Bændablaðið - 12.05.2022, Page 20
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 202220
Þróun sameiginlegs innri orku
markaðar Evrópu og innleiðing
skortstöðu á raforkumarkaði
hefur leitt til stórhækkunar á
verði raforku í álfunni. Þessi
staða hefur líka leitt til orkuskorts
sem er að hafa alvarlega áhrif á
iðnaðarframleiðslu og landbúnað.
Stríð í Úkraínu gerir málið svo
enn verra.
Stjórnmálamenn hafa reynt að
kenna Covid-19 faraldrinum um þá
stöðu sem nú er uppi, sem og litlum
vindi á síðasta ári og nú stríðinu í
Úkraínu. Þegar leitað er frumorsaka
samdráttar í orkuframleiðslu og
hækkandi orkuverðs var þessi
þróun hafin löngu fyrir tíma Covid
og styrjaldar í Úkraínu. Samdráttur
í raforkuframleiðslu hefur líka
verið framkvæmdur meðvitað,
m.a. með lokun á kjarnorkuverum
í Þýskalandi og samningum um að
danskir vindmyllueigendur slökkvi
á sinni framleiðslu til að halda
uppi orkuverði. Þetta hefur leitt til
orkuskorts, hrikalegra hækkana á
orkuverði og samdráttar í iðnaði.
Vegna stöðunnar hefur Evrópu-
sambandið hvatt þegna sína til að
draga úr orkunotkun eftir mætti.
Hins vegar er ósamstaða meðal
ESB ríkjanna um með hvaða
hætti eigi að taka á málum til að
verja almenna neytendur gagnvart
síhækkandi orkuverði. Hafa Ítalir,
Spánverjar og fleiri þjóðir kallað
eftir sameiginlegum viðbrögðum
ESB, ekki síst varðandi gaskaup.
Ungverjar og Tékkar vilja hins
vegar endurskoða mengunarþáttinn
kolefnis viðskiptaáætlun sam-
bandsins væntanlega til að geta
nýtt sínar kolabirgðir.
Þá vilja Frakkar endurskoða
verðmyndunarþáttinn í sameigin-
lega orkumarkaði Evrópu.
Milljarðar evra í ríkisstuðning
Sem dæmi tilkynntu Magnus
Brunner, fjármálaráðherra Austur-
ríkis, og Leonore Gewessler,
loftslags- og orkumálaráðherra
landsins, þann 20. mars sl. að
veittir yrðu orkustyrkir að andvirði
2 milljarða evra í viðleitni til að
létta byrðar vaxandi kostnaðar
á hagkerfið. Inn í því eru skatta-
lækkanir og launabætur.
Þá hafa yfirvöld í Austurríki
áætlað að nýjustu ráðstafanir sem
fela í sér 90% lækkun á gjaldskrám
fyrir jarðgas og raforku til miðs
árs 2023, muni kosta 900 milljónir
evra og hærri samgöngustyrkir
til vinnandi fólks kosti um
400 milljónir evra. Þá hyggst
ríkisstjórn Austurríkis einnig bjóða
fyrirtækjum stuðning með því að
seinka einhverjum skattgreiðslum
og veita 250 milljónir evra í
fjárfestingarstuðning til að hætta
notkun á rússnesku gasi.
Heimilin munu ekki ráða við
hækkanir á orkuverði
Fjármálafyrirtækið Allianz í
Þýskalandi gerir ráð fyrir að
orkuverð í Evrópu hækki um að
minnsta kosti 30% á yfirstandandi
ári. Í greiningu fyrirtækisins segir
að hækkun orkuverðs muni koma
verst við heimilin í Þýskalandi
og Bretlandi. Sparnaður heimila
mun ekki geta mætt þessum aukna
orkukostnaði að mati Allianz. Því
muni þurfa að auka ríkisaðstoð við
heimilin sem nemur 20 milljörðum
evra í Þýskalandi, um 17 milljörðum
í Frakklandi, um 10 milljörðum á
Ítalíu og á Spáni og um sem nemur
14 milljörðum evra í Bretlandi.
Orkureikningur heimila gæti
hækkað um allt að 70%
Samkvæmt útreikningum Allianz
mun heildarorkureikningur heimila í
Þýskalandi fara í 3.400 evrur á árinu,
eða sem nemur 468.520 íslenskum
krónum. Það er bæði fyrir kyndingu
og almenna rafmagnsnotkun.
Reikningurinn fari líka yfir 3.000
evrur í Bretlandi, í 2.800 evrur í
Frakklandi og verði rétt fyrir neðan
2.000 evrur á Ítalíu og á Spáni.
Sérfræðingar segja að stríðið í
Úkraínu hafi aukið kostnaðinn og
ef allt fer á versta veg með lokun á
gasflæði frá Rússlandi ásamt olíu og
tilheyrandi samdrætti í orkuframboði
í Evrópu þá geti kostnaðurinn aukist
um 70% til viðbótar. Það gæti þýtt
að orkukostnaður þýskra heimila
fari að meðaltali í 4.600 evrur á
yfirstandandi ári, eða sem nemur
tæplega 634 þúsundundum íslenskra
króna. Allianz segist þó frekar reikna
með að kostnaðurinn aukist um 20%,
sem þeir kalla reyndar „Black-out
scenario“. Ofan á þetta bætist svo
samdráttur í atvinnustarfsemi sem
getur þýtt 2-4% samdrátt í tekjum
heimila að mati Allianz.
ESB-ríkin eru afar háð Rússum
Evrópusambandið er gríðarlega
háð Rússum varðandi orkugjafa.
Þannig kemur 26,9% af innfluttri
olíu Evrópusambandsríkjanna
frá Rússlandi. Þá koma 46,7% af
kolainnflutningi ESB-ríkja frá
Rússlandi og 41,1% af innfluttu gasi.
Þrátt fyrir hástemmdar yfirlýsingar
getur reynst erfitt fyrir ESB-ríkin
að komast undan þessum áhrifum
Rússa. Í Evrópusambandinu er um
75% hitaorkunnar fyrir heimilin
framleidd með kolum og olíu.
Sem dæmi þá er 63,7% af orku-
þörf Þjóðverja mætt með inn-
fluttri orku. Malta reiðir sig þó
hlutfallslega mest á innflutta orku,
eða 96,7%. Þá kemur Lúxemborg
með 92,5%, Grikkland með 81,4%,
Ítalía með 73,5%, Spánn með 67,9%
og Portúgal með 67,9%. Frakkar
eru öflugir í kjarnorkunni en þurfa
samt að kaupa inn 44,5% af sinni
orkuþörf.
Gríðarlegur ríkisstuðningur við
niðurgreiðslu jarðefnaeldsneytis
þvert á loftslagsmarkmið
Aðrar ESB þjóðir hafa ákveðið að
beita ríkisstuðningi í stórum stíl til
að aðstoða almenning og fyrirtæki
til að takast á við orkukreppuna, en
ekkert samræmi er í þeim aðgerðum
milli ESB landanna. Það er því
eðlilegt að sumir spyrji sig hvar
Evrópusambandið sé þegar á bjátar.
Ljóst er að niðurgreiðsla á raf-
magni í einstökum ríkjum stangast
á við orkuregluverk ESB. Mörg lönd
eru síðan farin að nota innheimtan
kolefnisskatt til að greiða niður gas-
og raforkuverð í stað þess að nýta
þá fjármuni til að binda kolefni eða
virkja lausnir til að framleiða græna
raforku. Raforkan er svo að um 75%
hluta framleidd með kolum, olíu og
gasi. Þar með er fögru fyrirheitunum
í loftslagsmálum í raun sópað undir
teppið í Evrópusambandinu.
Af þessum toga er t.d. lækkun
Þjóðverja á aukaskatti á raforku
um nær helming, eða úr 6,5 í 3,72
evrusent á kWst heildsöluverðs á
rafmagni. (Erneuerbare-Energien-
Gesetz - EEG). Þetta tók gildi 1.
janúar sl. og mun kosta þýska ríkið
3,3 milljarða evra.
Þjóðverjar hafa horft fram á að
raforkuverð til heimila hækki að
meðaltali um 63,7% á yfirstandandi
ári og gasreikningarnir um 62,3%
frá því sem var 2021. Þetta er
afleiðing af því að orkuheildsalar
velta sínum kostnaðarauka yfir á
almenna notendur að því er fram
kemur í frétt Reuters.
Scholz Þýskalandskanslari metur
það svo að aðstoð við orkunotendur
í landinu muni kosta þýska ríkið um
30 milljarða evra.
Frakkar niðurgreiða
jarðefnaeldsneyti
Frakkar hafa m.a. farið þá leið
að niðurgreiða jarðefnaeldsneyti.
Fyrirtækjum er veittur styrkur til
að mæta hækkandi orkukostnaði.
Heildarkostnaður Frakka af slíku
inngripi mun fara í 25-26 milljarða
evra. Þann 19. mars tilkynnti Jean
Castex forsætisráðherra að frá
apríl til júlí gætu ökumenn notið
15 senta afsláttar á lítra við dælu
og 35 senta afsláttar á lítra fyrir
dísilolíu sem bátar í sjávarútvegi
nota. Daginn áður, eða 18. mars
2022, var flutningsaðilum á vegum
einnig tilkynnt að þeir myndu fá
beinan styrk upp á 400 milljónir
evra frá ríkinu. Þetta samsvarar
aukningu upp á um 1.300 evrur
fyrir dráttarbíla og 300 evrur fyrir
sjúkrabíla. Þessi nýjustu inngrip
munu kosta franska ríkið um 2
milljarða evra til viðbótar.
Írar greiða aukinn
kostnað heimila með
kolefnisskattstekjum sem
heimilin borga sjálf
Frændur okkar Írar glímdu við
fjórða hæsta orkuverð í Evrópu í
ársbyrjun 2021. Við kynningu á
fjárlögum fyrir 2022 kynnti Paschal
Donohoe, fjármálaráðherrann,
30% skattaafslátt vegna aukins
hita og rafmagnskostnaðar. Aðrar
ráðstafanir fela í sér útgjöld upp
á 202 milljónir evra sem verða
teknar af kolefnisskatttekjum
vegna íbúðarhúsnæðis og af
samfélagsveitum.
Sem sagt almenningur borgar
skattaafsláttinn sjálfur með
kolefnissköttum sem búið var að
leggja á heimilin og fara því ekki í
að virkja fram leiðslu á grænni orku
og ekki heldur í kolefnisbindingu.
Ríkið getur samt áfram sagst vera
að mæta loftslagsmarkmiðum með
álagningu kolefnisskatta. Ætli
nokkrum dirfist að láta sér detta í
hug orðið hræsni í þessu samhengi?
Danir og Norðmenn með hæsta
meðaltalsverðið á raforku
Í regluverki (orkupökkunum) fyrir
sameiginlega orkukerfið er bann við
því að mismuna orkukaupendum
við raforkusölu milli landa.
Hafa Norðmenn og Danir fundið
vel fyrir því og hefur þetta leitt
til stór hækkunar á orkuverði í
þeim löndum.
Raforkuverðið á seinni helmingi
ársins 2021 var langhæst í Dan-
mörku samkvæmt tölum Eurostat.
Þá var raforkuverðið að meðaltali
0,3448 evrur á kílówattstund
(kWst).
Næsthæst var verðið í Þýska-
landi, eða 0,3234 evrur á kWst.
Norðmenn voru þá að greiða að
meðaltali 0,2206 evrur á kWst.
Hafði raforku verðið til heimila í
Noregi þá hækk að á tólf mánuðum
á bilinu 386,9% til 451,5%,
en heildarverðið með flutningi
og sköttum á bilinu 126,5% til
199,2% eftir tegund samninga.
Þar var verðið hins vegar mjög
mis munandi eftir landshlutum,
mun hærra syðst en lægra í nyrstu
héruðunum, lægst í Finnmörku og
Norður-Þrændalögum, samkvæmt
Statistisk sentralbyråd. Með beinum
tengingum og auknum útflutningi
orku frá Norður-Noregi mun
orkan þar líka snarhækka í verði.
Til samanburðar var Ísland á seinni
árshelmingi í fyrra með meðalverð
upp á 0,1387 evrur á kWst,
samkvæmt tölum Eurostat.
Rúmlega 926% hækkun á
raforkuverði á sex árum
Þegar litið er á verðþróun á markaðs-
verði raforku í suðurhluta Noregs
hjá Nord Pool, sem stýrir orku-
markaðnum í Evrópu, hefur hækk-
un in verið hrikaleg. Í mars 2016
var kílówattstundin seld á 25,24
norska aura, en var komið í 233,80
aura í mars 2022. Þetta er rúmlega
926% hækkun á raforkuverði á sex
árum. Verðið hefur þó verið mun
lægra í norðurhluta Noregs vegna
lélegra tenginga við flutningskerfið
út úr landinu, en búist er við að
það fari að breytast innan tíðar.
Lægst var verðið í mars á svæði
5 nyrst í Noregi, eða 15,10 aurar á
kWst. Vegna minna álags lækkar
orkuverðið að jafnaði á sumrin, en
það stóð samt í 217,49 aurum kWst
í apríl í Suður-Noregi.
Samkvæmt tölum Nor Pool
var verðið í suðurhluta Noregs í
mars sem nemur 33,26 íslenskum
krónum fyrir kílówattstundina. Til
saman burðar var hæsta raforkuverð
að meðtöldum orkuflutningi á
Íslandi nú í byrjun maí 2022 um
16,67 krónur kWst. Meðalheimili
notar um 4-5.000 kWst á ári svo
menn geta því rétt ímyndað sér
hvaða afleiðingar beintenging
íslenskra raforkuvera með sæstreng
til Evrópu hefði í för með sér fyrir
íslensk heimili ef orkuverðið
hækkaði um mörg hundruð prósent.
Norðmenn vonast eftir
rigningarsumri
Í frétt E24 segir einnig að Norð-
menn óski þess heitt að mikið rigni
í sumar. Ástæðan er sú að lítill
snjór er í fjöllum sem þýðir að
raforkuframleiðsla í sunnanverðum
Noregi verður í lágmarki. Því þarf
að flytja inn orku sem framleidd
er með kolum og olíu sem stöðugt
hækkar í verði. Það verður ekki
til að lækka orkuverð til norskra
heimila.
Raforkukostnaður fyrirtækja í
Evrópu hefur líka snarhækkað
Raforkuverð til fyrirtækja í ESB
löndunum fór að hækka mjög
ört strax á fyrrihluta ársins 2020.
Raforkuverð til fyrirtækja á Íslandi
er ekki gefið upp hjá Eurostat, sem
ræðst trúlega af sérstökum samn-
ingum við stóriðjufyrirtækin hér á
landi, sem er undarlegt ef litið er
t.d. til Noregs.
Raforkuverð til fyrirtækja í ESB
löndunum var að meðaltali um
0,14 evrur á kWst á sama tíma, en
langhæst í Grikklandi, eða um 0,23
evrur á kWst. Í Noregi hafði raforku-
verð til stórnotenda hækkað á 12
mánuðum um 65,7% en til minni
framleiðslufyrirtækja um 488,1%.
Raforkuverð í Kósovó helmingi
lægra en á Íslandi
Athygli vekur að lægsta raforku-
verðið í Evrópu var á seinni
helm ingi síðasta árs í löndunum
á Balkanskaga, Svartfjallalandi,
Albaníu, Norður-Makedóníu,
Serbíu, Bosníu-Herzegóvínu,
Kósovó auk Georgíu, Moldóvu og
í Tyrk landi. Lægsta raforkuverðið
var á seinni hluta ársins 2021 í
Kósovó, eða 0,0607 evrur á kWst.,
eða meira en helmingi lægra en í
okkar gnægtalandi hreinnar raforku
á Íslandi.
Ef eingöngu er talað um ESB
löndin þá var verð til heimilisnota
um 92% hærra að meðaltali í ESB
löndunum en á Íslandi.
FRÉTTASKÝRING
Hörður Kristjánsson
hk@bondi.is
Orkukostnaður heimila snarhækkar í Evrópu
– Heimilin munu ekki ráða við hækkanir að mati Allianz– ESB-ríkin farin að niðurgreiða jarðefnaeldsneyti með innheimtum kolefnisgjöldum
Rússneska gasfyrirtækið Gazprom er gríðarlega áhrifamikið í orkuiðnaði Evrópu. Stríð Rússa í Úkraínu hefur sett
viðskipti Evrópuríkja varðandi olíu-, kola- og gaskaup af Rússum í uppnám. Hins vegar getur orið afar snúið fyrir
Evrópuríkin að hverfa frá þeim viðskiptum þar sem 41% af gasinnflutningi ESB ríkja kemur frá Rússlandi sem og
46,7% af kolunum og 26,9% af innfluttri olíu ríkjanna.
Miklu munar á orkuverði eftir land-
svæðum í Noregi.