafsteinsson var
mættur á Búgreinaþing til að sýna
bændum hvað fyrirtækið gæti boðið
þeim upp á. Ívar sagði vélasölu
ganga ágætlega miðað við árstíma,
en vissulega fyndu þeir fyrir því
að stórhækkun áburðarverðs tæki
í reksturinn hjá bændum. Þeir væru
því eðlilega meira hikandi en áður í
að fjárfesta í vélbúnaði.
Búvélar ehf. tóku við umboði
fyrir Massey Ferguson á Íslandi
í sumarbyrjun 2020. Fyrirtækið
sérhæfir sig í sölu og þjónustu við
Massey Ferguson dráttarvélar og
hefur auk þess hafið innflutning á
öðrum tækjum frá Massey Ferguson,
s.s. heyvinnutækjum o.fl. enda mikið
úrval af gæðatækjum í boði frá þessum
heimsþekkta framleiðanda. /HKr
FAGRÁÐSTEFNA SKÓGRÆKTAR 2022:
Fagráðstefna skógræktar er í samvinnu Skógræktarinnar, Landbúnaðarháskóla Íslands, Skógræktarfélags Íslands, Skógfræðingafélags Íslands og Bændasamtaka Íslands
Skógrækt 2030 – Ábyrg græn framtíð
HÓTEL GEYSI HAUKADAL 29.-30. MARS
DAGSKRÁ
SKRÁNING OG NÁNARI UPPLÝSINGAR
• Skógræktarstefna til 2030
• Kolefnisbinding, ný markmið,
tækifæri og vottun
• Viðarafurðir
• Fjölbreytt dagskrá með erindum
og veggspjöldum um skógrækt,
skógarnytjar, nýjustu rannsóknir
og margt eira
29.
mars
30.
mars
skogur.is/fagradstefna2022
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Fagráðstefna skógræktar 2022 - auglýsing bbl.pdf 1 2.3.2022 15:17:09
Aflvélar og Búvélar:
Bjóða upp á hinar þekktu dráttarvélar
frá Valtra og Massey Ferguson
Guðlaugur Eggertsson, sölumaður hjá Aflvélum og Ívar Freyr Hafsteinsson
hjá Búvélum á Selfossi.
BÚGREINAÞING 2022
Næsta blað kemur út 24. mars