Bændablaðið - 12.05.2022, Qupperneq 49
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 2022 49
Opið fyrir umsóknir fyrir skólaárið 2022–2023.
Nánari upplýsingar er að finna á www.lydflat.is
LÝÐSKÓLINN Á FLATEYRI
núna !
sæktu um
Tímabókanir í síma 568 6880
VANTAR ÞIG
HEYRNARTÆKI?
Glæsibæ | Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Heyrnartaekni.is | 568 6880
Nýju MORE heyrnartækin eru þjálfuð til að þekkja hljóð. Innbyggt djúptauganet
skilar einstaklega nákvæmri hljóðvinnslu og skýrum hljómgæðum.
Í maí bjóðum við upp á heyrnarmælingar og ráðgjöf á:
Akureyri, Borgarnesi, Egilsstöðum, Húsavík,
Keflavík, Selfossi og Vestmannaeyjum
HECHT jarðvegsþjöppur
Frá 63 kg til 117 kg.
HECHT 59399
Rafmagnsfjórhjólin komin aftur!
SARIS PA 42 flutningskerra
Burðargeta 2.758 kg. Verð 890.þ + vsk.
Helluhraun 4, Hafnarfirði
sími 565 2727 & 892 7502
www.rag.is
Eldvarnir eru liður í
góðum búrekstri
Nær þriðjungur bænda, eða
rúmlega 30%, telja að ekki sé
nægur og greiður aðgangur að
slökkvivatni í nálægð við útihús,
samkvæmt könnun sem Gallup
gerði fyrir Eldvarnabandalagið.
Í niðurstöðum könnunarinnar
kemur einnig fram að stór hluti
bænda býr í talsverðri fjarlægð frá
næstu slökkvistöð og getur því liðið
talsverður tími frá því slökkviliði
berst útkall uns slökkvistarf
getur hafist.
Um það bil 20 mínútur geta liðið
frá því slökkvilið fær boð um útkall
uns slökkvistarf á vettvangi getur
hafist ef aka þarf 20 kílómetra leið á
vettvang og nærri 30 mínútur ef fara
þarf 30 kílómetra. Er hér miðað við
bestu akstursaðstæður. Því er afar
mikilvægt að bændur hafi búnað og
aðgang að slökkvivatni til að tryggja
fyrstu viðbrögð á vettvangi áður en
aðstoð berst.
Brotalamir í eldvörnum
Talsverðar brotalamir eru á
eldvörnum í úti- og gripahúsum
bænda samkvæmt könnun Gallup.
Ljóst er að ástand viðvörunarbúnaðar,
brunahólfunar og slökkvibúnaðar er
slæmt hjá mörgum.
• Þannig nefna 62% bænda að
ástand viðvörunarbúnaðar sé
frekar slæmt eða mjög slæmt og
þar af nefna 42,6% að ástandið
sé mjög slæmt.
• Næstum því helmingur svarenda
segir ástand slökkvibúnaðar
frekar eða mjög slæmt.
• Þá kemur í ljós að aðeins 27,3%
hafa gert rýmingaráætlun fyrir
gripahús.
Brýnt er að bændur leggi sig fram
um að bæta úr þessu ástandi.
Áhyggjur af frauðplastinu
Slökkvilið hafa sérstakar áhyggjur
af slökkvistarfi í útihúsum þar sem
eldfim efni eins og frauðplast eru
notuð til einangrunar. Samkvæmt
könnun Gallup reynist það vera
tilfellið í um 40% tilvika.
Nái eldur að læsa sig í frauðplast
breiðist hann út með ógnarhraða og
eru dæmi um að slökkvistarf hafi í
slíkum tilvikum verið afar erfitt og
jafnvel vonlaust.
Reykur frá frauðplasti er
baneitraður og mjög hættulegur
mönnum og skepnum langt út fyrir
brunastað. Því þarf alltaf að nota
reykköfunartæki við slökkvistarf
jafnt innan- sem utanhúss.
Notkun frauðplasts til ein-
angrunar í útihúsum er lang-
algengust á Austurlandi eða sem
nemur 52 af hundraði.
Eldvarnabúnaður á sérkjörum
fyrir bændur
Eldvarnamiðstöðin býður félags-
mönnum í Bændasamtökum
Íslands nú að kaupa eldvarnabúnað
með 20% afslætti og frírri heim-
sendingu. Tilboðið er sett fram
vegna samstarfs Bændasamtakanna
og Eldvarna bandalagsins um að
efla eldvarnir í landbúnaði og
á heimilum í dreifbýli. Tilboð
Eldvarnamiðstöðvarinnar gildir
til og með 31. maí næstkomandi.
Félagsmenn geta nálgast tilboðssíðu
á oger.is samkvæmt upplýsingum
á Bændatorgi. Þar er að finna
nánari upplýsingar um eldvarnir
á heimilum og í landbúnaði og
leiðbeiningar um hvaða eldvarna-
búnaður hentar best eftir gerð og
stærð húsnæðis og véla.
Tilboðið nær til margvíslegs
búnaðar sem hentar félagsmönnum
jafnt á heimilum og í úti- og
gripahúsum.
Um er að ræða samtengda
og staka reyk- og hitaskynjara,
mismunandi gerðir slökkvitækja,
eldvarnateppi, sinuklöppur og fleira.
Bændasamtökin og Eldvarna-
bandalagið hvetja félagsmenn í
Bændasamtökunum til að notfæra
sér tilboð Eldvarna miðstöðvarinnar
og nota þetta tækifæri til að búa
heimili og útihús fullnægjandi
eldvarnabúnaði.
Vigdís Hӓsler,
framkvæmdastjóri
Bændasamtakanna
Garðar H. Guðjónsson,
framkvæmdastjóri
Eldvarnabandalagsins
Vigdís Hӓsler.
Garðar H. Guðjónsson.