Bændablaðið - 12.05.2022, Blaðsíða 33
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 2022 33
hingað til lands í skemmtiferð með
vinum sínum 2018. Hann er búinn
að stúdera D-vítamín í yfir 30 ár.
Ég spyr hann hvort hann sé ekki til
í að koma með mér í heimsókn til
landlæknis. Eftir smá umhugsun
sagðist hann hafa tíma 10. október.
Það varð síðan úr að ég fór með
honum á fund landlæknis þennan
dag. Þar mættum við 5 fulltrúum
embættisins – en landlæknir sá sér
ekki fært að mæta.
Prófessorinn sagði á þessum
fundi að Landlæknisembættið
þyrfti að leiðrétta þá ráðgjöf á sinni
heimasíðu að ekki væri ráðlegt að
taka meira en 600 alþjóðlegar
einingar (IU) af D-vítamíni á dag.
Hvað þá barnshafandi konum. Það
ætti ekki að ráðleggja 600, heldur
að minnsta kosti ríflega tífalt
meira, eða 6.400 einingar.
Málið er að ef barnshafandi
konur fara að ráðleggingum
Landlæknisembættisins, þá eru
76% kvenna með D-vítamínskort
við fæðingu og 82% barnanna
sem fæðast,“ segir Höskuldur,
sem vísar í rannsóknir prófessors
Michael F. Holick.
Þýskir vísindamenn segja hægt
að fyrirbyggja dauða vegna
Covid-19 með nægu D-vítamíni
Þessar niðurstöður um D-vítamín í
könnun um mataræði Íslendinga eru
áhugaverðar fyrir margra hluta sakir.
Þekkt er að D-vítamín hefur áhrif á
hæfni ónæmiskerfisins til að takast
á við sýkingar og veirusjúkdóma.
Í vandaðri rannsókn og ritrýndri
vísindagrein þýskra vísindamanna
sem gefin var út 14. október 2021
kemur fram að dánartíðni vegna
Covid-19 verði nánast engin ef
D3 vítamín í líkama sjúklings er
nægilega hátt, eða 125 nmól/L að
minnsta kosti.
Þeirri stöðu er fræðilega hægt að
ná samkvæmt greininni ef hlutfall
D3 í blóði nær 50 nanógrömmum
í millilítra blóðs (ng/ml). Þar er að
sjálfsögðu miðað við stöðu fólks í
Þýskalandi þar sem mun sólríkara er
að jafnaði en á Íslandi. Samkvæmt
þeirri rannsókn og íslensku
rannsóknarinnar ættu Íslendingar
að þurfa að taka inn umtalsvert af
D-vítamíni til að vinna upp neikvæð
áhrif sólarleysis á heilsuna.
Íslenskar rannsóknir sýna lágan
D-vítamín styrk
Samkvæmt þýsku og íslensku
rannsóknunum ættu Íslendingar
að þurfa að taka inn umtalsvert af
D-vítamíni til að vinna upp neikvæð
áhrif sólarleysis á heilsuna. Til að ná
eðlilegu D-vítamínmagni í blóði er
talið að daglega þurfi að taka 6.000–
9.000 IU. Almennt eru sérfræðingar
á þessu sviði sammála um að magn
í blóði eigi að vera að lágmarki 100
nmól/L.
Oft má sjá í dag ráðleggingar
erlendra sérfræðinga að 100–200
nmól/L sé eðlilegt. Í fyrsta tölublaði
Læknablaðsins 2004, (https://
www.laeknabladid.is/2004/1/
fraedigreinar/nr/1515/) kemur
fram að Íslendingar voru undir
skortmörkum D-vítamíns 2001-
2003 eða meðalstyrkur D-vítamíns
var 46,5±20 nmól/l.
Í apríl 2022 eru flestir
sérfræðingar sammála um að lág-
mark eigi að vera 100 nmól/ L í stað
50 áður. Ráðleggingar Landlæknis-
embættisins eru samkvæmt þessu
enn í dag langt undir eðlilegum
mörkum. „Ráðlagðir dagskammtar
Landlæknis á D-vítamíni eru
hneyksli,“ segir Höskuldur.
Ráðleggingar
Landlæknisembættisins undir
eðlilegum mörkum
Ef miðað er við þessa rannsókn
frá 2003 þá var D-vítamínhlutfall
greinilega of lágt og er enn
samkvæmt nýju rannsókninni
sem birt var 10. mars 2022. Í ljósi
þýsku rannsóknarinnar væri þá
æskilegt lágmark 125 nmól/L en
það er nálægt því meðaltali sem
simpansar mælast með í náttúrunni.
Í þessu samhengi er áhugavert að
skoða hvað Landlæknisembættið á
Íslandi ráðleggur fólki. Á vefsíðu
landlaeknir.is segir:
Mikil fræðileg vinna liggur að
baki því að setja fram ráðleggingar
um neyslu á vítamínum og
steinefnum. Norrænn sérfræðihópur
birti árið 2013 endurskoðaðar
ráðleggingar fyrir D-vítamín (1).
Í kjölfarið voru íslenskir ráðlagðir
dagskammtar (RDS) fyrir D-vítamín
hækkaðir úr 10 míkrógrömmum (µg)
á dag í 15 µg á dag fyrir 10-70 ára.
Fyrir 71 árs og eldri var RDS fyrir
D-vítamín hækkaður í 20 µg á dag
en fyrir ungbörn og börn 1–9 ára
var RDS óbreytt eða 10 µg á dag.
Ráðlagðir dagskammtar (RDS)
fyrir D-vítamín á Íslandi
Ungbörn* og börn 1-9 ára 10
µg (míkrógrömm) eða 400 AE
(Alþjóðlegar Einingar - IU). 10
ára-70 ára 15 µg eða 600 AE. 71
árs og eldri 20 µg eða 800 AE.
*Frá 1–2 vikna aldri er ráðlagt er
að gefa ungbörnum D-vítamíndropa
(10 μg/dag).
Vanmat á áhrifum sólarleysis
Ljóst er af nýju íslensku rann-
sókninni að í fyrrgreindum
ráðleggingum er verið að vanmeta
stórlega neikvæð áhrif sólarleysis
á Íslandi. Landlæknisembættið
vísar í norræna sérfræðinefnd
og sérfræðinefnd Institute of
Medicine í Bandaríkjunum og
Matvælaöryggistofnun Evrópu
(European Food Safety Authority).
Ráðlagðir dagskammtar (RD)
hjá Landlæknisembættinu eru
nákvæmlega þeir sömu og ráðlagt
er af Institute of Medicine í
Bandaríkjunum.
Samt segir að styrkur D-vítamíns
í blóði þurfi að minnsta kosti að vera
50 nmol/l (50 µg), eða sem nemur
2.000 AE.
Miðað við niðurstöður rann-
sóknar innar sem birt var nú í
mars virðist greinilegt að íslensk
heilbrigðisyfirvöld verði að taka
ráðleggingar um inntöku Íslendinga
á D-vítamíni til alvarlegrar endur-
skoðunar.
Þörf talin á margfalt meiri
inntöku á D-vítamíni
Fólk sem þekkir D3-vítamínglösin
sem hér fást víða í matvæla- og
lyfjaverslunum hafa séð á þeim
standa upplýsingar um styrkleika
virka efnisins, t.d. 2.000 AE. Það
jafngildir 50 míkrógrömmum á
millilítra (50 µg). Það er sá styrkleiki
sem margir telja nauðsynlegt að
innbyrða til að vega upp á móti
sólarleysinu hér á landi. Hins vegar
eru aðrir, eins og Bruce Hollis
prófessor, sem telja æskilegt að
magnið sé mun meira og óhætt að
taka inn 10.000 AE daglega eða sem
nemur 250 µg.
Á móti því kemur að sumt fólk
sem hefur tekið svo stóra skammta af
D3-vítamíni telur sig upplifa þreytu
og óeirð, t.d. í fótum.
Ráðlegast ætti því að vera að leita
upplýsinga hjá læknum ef óeðlilegra
einkenna verður vart. Þá er heldur
ekki hægt að mæla með að fólk
sé að gera tilraunir með inntöku á
bætiefnum af ýmsum toga nema að
kynna sér vel áhrif þess á líkamann.
Í grein eftir dr. Samantha Kimball
(PhD, MLT) kemur fram að líkurnar
á að deyja úr of stórum skömmtum af
D-vítamíni séu 0,0000000000002%.
Hún vísar í rannsókn The Pure North
clinic sem tók til 44.000 einstaklinga
sem tóku að jafnaði inn 6.000–15.000
IU einingar á dag í 8 ár. Höskuldur
Dungal segir að ekki sé vitað til þess
að nokkurn tíma hafi orðið vart við
D-vítamín eitrun á Íslandi.
Eituráhrif af inntöku D3-vítamíns
sögð sjaldgæf
Í leiðbeiningum frá Mayo Clinic
í Bandaríkjunum eru eituráhrif
af inntöku stórra skammta af
D-vítamíni (hypervitaminosis D)
sögð sjaldgæf nema slík inntaka vari
í mjög langan tíma. Helsta afleiðing
af eiturverkunum D-vítamíns er
talin uppsöfnun kalsíums í blóðinu
(hypercalcemia), sem getur valdið
ógleði og uppköstum, máttleysi
og tíðum þvaglátum. D-vítamín
eiturverkanir gætu þróast yfir í
beinverki og nýrnavandamál, svo
sem myndun kalsíumsteina.
Áhugavert er í þessu samhengi
að lesa grein sem birtist í tímaritinu
„Journal of Steroid Biochemistry
and Molecular Biology“, sem birt
var 4. janúar 2019. Þar segir að
dagleg inn taka frá 5.000 til 50.000
IU (alþjóðlegar einingar) af D3
vítamíni virðist vera hættulausar.
(https://www.sciencedirect.com /
science/article/pii/S096007 60183
06228?via%3Dihub). Þar er einnig
vísað í meðferðartilraunir á sóreasis,
asma og berklum sem gerðar voru
á fjórða og fimmta áratug síðustu
aldar. Þar var verið að prófa daglega
skammta af D-vítamíni upp á
60-300.000 IU og jafnvel mun hærri
skammta í sumum tilfellum.
Uppsöfnun kalsíums í blóði er
sögð hafa jafnað sig á nokkrum
mánuðum eftir að inntöku í 2–18
mánuði var hætt.
Þess má geta að D3-vítamíntöflur
sem innihalda 10.000 I.U. í hverju
hylki eru seldar í Bandaríkjunum,
Englandi, Þýskalandi og víðar,
en ekki á Íslandi svo vitað sé. Á
boxunum stendur yfirleitt að taka
eigi 1 hylki á dag.
Prófessor Bruce W. Hollis sagði
við Höskuld 2018, þegar hann var
hér á landi, að lögfræðingar væru
örugglega búnir að loka öllum
þeim fyrirtækjum sem framleiða
D-vítamín ef ráðleggingar utan á
glasinu væru rangar. Hann taldi það
eina bestu sönnun þess að dagleg
inntaka 10.000 IU af D-vítamíni væri
með öllu hættulaus.
Ráðleggingar EFSA
margfalt hærri en hjá
Landlæknisembættinu
Svo því sé haldið til haga segir Land -
læknis embættið á sinni heimasíðu
að Matvæla öryggis tofnun Evrópu
(EFSA) setji viðmiðunargildi fyrir
efri mörk daglegrar meðalneyslu fyrir
D-vítamín, þ.e. daglegrar neyslu yfir
lengri tíma. Þessi mörk eru margfalt
hærri en ráðlagðir dagskammtar hjá
Landlæknis embættinu á Íslandi.
Það er þrátt fyrir að mun sólríkara
sé yfirleitt á meginlandi Evrópu. Er
því í raun óskiljanlegt að mörkin séu
höfð eins lág hér og raun ber vitni.
Viðmiðunargildin hjá EFSA
eru 100 µg á dag (4000 AE) fyrir
fullorðna og börn yfir 11 ára aldri,
50 µg (2000 AE) fyrir börn eldri en
eins árs að tíu ára aldri, 35 µg (1400
AE) fyrir ungbörn (6-12 mánaða) og
25 µg (1000 AE) fyrir ungbörn að
hálfs árs aldri. Skammta umfram efri
mörk ætti aðeins að taka í samráði
við lækni.
Greinilegt er af könnuninni á
mataræði Íslendinga, að hækka
þarf ráðlögð mörk Landlæknis-
embættisins verulega. Ekki síst
ef það getur orðið til þess að létta
álagið á heilbrigðiskerfinu.
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
VARAHLUTIR Í
KERRUR
2012
2021
D-vítamín er m.a. í feitum fiski, eggjum og mjólkurafurðum. Mynd / Unsplash
Samkvæmt þessari töflu úr skýrslu Embættis landlæknis og Rann sókna stofu í næringarfræði við Heilbrigðisvísindasvið
Háskóla Íslands, þá eru jafnvel efstu mörkin í D-vítamínneyslu Íslendinga allt of lág.