Bændablaðið - 12.05.2022, Page 31
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 2022 31
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
LOFTPRESSUR
Í HÆSTA GÆÐAFLOKKI
Gerðu kröfur - hafðu samband við Gunnar
í síma 590 5135 og kynntu þér þína möguleika.
Við bjóðum upp á allar stærðir
og gerðir af Ingersoll Rand loftpressum.
Mjög hjóðlátar og einfaldar í viðhaldi.
Bjóðum upp á þjónustusamninga og leggjum mikla áherslu
á að veita góða viðgerðar- og varahlutaþjónustu.
Við Norðurlandsveg - 560 VarmahlíðSími: 453 8888 - Opið virka daga kl. 9-17
RAFGIRÐINGAREFNINý
sending
komin í
hús!
Fylgstu með okkur á
velavalehf
Hliðlokur, hurðarlokur og gormalokur nú aftur fáanlegar!
Tangarhöfða 1 - 110 Reykjavík - 551-5464
www.wendel.is - wendel@wendel.is
GÖNGUBRÝR OG
ÖRYGGISGIRÐINGAR
____________________
FYRIR ÖRYGGI Á
VINNUSVÆÐUM
„Foreldrar mínir áttu búið hér á Efri-
Fitjum áður, ég bjó hér lengi með
pabba áður en kaupin fóru fram en
svo tókum við hjónin við og nú hefur
þriðji ættliðurinn, Jóhannes sonur
okkar, ásamt konunni sinni, henni
Stellu, tekið við. Þetta er auðvitað
eðlileg þróun og svo þurfum við
hjónin að vera tilbúin að gefa eftir
þegar þessi yngri vilja taka við.“
Jæja, segir blaðamaður sposkur,
og hvernig gengur það hjá ykkur
hjónum?
„Jú, það er svona, við létum þau
fá 50% af búinu til að byrja með
… þau hafa þó ekki náð að koma
okkur út úr húsinu,“ segir Gréta og
hlær. „Það stendur þó til, núna fyrir
sauðburðinn, að við færum okkur um
set,“ segir Gunnar – „þó ekki lengra
en að Neðri-Fitjum.“ „Þetta eru tvær
jarðir,“ útskýrir Gréta, „við flytjum
okkur bara yfir á hinn bæinn og eigum
eftir að koma okkur vel fyrir þar.“
Eins og áður kom fram ræktar
fjölskyldan hross að auki við sauðféð
og er auðséð að áhugi og metnaður
haldast svo sannarlega í hendur.
„Maður vill ná góðum árangri,“ segir
Jóhannes, „og þá er að stunda þetta
eftir því.“ „Fyrir utan það nú,“ segir
Gunnar glottandi „að þegar Gréta var
í barnaskóla var gefið út skólablað og
og þar sagðist hún ætla að eiga besta
bú á Íslandi! ...og við erum alltaf
að stefna að því auðvitað ... alltaf að
reyna að bæta okkur.“
Ræktunarbú ársins 2021
Heimilisfólkið er þó fremur hógvært
þegar kemur að því að stæra sig
sérstaklega af ræktunarhæfileikum
sínum, en í gegnum tíðina hafa bæði
hrútar og hross hlotið ýmiss konar
verðlaun og viðurkenningar. Nú síðast
má nefna þann frábæra árangur að
hljóta titilinn Ræktunarbú ársins
2021 hjá Hrossaræktarsamtökum
V-Húnavatnssýslu, auk þess að vera
tilnefnd til hrossaræktarbús ársins
á landsvísu og það ekki í fyrsta
skipti. Sex vetra stóðhesturinn Atli
fer fremstur í flokki þessara úrvals
hrossa frá Efri-Fitjum, með 8,50
í aðaleinkunn.
Var hrossaræktin komin vel á veg
þegar þið hjón takið við búinu?
„Það mætti segja að hrossaræktin
hjá okkur sé svolítið mikil heppni,“
segir Gunnar. „Þegar við Gréta
byrjuðum að rækta hross vorum við
með gamlan stofn sem fylgdi búinu og
vorum að fara undir góða graðhesta
með það fyrir augum að reyna að
byggja þetta upp, en árangurslítið.“ „Í
besta falli fengum við góða reiðhesta,“
bætir Gréta við.
„En svo kaupum við veturgamla
hryssu frá Grafarkoti, hana Ballerínu,
þetta hefur verið í kringum 1995-96,
og sú meri gaf okkur gríðarlega mikið
af góðum hrossum. Svo 2012 hlaut
hún heiðursverðlaun fyrir afkvæmi
en stofninn hjá okkur byggist rosalega
mikið upp á þessari hryssu. Svo var
önnur sem við kaupum fimm vetra,
verðlaunahryssan Blika frá Garði – en
þessar tvær eru í raun stofnhryssur
hjá okkur.“
„Þetta er náttúrlega bara heppni,“
bendir Gunnar aftur á, „að lenda á
þessum tveimur, því við hefðum
vel getað lent á merum sem hefðu
ekki gefið eins vel af sér. En svo
er utanumhaldið, að setja þær undir
topphesta þar sem við þekkjum
bakgrunninn.“ „Ég var annars mikið í
sveit í Grafarkoti,“ segir Gréta, þannig
að ég þekkti ágætlega til hrossanna þar
og vissi hver gætu reynst okkur vel.“
Framtíðin björt
„Það eru auðvitað hæðir og lægðir
í þessu öllu saman, en framtíðin er
björt og reksturinn eins og hann er í
dag heldur sínu striki eitthvað lengur
þó hluti heimilisfólks sé að flytja sig
um set. Að minnsta kosti á meðan
maður hefur gaman af þessu enn þá,“
segja þau hjónin og flissa, enda stutt
í brosið á þessum bæ.
Þau Gunnar og Gréta hlutu verðlaun
fyrir Ræktunarbú ársins 2021.
Mynd / Malin Person.
Bæjarstæðið er fallegt, en meðfram Efri-Fitjum rennur áin Fitjá sem á upptök
sín á Víðidalstunguheiði.