Bændablaðið - 12.05.2022, Síða 10
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 202210
FRÉTTIR
Arfgerðar greiningar á príon
próteini (PrP) kinda eru nú í
fullum gangi. Að sögn Eyþórs
Einarssonar hjá Ráðgjafarmiðstöð
landbúnaðarins (RML) miða
rannsóknirnar að því að leita að
verndandi arfgerðum og gera átak
í ræktun fyrir þolnari stofnum
gegn riðuveiki.
Annars vegar er í gangi
átaksverkefni RML þar sem bændur
hafa komið inn af miklum krafti við
að kortleggja sínar hjarðir. Síðan er
það hluti af hinum sameiginlegu
rannsóknarverkefnum RML, Keldna
og Karólínu í Hvammshlíð að rekja
ákveðna þræði og leita á nýjum
stöðum eftir því sem vísbendingar
berast af fágætum arfgerðum. Í lok
síðustu viku bættust þrjár hjarðir
við, þar sem T137 arfgerðina er að
finna – en vonir eru bundnar við að
sá breytileiki veiti vernd.
Áður hefur T137 arfgerðin fundist
á bæjunum Sveinsstöðum í Þingi,
Straumi í Hróarstungu, auk Syðri-
Haga og Stóru-Hámundarstöðum á
Árskógsströnd. Nú liggja því fyrir í
heildina upplýsingar um 29 lifandi
gripi í sjö hjörðum sem bera T137
arfgerðina.
Eyþór segir að engar breytingar
séu hins vegar varðandi stöðu ARR,
hinnar alþjóðlega viðurkenndu
verndandi arfgerð – hún hafi aðeins
fundist á Þernunesi við Reyðarfjörð.
Engihlíð og Litli-Árskógur
„Í kjölfar þess að T137 fannst á
Stóru-Hámundarstöðum og síðar
á Syðri-Haga, var fókusinn meðal
annars settur á bæi þar í kring þar
sem væri að finna gamla stofna
sem ekki hafa verið skornir niður
vegna riðuveiki. Þessi leit hefur
skilað því að nú hafa fundist þrjár
ær á bænum Engihlíð og ein kind
á bænum Litla-Árskógi með þessa
spennandi arfgerð. Báðir þessir bæir
eru á Árskógsströndinni og standa
þeir á milli Stóru-Hámundarstaða
og Syðri-Haga.
Á báðum þessum búum er
um að ræða mjög litlar hjarðir en
óslitinn sauðfjárbúskapur hefur þar
verið frá mæðuveikiniðurskurði.
Endurnýjun fjár á þessu svæði
vegna mæðuveiki sem var í kringum
1950, er talin hafa verið með fé úr
Suður-Þingeyjarsýslu. Riðuveiki var
vandamál á þessu svæði á árum áður
og stutt er yfir í Svarfaðardalinn þar
sem eitt illvígasta riðusvæði landsins
er að finna. Sé þessi T137 arfgerð
að virka fyrir íslenskt fé þá er það
ef til vill ekki tilviljun að hún hafi
framræktast á Árskógsströndinni,“
útskýrir Eyþór.
Botnar í
Meðallandi
Sjöunda búið þar
sem þegar hafa
fundist kindur með
T137 arfgerðina er
á bænum Botnum í
Meðallandi í Vestur-
Skafta fells sýslu.
Eyþór segir að þetta
sé einmitt búið sem
komst í fréttirnar
fyrr á árinu vegna
þess að hrossin þar á
bæ hafa ræktast sem
einangraður stofn í
marga áratugi. Nú
séu þessi hross til
rannsóknar, auk þess
sem áhugi vaknaði að
skoða einnig sauðféð
á búinu.
„Þar er líka um
að ræða fremur
lokaðan stofn þó að með einhverjum
undantekningum hafi komið þar
aðkomuhrútar úr nágrenninu. Á
búinu eru í kringum 30 kollóttar
kindur, allar hreinhvítar. Upphaflega
voru tekin 15 sýni á bænum og
fundust þá þrír gripir með T137,
einn hrútur og tvær ær. Hrúturinn
er þá fyrsti kollótti hrúturinn sem
finnst með arfgerðina. Fljótlega
koma niðurstöður fyrir restina af
þessari hjörð.“
Líklega nokkuð útbreidd
áður fyrr
Eyþór telur að T137 arfgerðin
hafi verið nokkuð útbreidd áður
fyrr, miðað við þær niðurstöður
sem þegar liggja fyrir. „Hún finnst
allavega á nokkrum stöðum á
landinu í dag og yfirleitt er lítil
tenging eða engin á milli þessara
gripa á milli hjarða. Arfgerðin
hefur fundist í kollóttum, hyrndum
og ferhyrndum einstaklingum og
jafnframt eiga flestir litir fulltrúa
í hópnum.
Trúlega hefur arfgerðin verið
býsna útbreidd í Tröllaskagahólfinu
þar sem nú finnst hún í gömlum
stofnum á Árskógsströndinni en
í rannsókn Tilraunastöðvarinnar
á Keldum fyrir rúmum 20 árum
síðan fannst hún einnig í þessu
hólfi, þá í kindum á Hesjuvöllum
við Akureyri og Enni í Unadal í
Skagafirði. Í eldri rannsókninni var
T137 einnig að finna á Núpsstað
í V-Skaftafellssýslu, sem er ekki
mjög langt frá Botnum, og má
því ætla að arfgerðin hafi verið
víðar á þessu svæði. Þá fannst
hún einnig á Hrafnkelsstöðum
í Hrunamannahreppi og Neðra-
Vatnshorni í Línakradal en báðar
hjarðir voru skornar niður í kjölfar
riðuveiki.“
Á meðfylgjandi korti, sem
Karólína Elísabetardóttir hefur
unnið eftir heimildum frá Stefaníu
Þorgeirsdóttur á Keldum, má sjá
staðsetningu allra bæja þar sem
T137 arfgerðin hefur fundist bæði
í núverandi verkefnum og í eldri
verkefnum frá Keldum. Eyþór
segir að enn sé lítið búið að greina
af sýnum sem tekin hafa verið á
Suðurlandi og Vesturlandi en í
næstu niðurstöðum sem berist komi
inn svolítið af búum af suður- og
suðausturhluta landsins sem verði
spennandi að sjá.
„Í samanburðarrannsókninni, sem
rannsóknarhópurinn og dr. Gesine
Lühken prófessor eru að koma af
stað, verða skoðuð DNA bæði úr
„gömlum“ og nýfundnum T137-
kindum ásamt T137-einstaklingum
frá Grænlandi. Þá mun koma í ljós
hvort einhver tengsl á milli þeirra
eru greinanleg,“ segir Eyþór.
Tilvalið að skoða álitleg hrútsefni
Í átaksverkefni RML, sem er hið
umfangsmesta sinnar tegundar sem
ráðist hefur verið í, er nú búið að
greina um 8.500 sýni úr tæplega
140 hjörðum, að sögn Eyþórs. Hann
segir að á næstu dögum sé síðan von
á um 2.100 niðurstöðum úr sýnum
sem send voru til greiningar 16. og
17. mars.
„Þegar sá pakki verður kominn
bíða rúmlega 8.000 sýni greiningar
sem þegar hafa skilað sér til baka
frá bændum og um 7.000 hylki eru
hjá bændum, væntanlega hluti af
því sem enn er ótekið. Þegar allt
verður komið til baka verður búið
að greina um 26.000 sýni í gegnum
átaksverkefnið auk um 4.000 sýna í
gegnum rannsóknarverkefni RML,
Keldna og Karólínu.
Aðeins hefur verið um það
að menn taki sýni úr lömbum
nú í vor, en tilvalið er að skoða
álitleg hrútsefni strax þannig að
niðurstaða liggi örugglega fyrir við
ásetningsvalið næsta haust,“ segir
Eyþór að lokum. /smh
T137-kindur á Botnum (B), Engihlíð (E), Litla-Árskógi (L) og Syðri-Haga (S).
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
WEXIÖDISK, COMENDA OG HOBART UPPÞVOTTAVÉLAR
ÖFLUGUR LIÐSAUKI Í ELDHÚSIÐ
WEXIÖDISK
Vandaðar og öflugar vélar
fyrir þá sem vilja það besta
COMENDA
Ódýrari kostur - öflug og
góð vél fyrir stærri eldhús
HOBART
Frábær fyrir minni eldhús,
kaffistofur o.fl.
Nánari upplýsingar veitir sölufólk okkar í síma 580 3900
Öll skráð tilfelli T137 og ARR-arfgerða. Mynd / Karólína í Hvammshlíð
Arfgerðin T137 finnst á Botnum og
reynist útbreidd á Árskógsströndinni
– Alls 29 lifandi gripir í sjö hjörðum sem bera arfgerðina sem vonast er til að sé verndandi gegn riðu