Bændablaðið - 12.05.2022, Síða 30
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 202230
Í fallegasta dal landsins, við
ána Fitjá, situr bærinn Efri-
Fitjar. Heimilisfólk eru þau hjón
Gréta Brimrún Karlsdóttir frá
Harastöðum í Vesturhópi og
Gunnar Þorgeirsson, uppalinn á
bænum, auk Jóhannesar Geirs syni
þeirra, konu hans, Stellu Dröfn
Bjarnadóttur frá Mannskaðahóli
í Skagafriði og litlu dóttur þeirra,
henni Sólveigu Gyðu.
Er blaðamann bar að garði skein
sól í heiði eins og ekki er óvanalegt
um þessar slóðir og rétt rúm vika
þar til sauðburður átti að hefjast.
Má því segja að nokkur eftirvænting
hafi verið í loftinu en á Efri-
Fitjum er stunduð hrossarækt auk
sauðfjárbúskapar sem hefur vakið
sérstaka athygli manna vegna góðrar
frjósemi sem og mikilla afurða.
Heimilisfólk tekur undir þetta og
bendir á að gæðin byggist upp á að
halda fénu í góðu standi yfir veturinn
svo þær séu tilbúnar til að mjólka vel
og skila góðum lömbum til nytja.
Passað sé að ærnar leggi ekki af á
haustin til að ná sem bestri frjósemi
og svo auðveldara sé að halda þeim
í góðum holdum yfir veturinn.
„Sauðburðurinn er svo aðalvertíðin,
þó nokkuð er um þrílembur og
maður lærir á hvaða rollur þola að
sjá um þrjú lömb. Við heimilisfólk
erum ekkert sérstaklega hrifin af
heimalningum og höfum brugðið
á það ráð að lauma stundum þriðja
lambi undir tvílembda ær sem við
vitum að ræður við þrjú. Auðvitað
kemst maður aldrei alveg hjá því að
hafa einhverja heimalninga, en það
er dýrt fæðið í þá og lítill bissness
þar af leiðandi. Við höfum notast við
sæðingar og þá nær maður náttúrlega
einu og einu úrvalseintaki,“ segja þau
hjónin Gréta og Gunnar.
Hróður hrúta Efri-Fitja fer víða
Er kemur að
úrvalseintökum má
nefna hrútinn Börk,
en sögur hafa
farið af honum
síðan 2015 sem
einum af mestu
kostagripum til
framræktuna, auk
þess sem hann er
margverðlaunaður.
Glitnir er annar sem
fengu færri en vildu
í fyrra en samkvæmt Hrútaskrá
2020-2021 kemur fram að hann
hafi verið valinn til notkunar á
sæðingastöð haustið 2020 á grunni
afkvæmarannsóknar fyrir úrvalshrúta
í Miðfjarðarhólfi, sem fram fór
á Efri-Fitjum. Styrkleiki Glitnis
liggur öðru fremur í öflugum mala-
og læraholdum samhliða miklum
vænleika afkvæmanna.
Aðspurður segir Gunnar: „Glitnir
á annars eftir að sanna sig á meðan
Börkur er fyrsti hrúturinn sem vann
bæði verðlaun sem lambafaðir og svo
sem alhliða hrútur. En árið 2018 hlaut
hann verðlaun sæðingastöðvanna
sem lambafaðir og árið 2021
verðlaun sem mesti kynbótahrútur
sæðingastöðvanna en á undanförnum
árum hafa sæðingastöðvarnar
verðlaunað ræktendur þeirra
stöðvahrúta sem skarað hafa hvað
mest fram úr sem kynbótagripir. Má
því segja að þessar viðurkenningar
séu æðstu verðlaun sem veitt eru
hér á landi vegna sauðfjárkynbóta.
Svo áttum við Myrkva sem var mjög
ríkjandi og þaðan Mjölni son hans,
sterkur leggur undan þeim. Má segja
að Börkur og Myrkvi hafi verið mikil
innspýting þarna á stuttum tíma en
þeir fæddust með stuttu millibili.“
Kemur fram í fyrrnefndri
hrútaskrá að Mjölnir sé öflugur
alhliða kynbótahrútur og henti
trúlega sérstaklega vel þar sem
vænleiki dilka er mikill.
Áhugi og metnaður að leiðarljósi
Ættgengur metnaður og áhugi
fylgir fjölskyldunni og hefur
arftakinn Jóhannes svo sannarlega
hvort tveggja. Ásamt Stellu konu
sinni telur hann ekki vandkvæðum
bundið að halda uppi þeim gildum
er foreldrar hans hafa sett.
Sauðburðurinn er á næsta leiti
en samkvæmt Jóhannesi voru talin
rúm 2.000 fóstur og því þó nokkur
hamagangur í vændum. „Búið telur
um rúm 1.000 ær, rétt um tvö lömb
á kind undir þaki,“ segir Jóhannes.
Hann telur fjöldann viðráðanlegan
og þægilegan og áætlar ekki
að stækka búið á næstu árum,
enda hefur það vaxið heilmikið
frá því að foreldrar hans tóku við
árið 1994.
„Það er rétt, við kaupum þetta
af foreldrum mínum árið 1994, við
Gréta, en ég hef verið viðloðandi
fjárbúskapinn samt alveg síðan ég
man eftir mér,“ segir Gunnar hlæjandi.
LÍF&STARF
Efri-Fitjar í Fitjárdal, Húnaþingi vestra:
Þar sem sólin skín í sinni
Það er stutt í brosið hjá heimilisfólkinu að Efri-Fitjum. Hér eru kynbótahrútarnir víðfrægu, þeir Börkur til vinstri og Glitnir til hægri.
Ræktunarbúið Efri-Fitjar er annálað fyrir úrvalsfé, vel hirt og í góðum holdum.
Sigrún Pétursdóttir
sigrunpeturs@bondi.is