Bændablaðið - 12.05.2022, Blaðsíða 1
288
9. tölublað 2022 ▯ Fimmtudagur 12. maí ▯ Blað nr. 610 ▯ 28. árg. ▯ Upplag 32.000 ▯ Vefur: bbl.is
Í erindi sem hún hélt á Búnaðarþingi veitti Bóel Anna Þórisdóttir innsýn inn í starfsemi blóðmerabúskapar, sem hún hefur stundað í 24 ár til hliðar við
mjólkuframleiðslu og fleira. Bændablaðið heimsótti Móeiðarhvol 2 og fékk að kynnast búrekstrinum en þar er myndarlegt fjós með 130 kúm og úti fyrir
voru 90 hryssur sem nýttar eru til blóðtöku. Hundurinn Tumi vildi vera með á mynd. – Sjá nánar á bls. 36–37. Mynd / Guðrún Hulda Pálsdóttir
Heildarfjöldi búfjár í landinu árið 2021 taldist vera 1.236.267 fjórfætlingar og fiðurfé:
Talning á hrossum er enn í ólestri
og möguleg skekkja 15.431 hross
Heildarfjöldi búfjár í landinu um
áramót 2021 var 1.236.267 dýr.
Inni í þeirri tölu er nautgripa
stofninn, sem taldi 80.563 gripi,
sauðfjárstofninn með 385.194
vetrarfóðrað fé og svínastofninn
með 10.166 gyltur og gelti. Þá
eru tvær tölur gefnar upp um
hrossastofninn, annars vegar
54.069 og hins vegar áætluð tala
upp á 69.500 hross.
Sauðfé heldur áfram að fækka í
landinu, samkvæmt fyrirliggjandi
tölum taldist ásett fé um síðustu
áramót vera 385.194. Hefur sauðfé
ekki verið færra á Íslandi í 161
ár, eða síðan 1861 þegar talsverð
fækkun varð vegna fjárkláða og
stofninn fór þá niður í 327.000.
Í öðrum búfjárstofnum hafa ekki
orðið miklar sveiflur ef alifuglar eru
undanskildir þar sem varð gríðarleg
aukning 2016, en síðan fækkun á
milli áranna 2019 og 2020 upp á
153.327 fug la.
Eins hefur orðið mikill niður
skurður í minkastofninum á síðustu
tveimur árum.
Tölur um hrossaeign landsmanna
enn í mikilli óvissu
Tölur um hross landsmanna hafa
verið mjög á reiki síðan talning
forðagæslumanna var aflögð fyrir
nokkrum árum. Á árunum 1990 til
2009 fór fjöldi hrossa aldrei undir 70
þúsund undir vökulum augu þeirra.
Flest voru þau talin árið 1996, eða
80.595. Árið 2009 var fjöldinn
talinn vera 77.291 hross, en hrundi
skyndilega niður í 55.781 árið 2010
af einhverjum undarlegum ástæðum.
Ekki kom það samt fram í aukningu
á hrossakjöti á markaðnum þótt þeim
fækkaði skyndilega um 21.510 hross.
Mikið misræmi kom líka fram í
tölum um hrossafjöldann árið 2013
þegar Hagstofa Íslands sagði hrossin
vera 72.626, en Búnaðarstofa Mast,
sem þá hafði tekið við yfirumsjón
með talningunni, sagði þau vera
53.021. Bent var á þetta misræmi í
Bændablaðinu í sumarbyrjun 2014
og vísaði Mast þá til ófullnægjandi
skila á haustskýrslum og minni
eftirfylgni með skilum á tölum
sem forðagæslumenn höfðu áður
sinnt. Allar götur síðan hefur ekki
tekist að fá áreiðanlegar tölur um
hrossastofninn í landinu.
Skekkja upp á 15.431 hross!
Hross voru á síðasta ári 54.069
sam kvæmt samantekt matvæla
ráðun eytisins, sem nú heldur utan
um þessi gögn. Óvissan um rétta
talningu er hins vegar enn gríðarleg
og gefur ráðuneytið sjálft því líka
upp áætlaðan fjölda hrossa á árinu
2021, eða 69.500 hross. Þarna munar
15.431 hrossi sem hlýtur að teljast
algjörlega óviðunandi niðurstaða.
Alifuglarækt hefur lengst af á
síðustu 40 árum verið umfangsminni
en sauðfjárræktin. Árið 1981
voru hér samkvæmt Mælaborði
landbúnaðarins 416.799 varphænsni
og holdahænsni samanlagt. Auk þess
voru 1.363 endur. Alifuglarækt fór
vaxandi til 1985 þegar stofninn taldist
vera 584.904 fuglar. Þá var sauðfé til
samanburðar 710.190. Nú er stofninn
sagður 689.616, en sauðfjárstofninn
kominn niður í 385.194. Var sauð
fjárstofninn því í fjölda um síðustu
áramót kominn niður í tæplega 56%
af alifuglastofninum.
Alifuglaræktin
var í mestri lægð 2001
Frá 1985 til 2001 fór alifuglarækt
hrakandi þó með tveim uppsveiflum,
þ.e. 1990 og 1999, en var samt langt
undir sauðfjárfjöldanum. Neðst fór
alifuglaræktin í 207.102 fugla á árinu
2001, en fór síðan hratt stígandi fram
til 2007 þegar alifuglaræktin fór í
fyrsta sinn fram úr sauðfjárræktinni.
Þá töldust alifuglar í landinu vera
469.682, en sauðfé 456.007. Eftir
þetta varð hökt á alifuglaræktinni
fram til 2015 þegar stofninn taldist
vera 249.044 fuglar.
Á árinu 2016 varð gríðarlegt
stökk og á einu ári stækkaði alifugla
stofninn um 793.424 fugla og fór
upp í 1.042.468. Þetta er aukning
upp á rúm 318,5%. Það sama ár
talist sauðfjárstofninn vera 476.647
skepnur.
Um síðustu áramót taldist alifugla
stofninn í heild vera 689.616. Það
er veruleg fækkun frá árinu 2020,
þegar alifuglastofninn var talinn vera
842.943 fuglar.
Það eru varphænsni eldri en 5
mánaða, holdahænsni eldri en 5
mánaða, lífungar yngri en 5 mánaða,
kjúklingar, endur, gæsir, kalkúnar og
aðrir alifuglar. Erfitt er þó að henda
nákvæmar reiður á fjöldann, sem
er mjög breytilegur innan ársins og
innan mánaða vegna hraðs vaxtar og
örrar slátrunar.
Varphænum fækkar um helming
Athyglisvert er að varphænsnum
hefur fækkað um rúmlega helming
á milli ára, eða úr 203.643 í 100.565
fugla. Þær voru hins vegar 231.901
árið 2018.
Holdahænsni töldust vera 44.813
um síðustu áramót og fjölgaði um
7.603 fugla milli ára. Vantar samt
talsvert upp á að þær nái fjöldanum
2019 þegar þær voru 61.974. /HKr.
– Sjá nánar á bls. 2
Kolvetnissnauðu
Queen Anne
kartöflurnar fá
góðar viðtökur
Kúabændur misvel í stakk
búnir til að bregðast við
versnandi rekstrarhorfum
Efri Fitjar í Fitjárdal:
Þar sem sólin skín í sinni
30–31
Góð grásleppuveiði
en verð er of lágt
Veiðar á grásleppu hafa gengið
þokkalega það sem af er yfir
standandi vertíð. Alls fengu
134 bátar leyfi til veiðanna í þá
25 daga sem hverjum báti er
úthlutað.
Örn Pálsson, framkvæmdastjóri
Landssambands smábátaeigenda,
segir að allmargir bátar hafi lokið
veiðum og að nýir séu að detta inn.
„Aflinn það sem af er hefur
verið góður en samt minni en á
sama tíma á síðasta ári.
Verð fyrir aflann hefur hækkað
um fjórðung en er samt of lágt
miðað við kostnað við veiðarnar.
Annað sem er áhugavert er að verð
á grásleppuhrognum er lágt miðað
við verð sem er að fást fyrir annars
konar hrogn sem er í hámarki um
þessar mundir.“
Veðrið hefur verið grásleppu
sjómönnum skaplegt og einn bátur
búinn að landa um 60 tonnum, sem
er mjög góður afli, en meðaltal
á bát það sem af er vertíðinni er
um 22 tonn en var um 37 tonn í
fyrra, sem helgast meðal annars
af því að dögunum var fækkað
úr 30 í 25.
Að sögn Arnar hefur ekki tekist
að selja grásleppuhveljur til Kína á
þessu ári og fer hún í bræðslu. /VH