Bændablaðið - 12.05.2022, Page 47
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 2022 47
REIÐMAÐURINN
Nemendur fá tækifæri til að þróast í eigin reiðmennsku
óháð fyrri reynslu og um leið að takast á við nýjar áskoranir
og aukna ábyrgð.
Námið er í senn blanda af fræðilegri nálgun og verklegum
æfingum þar sem fjölbreytt, hagnýtt og einstaklingsmiðað
nám er í forgrunni. Nemendur vinna markvisst að settum mark-
miðum þar sem vel menntaðir og þjálfaðir reiðkennarar leiðbeina
út frá einstaklingsviðmiðumí þéttu aðhaldi sem hópastarf gefur.
endurmenntun.lbhi.is | 433 5000 | endurmenntun@lbhi.is
Randi Holaker
Verkefnisstjóri
randi@lbhi.is | 843 5339
Nánari upplýsingar
Reiðmaðurinn er nám á framhaldsskólastigi
á vegum Endurmenntunar Landbúnaðarháskóla
Íslands ætlað fróðleiksfúsum reiðmönnum
og áhugafólki um reiðmennsku sem vill
auka þekkingu sína og færni í reiðmennsku,
hrossarækt og almennu hestahaldi.
NÁM Í REIÐMANNINUM 2022 – 2023
REIÐMAÐURINN I
• Sprettur í Kópavogi
• Sörli í Hafnarfirði
• Dreyri á Akranesi
• Freyfaxi á Egilsstöðum
• Svaðastaðahöllin á Sauðárkróki
REIÐMAÐURINN II
• Sprettur í Kópavogi
• Sleipnir á Selfossi
• Hörður í Mosfellsbæ
• Léttir á Akureyri
REIÐMAÐURINN III
• Mið-Fossar í Borgarfirði
• Reiðhöllin á Flúðum
• Reiðhöllin Vesturkoti
• Sörli í Hafnarfirði
FRUMTAMNINGAR
• Mið-Fossar í Borgarfirði
Kennarar: Ólafur Andri Guðmundsson
og Haukur BjarnasonUMSÓKNARFRESTUR
ER TIL 5. JÚNÍ 2022
Íslensk framleiðsla
á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum
564-0013 | 865-1237
Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is
Höfum sérhæft okkur
í Toyota viðgerðum síðan 1995
Fljót, örugg og persónuleg þjónusta
Allar almennar bílaviðgerðir
Hjólastillingar | Smurverkstæði/þjónusta
HJÓLASTILLINGARPÚSTÞJÓNUSTASMURÞJÓNUSTAVARAHLUTIRVÉLASTILLINGAR VIÐGERÐIR
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
SÍUR Í
DRÁTTARVÉLAR
Bjarki Sigurðsson leiðbeinandi sýnir réttu handtökin við að kljúfa við.
Myndir / Ásdís Helga Bjarnadóttir
Vel heppnað tálgunarnámskeið haldið í Fljótsdal:
Æfingin skapar meistarann
Fyrsta námskeiðið á vegum
Droplaugar hið Fljótsdælzka
handverksfjelags var haldið á
dögunum, tálgunarnámskeið
úr ferskum við, sem haldið var í
Végarði fyrr í þessum mánuði í
umsjón Bjarka Sigurðssonar.
Félagið var endurvakið nú á þessu
ári, en áður fyrr var mikil virkni
innan félagsins og stóð það fyrir
margvíslegri starfsemi. Það hefur
legið niðri undanfarin ár en nú hefur
ný stjórn tekið til starfa.
Halla Auðunardóttir, formaður
Droplaugar, segir tilgang félagsins að
standa fyrir fræðslu og nám skeiðum
sem tengjast hvers konar handverki.
Jafnframt að hvetja til þátttöku
almennings í að viðhalda þekkingu
og vinnubrögðum í gömlu handverki.
Æfðu handtökin
Á fyrsta námskeiðinu þar sem tálgað
var úr ferskum við var að sögn Höllu
m.a. farið yfir það hvernig best er að
velja efni og hvernig á að kljúfa það.
Einnig var farið yfir brýnslu hnífa og
kennd örugg hnífabrögð.
„Það var unnið að nokkrum
verkefnum til að æfa handtökin og
þá reyndi á hvern og einn nemanda
hversu laginn hann var með hnífinn,“
segir Halla.
Einnig var farið yfir þætti eins og
hvernig best er að geyma það sem
verið er að vinna með og hvernig
á að þurrka hlutina. Þá kom fram á
námskeiði Bjarka að mikilvægt er
að bera á þá hluti sem unnið er með
á lokastigum vinnunnar. Bent var á
að hægur vandi væri að útbúa ýmsa
nytjahluti, svo sem sköft á spaða,
hnífa og fleira þess háttar.
Fleiri námskeið á döfinni
„Ljóst er að hér skapar æfingin
meistarann og vonandi eiga nemendur
eftir að halda áfram að skapa eitthvað
fallegt úr efnivið nærumhverfisins,“
segir Halla.
Bjarki hefur nýlokið námskeiðs
röð hjá LbhÍ og náð sér í réttindin
tálguleiðbeinandi, Lesið í skóginn
og Tálgað í tré.
„Við vonum innilega að Bjarki
verði tilbúinn að halda fleiri námskeið
því möguleikarnir í umhverfinu hér
í Fljótsdalshéraði eru margir,“ segir
Halla.
Félagið mun síðar halda fleiri
námskeið, m.a. þar sem torf og grjót
koma við sögu og tóvinna. /MÞÞ
Þátttakendur æfa sig í að tálga út og þar reyndi á hvern og einn hversu
laginn hann var með hnífinn.
LÍF&STARF