Bændablaðið - 12.05.2022, Síða 18
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 202218
HROSS&HESTAMENNSKA
Lífræn hreinsistöð
• Fyrirferðalítil fullkomin
sambyggð skolphreinsistöð
• Uppfyllir ýtrustu kröfur um
gæði hreinsunar
• Engin rotþró eða siturlögn
25 ára ábyrgð
• Tæming seyru á þriggja til
fimm ára fresti
• Engir hreyfanlegir hlutir
• Stærðir frá 6 – 55 persónueiningar
Tunguhálsi 10 - 110 Reykjavík
Sími 517 2220 - petur@idnver.is
G
ra
fik
a
19
Endurmenntunarnám hjá Landbúnaðarháskóla Íslands:
Reiðmenn fögnuðu útskrift
Útskriftarhátíð námsbrautarinnar
Reiðmaðurinn hjá Endur menntun
LbhÍ var haldinn á góðviðrisdegi á
Mið-Fossum þann 1. maí sl.
Nemendur öttu kappi í
gæðinga fimi og gæðingatölti og
veittar voru viðurkenningar fyrir
framúrskarandi árangur í náminu.
Reiðmaðurinn er, samkvæmt
lýsingu, ætlað fróðleiksfúsum
reiðmönnum og áhugafólki um reið
mennsku sem vill auka við þekkingu
sína og færni í reiðmennsku,
hrossarækt og almennu hestahaldi
en ekki síður fyrir þá reiðmenn sem
vilja fara í þá vinnu að eflast sem
manneskjur. Námskeiðið er byggt
upp á námi í reiðmennsku en auk
þess fræðast nemendur um sögu
og þróun hestsins, fóðrun hans,
frjósemi og kynbætur.
Námið er haldið á níu stöðum á
landinu en átta Reiðmannshópar, á
annað hundrað manns, komu saman
á MiðFossum í hestamiðstöð
Landbúnaðarháskóla Íslands til að
fagna útskrift.
Tveir nemendur fengu viður
kenningu fyrir framúrskarandi
námsárangur, þau Guðmundur
Árnason fyrir árangur í námsleiðinni
Reiðmaðurinn I og Jóhanna
Vilhjálms dóttir í Reiðmanninum II.
Hæst metnu nemendur Reið
manns ins II um Reynisbikarinn, sem
gefinn er til minningar um tamninga
meistarann Reyni Aðal steinsson sem
var upphafs maður námsins. Hrefna
Karls dóttir stóð uppi sem handhafi
verðlaunagripsins. Á meðan hlaut
Anna Guðný Baldursdóttir hæstu
einkunn nemenda Reiðmannsins I
í gæðingafimi.
Þá kepptu nemendur sín á milli
í gæðingatölti í flokki minna og
meira vanra knapa. Í flokki meira
vanra stóð gæðingurinn Váli frá
EfraLangholti uppi sem sigurvegari
með einkunnina 8,6 en Ragnar
Sölvi Geirsson var knapi hans.
Í flokki minna vanra knapa hlutu
gæðingarnir Ágúst frá Koltursey,
setinn Rafnari Rafnarssyni og
Erpur frá Hlemmiskeiði 2, setinn
af Jóhönnu Maríu Vilhjálmsdóttur
sem fengu sömu lokaeinkunn, 8,467,
en dómarar völdu Ágúst og Rafnar
sem sigurvegara.
Opið er fyrir skráningar í
Reiðmanninn hjá Endurmenntun
LbhÍ en auk hinna föstu námshópa
verður boðið upp á sérstakt nám í
frumtamningum. /ghp
Hrefna Karlsdóttir er handhafi Reynisbikarsins í ár. Í öðru sæti varð Jóhanna Vilhjálmsdóttir og Bertha Karlsdóttir
í því þriðja. Hér stilla verðlaunahafar sér upp ásamt Ragnheiði Þórarinsdóttur, rektor LbhÍ, ásamt fleiri nemendum
í Reiðmanninum II: Bjarni Hjörleifsson og Stefán Bjartur Stefánsson, María Þórunn Jónsdóttir, Þorgerður Gyða
Ásmundsdóttir og Sigurjón Þorri Ólafsson. Myndir / LbhÍ
Nemendur Reiðmannsins I öttu kappi í gæðingafimi. Þar stóð uppi sem
sigurvegari Anna Guðný Baldursdóttir. Þórdís Anna Oddsdóttir var í 2. sæti,
Anna Linda Gunnarsdóttir í því þriðja. Þá koma Júlía G. Gunnarsdóttir, Guðrún
Margrét Steingrímsdóttir, Guðmundur Árnason, Björn Ragnar Morthensen
og Magnús Björgvin Jóhannesson, sem stilla sér hér upp ásamt rektor.
Hestaíþróttir:
Atvinnuknapar og áhugamenn
leiddu saman hesta sína
Lið Árbæjarhjáleigu / Hjarðartúns
sigraði Suðurlandsdeildina í
hestaíþróttum. Liðið skipuðu
knaparnir Hafþór Hreiðar Birgis-
son, Hans Þór Hilmarsson, Hekla
Katharína Kristinsdóttir og svo
Hermann Arason.
Suðurlandsdeildin, sem á rætur
sínar að rekja til ársins 2017, er
liðakeppni þar sem atvinnuknapar
og áhugamenn leiða saman hesta
sína í íþróttakeppni. Alls tóku fjórtán
lið og 84 knapar þátt í ár en keppnir
fara fram í Rangárhöllinni á Hellu í
mars og aprílmánuði.
Keppt var í fimm keppnisgreinum;
fjórgangi, fimmgangi, tölti og
skeiði auk parafimi, sem er
keppnisgrein sem aðstandendur
Suðurlandsdeildarinnar mótuðu. Í
henni mynda tveir knapar og fákar
þeirra par á reiðvellinum og reynir
á ganghæfileika, fegurð, kraft og
glæsileika keppnishestanna, auk
samvinnu knapanna á vellinum.
„Tilgangurinn hefur verið
frá upphafi að búa til vettvang
fyrir þau hrossaræktarbú sem
eru á svæðinu að mynda saman
lið skipað atvinnumönnum og
áhugamönnum. Skilgreiningin
á áhugamanni er frekar opin en
hugsunin er að atvinnumennirnir
á búunum ásamt starfsfólki geti
myndað lið saman. Það hefur
heppnast gríðarlega vel þó einhverjir
hafi færst upp um flokk, yfirleitt
er „slegist“ um áhugamennina
en að sama skapi er það frábært
tækifæri fyrir þá að keppa því þeir
skipta jafn miklu máli fyrir liðið og
atvinnumennirnir,“ segir Eiríkur
Vilhelm Sigurðarson, mótsstjóri
Suðurlandsdeildarinnar, en Rangár
höllin og Hestamannafélagið Geysir
standa að viðburðunum. /ghp
Vinningshafar Suðurlandsdeildarinnar í hestaíþróttum að þessu sinni var
Lið Árbæjarhjáleigu /Hjarðartúns, sem stillir sér hér upp ásamt aðstandendum
deildarinnar. Frá vinstri; Eiríkur Vilhelm Sigurðarson, mótsstjóri
Suðurlandsdeildarinnar og liðseigandi, Bjarni Elvar Pjetursson liðseigandi,
Hekla Katharína Kristinsdóttir, Arnhildur Helgadóttir, Hermann Arason, Gísli
Guðjónsson, Hafþór Hreiðar Birgisson og Hans Þór Hilmarsson.
Myndir / Óðinn Örn Jóhannsson
Leó Geir Arnarsson og Matthildur frá Reykjavík vöktu athygli fyrir glæsilega
sýningu í tölti og hlutu langhæstu einkunn í þeirri keppnisgrein.
Hann hafði ástæðu til að brosa,
knapinn Hafþór Heiðar Birgisson
á Jarli frá Þóroddsstöðum, enda
sigurvegarar í skeiði áhugamanna
og í vinningsliði deildarinnar.
Reykjavík Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
Lely Center Ísland
Landbúnaðarleikföng