Bændablaðið - 12.05.2022, Side 48
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 202248
Höskuldur Ari Hauksson hefur
verið vínbóndi í Hünenberg See í
kantónunni Zug í miðhluta Sviss
um nokkurra ára skeið ásamt
konu sinni, Söru Hauksson, og var
á Íslandi á dögunum til að kynna
nýjustu vöruna sína, freyðivínið
Perlur.
Sífellt bætast við nýjar tegundir
í vörusafn þeirra hjóna og er stöðug
þróunarvinna í gangi á vínekrunum
til að gera framleiðsluna skilvirkari.
„Við erum farin að beita
dvergkindum af kyninu Ouessant allt
árið á ekrunum okkar. Til þess að þetta
gangi upp höfum við verið að breyta
því hvernig vínviðurinn vex, við látum
berin vera uppi og greinarnar svo vaxa
niður á móti. Eins höfum við verið að
planta nokkur þúsund kryddjurtum
á milli vínviðarplantnanna. Í haust
stendur svo til að breyta fjórum
skikum yfir í „agro-forestry“ með því
að planta ýmsum trjám og runnum á
ekrunum,“ útskýrir Höskuldur, sem
starfaði í fjármálageiranum erlendis
í um 20 ár áður en hann fór að þróa
sig áfram með víngerð í Sviss með
konunni sinni.
Lykillinn er fjölbreytileiki
í jarðveginum
Í upphafi keypti Höskuldur um eitt
tonn af Pinot Noir þrúgum á ári.
Áhugamálið stækkaði og árið 2015
tók hann við fyrstu ekrunni sinni í
Gordemo í Ticino í ítölskumælandi
hluta Sviss. Tveimur árum síðar fór
hann út í vínrækt að fullu starfi og
tók við býli í Remigen í Aargau í
Norðurhluta Sviss, svo við öðru býli
skammt frá í Döttingen síðastliðið
vor. Í áranna rás hefur ákveðin
þróunarvinna verið viðhöfð sem skilar
tilætluðum árangri.
„Við erum að breyta því hvernig
vínviðurinn vex, þannig að berin séu
efst og laufið vex síðan niður á við.
Með þessum hætti eru berin nógu hátt
uppi til að dvergkindurnar nái ekki
til þeirra. Það hefur þann kost í för
með sér að við getum leyft kindunum
að vera inni á ekrunni allt sumarið,
þurfum ekki að slá grasið og þær gefa
okkur svo áburð og hjálpa til við að
fá meiri fjölbreytileika í flóruna af
örverum í jarðveginum. Við notum
„holistic grazing“ sem þýðir að við
beitum kindunum í þéttum hópi á
lítið svæði í einu og færum þær mjög
ört. Þetta er kerfi sem Allan Savory
gerði vinsælt en það hjálpar til að
bæta jarðveginn – eykur á myndun
hummus og fjölbreytileika og fjölda
örveranna sem eru svo mikilvægar
fyrir heilbrigðan jarðveg,“ segir
Höskuldur og bætir við:
„Lífkerfið virkar þannig að
vínviðurinn ljóstillífar og myndar
einfaldar sykrur. Hann gefur síðan
stóran hluta af þessum sykri í gegnum
ræturnar inn í jarðveginn til þess að
ala upp bakteríur og ýmsa sveppi.
Þessar örverur nota síðan ensím til
þess að leysa upp ýmis snefilefni úr
jarðveginum og borga vínviðnum
fyrir sykurinn með því að færa honum
þessi snefilefni. Örverurnar gegna því
lykilhlutverki í bragðmyndun vínsins
og það er mikilvægt að hlúa að þeim.“
Kryddjurtir til ýmissa
hluta nytsamlegar
Það er að ýmsu að huga í fram-
leiðslunni og þó að mesta yfirlegan og
umhyggjan fyrir ræktunarsvæðunum
sé á vorin, sumrin og fram á haustið er
þetta vinna allt árið að sögn Höskuldar.
Til viðbótar við dvergkindurnar hafa
þau hjónin ræktað margar tegundir
kryddjurta á ekrunum sem hafa
margvísleg áhrif.
„Kryddjurtirnar hjálpa okkur að
fæla frá skordýr sem sækja í berin
á haustin þegar þau eru orðin sæt.
Jafnframt halda þær kindunum
heilbrigðari en kindurnar borða af
þeim í örlitlu magni til þess að losna
við ýmsa sníkla. Við notum þær líka
til að búa til jurtate sem við sprautum
á vínviðinn til að styrkja hann gegn
sýkingum. Að sjálfsögðu bragðast
lambakjötið betur þegar þau eru búin að
vera að borða kryddjurtir allt sumarið.
Einnig notum við kryddjurtirnar til
að búa til tvær útgáfur af drykknum
Vermouth svo þetta hefur góð áhrif í
okkar framleiðslu,“ segir Höskuldur,
sem selur vín sín í nokkrum löndum
Evrópu og í ÁTVR hér heima. Það
færist einnig í aukana að Íslendingar
panti beint af Höskuldi og er opið
fyrir pantanir hjá honum til 15. maí
næstkomandi fyrir sumarsendingu.
/ehg
LÍF&STARF
Eins og sjá má fer vöruúrval Höskuldar og konu hans,
Söru, vaxandi frá ári til árs og selja þau nú vínin sín í
nokkrum Evrópulöndum ásamt á Íslandi.
Dvergkindur og kryddjurtir
töfralausnir í ræktuninni
„Við erum farin að beita dvergkindum af kyninu Ouessant allt árið á ekrunum okkar til að halda grasi og illgresi í skefjum og hefur
gefið góða raun,“ segir Höskuldur.
Höskuldur Ari Hauksson, íslenski vínbóndinn í Sviss, var staddur hérlendis á dögunum til að kynna nýtt freyðivín
í framleiðslu hjá sér, Perlur.
AF VETTVANGI BÆNDASAMTAKANNA
Matvæla- og landbúnaðarstofnun
Sameinuðu þjóðanna (FAO) hefur
frá árinu 1990 gefið út vísitölu
matvælaverðs sem kallast FAO
Food Price Index (FFPI).
Vísitalan er mælikvarði á
verðþróun matvæla í heiminum.
Árið 2021 hækkaði vísitalan um
28,1%. Hækkun sem skýrist af
áhrifum Covid-19, öfgum í veðurfari
með tilheyrandi uppskerubrestum
og hækkun áburðarverðs. Stríðið
í Úkraínu hefur leitt til enn meiri
hækkana á matvælaverði. Vísitalan
hefur hækkað um 19% það sem
af er þessu ári. Frá því að Rússar
réðust inn í Úkraínu hefur vísitalan
hækkað um 13%. Þessar hækkanir á
matvælaverði eiga sér ekki fordæmi.
Hækkun matvælaverðs síðustu
vikur og mánuði er drifin áfram af
hækkun aðfanga en ekki síður af
þeirri ástæðu að jafnvægi framboðs
og eftirspurnar hefur raskast.
Hækkun allra aðfanga mun ferðast
upp virðiskeðjuna og á endanum
leiða af sér hækkun á matvælaverði.
Hækkun matvælaverðs hefur áhrif á
þróun verðbólgu og því þarf að leita
allra tiltækra leiða til þess að stemma
stigu við verðhækkunum.
Bændur finna sannarlega fyrir
þeim kostnaðarhækkunum sem hafa
orðið á aðföngum síðustu misserin.
Þar vegur þyngst að áburður hefur
hækkað um 90-95% milli ára. Flest
aðföng í rekstri sauðfjárbúa eru að
hækka um 20-40% milli ára. Sem
dæmi hækkar rúlluplast um 30-35%
milli ára, vélaolía hefur hækkað um
40-45% og kjarnfóður um 30-35%.
Þessir liðir vega þungt í bókhaldi
sauðfjárbænda og þörf á verulegri
hækkun afurðaverðs bara til að mæta
þessum kostnaðarhækkunum.
Sauðfjárbændum er vandi á
höndum. Framleiðslukostnaður
fer hækkandi og það ríkir algjör
óvissa um afkomu á þessu ári þar
til afurðaverð er komið fram. Á
undanförnum árum hafa bændur lagt
mikið af mörkum við að hagræða og
bæta rekstur sinna búa. Afurðaverð
og opinber stuðningur þarf að taka
mið af þeim kostnaði sem hlýst
af þessari framleiðslu og þar með
tryggja bændum sanngjarna afkomu
af sínum rekstri.
Nú þegar hefur ein afurðastöð
gefið út að hækkun á komandi haust
verði að lágmarki 10%. Sú hækkun
er því miður langt frá því að koma til
móts við væntingar bænda. Í þessu
samhengi þarf að halda því til haga
að árið 2017 varð hrun í afurðaverði
sem ekki hefur nema að litlu leyti
náðst að vinna til baka. Á dögunum
birtist í Bændablaðinu grein eftir
þau Eyjólf Ingva Bjarnason og
Maríu Svanþrúði Jónsdóttur,
starfsmenn RML. Í greininni er
m.a fjallað um afkomu sauðfjárbúa
og lagt mat á hverjar afurðatekjur
ársins þurfi að vera miðað við
hækkanir á framleiðslukostnaði.
Í greininni segir: „Í spá fyrir árið
2022 þurfa afurðatekjur að vera
900 kr/kg til að búin standi á sléttu
fyrir afskriftir og fjármagnsliði“.
Reiknað afurðaverð haustið 2021
með eftirágreiddum verðbótum var
552 kr/kg. Að óbreyttu er algjör
forsendubrestur í rekstri sauðfjárbúa
vegna fordæmalausrar hækkunar á
aðföngum.
Trausti Hjálmarsson,
formaður deildar
sauðfjárbænda BÍ.
Hækkun á framleiðslukostnaði matvæla án fordæma
Trausti Hjálmarsson.