Bændablaðið - 12.05.2022, Page 14
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 202214
Helga Bjarnadóttir í Varmahlíð
hlaut Samfélagsverðlaun Skaga
fjarðar fyrir árið 2022, en þau
voru veitt á dögunum í sjö unda
sinn. Samfélagsverðlaunin eru
veitt árlega þeim einstaklingi,
fyrirtæki, stofnun eða félaga
samtökum í Skagafirði sem hafa
með störfum sínum lagt mikið til
þess að efla skagfirskt samfélag.
Að þessu sinni bárust alls 33
tilnefningar og voru 14 aðilar
tilnefndir.
„Á langri ævi hefur Helga
auðgað skagfirskt samfélag með
margvíslegu móti þó það hafi ekki
alltaf farið hátt, enda Helga lítið
fyrir að hreykja sér af verkum
sínum,“ segir í umsögn um Helgu
og Samfélagsverðlaunin.
Hún á að baki farsælan feril sem
barnakennari og skólastjóri og hafði
einstaklega góð og mótandi áhrif á
nemendur sína. Margir þeirra halda
mikilli tryggð við hana æ síðan.
Helga hefur verið og er enn virk í
starfi kvenfélaganna í Skagafirði, og
sat meðal annars um árabil í stjórn
Kvenfélagssambands Skagafjarðar.
Helga hefur komið að bókaútgáfu og
um árabil hefur hún haft forgöngu
um vinsælt félagsstarf aldraðra
Skagfirðinga að Löngumýri og enn
heldur hún því starfi uppi af miklum
krafti með vinkonum sínum.
Lætur sig skipta velferð þeirra
sem höllum fæti standa
Þá segir einnig að Helga sé öðrum
íbúum Skagafjarðar fyrirmynd
hvað varðar fegrun og umgengni
um umhverfi sitt. Sér þess glöggan
stað bæði í heimagarði hennar og á
Löngumýri. Síðast en ekki síst skal
nefnt að hún hefur ætíð látið sig
miklu skipta líðan og velferð þeirra
sem einhverra hluta vegna standa
höllum fæti í lífinu. Ófáir eru þeir
sem með ýmsum hætti hafa notið
manngæsku og liðsinnis Helgu
í gegnum tíðina og er svo enn þó
aldurinn sé byrjaður að setja mark
sitt á starfsgetu hennar.
„Helga Bjarnadóttir er fulltrúi
þeirrar kynslóðar sem ekki telur
mikla þörf á að láta bera á þeim
óeigingjörnu sjálfboðaliðastörfum
sem raunverulega skipta svo miklu
máli í að skapa það góða samfélag
sem við Skagfirðingar búum í,“
segir á vefsíðu Sveitarfélagsins
Skagafjarðar. /MÞÞ
FRÉTTIR
Metaðsókn á tjaldsvæðin við Akureyri sumarið 2021:
Tæplega 80 þúsun gistinætur og
Íslendingar í miklum meirihluta
– Tveimur flötum bætt við tjaldstæðið á Hömrum í sumar
„Við trúum því að veðrið verði
áfram með okkur í liði og að
við eigum gott og ferðaríkt
sumar í vændum,“ segir Ásgeir
Hreiðarsson, framkvæmdastjóri
Útilífsmiðstöðvar skáta á
Akureyri, og að bjartsýni ríki fyrir
komandi sumar.
Tjaldsvæðið að Hömrum er opið
allt árið og hefur aðsókn aldrei verið
meiri en það sem af er ári, sem
dæmi voru gistinætur í nýliðnum
aprílmánuði tæplega 1.000.
„Í raun eru einungis örfáir
dagar fyrstu fjóra mánuði ársins
þar sem ekki voru einhverjir gestir
á svæðinu,“ segir hann.
Ásgeir segir að liðið ár hafi slegið
met hvað aðsókn varðar. Þrátt fyrir
að samkomutakmarkanir hafi verið
í gildi af og til á síðastliðnu ári var
slegið aðsóknarmet á tjaldsvæðum
á Akureyri. Gistinætur á báðum
svæðum, þ.e. við Hamra og á
svæðinu við Þórunnarstræti inni í
bænum, urðu á árinu 2021 samtals
79.500. Það er mikil aukning frá
árinu þar á undan, eða sem nemur
um 63% á milli áranna 2020 til 2021.
Íslendingar voru bróðurpartur
þeirra sem nutu lífsins á tjaldsvæð um
Akureyrar, en í um 85% af heildar
fjölda gistinátta liðins árs voru
Íslendingar á ferðinni. Útlendingar
voru 15% gestanna.
„Af þessum tæplega 80 þús
und gistinóttum í fyrra voru um 15
þúsund á tjaldvæðinu við Þórunnar
stræti,“ segir Ásgeir.
Tvö ný svæði í notkun á Hömrum
Hann segir að nú á komandi sumri
verði ekki opið við Þórunnarstrætið,
forsvarsmenn Akureyrarbæjar ætli
sér að taka það svæði undir aðra
starfsemi.
„Í kjölfar þess að það tjaldsvæði
dettur út hefur verið ráðist í að
stækka svæðið á Hömrum til norðurs
og við vonum að þau verði tilbúin
til notkunar í sumar,“ segir Ásgeir.
Hann segir gleðilegt hversu mikil
aðsókn hefur verið að tjaldsvæðinu
að Hömrum það sem af er ári og
nánast upp á hvern dag nú fyrri hluta
ársins hafi dvalið þar gestir. Nefnir
hann sem dæmi að í mars voru um
500 gistinætur skráðar á Hömrum og
í apríl voru þær 967 talsins.
„Mest eru þetta erlendir ferða
menn á litlum húsbílum, þó einn
og einn gestur komi með tjald, og
Íslendingarnir eru aðeins farnir að
viðra hjólhýsi sín,“ segir Ásgeir.
/MÞÞ
Það er oft margt um manninn á Hömrum, Útilífsmiðstöð skáta á Akureyri, en aldrei hafa fleiri gist á svæðinu en
í fyrra, tæplega 80 þúsund gistinætur skráðar árið 2021 þrátt fyrir að af og til hafi verið settar takmarkanir vegna
heimsfaraldursins. Tvær nýjar flatir hafa verið gerðar norðan við Hamra og er vonast til að þær verði tilbúnar næsta
sumar, enda hefur svæðinu við Þórunnarstræti verið lokað. Mynd / Ágúst Óli Ólafsson
Helga Bjarnadóttir í Varmahlíð hlaut Samfélagsverðlaun Skagafjarðar:
Hefur á langri ævi auðgað skagfirskt samfélag
„Þetta er stórt verkefni og mjög
metnaðarfullt. Það er ánægjulegt
að sjá hversu framsæknir og
stórhuga eigendur eru,“ segir
Guðmundur Þór Birgisson, fram
kvæmda stjóri Jarð baðanna í
Mývatns sveit. Fyrsta skóflu stunga
að nýrri aðstöðu Jarð baðanna var
tekin nýverið en undirbúningur
hefur staðið yfir alllengi. „Það er
gleðilegt að þetta er um það bil að
verða að veruleika því við höfum
stefnt að stækkun um nokkurra
ára skeið.“
Guðmundur Þór segir að til standi
að reisa nýja byggingu á svæði
Jarðbaðanna. Hún verður á einni hæð
og þar verður veitingarými, aðstaða
til fundahalda, inni og útiklefar,
slökunarrými og nuddaðstaða. Nýtt
lón verður lagað að byggingunni,
það verður í allt um 2.300 fermetrar
að stærð og þannig útbúið að gestir
geta gengið beint úr búningsklefa
út í lónið. „Upplifunarsvæðum
í nýja lóninu verður fjölgað frá
því sem nú er, við útbúum eins
konar vegvísi sem gestir geta
farið eftir og á ferð sinni upplifað
spennandi ævintýraleið. Útsýnið
yfir Mývatnssveit er stórbrotið og
gestum gefst færi á að njóta þess í
botn í lóninu,“ segir hann.
Markmiðið er að auka vellíðan
gesta og skapa ferðalag í gegnum
lónið þannig að fólk upplifi mikla
nálægð við náttúruna í einstöku
umhverfi með mikilfenglegt
útsýni Mývatnssveitar fyrir
augunum. Hönnuðir eru Basalt
arkitektar, Design Group Italia og
Efla verkfræðistofa en starfsfólk
þeirra hefur tekið þátt í hönnun
fjölda baðstaða og hefur hópurinn
því mikla reynslu og þekkingu í
farteskinu. „Við höfum náttúruvernd
og sjálfbærni að leiðarljósi í gegnum
allt ferlið sem og við rekstur
Jarðbaðanna til framtíðar,“ segir
Guðmundur Þór.
Ný aðstaða opnuð á
tvítugsafmælinu
Framkvæmdir hefjast nú í vor og
er stefnt að því að opna á fyrsta
ársfjórðungi ársins 2024. „Það
verður gaman að halda upp á 20 ára
afmælið með því að opna þessa nýju
og glæsilegu aðstöðu,“ segir hann.
Meðal þess sem áhersla verður
lögð á að sögn Guðmundar er að
stækka búningsklefa þannig að rými
á hvern gest stækkar og það eykur á
jákvæða upplifun gesta. Náttúrulega
gufubaðið sem Jarðböðin eru þekkt
fyrir liggur ofan á sprungu og mun
því halda sinni staðsetningu, enda
hefur það mikið aðdráttarafl. „Við
munum svo aðlaga eldra lónið að
því nýja og saman mynda þau eina
heild með enn meira rými fyrir
okkar gesti.“
Yfir 100 þúsund gestir í fyrra
Ríflega 100 þúsund gestir heimsóttu
Jarðböðin á síðastliðnu ári, þrátt
fyrir að á stundum væru takmarkanir
á gestakomum og einnig komu
tímar þar sem var alveg lokað
vegna heimsfaraldursins. Þetta ár
fer vel af stað og segir Guðmundur
Þór talsvert af ferðafólki hafa
verið á ferðinni undanfarið og
fari fjölgandi eftir því sem á líður
vorið. „Aðsóknin hefur verið góð
undanfarið og útlitið fyrir sumarið
er gott, fínar bókanir þegar komnar
og því bendir allt til þess nú að
fjöldi gesta muni leggja leið sína
til okkar,“ segir hann.
Jarðböðin er einn af stærri
vinnustöðum í Skútustaðahreppi,
en yfir sumarið starfa þar ríflega
40 manns. Opið er frá kl. 10:00 á
morgnana til 23:00 á kvöldin þannig
að nokkurn fjölda starfsmanna þarf
yfir daginn. Guðmundur Þór segir
að Jarðböðin hafi látið reisa raðhús
með sjö íbúðum fyrir starfsfólk og
hjálpi það mjög til við að fá fólk til
starfa að geta boðið upp á öruggt
húsnæði. /MÞÞ
Stækkun Jarðbaðanna í Mývatnssveit:
Ný bygging reist og nýtt
og stærra lón útbúið
Fyrsta skóflustunga að nýju aðstöðu Jarðbaðanna í Mývatnssveit var tekin
nýlega og hefjast framkvæmdir í kjölfarið nú í vor, en stefnt er að því að opna
nýtt og stækkað lón og nýja byggingu, m.a. með rúmgóðum búningsklefum,
fyrri hluta ársins 2024. Á myndinni eru Helgi Júlíusson, Einar Mathiesen,
Steingrímur Birgisson, Dagbjört Bjarnadóttir og Sigríður Margrét Oddsdóttir,
sem lögðust á eitt við að hefja verkefnið.
Nýtt lón Jarðbaðanna verður um
2.300 fermetrar að stærð, nýbygging
verður reist við það og gestir ganga
beint úr búningsklefa út í lónið. Þar
verður hægt að fara í ævintýralega
vellíðunarferð og njóta mikilfenglegs
útsýnis yfir Mývatn.
Varahlu�r i VOLVO
Vinnutæki
Helga Bjarnadóttir í Varmahlíð en hún hlaut Samfélagsverðlaun Skagafjarðar
fyrir árið 2022. Hér er hún í hópi fjölskyldu sinnar.