Bændablaðið - 12.05.2022, Blaðsíða 32

Bændablaðið - 12.05.2022, Blaðsíða 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 202232 Embætti landlæknis og Rann­ sókna stofa í næringarfræði við Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands kynntu þann 10. mars síðastliðinn niðurstöður könn­ unar um mataræði Íslend inga sem gerð var á árunum 2019­ 2021. Þar kemur fram að neysla flestra vítamína og stein efna er að meðaltali yfir ráðlögð­ um dagskammti (RDS), nema á D­vítamíni, fólati og joði. Ýmsir hafa verið að benda á að sökum sólarleysis hér á norðurslóðum þjáðust Íslendingar af of litlu D-vítamíni, sem orsakaði margvíslega kvilla sem auðveldlega mætti koma í veg fyrir með inntöku á D-vítamíni og lækka um leið álag og kostnað á íslenska heilbrigðiskerfinu. Þó varað sé við að taka hástemmdar fullyrðingar um þessa hluti sem heilögum sannleik, er samt varla skynsamlegt að hundsa algerlega jákvæða reynslu leikmanna og hámenntaðra sérfræðinga um áhrif af inntöku D-vítamíns. Lítil áhersla virðist lögð á það sem virðist augljós lausn Þekkt er að sólarlandaferðir hafi góð áhrif á marga sem þjást hafa af ýmiss konar sjúkdómum eins og sóreasis (Psoriasis) húðsjúkdóma, gigt og sleni. Þá hefur D-vítamín áhrif á heilsu beina og tanna, vöðva og ónæmiskerfis. Athyglisvert er í því samhengi að velta því fyrir sér af hverju heilbrigðisyfirvöld hafi ekki lagt mun meiri áherslu á inntöku D-vítamíns fremur en að benda fólki á margvíslega rándýra lyfjakúra, t.d. við húðsjúkdómum, með afar takmörkuðum árangri. Fituleysandi hormón Þó talað sé um D-vítamín, þá er það í raun ekki vítamín heldur hópur fituleysanlegra hormóna, eða pre-hormón (secosteroid), sem ber ábyrgð á því að auka upptöku kalsíums, magnesíums og fosfats í þörmum ásamt mörgum öðrum líffræðilegum áhrifum. Mest áríðandi er D3-vítamín sem líka er þekkt sem cholecalciferol, en D2 er nefnt ergocalciferol. Líkaminn getur framleitt D-vítamín með hjálp sólarinnar. Þá eru það aðeins útfjólubláir geislar á bylgjulengdinni 290-315 nm (nanómetrar) sem duga til að framleiða það. Talið er líklegt að 40-75% jarðarbúa búi við skort á D-vítamíni. Samband er á milli D-vítamíns í blóði og sjálfvakinna sega mynd- unar í neðri hluta bláæðanna, eða blóðtappa, að því er fram kemur í gögnum National Institutes of Health í Bandaríkjum. Rannsókn sem þar er vitnað í sýnir að skortur á D-vítamíni getur aukið líkur á blóðtappamyndun. Staðan versnar og vaxandi skortur er á D-vítamíni hjá Íslendingum Samkvæmt niðurstöðum lands- könnunar á mataræði Íslendinga frá 2010-2011 var meðalneysla D-vítamíns hjá fullorðnum 8,1 µg/dag úr fæðu og lýsi samanlagt en ekki var reiknað með hve mikið D-vítamín kom úr öðrum fæðubótarefnum. Í rannsókninni sem kynnt var 14. mars hefur staðan hins vegar versnað talsvert og má eflaust fullyrða að hún sé orðin talsvert alvarleg. Þar segir: • Meðalneysla á D-vítamíni úr fæðu er tæplega 5 µg/dag. • Meðalneysla úr fæðu að viðbættum bætiefnum er að meðaltali 21 µg/dag. • 75% karla og 65% kvenna í yngsta aldurshópnum ná ekki RDS. • 50% í hinum aldurshópunum ná ekki RDS. • Meðalneysla úr fæðu að viðbættum bætiefnum er að meðaltali 21 µg/dag. Um 17% kvenna og þriðjungur karla fengu sem svarar ráðlögðum dagskammti eða meira af D-vítamíni. Í könnuninni sást að konur tóku síður lýsi og borðuðu minna af fiski. Fjórðungur kvenna og 8% karla náðu ekki lágmarksþörf fyrir vítamínið, sem er 2,5 µg/dag. Þeir hópar sem sögðust aldrei taka lýsi fengu að jafnaði um 4–5 µg/ dag af D-vítamíni. D-vítamín og fólat Í skýrslunni er D-vítamíns og fólats fyrir konur á barneignaraldri getið sérstaklega, en þar segir m.a.: „Þetta eru einu næringarefnin sem ráðlagt er að taka sem fæðubótarefni en öllum er ráðlagt að taka D-vítamín (lýsi, perlur, töflur eða úða) og konum á barneignaraldri er ráðlagt að taka fólat.“ • Meðalneysla á fólati er undir ráðleggingum, sérstaklega meðal kvenna. • 30% kvenna á barneignaraldri ná RDS þegar reiknað með fæðubótarefnum. • Einungis 12% þeirra taka fólat sem fæðubótarefni eins og ráðlagt er. Segir hægt að fækka dauðsföllum og spara heilbrigðiskerfinu milljarða með auknu D-vítamíni Höskuldur Dungal er einn þeirra sem mikið hefur velt fyrir sér áhrifum D-vítamíns á líkamann. Fór hann að kynna sér þessi mál og hefur viðað að sér gríðarlegu magni upplýsinga og rannsókna um áhrif D-vítamíns á líkamann og m.a. kynnt sér nýjustu rannsóknir þekktra vísindamanna. Hann telur að ef niðurstöður rannsókna á D-vítamínskorti Bandaríkjamanna væru yfirfærðar á Íslendinga, með námundun, mætti áætla að það sparaði íslenska heilbrigðiskerfinu 13 milljarða á ári. Ótímabærum dauðsföllum myndi fækka um 330 á ári með því að almenningur hafi nóg af D-vítamíni, eða a.m.k. 100 nmól/L, eða 100- 150 nmól/L. Í sambandi við fjölmarga vísindamenn Höskuldur sagði í samtali við Bændablaðið að hann hafi byrjað á að kynna sér rannsóknir sem hann fann á netinu á D-vítamíni. Í framhaldinu komst hann í samband við helstu sérfræðinga heims á þessu sviði. Þar má nefna Michael Holick, prófessor við Boston háskóla, sem hefur rannsakað D-vítamín í meira er 40 ár. Einnig Cedric Garland, prófessor við háskóla í San Diego í Kaliforníu, sem hefur mikla reynslu á þessu sviði, Bruce Hollis (Ph.D), prófessor í barnalækningum við Lyflækningaháskólann í Suður- Karólínu, Carole Baggerly, stofnanda og framkvæmdastjóra „Grassrootshealth“ og dr. John Cannell, stofnanda „Vitamin D Council“, sem er mjög þekktur í Bandaríkjunum af baráttu sinni gegn reykingum. Var vísað á tjörukrem, steralyf og sól en ekki D-vítamín „Það vill svo til að einstaklingur sem ég þekki mjög vel, hefur verið með psoriasis á báðum olnbogum og hársverði í áratugi. Aldrei hefur læknir ávísað D-vítamíni til þessa einstaklings til að meðhöndla sjúkdóm hans. Hins vegar fékk hann alls konar sterakrem o.fl. en aldrei D-vítamín. Ljóst hefur þó verið að læknarnir hafa mælt með sólböðum og sólarlandaferðum. Þeim var ljóst að sól hafði góð áhrif á sjúkdóminn. Það er eins og þeir hafi ekki getað tengt þetta saman – þ.e.a.s. það eina sem gerðist var að líkaminn / húðin framleiddi D-vítamín með hjálp útfjólublárra geisla sólarinnar. Þessi einstaklingur fór að taka um 10.000 i.u. af D-vítamíni á dag og psoriasis hvarf. Hvers vegna gaf læknirinn ekki honum D-vítamín þar eð hann mælti með sól? Lyf sem verið er að ávísa fólki til að meðhöndla sóreasis eru í sumum tilvikum allavega að kosta ríkið um eða yfir eina milljón á ári. Hins vegar má gera ráð fyrir að kostnaður sjúklings sé lítill því ríkið niðurgreiðir það að mestu. Með því að taka D-vítamín myndi ársskammtur af því líklega kosta innan við 5.000 krónur án niðurgreiðslu,“ segir Höskuldur. Segist sleginn yfir þekkingarskorti hámenntaðra lækna „Eftir að ég fór að kynna mér þessi mál betur komst ég að því að þekkingarskorturinn í heilbrigðis- kerfinu á áhrifum D-vítamíns er gríðarlegur. Ég var með dóttur mína uppi á Borgarspítala á árinu 2017 og við vorum eitthvað að ræða við lækni almennt um vítamín. Þetta var heila- og taugaskurðlæknir. Hann segir við okkur: Vitið þið hvað? Hvað meinarðu? segi ég. – Já, vitið þið hvað? segir læknirinn. – Ég var allur í vöðvastrengjum og verkjum um allan líkamann. Þá segir kollegi minn við mig; heldur þú að þig vanti bara ekki D-vítamín? – Síðan segir læknirinn við okkur að hann hafi í framhaldinu farið að taka D-vítamín og losnað við alla strengina í líkamanum og verki í vöðvum.“ Hámenntaður læknir sem þjáðist af hörgulsjúkdómi! „Nú, við kvöddum lækninn og svo þegar ég kom heim var eins og ég hafi fengið hamar í hausinn. Ég fór að hugsa. Var þetta Raggi rakari eða Bjössi bílstjóri sem ég var að tala við rétt áðan? Nei, þetta var hámenntaður læknir sem starfaði á Landspítalanum og þjáðist af hörgulsjúkdómum vegna D-vítamínskorts. Þegar ég gerði mér grein fyrir alvarlegum þekkingarskorti þessa hámenntaða læknis fór ég á netið og leitaði mér upplýsinga. Þá var eins og ég væri aftur sleginn í hausinn með sleggju. Gat það virkilega verið rétt að læknar væru ekki betur að sér um áhrif vítamínsskorts á líkamann? Við skoðun mína á fjölda rannsókna komst ég að því að D-vítamín dró úr áhrifum 19 tegunda krabbameina. Það dregur úr líkum á að fá sykursýki eitt og tvö, einnig MS og svo framvegis. Ég varð svo gáttaður að sjá þetta.“ Núll klukkutímum varið í næringarfræði í læknadeildinni „Um einu og hálfu ári eftir þetta fór ég upp í Háskóla Íslands til að hitta þar prófessor í næringarfræði. Við spjölluðum saman í tvo klukkutíma, en þá var ég búinn að viða að mér upplýsingum og lesa um D-vítamín í meira en ár. Í miðju okkar spjalli spyr hún mig: Veistu hvað er mikil kennsla í næringarfræði í læknadeild? Nei, sagði ég, mig grunar samt að hún sé nú ekki mikil. Þá segir hún: Það eru núll klukkutímar! Ég veit allt um það, segir hún, því ég er yfir næringarfræðideildinni í Háskóla Íslands.“ Stöðugt á varðbergi gagnvart fölskum upplýsingum „Nú, ég hélt áfram að kynna mér þessi mál á netinu og var allan tímann mjög meðvitaður um að þar gæti verið aragrúi af falsupplýsingum. Alltaf leiddu upplýsingarnar mig samt að sömu prófessorunum. Þá vildi svo til að einn þeirra, Bruce Hollis, sem er prófessor í barnalækningum, kom FRÉTTASKÝRING Hörður Kristjánsson hk@bondi.is Sólarleysið plagar mörlandann samkvæmt rannsókn landlæknis og Rannsóknastofu í næringarfræði við Háskóla Íslands: Um 50–75% Íslendinga eru með of lítið af D-vítamíni í blóði – Skortur á D-vítamíni getur leitt til veikingar ónæmiskerfis og margvíslegra kvilla Höskuldur H. Dungal (t.h.) prófessor, Bruce W. Hollis, prófessor í barnalækningum við Lyflækningaháskólann í Suður-Karólínu og Debra, eiginkona hans (t.v.). Myndin var tekin 14. október 2018. Skýrsla Embættis landlæknis og Rann sókna stofa í næringarfræði við Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands, sem kynnt var 10. mars síðastliðinn, sýnir að mikill skortur er á D-vítamíni hjá Íslendingum. Michael Holick, prófessor við Boston háskóla. Cedric Garland, prófessor við háskóla í San Diego í Kaliforníu. Bruce Hollis (Ph.D), prófessor í barnalækningum við Lyflækninga- háskólann í Suður-Karólínu. Carole Baggerly, stofnandi og framkvæmdastjóri „Grassroots- health“. John Cannell, stofnandi Vitamin D Council.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.