Bændablaðið - 12.05.2022, Qupperneq 46
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 202246
LÍF&STARF
„Það er allt að fara á fullt fyrir
sumarið og við erum mjög spennt
að sjá hverjar viðtökur verða,“
segir Dagrún Drótt Valgarðs
dóttir, en hún hefur stofnað
fyrirtækið Könglar, sem er
nýsköpunarfyrirtæki sem hefur
að markmiði að nýta íslenskar
jurtir og skógarafurðir með
sjálfbærum hætti við gerð drykkja
og lystaukandi afurða. Með henni
starfar að þessu verkefni Brynjar
Darri Sigurðsson Kjerúlf.
Dagrún býr á Víðivöllum fremri
í Fljótsdal og er félagið staðsett þar.
Til að byrja með verða nokkrar
tegundir gosdrykkja og límonaðis
í boði. Þeir verða til sölu á nokkrum
veitingahúsum á Austurlandi og ef
til vill einum á höfuðborgarsvæðinu.
Dagrún Drótt segir að
hugmyndin hafi kviknað þegar hún
bragðaði drykk sem gerður var eftir
uppskrift sem kom frá ömmu Emmu
Charlottu Ärmänen, en í þeim drykk
voru m.a. blöð af berjalyngi. Fóru
þær að velta fyrir sér hvort ekki væri
hægt að búa til svipaða drykki hér á
landi og hófu að að fikra sig áfram.
Þetta var sumarið 2020. Emma fór
síðar að sinna öðrum verkefnum.
Heitið Könglar er þannig til
komið að sögn Dagrúnar að hún fór
eitt sinn á yngri árum í bændaskóla
og fannst viðhorf nema á þeim tíma
til skógræktar heldur á neikvæðum
nótum. Einhverjum datt í hug að
kalla nema sem átti rætur sínar að
rekja í skógræktarhéraðið Fljótsdal
köngul. Það nafn var lengi notað um
upphéraðsmenn, þeir voru kallaðir
Könglar. Sjálf kveðst Dagrún stolt
af því að vera úr skógræktarhéraði,
það séu mikil lífsgæði að hafa skóg
í kringum sig.
Lærdómsrík ár að baki
„Við höfum síðustu tvö ár unnið að
því að auka þekkingu okkar á jurtum
og eðli þeirra, það er sem dæmi
mikilvægt að vita hvenær besti
tíminn er til að framleiða úr jurtunum
varðandi bæði bragð og gæði.
Við höfum farið yfir og skoðað
flest allt varðandi geymsluþol
og eiginleika mismunandi
bragðtegunda,“ segir hún en þau
hafa m.a. skoðað hvað verið er að
gera í Finnlandi og Kanada á þessu
sviði. Þau lönd standa framarlega í
nýtingu villtra jurta til drykkjar og
matargerðar.
„Við höfum lært heilmikið og
gert margs konar prufur, en erum
nú komin með nokkra drykki í
framleiðslu sem verða í sölu á
veitingahúsum hér um slóðir á
komandi sumri,“ segir Dagrún.
Hún er lærður húsgagnasmiður
og starfaði við þá iðn m.a. hjá
Brúnás á Egilsstöðum, en lét af
störfum þar í fyrra. Einnig hefur
hún starfað við matreiðslu og
hefur mikinn áhuga á nýtingu
jurta í matarhandverki. Hún á ekki
langt að sækja áhuga á að nýta þær
jurtir sem lifa í íslenskri náttúru,
amma hennar notað þær mikið til
matargerðar í eina tíð, gerði m.a.
hvannarsúpu og fíflasíróp svo dæmi
séu tekin.
Darri er með BA próf í sjálfbærri
ferðamálafræði frá Háskólanum
á Hólum, hann hefur starfað
sem kokkur og ýmis störf tengd
ferðaþjónustu og hefur einnig
brennandi áhuga á sjálfbærri þróun
og minni matarsóun.
Vinna með afurðir
úr nánasta umhverfi
Könglar leigja aðstöðu hjá fyrir
tækinu Holt og heiðar á Hallormsstað
og þar mun framleiðsla fara fram.
Þegar hafa verið þróaðir 4 til 6
drykkir og segir Dagrún að nú sé
svo komið í sögu fyrirtækisins að
allt sé tilbúið til að færa uppskriftir
yfir á framleiðslustig.
„Við vinnum með afurðir úr
okkar nánasta umhverfi, sumar
eru lítið sem ekki neitt nýttar og
það er auðvitað leitt að horfa upp á
allar þessar jurtir í kringum okkur
sem hægt er að gera svo margt með
en eru vannýttar. Verkefnið okkar
opnar vonandi augu almennings
fyrir þessari vannýttu auðlind sem
er bara rétt við fætur okkar,“ segir
Dagrún.
Skoða framleiðslu á áfengum
bjór úr villtum jurtum
Hún segist hlakka til að koma
verkefninu á framleiðslu og
sölustig eftir allan undirbúninginn
og er spennt að sjá viðtökur. Áfram
verður haldið með að þróa fleiri
bragðtegundir og hafa þau einnig í
huga að bjóða upp á árstíðarbundna
drykki þegar fram líða stundir. Eins
eru þau Dagrún og Darri að skoða
möguleika á að bæta við áfengum
bjór í framleiðsluna og sækja þá um
leyfi fyrir slíkri framleiðslu. Þegar
hefur danskur bruggmeistari komið
í heimsókn og leiðbeint þeim með
nýtingu jurta í bjórgerð.
Heiti drykkjanna eru sótt í
austfirskar þjóðsögur, sem dæmi
má nefna Bera og Grímur sem eru
fræg nátttröll á Austurlandi, en
Dagrún segir að með því að sækja
í þann sagnabrunn fái drykkirnir
menningarlegt gildi og fræði þann
sem nýtur í leiðinni.
Mörgum þykir þetta spennandi
Félagið hefur fengið styrki og segir
Dagrún það hafa skipt sköpum
varðandi framgang verkefnisins.
Verkefnið hefur fengið styrk úr
Matvælasjóði, 3 milljónir króna
í þróunarstyrk, og einnig hefur
Samfélagssjóður Fljótsdals
styrkt verkefnið, bæði veitt því
framleiðslustyrk og einnig til að
hefja markaðsátak.
Fyrirtækið Könglar mun
taka þátt í nýsköpunarvikunni
FoodMood og munu þau Dagrún og
Darri kynna drykkina í Iðnó 20. maí
næstkomandi. Þar geta áhugasamir
fengið að smakka og fræðast um
þessa nýjung sem í boði verður á
matvörumarkaði.
Margrét Þóra Þórsdóttir
mth@bondi.is
Nýsköpunarfyrirtækið Könglar í Fljótsdal:
Er að hefja framleiðslu og sölu á gos-
drykkjum með íslenskum jurtum
– Nokkur veitingahús á upphéraði bjóða gestum sínum upp á drykkina í sumar
Dagrún og Darri sitja með afurðum sem þau hafa þróað eða eru í þróun og eru þakklát fyrir styrkina sem veittir voru
frá Samfélagssjóði Fljótsdals. Dagrún, sem er húsgagnasmiður, smíðaði borðið sem vörur þeirra eru á.
Nokkar afurðir sem unnið var með í þróunarstarfi undanfarin tvö ár, könglar,
fífill og fleira.
Furu- og berjagos. Gestir á ferð um
Austurland fá tækifæri til að bragða
það í sumar.
Hindberjagos gert með köngla
gosstarter í stað verkaðs gers.
Skessujurtarlímonaði.