Bændablaðið - 12.05.2022, Page 8
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 20228
FRÉTTIR
Tækniþróunarsjóður styrkir Framhugsun:
Möguleikar framleiðslu á
íslenskum undirburði
Verkefni ráðgjafarfyrirtækisins
Framhugsun ehf., „Bætt nýting
nytjaplantna – hálmkögglar“,
hlaut styrk úr Tækniþróunarsjóði
um miðjan apríl.
Verkefnið felur í sér að kanna
fýsileika á framleiðslu undirburðar úr
þeim hálmi sem til verður við ræktun
á korni hér á landi en enn fremur
telur verkefnastjóri athugavert að
kanna notkun á öðrum nytjaplöntum,
s.s. hampi, í sama tilgangi.
Að sögn Friðriks Más Sigurðs
sonar, framkvæmdastjóra hjá
Framhugsun ehf., felur verkefnið
í sér að nýta innlent hráefni, orku,
hugvit og vinnuafl til að framleiða
nýjar afurðir fyrir vaxandi markað.
„Notkun á undirburði til þess að
bæta aðbúnað dýra hefur stóraukist
hérlendis á liðnum árum. Stór hluti
af þeim undirburði sem notaður er
kemur erlendis frá. Þá er um að ræða
að stærstum hluta viðarspæni eða
spónaköggla,“ segir Friðrik, sem fer
fyrir verkefninu.
„Undirburður þróaður úr nytja
plöntum er hentugri saman með
búfjáráburði heldur en viðarspænir
eða spónakögglar. Þannig getur
verkefnið bætt nýtingu og aukið
notagildi búfjáráburðar getur
stuðlað að því að minnka notkun á
innfluttum tilbúnum áburði.“
Hagkvæmnissjónarmið
og betri nýting
Í verkefninu mun Friðrik vinna
hagkvæmnisathugun og gera
viðskiptaáætlun um framleiðslu
undirburðar úr þeim hálmi sem til
verður við ræktun á byggi og annarri
kornrækt á Íslandi.
„Það eru fjölmörg tækifæri til
eflingar landbúnaðar á Íslandi og
aukinnar framleiðslu um leið og við
tryggjum sjálfbærni landsins. Við
munum meta valkosti hvað varðar
framleiðslu nýrra afurða úr þeim
nytjaplöntum sem ræktaðar eru,
samhliða framleiðslu undirburðar.
Sérstaklega horfum við til þess að
hægt verði að framleiða undirburð
úr hálmi.
Fýsileikakönnun mun jafn
framt skila niðurstöðu um hvaða
nytjaplöntur geta nýst innan
verkefnisins út frá hagkvæmnis
sjónarmiðum og betri nýtingar á
tækjum og aðstöðu,“ segir Friðrik.
Möguleikar hampsins
Friðrik telur áhugavert að skoða
vinnslu undirburðar úr hampi.
„Hampur hefur margvíslega kosti
og kanna þarf betur hvaða afurðir er
hægt að vinna úr honum. Við munum
kanna fýsileika þess að framleiða
undirburð úr honum sem og hvort
hægt sé að verka og þróa afurðir úr
honum til áframhaldandi sölu.“
Að sögn Friðriks er niðurstaðna
verkefnisins að vænta í árslok.
Ráðgjafarfyrirtæki Friðriks,
Framhugsun ehf., var stofnað árið
2020. „Það byggir lausnir sínar á
framsýni í hugsun, nýsköpun og
sjálfbærni í nýtingu auðlinda.
Við viljum stuðla að ábyrgri
nýtingu auðlinda og innleiðingu
sjálfbærra lausna.“ /ghp
Friðrik Már Sigurðsson, fram-
kvæmda stjóri Framhugsunar ehf.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.vbl.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
GRAFAGRINDUR
GOTT ÚRVAL
Þórustaða Kartöflur í Eyjafjarðarsveit bjóða upp á nýjung:
Kolvetnasnauðu Queen Anne
kartöflurnar fá góðar viðtökur
Nýverið kom á markað kartaflan
Queen Anne frá Þórustaða
Kartöflum sem hefur mun lægra
kolvetnainnihald en venjulegar
kartöflur.
„Við munum alveg örugglega
halda áfram að rækta þessa tegund
þar sem markaðurinn hefur tekið
henni einstaklega vel og fyrir
það erum við þakklát,“ segir
Jón Kristjánsson hjá Þórustaða
Kartöflum í Eyjafjarðarsveit.
Jón segir að ástæða þess
að ákveðið var að bjóða upp á
kartöflur af því tagi væri til að auka
fjölbreytileika í úrvali á kartöflum
hér á landi.
„Margir Íslendingar hafa tileink
að sér kolvetnasnautt matar æði og
við vildum bjóða upp á kartöflu sem
hentaði þeim hópi. Við lögðumst því
í leit að útsæði sem gæti uppfyllt
okkar skilyrði og prófuðum
nokkur yrki sem hefðu lægra
kolvetnainnihald en venjulegar
matarkartöflur,“ segir Jón.
Þau höfðu samband við Ólaf
Reykdal hjá Matís sem veitti að
sögn ómetanlega hjálp, sá m.a.
um að rannsaka fjölmörg yrki af
kartöflum á Þórustöðum. Í þeim
hópi var Queen Anne sem nú stendur
íslenskum neytendum til boða.
Góð í ræktun, fremur
ílöng og ljós á lit
Jón segir niðurstöður rannsóknar
hafa komið flestum á óvart, en umrætt
yrki var valið vegna bragðgæða
fremur en lágs kolvetnainnihalds.
„Rannsóknir á þessu yrki voru
endurteknar bara til að gulltryggja
að ekkert hefði farið úrskeiðis. En
niðurstaðan er ánægjuleg,“ segir
hann. Kartaflan Queen Anne er góð í
ræktun, er fremur ílöng og ljós á lit.
„Þeir sem hafa smakkað hjá okkur
telja hana með betri matarkartöflum
og hún er einstaklega þægileg til að
sneiða niður í franskar vegna þess
hversu ílöng hún er,“ segir hann.
Umfangsmikil kartöflurækt er
stunduð á Þórustöðum og á hún sér
sögu sem nær aftur til ársins 1977.
Tvenn hjón sjá um ræktunina nú,
Jón og Tinna Ösp Viðarsdóttir og
Jón Helgi Helgason og Díana Rós
Þrastardóttir. /MÞÞ
Markaðurinn hefur tekið vel við
lágkolvetnakartöflunni.
Jón og Jón Helgi hjá Þórustaða Kartöflum hafa í nógu að snúast en
umfangsmikil kartöflurækt er stunduð á Þórustöðum í Eyjafjarðarsveit. Nýlega
kom á markað kartaflan Queen Anne sem hefur mun lægra kolvetnainnihald
en venjulegar kartöflur.
Nesbú með nýtt lífrænt hænsnahús
í Flóanum fyrir 18 þúsund fugla
Nesbú á Vatnsleysuströnd er þessa
dagana að taka í notkun nýtt og
glæsilegt lífrænt hænsnahús í
Flóahreppi þar sem hænurnar
gefa frá sér lífræn egg samkvæmt
stöðlum frá Vottunarstofunni
Túni.
Búið er með annað lífrænt hús á
svæðinu í landi Miklholtshellis, en
þar eru 12 þúsund lífrænar hænur.
Nýja húsið er rúmlega 2000 m2
með vetrargörðunum þar sem mega
vera allt að 18.000 fuglar. „Húsið
er ætlað í lífræna eggjaframleiðslu
og er nokkuð sérstakt vegna þess
að það eru sérstakir vetrargarðar
í því, sem eru yfirbyggð svæði
þar sem fuglinn getur hlaupið um.
Auk þess verða útisvæði þar sem
fuglinn getur farið út en það er þó
bannað í dag vegna fuglaflensu í
villtum fuglum á Íslandi. Græni
litur hússins á að vísa í lífræna
framleiðslu og að allt sé vænt, sem
vel er grænt,“ segir Stefán Már
Símonarson, framkvæmdastjóri
Nesbús. /MHH
Nýja hús Nesbús í Flóanum er grænt á litinn og sést vel frá Suðurlandsveginum. Um 18 þúsund fuglar verða í
húsinu, sem munu verpa lífrænt ræktuðum eggjum en Vottunarstofan Tún hefur vottað húsið lífrænt, eins og hitt
húsið frá Nesbú, sem er rétt hjá þessu nýja. Mynd / MHH