Bændablaðið - 12.05.2022, Page 4
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 20224
FRÉTTIR
Niðurstöður úr sýnatökum úr
íslensku sauðfé á Grænlandi hafa
sýnt fram á að fjölbreytilegar
arfgerðir eru í hjörðum þar, sem
varða smitnæmi gagnvart riðu.
Í raun virðast hinar verndandi
arfgerðir vera mun algengari á
Grænlandi en á Íslandi.
Í grein þeirra Eyþórs Einarssonar,
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins,
Vilhjálms Svanssonar, Keldum,
Karólínu Elísabetardóttir í
Hvammshlíð og Stefaníu
Þorgeirsdóttur, Keldum, á blaðsíðum
38 og 39 í þessu blaði, kemur fram
að bæði ARR-arfgerðin og T137 séu
nokkuð algengar í íslenska fénu á
Grænlandi.
Sterk vísbending
um íslenskan uppruna
Eyþór samsinnir því að líkur séu á að
arfgerðirnar séu komnar úr íslenska
fénu, sem byrjað var að flytja til
Grænlands árið 1915. „Já, þetta gefur
sterka vísbendingu um að ARR og
T137 arfgerðirnar hafi verið í fénu sem
flutt var út á sínum tíma. Hins vegar
er ekki alveg hægt að fullyrða hvaðan
þetta kemur í grænlenska stofninn því
einhver áhrif gætu verið frá Færeyjum
og Noregi, þótt grænlenska féð sé að
uppistöðu af íslenskum meiði og
virðist líta út eins og íslenskt fé.“
ARR-arfgerðin á 11 búum
Í greininni kemur fram að
sjúkdómastaða grænlenska
sauðfjárstofnsins hafi ekki verið mikið
rannsökuð, en hann virðist laus við
alla alvarlega smitsjúkdóma. Riða
hefur aldrei verið greind í sauðfé á
Grænlandi. ARR-arfgerðin reynist
tiltölulega algeng, en alls fundust
18 kindur með þessa arfgerð af 228
sýnum sem voru greind, en alls voru
tekin sýni á 35 búum. Það er um 8
prósenta kinda í úrtakinu. Þessar 18
kindur koma frá 11 búum. Arfgerðin
T137, sem talin er vera mögulega
verndandi, fannst í 17 prósenta
tilvika og átta prósenta tilvika sem
samsæta.
„Á Grænlandi er um 19.000
kindur. Þar er bara einn stofn sem
er í grunninn íslenskt fé. Líkt og
fram kemur í greininni voru fluttir
inn tveir norskir hrútar þangað inn
1951 og síðan þá er talið að engin
blöndun hafi átt sér stað við þennan
stofn. Rannsóknir sem þegar hafa
verið gerðar á skyldleika kynja hafa
sýnt að grænlenska féð er mjög skylt
því íslenska. Þá er núna fyrirhuguð
rannsókn sem mun varpa enn betra
ljósi á þennan skyldleika,“ segir
Eyþór.
Hann bætir því við að ekki sé til
skoðunar eins og er að nota þennan
stofn til ræktunarstarfs á Íslandi,
þar sem ARR-arfgerðin hafi þegar
fundist á Íslandi. „Hins vegar má
skoða þann möguleika síðar, þar sem
enn er bara fundin ein „uppspretta“
af þessar arfgerð hér á landi. En það
á enn eftir að greina helling af sýnum
á Íslandi og við byrjum að sjá hvað
kemur út úr því.“ /smh
Sjá nánar á blaðsíðum 38-39.
Íslenskt sauðfé á Grænlandi. Mynd / Hans Hansen sauðfjárræktarráðunautur á Grænlandi
Verndandi arfgerðir gegn riðu
nokkuð algengar á Grænlandi
Blóðbóndi hættir starfsemi:
„Ég hef lagt niður vopnin“
– Afar þungbær ákvörðun, segir Sigríður Jónsdóttir, bóndi í Arnarholti
Sigríður Jónsdóttir bóndi og
fjölskyldan í Arnarholti í Biskups
tungum ætla að hætta að halda
blóðmerar.
Sigríður hefur farið fyrir hags-
muna gæslu hrossabænda sem halda
stóðmerar og setið í samninganefnd
bænda við fulltrúa líftæknifélagsins
Ísteka ehf. Samningafundir við
fyrirtækið hafa engan árangur borið
að hennar sögn.
„Ég met það svo núna að það sé
fyrir bestu að hætta, fyrir margra
hluta sakir. Fyrst og fremst er
afkoman af starfseminni engin,
bara kostnaður. Verðið sem Ísteka
setur upp núna felur ekki í sér neinar
verðhækkanir, einungis tilhliðranir.
Verðið sem þeir bjóða borgar með
naumindum útlagðan kostnað á heyi
fyrir merarnar. Bændur fá ekkert upp
í fastan kostnað og engin laun. Þetta
er bara ekki hægt, því miður,“ segir
Sigríður.
Hún segir það afar þungbæra
ákvörðun að fella hrossin sín en sjái
ekkert annað í stöðunni. „Við munum
ekki hleypa til meranna í vor. Þær
fá að ala folöldin sín upp í sumar.
Svo erum við búin að panta fyrir
helming þeirra í sláturhús í haust.
Nokkrar eru í eigu annarra sem við
munum skila og nokkrar ætlum við
að eiga upp á litafjölbreytni og ef
til vill annað. Framtíðin mun leiða í
ljós hvað verður.“
Þá segir hún gott að halda hross
á beit á landi svo það leggist ekki í
órækt. „Grasgefið land virkar betur
af sér ef það er beitt. Hrossin hreinsa
í burt sinu og halda grasinu í vexti.
Áður en við hófum blóðmerabúskap
fyrir þremur árum þá sótti féð okkar
í nágrannabæinn, á þau stykki þar
sem hross eru. Í dag hefur þróunin
snúist við. Féð okkar er hætt að flýja
að heiman og féð af hinum bænum
sækir til okkar. Það segir okkur að
beitin er orðin betri. Við getum ekki
haldið úti hrossastóði til þess eins að
hafa gott land til beitar fyrir féð. En
það er svo margt sem virkar betur
þegar hlutum er blandað saman.“
Hvetur Samkeppniseftirlitið til að
rannsaka Ísteka
„Ég hef lagt niður vopnin. Ef
ég berðist áfram fyrir framtíð
blóðmerabúskapar á Íslandi, væri
ég bara að berjast fyrir Ísteka. Það
fyrirtæki hefur ákveðið að bændur
fái minna en ekkert í sinn hlut.
Fyrirtækið ætlar sér að halda áfram
að féfletta stóðbændur en Ísteka
hefur rakað til sín gríðarlegum
gróða hvert einasta ár í sinni 20 ára
sögu. Árið 2002 fengu tveir eða
þrír einstaklingar þessa starfsemi
afhenta frá ríkinu. Það má kalla
vel heppnaða einkavinavæðingu af
íslensku gerðinni. Afleiðingarnar eru
þessar: Bændur sitja eftir í sárum.
Heiður þeirra og fjárhagur er í rúst
og ekkert fram undan annað en hrun.
Þeir sem fengu fyrirtækið afhent á
sínum tíma eru nú vellauðugir. Þrátt
fyrir að Samkeppniseftirlitið sé á
tröppunum hjá þeim, bæta þeir enn
í fólskuleg samkeppnislagabrot sín
gagnvart bændum. Annaðhvort
eru eigendur Ísteka blindir og
heyrnarlausir á eigin hegðun eða
þeir eru vissir um að yfirvöld líti
til þeirra með velþóknun og að
þeir muni komast upp með þetta.
Ég skora á Samkeppniseftirlitið að
láta verða af því að taka starfsemi
Ísteka til raunverulegrar athugunar.
Satt best að segja held ég að
skattrannsóknarstjóri ætti að gera
það líka,“ segir Sigríður Jónsdóttir,
bóndi í Arnarholti. /ghp
Sigríður Jónsdóttir, bóndi í Arnarholti.
Jarðnæði óskast
Mikil eftirspurn er eftir
búrekstrarjörðum um land allt.
Afar erfitt getur reynst fyrir þá
sem hafa bæði menntun og vilja til
að stunda landbúnað að finna til
starfans jarðnæði.
Á árunum 2017-2021 hafa
117 búfræðingar útskrifast úr
Landbúnaðarháskóla Íslands og stefna
aðrir 34 á útskrift í vor. Í aðsendri grein
tiltekur Jónas Davíð Jónasson frá
Hlöðum ýmsa þætti sem aftrar góðri
endurnýjun á land- búnaðarjörðum.
Nefnir hann að færst hafi í aukana
að bændur selji stærri innviði úr rekstri
bújarða en haldi áfram búskap í smærri
mynd á jörðinni. Afleiðingar þess geti
haft afgerandi áhrif á framtíð jarðanna
og nærumhverfi því þegar komi
að því að selja síðar sé jörðin oft ekki
fýsileg til rekstrar, enda skorti hún
þá oft dýr og greiðslumark, húsakostur
geti verið í niðurníðslu og jörðin
í órækt.
Hátt verð hamlar enn fremur
endurnýjun enda eru fjármögnunar-
leiðir til slíkra kaupa takmarkaðar.
Úrræði banka fyrir eignaminni
einstaklinga, s.s. hlutdeildarlán,
ná ekki yfir jarðakaup. Það gerir
hins vegar ein fjármögnunarleið
Byggðastofnunar. Frá því hún
kynnti sértæk kynslóðaskiptalán
til sögunnar árið 2020 hefur borist
41 lánsbeiðni frá 38 mismunandi
aðilum að upphæð rétt rúmlega 3
milljarðar króna eða hver umsókn
að upphæð 73 milljónir króna að
meðaltali. Aðeins tveimur þeirra
hefur verið hafnað.
Í grein sinni segir Jónas mikilvægt
að bújarðir haldist í rekstri og hvetur
verðandi sveitarstjórnarfulltrúa til að
hlúa að búsetuskilyrðum fyrir þá sem
vilja stunda landbúnað. „Ísland þarf
að búa við fæðuöryggi og slíkt gerist
ekki nema eðlileg kynslóðaskipti
eigi sér stað í landbúnaði.“ /ghp
Sjá nánar á blaðsíðu 55
Vöntun er á jörðum í blómlegum rekstri. Mynd / H.Kr.
Hæsta viðbúnaðarstig enn
í gildi vegna fuglaflensu
Staðfest tilfelli skæðrar fugla flensu
veiru í villtum fuglum hér á landi
eru orðin tæp tuttugu talsins. Einnig
hefur þurft að aflífa heimilishænur
á einum stað. Nýjasta staðfesta
tilfellið var í heiðagæs á Suðurlandi.
Fuglaflensan hefur fundist í fjölda
dauðra súlna, hrafni, álft, svartbak,
helsingja, grágæsum, haferni
og skarfi.
Enn er hæsta viðbún-
aðar stig í gildi og sam-
kvæmt tímabundnum
varnar aðgerðum skulu
ali fuglar hafðir inni í yfir-
byggð um gerðum eða húsum. Að
sögn Brigitte Brugger, sérgreina-
dýralæknis Matvæla stofnunar, mun
endur skoðun þeirra fara fram um
miðjan maí.
Brigitte brýnir fyrir fólki
að tilkynna Matvælastofnun
um dauðan fugl, nema
augljóst sé að hann hafi
drepist af slysförum.
Hægt er að skrá ábendingu á
heimasíðu stofnunarinnar og einnig
hægt að hringja í síma 530-4800 eða
senda tölvupóst á netfangið mast@
mast.is. /ghp