Bændablaðið - 12.05.2022, Page 32
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 202232
Embætti landlæknis og Rann
sókna stofa í næringarfræði við
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla
Íslands kynntu þann 10. mars
síðastliðinn niðurstöður könn
unar um mataræði Íslend inga
sem gerð var á árunum 2019
2021. Þar kemur fram að neysla
flestra vítamína og stein efna
er að meðaltali yfir ráðlögð
um dagskammti (RDS), nema á
Dvítamíni, fólati og joði.
Ýmsir hafa verið að benda
á að sökum sólarleysis hér á
norðurslóðum þjáðust Íslendingar
af of litlu D-vítamíni, sem
orsakaði margvíslega kvilla sem
auðveldlega mætti koma í veg
fyrir með inntöku á D-vítamíni og
lækka um leið álag og kostnað á
íslenska heilbrigðiskerfinu. Þó
varað sé við að taka hástemmdar
fullyrðingar um þessa hluti sem
heilögum sannleik, er samt varla
skynsamlegt að hundsa algerlega
jákvæða reynslu leikmanna og
hámenntaðra sérfræðinga um áhrif
af inntöku D-vítamíns.
Lítil áhersla virðist lögð á það
sem virðist augljós lausn
Þekkt er að sólarlandaferðir hafi
góð áhrif á marga sem þjást hafa
af ýmiss konar sjúkdómum eins og
sóreasis (Psoriasis) húðsjúkdóma,
gigt og sleni. Þá hefur D-vítamín
áhrif á heilsu beina og tanna, vöðva
og ónæmiskerfis. Athyglisvert er í
því samhengi að velta því fyrir sér af
hverju heilbrigðisyfirvöld hafi ekki
lagt mun meiri áherslu á inntöku
D-vítamíns fremur en að benda fólki
á margvíslega rándýra lyfjakúra,
t.d. við húðsjúkdómum, með afar
takmörkuðum árangri.
Fituleysandi hormón
Þó talað sé um D-vítamín, þá er
það í raun ekki vítamín heldur
hópur fituleysanlegra hormóna,
eða pre-hormón (secosteroid), sem
ber ábyrgð á því að auka upptöku
kalsíums, magnesíums og fosfats
í þörmum ásamt mörgum öðrum
líffræðilegum áhrifum. Mest
áríðandi er D3-vítamín sem líka er
þekkt sem cholecalciferol, en D2
er nefnt ergocalciferol. Líkaminn
getur framleitt D-vítamín með
hjálp sólarinnar. Þá eru það aðeins
útfjólubláir geislar á bylgjulengdinni
290-315 nm (nanómetrar) sem duga
til að framleiða það. Talið er líklegt
að 40-75% jarðarbúa búi við skort
á D-vítamíni.
Samband er á milli D-vítamíns
í blóði og sjálfvakinna sega mynd-
unar í neðri hluta bláæðanna, eða
blóðtappa, að því er fram kemur
í gögnum National Institutes of
Health í Bandaríkjum. Rannsókn
sem þar er vitnað í sýnir að skortur
á D-vítamíni getur aukið líkur á
blóðtappamyndun.
Staðan versnar og vaxandi
skortur er á D-vítamíni hjá
Íslendingum
Samkvæmt niðurstöðum lands-
könnunar á mataræði Íslendinga
frá 2010-2011 var meðalneysla
D-vítamíns hjá fullorðnum 8,1
µg/dag úr fæðu og lýsi samanlagt
en ekki var reiknað með hve
mikið D-vítamín kom úr öðrum
fæðubótarefnum.
Í rannsókninni sem kynnt var 14.
mars hefur staðan hins vegar versnað
talsvert og má eflaust fullyrða að
hún sé orðin talsvert alvarleg.
Þar segir:
• Meðalneysla á D-vítamíni úr
fæðu er tæplega 5 µg/dag.
• Meðalneysla úr fæðu að
viðbættum bætiefnum er að
meðaltali 21 µg/dag.
• 75% karla og 65% kvenna í
yngsta aldurshópnum ná ekki
RDS.
• 50% í hinum aldurshópunum
ná ekki RDS.
• Meðalneysla úr fæðu að
viðbættum bætiefnum er að
meðaltali 21 µg/dag.
Um 17% kvenna og þriðjungur
karla fengu sem svarar ráðlögðum
dagskammti eða meira af
D-vítamíni. Í könnuninni sást að
konur tóku síður lýsi og borðuðu
minna af fiski. Fjórðungur kvenna
og 8% karla náðu ekki lágmarksþörf
fyrir vítamínið, sem er 2,5 µg/dag.
Þeir hópar sem sögðust aldrei taka
lýsi fengu að jafnaði um 4–5 µg/
dag af D-vítamíni.
D-vítamín og fólat
Í skýrslunni er D-vítamíns og fólats
fyrir konur á barneignaraldri getið
sérstaklega, en þar segir m.a.:
„Þetta eru einu næringarefnin
sem ráðlagt er að taka sem
fæðubótarefni en öllum er ráðlagt
að taka D-vítamín (lýsi, perlur,
töflur eða úða) og konum á
barneignaraldri er ráðlagt að taka
fólat.“
• Meðalneysla á fólati er undir
ráðleggingum, sérstaklega
meðal kvenna.
• 30% kvenna á barneignaraldri
ná RDS þegar reiknað með
fæðubótarefnum.
• Einungis 12% þeirra taka
fólat sem fæðubótarefni eins
og ráðlagt er.
Segir hægt að fækka
dauðsföllum og spara
heilbrigðiskerfinu milljarða með
auknu D-vítamíni
Höskuldur Dungal er einn þeirra
sem mikið hefur velt fyrir sér
áhrifum D-vítamíns á líkamann.
Fór hann að kynna sér þessi mál
og hefur viðað að sér gríðarlegu
magni upplýsinga og rannsókna
um áhrif D-vítamíns á líkamann og
m.a. kynnt sér nýjustu rannsóknir
þekktra vísindamanna.
Hann telur að ef niðurstöður
rannsókna á D-vítamínskorti
Bandaríkjamanna væru yfirfærðar
á Íslendinga, með námundun,
mætti áætla að það sparaði íslenska
heilbrigðiskerfinu 13 milljarða á
ári. Ótímabærum dauðsföllum
myndi fækka um 330 á ári með
því að almenningur hafi nóg af
D-vítamíni, eða a.m.k. 100 nmól/L,
eða 100- 150 nmól/L.
Í sambandi við fjölmarga
vísindamenn
Höskuldur sagði í samtali við
Bændablaðið að hann hafi byrjað
á að kynna sér rannsóknir sem
hann fann á netinu á D-vítamíni. Í
framhaldinu komst hann í samband
við helstu sérfræðinga heims á
þessu sviði. Þar má nefna Michael
Holick, prófessor við Boston
háskóla, sem hefur rannsakað
D-vítamín í meira er 40 ár. Einnig
Cedric Garland, prófessor við
háskóla í San Diego í Kaliforníu,
sem hefur mikla reynslu á þessu
sviði, Bruce Hollis (Ph.D),
prófessor í barnalækningum við
Lyflækningaháskólann í Suður-
Karólínu, Carole Baggerly,
stofnanda og framkvæmdastjóra
„Grassrootshealth“ og dr. John
Cannell, stofnanda „Vitamin D
Council“, sem er mjög þekktur
í Bandaríkjunum af baráttu sinni
gegn reykingum.
Var vísað á tjörukrem, steralyf
og sól en ekki D-vítamín
„Það vill svo til að einstaklingur
sem ég þekki mjög vel, hefur verið
með psoriasis á báðum olnbogum
og hársverði í áratugi. Aldrei hefur
læknir ávísað D-vítamíni til þessa
einstaklings til að meðhöndla
sjúkdóm hans. Hins vegar fékk
hann alls konar sterakrem o.fl. en
aldrei D-vítamín. Ljóst hefur þó
verið að læknarnir hafa mælt með
sólböðum og sólarlandaferðum.
Þeim var ljóst að sól hafði góð
áhrif á sjúkdóminn.
Það er eins og þeir hafi ekki
getað tengt þetta saman – þ.e.a.s.
það eina sem gerðist var að
líkaminn / húðin framleiddi
D-vítamín með hjálp útfjólublárra
geisla sólarinnar.
Þessi einstaklingur fór að taka
um 10.000 i.u. af D-vítamíni á dag
og psoriasis hvarf. Hvers vegna gaf
læknirinn ekki honum D-vítamín
þar eð hann mælti með sól?
Lyf sem verið er að ávísa
fólki til að meðhöndla sóreasis
eru í sumum tilvikum allavega
að kosta ríkið um eða yfir eina
milljón á ári. Hins vegar má gera
ráð fyrir að kostnaður sjúklings sé
lítill því ríkið niðurgreiðir það að
mestu. Með því að taka D-vítamín
myndi ársskammtur af því líklega
kosta innan við 5.000 krónur án
niðurgreiðslu,“ segir Höskuldur.
Segist sleginn yfir
þekkingarskorti hámenntaðra
lækna
„Eftir að ég fór að kynna mér
þessi mál betur komst ég að því að
þekkingarskorturinn í heilbrigðis-
kerfinu á áhrifum D-vítamíns er
gríðarlegur.
Ég var með dóttur mína uppi á
Borgarspítala á árinu 2017 og við
vorum eitthvað að ræða við lækni
almennt um vítamín. Þetta var
heila- og taugaskurðlæknir. Hann
segir við okkur: Vitið þið hvað?
Hvað meinarðu? segi ég. – Já, vitið
þið hvað? segir læknirinn. – Ég var
allur í vöðvastrengjum og verkjum
um allan líkamann. Þá segir
kollegi minn við mig; heldur þú
að þig vanti bara ekki D-vítamín?
– Síðan segir læknirinn við okkur
að hann hafi í framhaldinu farið að
taka D-vítamín og losnað við alla
strengina í líkamanum og verki
í vöðvum.“
Hámenntaður læknir sem
þjáðist af hörgulsjúkdómi!
„Nú, við kvöddum lækninn og svo
þegar ég kom heim var eins og
ég hafi fengið hamar í hausinn.
Ég fór að hugsa. Var þetta Raggi
rakari eða Bjössi bílstjóri sem
ég var að tala við rétt áðan? Nei,
þetta var hámenntaður læknir
sem starfaði á Landspítalanum og
þjáðist af hörgulsjúkdómum vegna
D-vítamínskorts.
Þegar ég gerði mér grein fyrir
alvarlegum þekkingarskorti þessa
hámenntaða læknis fór ég á netið
og leitaði mér upplýsinga. Þá
var eins og ég væri aftur sleginn
í hausinn með sleggju. Gat það
virkilega verið rétt að læknar
væru ekki betur að sér um áhrif
vítamínsskorts á líkamann?
Við skoðun mína á fjölda
rannsókna komst ég að því að
D-vítamín dró úr áhrifum 19
tegunda krabbameina. Það dregur
úr líkum á að fá sykursýki eitt og
tvö, einnig MS og svo framvegis.
Ég varð svo gáttaður að sjá þetta.“
Núll klukkutímum varið í
næringarfræði í læknadeildinni
„Um einu og hálfu ári eftir þetta
fór ég upp í Háskóla Íslands til að
hitta þar prófessor í næringarfræði.
Við spjölluðum saman í tvo
klukkutíma, en þá var ég búinn
að viða að mér upplýsingum og
lesa um D-vítamín í meira en ár. Í
miðju okkar spjalli spyr hún mig:
Veistu hvað er mikil kennsla í
næringarfræði í læknadeild? Nei,
sagði ég, mig grunar samt að hún
sé nú ekki mikil. Þá segir hún: Það
eru núll klukkutímar! Ég veit allt
um það, segir hún, því ég er yfir
næringarfræðideildinni í Háskóla
Íslands.“
Stöðugt á varðbergi gagnvart
fölskum upplýsingum
„Nú, ég hélt áfram að kynna
mér þessi mál á netinu og var
allan tímann mjög meðvitaður
um að þar gæti verið aragrúi af
falsupplýsingum. Alltaf leiddu
upplýsingarnar mig samt að sömu
prófessorunum. Þá vildi svo til að
einn þeirra, Bruce Hollis, sem er
prófessor í barnalækningum, kom
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Sólarleysið plagar mörlandann samkvæmt rannsókn landlæknis og Rannsóknastofu í næringarfræði við Háskóla Íslands:
Um 50–75% Íslendinga eru með of lítið af D-vítamíni í blóði
– Skortur á D-vítamíni getur leitt til veikingar ónæmiskerfis og margvíslegra kvilla
Höskuldur H. Dungal (t.h.) prófessor, Bruce W. Hollis, prófessor í
barnalækningum við Lyflækningaháskólann í Suður-Karólínu og Debra,
eiginkona hans (t.v.). Myndin var tekin 14. október 2018.
Skýrsla Embættis landlæknis og Rann sókna stofa í næringarfræði við
Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands, sem kynnt var 10. mars síðastliðinn,
sýnir að mikill skortur er á D-vítamíni hjá Íslendingum.
Michael Holick, prófessor við Boston
háskóla.
Cedric Garland, prófessor við
háskóla í San Diego í Kaliforníu.
Bruce Hollis (Ph.D), prófessor í
barnalækningum við Lyflækninga-
háskólann í Suður-Karólínu.
Carole Baggerly, stofnandi og
framkvæmdastjóri „Grassroots-
health“.
John Cannell, stofnandi Vitamin D
Council.