Bændablaðið - 12.05.2022, Síða 2
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 20222
Á stjórnarfundi Bændasamtaka
Íslands þann 3. maí sl. var
samþykkt að skipa nýja stjórn
Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnað
arins (RML).
Nýr formaður stjórnar er Björn
Halldórsson og auk hans koma inn
ný í stjórn, Áshildur Bragadóttir,
Sæmundur Sveinsson og Reynir Þór
Jónsson. Vigdís Häsler mun áfram
sitja í stjórn RML. Þegar ný stjórn
Bændasamtakanna tók við í apríl var
eitt af hennar fyrstu verkum að skipa
fólk í stjórnir þeirra fyrirtækja, nefnda
og ráða sem að Bændasamtökin hafa
aðkomu að.
„Hlutverk stjórnar Bænda-
samtakanna er að hafa yfirsýn yfir
starfsemi samtakanna og tengdra
félaga. Þegar ný stjórn kemur að
samtökunum er eitt af fyrstu verkum
hennar að fara yfir skipanir þessara
stjórna og ráðast í breytingar til að
sinna þessu hlutverki sínu. Þannig
er þetta raunar ekki bara eðlilegt,
heldur beinlínis skylda stjórnar
Bændasamtakanna að endurskoða
þetta við stjórnarskipti,“ segir
Gunnar Þorgeirsson, formaður
Bændasamtakanna.
Eðlilegar breytingar
Nokkur umræða hefur skapast á
samfélagsmiðlum vegna breytinganna.
„Það er nú nokkuð langt seilst
að tala um að fólk hafi verið rekið
eða að um hópuppsagnir sé að ræða.
Sá sem viðhefur þannig málflutning
misskilur eðli svona stjórnarsetu og
hvert hlutverk Bændasamtakanna er.
Því staðreyndin er sú að fyrrum
stjórnarmenn RML í þessu tilfelli sóttu
umboð sitt til stjórnar sem ekki situr
lengur og ný stjórn vill skipa einhverja
aðra. Sem er fullkomlega eðlilegt og
þekkist mjög víða. En auðvitað skil ég
það að einhverjum sárni og einhverjir
hefðu viljað sitja áfram. En hlutverk
okkar í stjórn BÍ er að velja þá sem
við teljum að séu hæfastir hverju sinni
en ekki hverjir vilja það mest,“ segir
Gunnar.
Umfangsmeiri verkefni RML
Björn Halldórsson segir nýtt verkefni
sitt sem formaður stjórnar spennandi.
„Ég geri mér ágætlega grein fyrir
mikilvægi þessa fyrirtækis, bæði
fyrir landbúnaðinn og ekki síður fyrir
samfélagið. Það er enn skýrara eftir
því sem áherslan á fæðuöryggi verður
meiri, og nú þegar það er orðið hluti
af þjóðaröryggisstefnu verður verkefni
RML umfangsmeira og gerðar verða
meiri kröfur til þess,“ segir Björn en
hann mun vera fyrsti starfandi bóndinn
sem gegnir hlutverki formanns stjórnar
RML. Áður hefur hlutverkið ávallt
verið í höndum framkvæmdastjóra
Bændasamtakanna, samkvæmt
samþykktum sem nú hafa verið
breyttar.
„Á síðasta Búnaðarþingi var staða
og þjónusta RML rædd. Sumum fannst
tengslin milli bænda og fyrirtækisins
ekki nægjanlega mikil og að skoða
þyrfti áherslurnar í þjónustunni. Þar
heyrðust misjafnar skoðanir og það
er eðlilegt. Ef maður fær ekki neina
málefnalega gagnrýni þá gerist
ekkert,“ segir Björn, sem er bóndi í
Engilhlíð í Vopnafirði. /ghp
FRÉTTIR
1703 1760 1784 1800 1855 1861 1901 1924 1934 1945 1949 1955 1960 1966 1970 1974 1977 1980 1985 1990 1995 2000 2005 2010 2015 2020 2021
Series1 279.000 357.000 50.000 304.000 490.000 327.000 482.000 583.000 699.000 532.000 402.000 658.000 834.000 850.000 736.000 864.000 896.000 827.927 710.190 548.707 458.367 465.637 420.235 477.275 473.553 400.724 385.194
0
100.000
200.000
300.000
400.000
500.000
600.000
700.000
800.000
900.000
1.000.000
Fjöldi sauðfjár í vetrarfóðrun á Íslandi frá 1703 til 2021 - Samkvæmt gögnum Mælaborðs landbúnaðarins 1981-2000 og samantekt dr. Ólafs R. Dýrmundssonar 1703-1980
M
óð
uh
ar
ði
nd
in M
æ
ði
ve
ik
i
Ka
lá
r
M
es
ti
fjá
rfj
öl
d
frá
u
pp
ha
fi
Fj
ár
kl
áð
i
Bændablaðið HKr.
Stefnir í að sauðfjárstofninn á Íslandi
verði sá minnsti í rúm 200 ár
– Fjárstofninn á síðasta ári var sá minnsti frá aldamótunum 1900 og ekki mikið stærri en hann var árið 1800
Sauðfé heldur áfram að fækka í
landinu en samkvæmt fyrirliggjandi
tölum matvæla ráðuneytisins taldist
ásett fé um síðustu áramót vera
385.194. Hefur sauðfé ekki verið
færra á Íslandi í 161 ár, samkvæmt
gögnum Hagstofu og dr. Ólafs R.
Dýrmundssonar, eða síðan 1861,
þegar talsverð fækkun varð vegna
fjárkláða og stofninn fór þá niður
í 327.000.
Sauðfé hefur aldrei verið færra
á Íslandi frá aldamótunum 1900
en í fyrra. Meira að segja eftir
gríðarlegan fjárfelli vegna mæðiveiki
árið 1949 var stofninn stærri en nú,
eða 402.000 fjár.
Um 18,3% fækkun fjár
á tíu árum
Þegar skoðuð er þróun sauðfjárfjöld á
Íslandi síðustu 10 ár, eða frá 2012, þá
kemur í ljós að vetrarfóðruðu sauðfé
hefur fækkað úr 471.470 í 385.194
á síðasta ári, eða um 86.276. Það
þýðir hátt í fimmtugs fækkun, eða
um 18,3%.
Stefnir í minni fjárstofn
en árið 1800
Miðað við rekstur sauðfjárbúa í dag
og afurðaverð til bænda eru miklar
líkur á að bændur muni enn fækka
í bústofni sínum á komandi hausti.
Fer þá að styttast í að fjöldi sauðfjár
á Íslandi verði orðinn sá minnsti frá
því eftir niðurskurð vegna fjárkláða
árið 1861 þegar stofninn fór í 327.000
fjár. Árin þar á undan hafði sauðfé
fjölgað ört og var komið í 490.000
árið 1855.
Ef niðurskurður verður mjög
mikill í haust, eins og margir tala
um, fer fjöldinn að nálgast að vera sá
minnsti í 221 ár, en hér voru 304.000
fjár árið 1800.
Þetta er greinilega alvarleg staða,
sér í lagi nú þegar þjóðir heims horfa
í auknum mæli til fæðuöryggis og að
vera sem mest sjálfum sér nægar um
matvælaframleiðslu.
Umræða um ofbeit ekki í samræmi
við tölulegar staðreyndir
Þegar horft er á þessar tölur í sam-
hengi við tal um ofbeit á afréttum,
má segja að sú umræða sé orðin
undarleg ef land á sumum stöðum
gos beltis Íslands er undanskilið.
Allar mælingar sýna að gróðri hefur
farið mjög fram á Íslandi á liðnum
áratugum vegna hlýnandi loftslags.
Bent hefur verið á að umtalsverður
munur er t.d. á stöðu gróðurfars
í dag en þegar vetrarfóðrað fé
var flest á Íslandi árið 1977, eða
869.000 talsins. Því til viðbótar
hafa bændur vísað til þess að þeir
hafa verið mjög atkvæðamiklir við
uppgræðslu lands á liðnum árum.
Neyddir til breyttrar hugsunar
vegna versnandi afkomu
Lágt afurðaverð og stórhækkandi
rekstrarkostnaður er mikið í um-
ræðunni hjá sauðfjárbændum um
þessar mundir. Þar vegur hækkun
áburðarverðs sem og eldsneytisverð
og verð að tækjum og búnaði afar
þungt. Breyttar rekstrarforsendur
eru að neyða marga sauðfjárbændur
til að hugsa málin upp á nýtt.
Líklegasta útkoman á komandi
mánuðum er að einhverjir bændur
fækki við sig fé. Um leið gætu
bændur jafnvel farið að sjá flöt á að
ræða það hvort nauðsyn á afréttabeit
heyri ekki sögunni til ef tekið er tillit
til fækkunar í sveitum, kostnaðar
og afkomu sauð fjárbúanna. Horfa
mætti til þess að vegna minnkandi
sauðfjárstofns er orðið mikið af
ónýttu ræktarlandi á láglendi. Það
mætti augljóslega nýta til beitar.
Stýrð beit í hólfum feimnismál?
Í samtölum Bændablaðsins við
sauðfjárbændur á liðnum misserum
virðist það þó af einhverjum
ástæðum enn vera hálfgert feimnis-
mál að ræða stýrða beit í hólfum
innan girðinga.
Margir hafa þar áhyggjur af
ímynd íslenska fjallalambsins.
Lambakjötið hefur verið kynnt sem
einstök vara á heimsvísu. Lömbin
hafi allt frá landnámi gengið frjáls
um úthaga frá burði til slátrunar.
Fæðan er fjölbreyttur gróður sem
fullyrt er að hafi áhrif á kjötgæði.
Hvort slíkt ímyndarmál vegur
þyngra en hugsanlegt hagræði af
hólfastýrðri beit á láglendi, þarf
trúlega að leiða í ljós með faglegri
rannsókn. /HKr.
Ef margir bændur grípa til þess næsta haust að fækka sínu fé til að mæta
hækkandi rekstrarkostnaði, þá gæti stefnt hratt í að færra fé verði á Íslandi
en var um aldamótin 1800. Mynd / HKr.
Lítils háttar fjölgun loðdýra
Loðdýrum fjölgaði lítillega á
Íslandi á árinu 2021, eða úr
15.849 árið 2020 í 16.659, en
þetta eru nær eingöngu minkar.
Stofninn er þó ekki svipur hjá
sjón miðað við það er best lét
þegar metverð fékkst fyrir
minkaskinn árið 2013. Þá fór
meðalverðið í um 13.400 krónur
fyrir skinnið.
Verð á minkaskinnum féll ört
eftir 2013 og komið niður fyrir
kostnaðarverð árið 2016, eða í um
4.000 krónur skinnið. Leiddi það til
þess að minkabúum fækkaði mjög á
Íslandi og eru nú aðeins 5 eftir. Verð
á loðskinnum er nú aftur á uppleið
og komið yfir 6.000 krónur.
Stjórnvaldsskipun var gefin út
í Danmörku um að eyða öllum
eldismink í landinu vegna Covid-
19 seint á árinu 2020 og í byrjun árs
2021. Var um sjö milljónum minka
þá eytt.
Kom svo í ljós að stjórnvöld
höfðu gert þetta með ólögmætum
hætti og voru því orðin bótaskyld
upp á sem nemur mörgum
tugum milljarða íslenskra króna.
Þetta var sérlega bagalegt vegna
þess að danskir minkabændur
höfðu um árabil verið fremstir í
heimi í minkaræktinni. Þá fengu
íslenskir bændur öll sín stofndýr
frá Dönum. Sá litli stofn sem
eftir er á Íslandi er því orðinn
erfðafræðilega mjög verðmætur og
hafa Danir verið að líta til Íslands
varðandi enduruppbyggingu síns
minkastofns. /HKr.
Í fundargerðum stjórnar Bændasamtakanna sem samþykktar hafa verið
og birtar á Bændatorgi, aðgengilegar öllum félagsmönnum BÍ, má sjá í
þeirri nýjustu, öðrum fundi nýrrar stjórnar, dagsettum 19. apríl sl. undir
1. lið g) Stjórnir, nefndir, fagráð og starfshópar – skipan:
„Formaður og framkvæmdastjóri lögðu fram og kynntu „minnisblað
skrifstofu til stjórnar BÍ“, dags. 18. apríl 2022, um núverandi skipan
ýmissa stjórna, nefnda, fagráða og starfshópa sem stjórnar- eða
starfsmenn samtakanna eiga sæti í fyrir þeirra hönd. Eftir miklar umræður
var samþykkt samhljóða að fela formanni og framkvæmdastjóra að gera
breytingar á ofangreindum hópum með hliðsjón af þeim hugmyndum
sem reifaðar voru á fundinum og leggja fram tillögu þar að lútandi á
næsta fundi stjórnar.“
Ný stjórn Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins
Björn Halldórsson. Mynd / HKr.
Björgun fær námaleyfi fyrir skeljasand
Orkustofnun hefur veitt Björgun
námaleyfi að nýju til vinnslu á
skeljasandi úr Faxaflóa.
Vonir eru bundnar við að hægt
verði að afgreiða skeljasand innan
viku, en innlendar skeljasandsbirgðir
voru á þrotum í byrjun apríl.
Um 12 þúsund tonna leyfi
Um bráðabirgðaleyfi til eins árs er
að ræða þar sem heimilt er að taka
10 þúsund rúmmetra af skeljasandi,
sem er um 12 þúsund tonn, af hráum
skeljasandi. Á síðasta ári seldi
Björgun tæplega tíu þúsund tonn af
skeljasandi til fóður- og áburðarsala,
til bænda, verktaka og golfklúbba,
auk steinullarframleiðslu.
Rúmlega þriðjungur til
jarðaræktar og fóðurgerðar
Rúmlega þriðjungur af sölunni á
síðasta ári fór til jarðræktar. /smh
Sóley er sanddæluskip Björgunar.