Bændablaðið - 12.05.2022, Blaðsíða 49

Bændablaðið - 12.05.2022, Blaðsíða 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 2022 49 Opið fyrir umsóknir fyrir skólaárið 2022–2023. Nánari upplýsingar er að finna á www.lydflat.is LÝÐSKÓLINN Á FLATEYRI núna ! sæktu um Tímabókanir í síma 568 6880 VANTAR ÞIG HEYRNARTÆKI? Glæsibæ | Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Heyrnartaekni.is | 568 6880 Nýju MORE heyrnartækin eru þjálfuð til að þekkja hljóð. Innbyggt djúptauganet skilar einstaklega nákvæmri hljóðvinnslu og skýrum hljómgæðum. Í maí bjóðum við upp á heyrnarmælingar og ráðgjöf á: Akureyri, Borgarnesi, Egilsstöðum, Húsavík, Keflavík, Selfossi og Vestmannaeyjum HECHT jarðvegsþjöppur Frá 63 kg til 117 kg. HECHT 59399 Rafmagnsfjórhjólin komin aftur! SARIS PA 42 flutningskerra Burðargeta 2.758 kg. Verð 890.þ + vsk. Helluhraun 4, Hafnarfirði sími 565 2727 & 892 7502 www.rag.is Eldvarnir eru liður í góðum búrekstri Nær þriðjungur bænda, eða rúmlega 30%, telja að ekki sé nægur og greiður aðgangur að slökkvivatni í nálægð við útihús, samkvæmt könnun sem Gallup gerði fyrir Eldvarnabandalagið. Í niðurstöðum könnunarinnar kemur einnig fram að stór hluti bænda býr í talsverðri fjarlægð frá næstu slökkvistöð og getur því liðið talsverður tími frá því slökkviliði berst útkall uns slökkvistarf getur hafist. Um það bil 20 mínútur geta liðið frá því slökkvilið fær boð um útkall uns slökkvistarf á vettvangi getur hafist ef aka þarf 20 kílómetra leið á vettvang og nærri 30 mínútur ef fara þarf 30 kílómetra. Er hér miðað við bestu akstursaðstæður. Því er afar mikilvægt að bændur hafi búnað og aðgang að slökkvivatni til að tryggja fyrstu viðbrögð á vettvangi áður en aðstoð berst. Brotalamir í eldvörnum Talsverðar brotalamir eru á eldvörnum í úti- og gripahúsum bænda samkvæmt könnun Gallup. Ljóst er að ástand viðvörunarbúnaðar, brunahólfunar og slökkvibúnaðar er slæmt hjá mörgum. • Þannig nefna 62% bænda að ástand viðvörunarbúnaðar sé frekar slæmt eða mjög slæmt og þar af nefna 42,6% að ástandið sé mjög slæmt. • Næstum því helmingur svarenda segir ástand slökkvibúnaðar frekar eða mjög slæmt. • Þá kemur í ljós að aðeins 27,3% hafa gert rýmingaráætlun fyrir gripahús. Brýnt er að bændur leggi sig fram um að bæta úr þessu ástandi. Áhyggjur af frauðplastinu Slökkvilið hafa sérstakar áhyggjur af slökkvistarfi í útihúsum þar sem eldfim efni eins og frauðplast eru notuð til einangrunar. Samkvæmt könnun Gallup reynist það vera tilfellið í um 40% tilvika. Nái eldur að læsa sig í frauðplast breiðist hann út með ógnarhraða og eru dæmi um að slökkvistarf hafi í slíkum tilvikum verið afar erfitt og jafnvel vonlaust. Reykur frá frauðplasti er baneitraður og mjög hættulegur mönnum og skepnum langt út fyrir brunastað. Því þarf alltaf að nota reykköfunartæki við slökkvistarf jafnt innan- sem utanhúss. Notkun frauðplasts til ein- angrunar í útihúsum er lang- algengust á Austurlandi eða sem nemur 52 af hundraði. Eldvarnabúnaður á sérkjörum fyrir bændur Eldvarnamiðstöðin býður félags- mönnum í Bændasamtökum Íslands nú að kaupa eldvarnabúnað með 20% afslætti og frírri heim- sendingu. Tilboðið er sett fram vegna samstarfs Bændasamtakanna og Eldvarna bandalagsins um að efla eldvarnir í landbúnaði og á heimilum í dreifbýli. Tilboð Eldvarnamiðstöðvarinnar gildir til og með 31. maí næstkomandi. Félagsmenn geta nálgast tilboðssíðu á oger.is samkvæmt upplýsingum á Bændatorgi. Þar er að finna nánari upplýsingar um eldvarnir á heimilum og í landbúnaði og leiðbeiningar um hvaða eldvarna- búnaður hentar best eftir gerð og stærð húsnæðis og véla. Tilboðið nær til margvíslegs búnaðar sem hentar félagsmönnum jafnt á heimilum og í úti- og gripahúsum. Um er að ræða samtengda og staka reyk- og hitaskynjara, mismunandi gerðir slökkvitækja, eldvarnateppi, sinuklöppur og fleira. Bændasamtökin og Eldvarna- bandalagið hvetja félagsmenn í Bændasamtökunum til að notfæra sér tilboð Eldvarna miðstöðvarinnar og nota þetta tækifæri til að búa heimili og útihús fullnægjandi eldvarnabúnaði. Vigdís Hӓsler, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna Garðar H. Guðjónsson, framkvæmdastjóri Eldvarnabandalagsins Vigdís Hӓsler. Garðar H. Guðjónsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.