Bændablaðið - 12.05.2022, Side 16
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 202216
Styrjuhrogn, lúsétandi hrognkelsi,
græn sæeyru, sushi-lostætið
gullinrafi og gómsæt senegalflúra
eru hluti af fjölbreyttri „flóru“
fiskeldis á Íslandi. Nýjar og
spennandi afurðir eru í farvatninu.
Fiskeldi er ört vaxandi
atvinnugrein á Íslandi, einkum
laxeldi í sjókvíum í fjörðum fyrir
vestan land og austan. Einnig eru
áform uppi um stórfellt landeldi á
laxi á Reykjanesi og jafnvel víðar.
Mikið hefur verið fjallað um
vöxt laxeldis hér á landi og aðrar
eldistegundir hafa fallið í skuggann
að miklu leyti. Þótt annað fiskeldi
en lax, bleikja og regnbogasilungur
sé aðeins stundað hér í smáum stíl
er það þó allrar athygli vert. Það
getur orðið vísir að einhvejru meira
í framtíðinni. Eitt fyrirtæki, Stolt
Sea Farm Iceland hf. á Reykjanesi,
kemur hér mjög við sögu.
Í þessari grein verður fjallað
um þær eldistegundir sem minna
hefur borið á. Greinargott yfirlit
yfir fiskeldi á Íslandi er að finna í
ársskýrslu dýralæknis fisksjúkdóma
2021 hjá Matvælastofnun. Í
umfjöllun hér á eftir verður gluggað
í eldiskaflann í þessari skýrslu, hann
endursagður í stuttu máli en margt
tekið orðrétt upp.
Hagstætt ár fyrir fiskeldi
Áður en vikið verður að eldisteg
undum sem minna hefur farið
fyrir í umræðunni skal fyrst litið
á heildarframleiðslu fiskeldis á
árinu 2021.
Í skýrslunni kemur fram að árið
2021 hafi á heildina litið verið farsælt
á flestum sviðum íslensks fiskeldis
og framleiðsla til slátrunar nokkuð
umfram bjartsýnar væntingar.
Samtals voru 54 eldisstöðvar í
fullum rekstri árið 2021. Af þeim
voru 4 með lax í sjókvíum í 7
fjörðum og 3 með regnbogasilung í
3 fjörðum. Öll önnur eldisfyrirtæki
voru með starfsemi sína á landi í
ýmsum útfærslum.
Alls var slátrað 53.136 tonnum
af eldisfiski á liðnu ári og jókst
heildarframleiðslan um 31% milli
ára. Þar vó þyngst rúmlega 12.000
tonna aukning á laxi úr sjókvíaeldi.
Landeldi á laxi stóð í stað og er
einungis rúm 4% af heildinni.
Sjókvíar gáfu 44.503 tonn en land
eldi 1.955 tonn.
Heildarframleiðslan til manneldis
í fyrra samanstendur aðeins af
fjórum eldistegundum. Framleiðsla á
laxi var 46.458 tonn, á bleikju 5.390
tonn, á regnbogasilungi 951 tonn og
senegalflúru 337 tonn.
Hreinsa lús af laxi
Snúum okkur þá að þeim eldisteg
undum sem minna hefur verið
fjallað um. Fyrst skal nefna
hrognkelsi, eða öllu heldur
hrognkelsaseiði, sem alin eru hér í
nokkrum mæli, ekki til manneldis
heldur til að hreinsa lús af laxi.
Hrognkelsaeldi hófst í fyrsta
sinn með skipulögðum hætti hér
á landi vorið 2014. Þá höfðu
Færeyingar lýst áhuga sínum á
því að kaupa „hreinsifisk“ til að
halda lús í sjókvíalaxi í skefjum.
Tilrauneldisstöð Hafrannsókna
stofnunar á Stað við Grindavík
hóf þessa framleiðslu en langstærsti
framleiðandinn í dag er Benchmark
Genetics Iceland hf. (áður
StofnFiskur).
Framleiðslugeta nú er 3,5
milljónir seiða á ári að stærð
25 grömm. Megnið er flutt út
á seiðastigi til Færeyja. Einnig
hafa fyrirtæki á Vestfjörðum
verið dugleg við að nýta sér
þessa aðferð til að halda laxalús í
skefjum. Þá hefur skoskt laxeldi á
hverju ári síðan 2015 sótt hingað
hrognkelsaefnivið, ýmist sem hrogn
eða lirfur.
Árið 2021 voru flutt út rétt
rúm 1,2 milljónir seiða (24 til 44
grömm) til Færeyja. Auk þess
fóru 650.000 smáseiði til Færeyja
(0,5 grömm).
Vestfirskar laxeldisstöðvar fengu
á síðasta ári 863.000 seiði sem dreift
var á sjókvíar á 8 sjókvíaeldissvæði
í 3 fjörðum.
Hrognkelsin eru svo mikilvirk
við lúsaátið að fastir kaupendur
að hrognkelsaseiðum hafa lítið
sem ekkert þurft að nota lyf gegn
laxalús á sjókvíaeldissvæðum, að
því er fram kemur í skýrslu dýra
læknis Mast.
Kræklingarækt enn í lægð
Kræklingarækt hefur átt á brattann
að sækja eins og áður hefur verið
fjallað um á þessum vettvangi. Því
verður farið fljótt yfir sögu hér.
Í skýrslunni kemur fram að
þrjú fyrirtæki haldi enn velli og
hafi undanfarin ár stundað ræktun
og uppskeru á tveimur megin
hafsvæðum, í Breiðafirði og
Steingrímsfirði.
Megnið af uppskerunni í dag er
fengið með veiðum á villtri skel
(plæging). Minni skel sem veiðist
er sett í pulsur og ræktuð í sjó í
heppilega stærð. Árleg uppskera
við eðlilegar markaðsaðstæður er
í kringum 100 tonn og þar af er vel
yfir helmingur villt skel.
Eldi á senegalflúru
Senegalflúra þykir einn vinsælasti
flatfiskurinn á betri veitingahúsum
víða um heim. Eldi á senegalflúru
hófst með formlegum hætti hjá Stolt
Sea Farm Iceland í ágúst 2013.
Í byrjun árs 2015 var eldisstöðin
farin að ala fiski í öllum stærðum og
fyrsta slátrun hófst í febrúar sama
ár. Flest hefur farið fram samkvæmt
áætlun. Sjálft eldið hefur gengið
að óskum og flúran er harðger
og sæmilega hraðvaxta. Mest fór
framleiðslan í 400 tonn árið 2017
en var 337 tonn á síðasta ári eins og
áður er getið.
Upphaflegt markmið var að
ala upp eigin klakstofn með tíð
og tíma. Þau áform hafa breyst
og seiði eru fengin eftir þörfum
frá móðurfyrirtækinu á Spáni. Á
síðasta ári voru flutt inn 2,6 milljónir
smáseiða.
Tilraunaeldi á styrju
hefur gefist vel
Styrjueldi hófst sem lítil tilraun hjá
Stolt Sea Farm Iceland í desember
2014.
Alls voru flutt inn 300 smáseiði
frá dótturfyrirtæki Stolt Sea Farm í
Kaliforníu. Tilgangur tilraunarinnar
er að kanna möguleika á því að
koma á fót kavíarframleiðslu. Það
tekur hér 8 til 10 ár að ala seiði fram
að kynþroska.
Styrjan hefur dafnað vel og á
liðnu ári voru um 160 fiskar í eldi
og meðalþyngd komin í 70 kíló.
Stærstu hrygnur eru í kringum 1,5
metrar á lengd og vel yfir 100 kíló.
Búast má við að fyrstu hrygnur
gefi hrogn, sem eru sem kunnugt
er verðmætustu afurðir styrjunnar,
árið 2022.
Stefnt að kavíarframleiðslu
á Ólafsfirði
Styrjurnar hafa ekki látið staðar
numið á Reykjanesi því nýtt félag,
Hið Norðlenzka Styrjufjelag ehf.,
sem stofnað var síðastliðið haust,
hefur fjárfest í fiskunum og flutt
megnið af þeim norður á Ólafsfjörð.
Styrjueldið verður þar í gamalli
saltfiskverkun sem gerð hefur verið
upp.
Í bígerð er að útbúa húsnæðið
meðal annars þannig að aðstaða
verði fyrir ferðamenn til að fylgjast
með eldi styrjunnar. Ef allt gengur
að óskum er stefnt að því að hefja
framleiðslu á kavíar þegar á þessu ári.
Þess má geta að hrogn eru um 10% af
þyngd hrygnunnar þannig að reikna
má með 6 til 18 kílóum af kavíar úr
hverri hrygnu annað hvert ár.
Gullinrafi, verðmætur eldisfiskur
Gullinrafi er okkar allra nýjasti
eldisfiskur en tegundin var í fyrsta
sinn flutt til Íslands frá Spáni í júlí
í fyrra til tilraunaeldis hjá Stolt Sea
Farm Iceland.
Gullinrafi (yellowtail kingfish)
er hraðvaxta hlýsjávartegund. Hann
getur orðið næstum tveir metrar á
lengd og um 80 kíló að þyngd við
náttúruleg skilyrði.
Á meðan á tilraunaeldinu stendur
er áformað að ala 30 til 40 tonn á
ári sem krefst árlegs innflutnings á
710.000 smáseiðum.
Gullinrafi er yfirleitt allt að
tvöfalt verðmætari en lax sem felst
fyrst og fremst í miklum holdgæðum
sem henta vel til sushi matargerðar.
Sæeyru lofa góðu
Sæeyru eru stór sæsnigill í skel.
Þetta er ein dýrasta sjávarafurð sem
hægt er að panta á veitingastöðum
erlendis. Eldi og tilraunir með eldi á
svokölluðum rauðum sæeyrum fóru
fram hér á árum áður en framleiðsla
til útflutnings féll niður.
Þráðurinn hefur verið tekinn
upp að nýju og sæeyru af gerðinni
græn eyru hafa verið í tilraunaeldi
hjá Sæbýli á Eyrarbakka síðan
2012. Eftir 10 ára þróunarstarf er
starfsemin flutt til Grindavíkur.
Unnið hefur verið að uppbyggingu
lífmassa framleiðsludýra á Eyrar
bakka sem lofar góðu fyrir fram
leiðslu afurða til manneldis í nýju
aðstöðunni í Grindavík.
NYTJAR HAFSINS
Kjartan Stefánsson
kjartanst@simnet.is
Fjölbreytt fiskeldi til hliðar við laxinn
Senegalflúra í eldi hjá Stolt Sea Farm Iceland. Flúran er einn vinsælasti og verðmætasti flatfiskur sem um getur.
Myndir / Fiskifréttir
Seiði af hrognkelsum. Hrognkelsi eru fyrirtaks hreinsifiskur. Þau eru svo mikilvirk við lúsaátið að fastir kaupendur
að hrognkelsaseiðum hafa lítið sem ekkert þurft að nota lyf gegn laxalús á sjókvíaeldissvæðum.
Atvinnuveganefnd hefur til
umfjöllunar frumvarp þar sem
fjallað er um veiðistjórn sandkola
og hryggleysingja. Frumvarpið
er stjórnarfrumvarp lagt fram
af Svandísi Svavarsdóttur
matvælaráðherra.
Landssamband smábátaeigenda
veitti umsögn um frumvarpið og
hefur fundað með atvinnuveganefnd.
Í umsögn LS er meðal annars vakin
athygli á að veiðum á sandkola hefur
á aðalveiðisvæði hans verið stjórnað
með aflamarki frá 1. september 1997.
Segja má að stofninn hafi hrunið á
undanförnum árum þrátt fyrir að
heildarafli hafi ekki farið umfram
ráðgjöf. Fiskveiðiárið 2003/2004 var
heimilt að veiða 7.000 tonn en nú er
leyfilegur afli 319 tonn.
Veiðist mest í dragnót
Í umsögninni benti LS á að nánast
allur sandkoli veiddist í dragnót
og því óþarft að aflamark næði
til annarra veiðarfæra. Í þau væri
sandkoli sem meðafli og ætti að vera
það áfram.
Hryggleysingjar
LS leggur til að veiðistjórn á
hryggleysingjum verði svæðis
bundin, enda flest kvikindin með
litla hreyfigetu. Veiðileyfi verði
gefin út til ákveðinna svæða, þannig
ætti hver og ein útgerð hægara með
að stjórna veiðunum með sjálfbærni
að leiðarljósi.
Í umsögn LS var sérstaklega
vakin athygli á
samþykkt aða l
fundar 2021 um
sæbjúgu.
„Aðal fund ur LS
lýsir yfir þungum
áhyggjum af þróun
sæbjúgna veiða og
vill að áhrif þeirra
á botndýr, botn
og búsvæði fiska
verði rannsökuð
hið fyrsta. Telur
fund urinn að áhrif veiðanna séu
geysileg þar sem sífellt stærri og
öflugri skip eru notuð til veiðanna,
t.d. er lágmarksþyngd sæbjúgna
plógs eitt tonn.“ /VH
Umsögn Landssambands smábátaeigenda:
Sandkoli og hryggleysingjar
Sæbjúga. Mynd / wikipedia.org