Bændablaðið - 12.05.2022, Blaðsíða 52

Bændablaðið - 12.05.2022, Blaðsíða 52
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 202252 LÍF&STARF LÍFSGÆÐI Öllum sem fylgjast með ástandi heimsmála og samfélagsins hlýtur að vera ljóst að flestir bændur lifa nú við sligandi afkomuótta. Gífurlegar hækkanir á nauðsyn­ legum aðföngum svo sem áburði, fóðri, olíu og varahlutum eru ýmist mættar í hlaðið eða við túngarðinn. Ekkert er í hendi um hækkanir á innkomu til samræmis við hækkanir á út gjöld um svo augljóslega hallar á í rekstr inum, eða eins og einn bóndi sagði við mig, þetta er allt á leið inni í skurðinn. Eðlilega hittir þessi óáran bændur mis harkalega. Sumir reka rótgróin og skuldlítil bú og geta þokkalega seiglast, meðan aðrir eru í þröngri stöðu. Bændur sem eru nýlega búnir að bretta upp ermarnar, til að hnoðast í gegnum þá rekstrarskafla sem fylgja kosnaðarsömum framkvæmdum til framfara og uppbyggingar, og bændur sem eru harkalega skuldsettir á fyrstu búskaparárum eða áratugum, finna afkomuóttann læðast niður sveitta hryggsúluna og kuldahrollur fylgir tilhugsuninni um heimabankann. Þegar fólk mætir raunverulegum afkomuótta, sér einfaldlega fram á að innkoman dugar ekki fyrir kostnaði og of lítið eða ekkert verður eftir fyrir heimilisfólkið til að lifa af, getur streita, kvíði og depurð orðið ríkjandi og kulnun og depurð leggst yfir hugann. Vonleysið situr um hugann eins og hungraður rakki, það er búið að reyna allt, spara, auka afkomuna, vinna dag og nótt, bæta við aukavinnum en það breytir ekki milljónunum sem krafist er fyrir áburðinn. Kvíða, streitu og áhyggjum fylgja líkamleg einkenni, verkir í hálsi, kjálkum, öxlum og baki, verkir frá meltingarfærum, ógleði, skjálfti, köfnunartilfinning og hjartsláttur. Sjálfstraustið minnkar, við rífum okkur niður. Finnum fyrir einhvers konar skömm eða sektarkennd, sem við vitum samt að er ekki okkar. En hún er lúmsk þokan í huganum, reksturinn er ekki að ganga hjá mér, er jafnvel á heljarþröm, ég hlýt að hafa gert mistök, vera vitlaus, ræfill, búskussi. Nei, en já, þó við stýrum ekki þessum utanaðkomandi ástæðum þá sígur hún inn í okkur tilfinningin um að ástandið sé okkar. Þegar afkomuóttinn verður viðvarandi getur hegðun okkar, hugsun og þar með samskipti orðið neikvæð. Við tölum hlutina niður, erum nöldrandi eða fámál, hvöss eða í vörn, oft er stutt í reiði, depurð, vonleysi og einmanaleika. Ákvarðanir taka langan tíma og þeim er slegið á frest, við þegjum. Kvíðinn og áhyggjurnar flæða yfir lífið eins og dökk sósa yfir hrísgrjón, valda þreytu og orkuleysi, draga úr einbeitingu, athygli og gleði, skapa pirring, innri spennu og svefnvandamál, ekki er það gott! Alveg eins og þið vitið þá er enginn töfrasproti til en það eru til bjargráð sem hafa gagnast fólki í svipaðri stöðu vel, virkilega gert gagn. Þið og við. Við erum öll mannleg, spendýr sem kallast menn og það sem hefur gagnast öðrum af þessari dýrategund mun líka gagnast þér vel. Jafnvel þó þú hafir ekki trú á því. Alveg eins og þú veist sem bóndi hvað gagnast vel þegar kýr er komin með súrdoða eða ær er að bera og það er bara haus. Bjargráðin sem gagnast fólki sem glímir við afkomuótta og óvissu eru til dæmis þessi hér. Veldu strax tvö, þrjú og taktu þau fasta taki fyrir þig, hugsaðu um þau í öðru hverju skrefi í dag og næstu daga og byrjaðu að nota þau, já, í alvöru! 1. Merkimiði: Settu alltaf réttan merkimiða á mál. Vandinn stafar af ytri orsökum. Stattu á því alveg jarðföstu gagnvart sjálfum þér að þetta rekstrarástand er ekki þér að kenna. Bara ekki. Þessi óáran kemur utan frá og er kastað yfir þig án þess að þú hafir nokkuð til þess unnið, ekki afsaka þig, ekki setja merkimiðann á þig. Stattu beinn og segðu hiklaust við þig og aðra: Utanaðkomandi ástæður valda því að það er tap, það segir ekkert um mig en það veldur því að það er óhjákvæmilegt að fá fyrirgreiðslu. 2. Áhyggjutími: Margar rann­ sóknir sýna að fólk getur tamið sig til að hafa bara áhyggjur á vissum tíma. Ótrúlegt? Já, en satt. Veldu að venja þig á að hafa fastan rekstraráhyggjutíma einu sinni eða tvisvar í viku. Ekki víkjast undan áhyggjunum þá og ekki leyfa þeim að sósast yfir hugsanir þínar á öðrum tímum. Gerðu allt sem hægt er í vandanum, til dæmis fast á mánudögum millli klukkan tíu og tólf og fimmtudögum milli tíu og tólf. Vendu þig svo á að ræða ekki, velta þér upp vandanum nema þess á milli. Ef þið eruð saman í þessu hjón eða samstarfsfólk, semjið þá um fastan áhyggjutíma. Ekki vera sífellt að draga áhyggjurnar upp í hugann í morgungjöfinni, við hádegisverðinn, í bílnum, úti um allar koppagrundir. Setjið niður áhyggjutíma tvisvar í viku, einu sinni ef það er nóg. Vinnið þá í vandanum eins og mögulegt er og látið svo fjandann liggja þar til í næsta áhyggjutíma. Hjálpist að við að koma þessari venju, hugsunarhætti á, temjið hvert annað. Ef annað ykkar fer að tala um einhvern reikning eða fjármál þess á milli, svarið þá bara strax, þetta tölum við um á mánudaginn. Hefjið ykkur yfir peningamálin þess á milli og njótið þess að vera bændur, virkileg horfið á ykkar fallegustu gripi, tún og akra og andið djúpt og rólega. 3. Stuðningsaðilar: Spyrntu gegn því að eingangrast. Pældu í því ofan í rót, hverjir eru þínir bestu stuðningsaðilar. Hvert er þitt besta fólk? Kannski, tveir til sex, ein eða tvær fjölskyldur? Veldu að vera mikið með þessu fólki. Besta næringin fæst með þínu, besta fólki, hringdu oft, bjóddu þeim til þín, gerðu eitthvað með þeim, farðu í heimsókn til þeirra. Þú þarft á því að halda, rannsóknir sýna það, það er mikilvægt. 4. Raunveruleikahvíld: Hvíldu þig á raunveruleikanum við og við um stund með því að hverfa inn í annan heim. Gerðu í því að hverfa inn í söguna í góðri bók, horfa á bíómynd, spila tölvuleik, fara og skoða eitthvað nýtt. Það er ekki raunveruleikahvíld að horfa á fréttir eða flækjast um netið en að horfa á þætti sem segja frá lífinu á tíma víkinganna, í París eða Perú er raunveruleikahvíld. Því að það er nógu ólíkt okkar raunveruleika til að heilinn upplifi eitthvað virkilega annað. Gefðu heilanum þínum tækifæri á slíku nokkrum sinnum í viku. 5. Slökun: Leitastu við að finna þína leið til slökunar á daginn. Það er kjörið að taka upp gamla góða bændasiðinn að kasta sér eftir hádegismatinn. Eiga rólega stund í beddanum eða í góðum stól. Líta á klukkuna og gefa sér þá gjöf að slaka á í 20­30 mínútur, dagurinn verður bæði árangursríkari og betri. 6. Gott: Forðastu að hugga þig eða deyfa með skaðráðum eins og áfengi en núna er samt tíminn til að upplifa eitthvað gott, góðan mat eða tónlist til dæmis. Taktu eftir því að það gerist eitthvað gott á hverjum degi, já svei mér þá! Veistu þú getur sett það góða oftar á dagskrá ef þú ákveður það, já næstum þvingar þig til þess. Ef afkomuóttinn er mikill ertu líklega ekki, í skapi til þess, en ekki festa þig þar. Komdu þér upp úr pyttinum sem sá hugsunarháttur er. Hvað var gott í gær, í síðustu viku? Spjall við kunningja, kjöt og karrí, fjörið í krökkunum þegar þau komu heim úr skólanum, bar kýr og kom kvíga, lóur á túninu, skúffukakan á sunnudaginn? Taktu markvisst eftir því góða og endurtaktu það og settu fleira gott á dagskrá. Kristín Linda Jónsdóttir, sálfræðingur hjá Huglind Nagandi afkomuótti Kristín Linda Jónsdóttir. Tjörvi Bjarnason, sem kunnur er af störfum sínum í útgáfu­ og kynningarmálum fyrir Bænda­ samtök Íslands, opnaði á dögunum aðgang fólks að Matlandi, nýjum vef sem helgaður er að mestu leyti íslenskum matvælum; mat­ vælaframleiðslu og matreiðslu. Um vefmiðil er að ræða þar sem fjallað er um mat í máli og myndum – auk þess sem þar verður veflægt markaðstorg fyrir búvörur og ýmis önnur matvæli. Að verkefninu standa, auk Tjörva sem er útgefandi, þeir Hörður Kristbjörnsson, grafískur hönnuður, og Hilmar Steinn Grétarsson, framkvæmdastjóri Grapevine. „Við opnuðum vefsíðuna Matland rétt fyrir sumardaginn fyrsta. Miðillinn er búinn að vera í þróun um nokkurra mánaða skeið en grafísk hönnun og forritun tók sinn tíma. Viðtökurnar hafa verið fínar og núna erum við í því að safna fólki á póstlista og einnig að byggja upp Facebook­síðuna okkar. Ég hvet alla til að slást í lið með okkur og fylgjast með Matlandi,“ segir Tjörvi. Hann segir hvorki mera­ né kvótakónga standa á bak við Matland. „Við þrír stofnuðum útgáfuna sem heitir Matfélagið ehf. og leggjum til eigið fjármagn til að koma okkur af stað. Við erum með skrifstofu í Hafnarstræti 15 í Reykjavík, sama húsi og veitingastaðurinn Hornið og Grapevine­útgáfan.“ Frjáls framlög notenda „Rekstur fjölmiðla hefur breyst mikið á síðustu árum og það þarf að leita fjölbreyttra leiða til að láta hlutina ganga upp,“ segir Tjörvi, spurður um rekstrarmódel miðilsins. „Við seljum auglýsingar og bjóðum líka lesendum og fyrirtækjum að styrkja miðilinn með mánaðarlegu framlagi. Það er ekki ósvipað því sem nokkrir innlendir fjölmiðlar hafa gert á síðustu árum með ágætum árangri. Við trúum því að ef efni er vel unnið og áhugavert að þá vilji lesendur borga fyrir það. Það er lág upphæð sem hver og einn greiðir en ef nógu margir standa við bakið á okkur þá getum við eflt miðilinn og látið hann dafna. Þar að auki rekum við vefverslun með upprunamerktar matvörur, bækur, hnífa og fleira sem tengist mat og matvælaframleiðslu.“ Mikill almennur áhugi á mat Að sögn Tjörva er ætlunin að sinna allri matvælaframleiðslu á Íslandi. „Já, við ætlum að fjalla um alla matvælaframleiðslu, hvort sem það er landbúnaður, sjávarútvegur, matvælaiðnaður eða ferðaþjónusta­ og veitingageirinn. Segjum fréttir og verðum með ýmiss konar umfjallanir um fólkið sem starfar í þessum atvinnugreinum. Þetta er stór hópur, eða á bilinu 20­ 25 þúsund manns. Svo vitum við að almenningur hefur mikinn áhuga á mat og mörgu sem honum tengist þannig að við veðjum á vænan hóp lesenda. Miðillinn styður svo við Markaðinn þar sem við ætlum að bjóða upp á upprunatengdar matvörur og fleira.“ Hann segir að til að byrja með verði einn blaðamaður í hálfu stöðugildi við miðilinn, en um 15 lausapennar hafa lagt honum lið með góðu efni. „Við bjóðum líka lesendum að senda okkur greinar sem tengjast matvælaframleiðslunni með einhverjum hætti. Þá er vefhluti tileinkaður umhverfismálum en þar munu sérfræðingar fjalla um samspil matvælaframleiðslu og umhverfis, lausnir í loftslagsmálum og hvað framleiðendur og ekki síst neytendur geta lagt af mörkum. Nýfengið styrkloforð úr Loftslagssjóði mun gera okkur kleift að búa til gott efni í umhverfishlutann.“ Samstarf við Pylsumeistarann Matland fékk nýlega starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur til að selja matvörur. „Við ákváðum að opna vefverslunina hægt og rólega. Nú er starfsleyfið klárt og við erum komin með nokkra framleiðendur í samstarf, svo sem Sláturhús Vesturlands í Brákarey í Borgarnesi, Biobú, fiskvinnsluna Djúpið, Kaffibrugghúsið, heildverslunina Mundo sem selur matarolíur og nokkra bændur. Við viljum þó gjarnan komast í samband við fleiri sem hafa áhuga á að selja vörurnar sínar í gegnum Matland, sérstaklega garðyrkjubændur. Veitingastaðir hafa lýst yfir miklum áhuga á samstarfi við okkur sem er spennandi. Þeir vilja kaupa vörur sem ekki fást víða og í takmörkuðu magni. Þar erum við sannarlega til í að miðla hráefnum frá bændum til veitingamanna.“ Einn aðalsamstarfsaðili Matlands er Sigurður Haraldsson, eigandi Pylsumeistarans og nýkrýndur Kjötmeistari Íslands. „Við ætlum að dreifa vörunum í gegnum hans vinnsluhúsnæði í Kópavogi og þaðan eru þær keyrðar út til kaupenda. Við bjóðum líka upp á að fólk geti sótt vörurnar í verslun Pylsumeistarans á Hrísateig í Reykjavík.“ Ísland getur auðveldlega framleitt meiri og fjölbreyttari matvörur Óhjákvæmilegt er að spyrja Tjörva, sem lengi stóð í eldlínu hagsmunabaráttu bænda, að því hvernig málefni íslensks landbúnaðar blasi við honum í dag – frá nýju sjónarhorni. „Það er allt á fleygiferð í matvælaframleiðslunni á Íslandi. Þrátt fyrir ýmsar blikur á lofti, til dæmis vegna heimsfaraldursins, stríðsins í Úkraínu, hlýnandi loftslags víða um lönd og verðhækkanir á aðfangamörkuðum, þá eru mýmörg tækifæri í þessum geira. Við þurfum að róa að því öllum árum að gera framleiðsluna hagkvæmari, efla menntun og fjölga fólki sem vill vinna í matvælagreinunum. Það er mikil og vaxandi eftirspurn eftir mat í heiminum og Ísland getur auðveldlega framleitt meiri og fjölbreyttari matvörur úr sínum auðlindum. Stjórnvöld og atvinnugreinarnar sjálfar hafa sem betur fer tekið sig á í stefnumörkun og það er mjög jákvætt. Við þurfum að vita hvert við ætlum að fara og hvernig við komumst þangað til að ná árangri.“ /smh Tjörvi Bjarnason á nýjum vettvangi Matlands. Mynd / smh Matland er nýr vefmiðill og markaðstorg sem er helgaður íslenskum matvælum: „Almenningur hefur mikinn áhuga á mat“ – segir Tjörvi Bjarnason útgefandi, sem hefur haslað sér völl á nýjum vettvangi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.