Bændablaðið - 12.05.2022, Síða 45
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 2022 45
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Gas- og
súrefnismælar
tryggja öryggi þitt betur
Reykjavík Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
Lely Center Ísland Grammer sæti
Nýjustu fréttir af faraldri Covid-
19, samkvæmt skýrslu Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunarinnar
(WHO) herma að hann hafi,
á einn eða annan hátt, orðið
valdur að alls 14,9 milljónum
dauðsfalla á heimsvísu.
Tekið er til tímabilsins frá
1. janúar 2020 til ársloka 2021.
Alls eru þó, samkvæmt
útreikningum, um það bil 6,2
milljónir manna sem hafa látist af
beinum orsökum hans.
Rannsóknarteymi WHO
sameinaði skráð dauðsföll og
tölfræðilega útreikninga dauðsfalla
á landsvísu yfir heimsbyggðina,
auk tölfræðilíkans sem áætlaði
möguleg dauðsföll önnur en þau
er vitað er af – þá tengd Covid-19.
Útreikningur umframdauðsfalla
Teymið áætlaði síðan fjölda
dauðsfalla sem búist hefði verið
við ef heimsfaraldurinn hefði ekki
átt sér stað og bar saman þessar
tvær tölur til að fá sem nákvæmasta
útkomu. Þess konar útreikningur er
talinn áreiðanlegastur en skoðuð
eru svokölluð umframdauðsföll.
Í raun, þegar fjöldi dauðsfalla
yfir visst tímabil er skoðaður og
borinn saman við fjölda dauðsfalla
sambærilegs tímabils undanfarinna
ára, kallast tölfræðilega marktæk
aukning þá umframdauðsföll.
Í skýrslunni er tekið fram að
þessi svimandi háa tala, 14,9
milljónir, nær yfir dauðsföll af
beinum hætti vegna Covid vírussins
– auk þeirra sem létust óbeint af
völdum hans, þá til að mynda fólk
sem hefði þurft á læknisþjónustu
að halda en komust ekki að vegna
álags á heilbrigðiskerfið.
Augljóst er, nú er áhrifa
heimsfaraldursins gætir, benda
allar tölur til þess að sterkari
heilbrigðiskerfa sé þörf víða.
Íslendingar fóru ekki varhluta
af faraldrinum sl. 2 ár og auk
plássleysis á sjúkrastofnunum
hefur mönnun íslenska
heilbrigðiskerfisins verið – og er
enn – mikil áskorun. Samkvæmt
upplýsingum á vefsíðu www.covid.
is telur heildarfjöldi andláta 119
manns, en innlagnir vegna Covid-
19 smita voru alls 1.370. Nú í maí
kemur fram að einungis liggi 8
manns inni, enginn á gjörgæslu.
Norðurlöndin flest á góðum stað
Áhugavert er að í tímariti Economist
kemur fram að lönd Norður-Evrópu
telja færri umframdauðsföll en
önnur Evrópulönd, þá sérstaklega
ef litið er yfir Norðurlöndin að
undanskilinni Svíþjóð. Alls hafa
þar látist 18.772 manns, 6.207 í
Danmörku, 3.939 í Finnlandi,
3.006 í Noregi, 28 í Færeyjum, 21
á Grænlandi og eins og áður sagði,
119 á Íslandi.
Allar líkur eru á því að
dregið hafi verulega úr ágangi
faraldursins og vonir bundnar við
að svo sé, en nú í apríllok færði
ríkislögreglustjóri, í samráði
við sóttvarnalækni, hættustig
almannavarna vegna Covid-19
niður á óvissustig, frá hættustigi,
en talið er að rúmlega helmingur
jarðarbúa hafi smitast enn sem
komið er. Brýnt sé að fara með gát
þótt staða Covid-19 sé álitin góð
hérlendis og þurfum við landsmenn
að vera á varðbergi gagnvart
nýjum afbrigðum veirunnar, þá
helst hversu lengi ónæmið sem
við höfum nú náð endist gegn
veirunni. /SP
Covid-19:
Yfirlit yfir stöðu
heimsfaraldursins
Covid-19 er smitsjúkdómur af völdum SARS-CoV-2 veirunnar, sem enn sem
komið er herjar á stóran hluta heimsins.