Bændablaðið - 12.05.2022, Blaðsíða 33

Bændablaðið - 12.05.2022, Blaðsíða 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 2022 33 hingað til lands í skemmtiferð með vinum sínum 2018. Hann er búinn að stúdera D-vítamín í yfir 30 ár. Ég spyr hann hvort hann sé ekki til í að koma með mér í heimsókn til landlæknis. Eftir smá umhugsun sagðist hann hafa tíma 10. október. Það varð síðan úr að ég fór með honum á fund landlæknis þennan dag. Þar mættum við 5 fulltrúum embættisins – en landlæknir sá sér ekki fært að mæta. Prófessorinn sagði á þessum fundi að Landlæknisembættið þyrfti að leiðrétta þá ráðgjöf á sinni heimasíðu að ekki væri ráðlegt að taka meira en 600 alþjóðlegar einingar (IU) af D-vítamíni á dag. Hvað þá barnshafandi konum. Það ætti ekki að ráðleggja 600, heldur að minnsta kosti ríflega tífalt meira, eða 6.400 einingar. Málið er að ef barnshafandi konur fara að ráðleggingum Landlæknisembættisins, þá eru 76% kvenna með D-vítamínskort við fæðingu og 82% barnanna sem fæðast,“ segir Höskuldur, sem vísar í rannsóknir prófessors Michael F. Holick. Þýskir vísindamenn segja hægt að fyrirbyggja dauða vegna Covid-19 með nægu D-vítamíni Þessar niðurstöður um D-vítamín í könnun um mataræði Íslendinga eru áhugaverðar fyrir margra hluta sakir. Þekkt er að D-vítamín hefur áhrif á hæfni ónæmiskerfisins til að takast á við sýkingar og veirusjúkdóma. Í vandaðri rannsókn og ritrýndri vísindagrein þýskra vísindamanna sem gefin var út 14. október 2021 kemur fram að dánartíðni vegna Covid-19 verði nánast engin ef D3 vítamín í líkama sjúklings er nægilega hátt, eða 125 nmól/L að minnsta kosti. Þeirri stöðu er fræðilega hægt að ná samkvæmt greininni ef hlutfall D3 í blóði nær 50 nanógrömmum í millilítra blóðs (ng/ml). Þar er að sjálfsögðu miðað við stöðu fólks í Þýskalandi þar sem mun sólríkara er að jafnaði en á Íslandi. Samkvæmt þeirri rannsókn og íslensku rannsóknarinnar ættu Íslendingar að þurfa að taka inn umtalsvert af D-vítamíni til að vinna upp neikvæð áhrif sólarleysis á heilsuna. Íslenskar rannsóknir sýna lágan D-vítamín styrk Samkvæmt þýsku og íslensku rannsóknunum ættu Íslendingar að þurfa að taka inn umtalsvert af D-vítamíni til að vinna upp neikvæð áhrif sólarleysis á heilsuna. Til að ná eðlilegu D-vítamínmagni í blóði er talið að daglega þurfi að taka 6.000– 9.000 IU. Almennt eru sérfræðingar á þessu sviði sammála um að magn í blóði eigi að vera að lágmarki 100 nmól/L. Oft má sjá í dag ráðleggingar erlendra sérfræðinga að 100–200 nmól/L sé eðlilegt. Í fyrsta tölublaði Læknablaðsins 2004, (https:// www.laeknabladid.is/2004/1/ fraedigreinar/nr/1515/) kemur fram að Íslendingar voru undir skortmörkum D-vítamíns 2001- 2003 eða meðalstyrkur D-vítamíns var 46,5±20 nmól/l. Í apríl 2022 eru flestir sérfræðingar sammála um að lág- mark eigi að vera 100 nmól/ L í stað 50 áður. Ráðleggingar Landlæknis- embættisins eru samkvæmt þessu enn í dag langt undir eðlilegum mörkum. „Ráðlagðir dagskammtar Landlæknis á D-vítamíni eru hneyksli,“ segir Höskuldur. Ráðleggingar Landlæknisembættisins undir eðlilegum mörkum Ef miðað er við þessa rannsókn frá 2003 þá var D-vítamínhlutfall greinilega of lágt og er enn samkvæmt nýju rannsókninni sem birt var 10. mars 2022. Í ljósi þýsku rannsóknarinnar væri þá æskilegt lágmark 125 nmól/L en það er nálægt því meðaltali sem simpansar mælast með í náttúrunni. Í þessu samhengi er áhugavert að skoða hvað Landlæknisembættið á Íslandi ráðleggur fólki. Á vefsíðu landlaeknir.is segir: Mikil fræðileg vinna liggur að baki því að setja fram ráðleggingar um neyslu á vítamínum og steinefnum. Norrænn sérfræðihópur birti árið 2013 endurskoðaðar ráðleggingar fyrir D-vítamín (1). Í kjölfarið voru íslenskir ráðlagðir dagskammtar (RDS) fyrir D-vítamín hækkaðir úr 10 míkrógrömmum (µg) á dag í 15 µg á dag fyrir 10-70 ára. Fyrir 71 árs og eldri var RDS fyrir D-vítamín hækkaður í 20 µg á dag en fyrir ungbörn og börn 1–9 ára var RDS óbreytt eða 10 µg á dag. Ráðlagðir dagskammtar (RDS) fyrir D-vítamín á Íslandi Ungbörn* og börn 1-9 ára 10 µg (míkrógrömm) eða 400 AE (Alþjóðlegar Einingar - IU). 10 ára-70 ára 15 µg eða 600 AE. 71 árs og eldri 20 µg eða 800 AE. *Frá 1–2 vikna aldri er ráðlagt er að gefa ungbörnum D-vítamíndropa (10 μg/dag). Vanmat á áhrifum sólarleysis Ljóst er af nýju íslensku rann- sókninni að í fyrrgreindum ráðleggingum er verið að vanmeta stórlega neikvæð áhrif sólarleysis á Íslandi. Landlæknisembættið vísar í norræna sérfræðinefnd og sérfræðinefnd Institute of Medicine í Bandaríkjunum og Matvælaöryggistofnun Evrópu (European Food Safety Authority). Ráðlagðir dagskammtar (RD) hjá Landlæknisembættinu eru nákvæmlega þeir sömu og ráðlagt er af Institute of Medicine í Bandaríkjunum. Samt segir að styrkur D-vítamíns í blóði þurfi að minnsta kosti að vera 50 nmol/l (50 µg), eða sem nemur 2.000 AE. Miðað við niðurstöður rann- sóknar innar sem birt var nú í mars virðist greinilegt að íslensk heilbrigðisyfirvöld verði að taka ráðleggingar um inntöku Íslendinga á D-vítamíni til alvarlegrar endur- skoðunar. Þörf talin á margfalt meiri inntöku á D-vítamíni Fólk sem þekkir D3-vítamínglösin sem hér fást víða í matvæla- og lyfjaverslunum hafa séð á þeim standa upplýsingar um styrkleika virka efnisins, t.d. 2.000 AE. Það jafngildir 50 míkrógrömmum á millilítra (50 µg). Það er sá styrkleiki sem margir telja nauðsynlegt að innbyrða til að vega upp á móti sólarleysinu hér á landi. Hins vegar eru aðrir, eins og Bruce Hollis prófessor, sem telja æskilegt að magnið sé mun meira og óhætt að taka inn 10.000 AE daglega eða sem nemur 250 µg. Á móti því kemur að sumt fólk sem hefur tekið svo stóra skammta af D3-vítamíni telur sig upplifa þreytu og óeirð, t.d. í fótum. Ráðlegast ætti því að vera að leita upplýsinga hjá læknum ef óeðlilegra einkenna verður vart. Þá er heldur ekki hægt að mæla með að fólk sé að gera tilraunir með inntöku á bætiefnum af ýmsum toga nema að kynna sér vel áhrif þess á líkamann. Í grein eftir dr. Samantha Kimball (PhD, MLT) kemur fram að líkurnar á að deyja úr of stórum skömmtum af D-vítamíni séu 0,0000000000002%. Hún vísar í rannsókn The Pure North clinic sem tók til 44.000 einstaklinga sem tóku að jafnaði inn 6.000–15.000 IU einingar á dag í 8 ár. Höskuldur Dungal segir að ekki sé vitað til þess að nokkurn tíma hafi orðið vart við D-vítamín eitrun á Íslandi. Eituráhrif af inntöku D3-vítamíns sögð sjaldgæf Í leiðbeiningum frá Mayo Clinic í Bandaríkjunum eru eituráhrif af inntöku stórra skammta af D-vítamíni (hypervitaminosis D) sögð sjaldgæf nema slík inntaka vari í mjög langan tíma. Helsta afleiðing af eiturverkunum D-vítamíns er talin uppsöfnun kalsíums í blóðinu (hypercalcemia), sem getur valdið ógleði og uppköstum, máttleysi og tíðum þvaglátum. D-vítamín eiturverkanir gætu þróast yfir í beinverki og nýrnavandamál, svo sem myndun kalsíumsteina. Áhugavert er í þessu samhengi að lesa grein sem birtist í tímaritinu „Journal of Steroid Biochemistry and Molecular Biology“, sem birt var 4. janúar 2019. Þar segir að dagleg inn taka frá 5.000 til 50.000 IU (alþjóðlegar einingar) af D3 vítamíni virðist vera hættulausar. (https://www.sciencedirect.com / science/article/pii/S096007 60183­ 06228?via%3Dihub). Þar er einnig vísað í meðferðartilraunir á sóreasis, asma og berklum sem gerðar voru á fjórða og fimmta áratug síðustu aldar. Þar var verið að prófa daglega skammta af D-vítamíni upp á 60-300.000 IU og jafnvel mun hærri skammta í sumum tilfellum. Uppsöfnun kalsíums í blóði er sögð hafa jafnað sig á nokkrum mánuðum eftir að inntöku í 2–18 mánuði var hætt. Þess má geta að D3-vítamíntöflur sem innihalda 10.000 I.U. í hverju hylki eru seldar í Bandaríkjunum, Englandi, Þýskalandi og víðar, en ekki á Íslandi svo vitað sé. Á boxunum stendur yfirleitt að taka eigi 1 hylki á dag. Prófessor Bruce W. Hollis sagði við Höskuld 2018, þegar hann var hér á landi, að lögfræðingar væru örugglega búnir að loka öllum þeim fyrirtækjum sem framleiða D-vítamín ef ráðleggingar utan á glasinu væru rangar. Hann taldi það eina bestu sönnun þess að dagleg inntaka 10.000 IU af D-vítamíni væri með öllu hættulaus. Ráðleggingar EFSA margfalt hærri en hjá Landlæknisembættinu Svo því sé haldið til haga segir Land - læknis embættið á sinni heimasíðu að Matvæla öryggis tofnun Evrópu (EFSA) setji viðmiðunargildi fyrir efri mörk daglegrar meðalneyslu fyrir D-vítamín, þ.e. daglegrar neyslu yfir lengri tíma. Þessi mörk eru margfalt hærri en ráðlagðir dagskammtar hjá Landlæknis embættinu á Íslandi. Það er þrátt fyrir að mun sólríkara sé yfirleitt á meginlandi Evrópu. Er því í raun óskiljanlegt að mörkin séu höfð eins lág hér og raun ber vitni. Viðmiðunargildin hjá EFSA eru 100 µg á dag (4000 AE) fyrir fullorðna og börn yfir 11 ára aldri, 50 µg (2000 AE) fyrir börn eldri en eins árs að tíu ára aldri, 35 µg (1400 AE) fyrir ungbörn (6-12 mánaða) og 25 µg (1000 AE) fyrir ungbörn að hálfs árs aldri. Skammta umfram efri mörk ætti aðeins að taka í samráði við lækni. Greinilegt er af könnuninni á mataræði Íslendinga, að hækka þarf ráðlögð mörk Landlæknis- embættisins verulega. Ekki síst ef það getur orðið til þess að létta álagið á heilbrigðiskerfinu. Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is stalogstansar.is VARAHLUTIR Í KERRUR 2012 2021 D-vítamín er m.a. í feitum fiski, eggjum og mjólkurafurðum. Mynd / Unsplash Samkvæmt þessari töflu úr skýrslu Embættis landlæknis og Rann sókna stofu í næringarfræði við Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands, þá eru jafnvel efstu mörkin í D-vítamínneyslu Íslendinga allt of lág.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.