Bændablaðið - 12.05.2022, Síða 50
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 202250
Hvað verður um nautakjötsframleiðsluna?
AF VETTVANGI BÆNDASAMTAKANNA
Mikið er ritað og rætt um
hækkandi vöruverð og dýrari
matarinnkaup þessi misserin.
Þessi umræða er í sjálfu sér ekki
ný af nálinni en reglulega virðist
verðbólgudraugurinn láta á sér
kræla.
Verðbólga á Íslandi mælist nú
um 7,2% og hækkaði um 1,3%
á milli mánaða. Yfir 12 mánaða
tímabil hefur húsnæðisliðurinn
hækkað um 11,6% á meðan
matur og drykkjarvörur hafa
hækkað um 5,2%. Hækkun á
mat- og drykkjarvörum skýrist
að hluta til af hækkun innfluttra
matvæla en jafnframt á hækkun
framleiðslukostnaðar á innlendum
matvælum. Gríðarlegar hækkanir
á aðföngum til landbúnaðarins eru
farnar að koma fram í verðlagi, og
ljóst að fleiri þættir munu ýta undir
áframhaldandi þróun í þá átt. Allar
kjötvörur hafa hækkað um 6,9% sl.
ár. Það er hins vegar ekki svo að
hækkun á kjötvörum til neytenda
komi fram í hækkun á afurðaverði
til bænda. Sú er a.m.k. ekki raunin
með nautakjötið um þessar mundir.
Þar er á ferðinni hættuleg þróun sem
vert er að vekja athygli á.
Árið 2020 hóf Landssamband
kúabænda að setja fram þróun á
afurðaverði til nautgripabænda
í vísitölu sem kallast VATN. Frá
árinu 2018 hefur afurðaverð til
bænda lækkað um tæp 10% meðan
vísitala neysluverðs hefur hækkað
um rúm 18%. Ef afurðaverð til
bænda væri launavísitala væri talað
um að kaupmáttarrýrnun kúabænda
í mars væri um 27% frá janúar 2018.
Á almennum markaði þýddi slíkt
miklar erjur á vinnumarkaði og
verkföll myndu lama atvinnulífið.
Ekkert slíkt er í kortunum nú, enda
ekki um beina launavísitölu að
ræða. Af þessum samanburði er þó
ljóst að kjör nautgripabænda hafa
farið verulega versnandi frá árinu
2018. Við sjáum sömu þróun ef
rýnt er í skýrslu RML um afkomu
nautakjötsframleiðenda á árunum
2017-2019. Hlutfall rekstrarafgangs
minnkaði um helming á árunum
2018-2019, úr 18,3% í 9,0% og
laun bænda reiknuð
á hvert framleitt kíló
nautakjöts lækkaði
um fjórðung á tíma-
bilinu 2017 og 2019.
Bændur hafa þannig
ekki notið þeirra
verð hækkana á mat-
vöru sem nú knýr m.a.
verð bólgu draug inn
áfram heldur tekið
hækkandi aðfanga-
verð allt á innri rekst ur.
En hvað veldur þessari þróun?
Á sama tíma hefur tollkvóti
til innflutnings nautgripakjöts
stóraukist. Frá því að tollasamningur
Íslands við Evrópusambandið tók
gildi í janúar 2018 hefur tollkvótinn
farið úr um 200 tonnum á ári í
rúm 800 tonn eða fjórfaldast. Um
svipað leyti var tekin upp önnur
aðferð við útboð á kvóta, sem
saman með þessari miklu aukningu,
leiddi til hálfgerðs hruns á verði
tollkvóta í nautakjöti. Í ársbyrjun
2021 var uppboðsaðferðinni hins
vegar breytt til baka og við það
hækkaði kvótaverðið ögn. Sífellt
hærra hlutfall af innfluttu nautakjöti
rúmast því innan tollkvóta en á
árinu 2021 rúmaðist um 80% af öllu
innfluttu nautakjöti innan tollkvóta.
Á meðan tollkvóti til innflutnings
hefur verið stóraukinn, meðalverð
tollkvóta hefur hríðlækkað og
afurðaverð til íslenskra bænda hefur
lækkað töluvert, hefur nautakjöt
samt sem áður hækkað um 15% skv.
undirvísitölu Hagstofunnar.
Vissulega hefur afurðaverð til
bænda verið á uppleið undanfarna
mánuði, og þó að slíkt sé sannanlega
jákvætt er nær að tala um
leiðréttingar fremur en hækkanir.
Á sama tíma hafa bændur verið
að mæta kröfum markaðarins um
betri aðbúnað, betri fóðrun og
heilnæmari framleiðslu. Þróunin á
holdafyllingu nautgripa framleiddra
á Íslandi er komin fram úr þeim
markmiðum sem bændur settu
sér fyrir árið 2028 og mikill
metnaður hefur verið lagður í að
bæta erfðamengi stofnsins. Þar
að auki ber íslenskt nautakjöt allt
að helmingi lægra kolefnsspor
en erlent nautakjöt og engin
umframframleiðsla er í greininni,
allt selst meira og minna ferskt.
Með öðrum orðum: Bændur
hafa verið að skila mun betri vöru
fyrir mun minni framlegð og slíkur
rekstur er vart sjálfbær til lengdar.
Afkoma nautgripabænda verður
að skoðast í þessu samhengi og
augljóst er að afkoman verður að
batna töluvert. Þá er einnig vert
að nefna að gripagreiðslur til
nautgripabænda eru afar lágar eða
um fjórðungur af gripagreiðslum til
sauðfjárbænda.
Því er alveg ljóst að orsaka
verðbólgunnar sem nú geisar
þarf að leita annars staðar en
í gripahúsum bænda. Aukinn
tollkvóti til innflutnings hefur
engan veginn skilað sér til neytenda,
heldur fyrst og fremst rýrt afkomu
bænda. Þessari þróun verður að
snúa við áður en í óefni stefnir með
framleiðsluvilja bænda.
Við sjáum það svart á hvítu í
rekstrarskýrslu RML að bændur
hafa jafnt og þétt verið að ganga
lengra á eigin launalið. Það þarf
því ekki að koma nokkrum á
óvart að sveigjanleikinn sem er
eftir hjá bændum til að taka á sig
stórfenglegar aðfangahækkanir er
lítill sem enginn. Við erum því farin
að sjá raungerast það sem við höfum
varað við, þ.e. að framleiðendur sjá
sér ekki fært að halda áfram með
sama hætti og eru farnir að draga
úr framleiðslu eða jafnvel hugsa sér
að hætta. Þar töpum við dýrmætri
þekkingu og atvinnutækifærum í
sveitum og það tjón verður vart
metið til fjár. Einkum núna þegar
reynir á fæðuöryggi þjóðarinnar.
Herdís Magna Gunnarsdóttir
0
200
400
600
800
1000
1200
Tollkvótar 2015 Tollkvótar 2016 Tollkvótar 2017 Tollkvótar 2018 Tollkvótar 2019 Tolkvótar 2020 Tolkvótar 2021
Tollkvótar og innflutningur á nautakjöti
ESB EFTA WTO Samtals innflutningur
0
100
200
300
400
500
600
700
800
900
0
100
200
300
400
500
600
700
800
2018-1 2018-2 2019-1 2019-2 2020-1 2020-2 2021-1 2021-2 2021-3 2022-1 2022-2
Úthlutanir ESB tollkvóta í nautakjöti
Eftirspurn Framboð Verð kvóta (hægri ás)
85
90
95
100
105
110
115
120
ja
n.
18
m
ar
.1
8
m
aí
.1
8
jú
l.1
8
se
p.
18
nó
v.
18
ja
n.
19
m
ar
.1
9
m
aí
.1
9
jú
l.1
9
se
p.
19
nó
v.
19
ja
n.
20
m
ar
.2
0
m
aí
.2
0
jú
l.2
0
se
p.
20
nó
v.
20
ja
n.
21
m
ar
.2
1
m
aí
.2
1
jú
l.2
1
se
p.
21
nó
v.
21
ja
n.
22
m
ar
.2
2
Þróun afurðarverðs nautakjöts
Vísitala afurðarverðs nautakjöt (VATN) Vísitala Neysluverðs
Herdís Magna Gunnarsdóttir. Mynd / TB
Alþjóðabankinn spáir áframhaldandi hækkunum á hrávörumörkuðum
Stríðið í Úkraínu hefur sett
hrávörumarkaði heimsins
á hliðina, breytt jafnvægi í
viðskiptum, framleiðslu og neyslu
sem hefur leitt til verð hækkana sem
eiga sér engin fordæmi. Í nýlegri
skýrslu frá Alþjóðabankanum
er því spáð að þessi staða muni
jafnvel standa fram yfir 2024.
Hækkanir á orkuverði síðustu
mánaða minna um margt á stöðuna
sem varð í kjölfar olíukreppunnar
1973. Gert er ráð fyrir því að
orkuverð haldi áfram að hækka á
þessu ári, en að sú hækkun gangi
eitthvað til baka árin 2023 og 2024.
Að sama skapi má gera ráð fyrir
að landbúnaðarvörur haldi áfram
að hækka í verði á þessu ári. Því er
spáð að verð á hveiti muni jafnvel
hækka um allt að 40% á árinu. Þessi
þróun er háð því hvenær átökum í
Úkraínu lýkur og ekki síður hvernig
fóðurrækt á heimsvísu muni þróast.
Í nýlegri skýrslu frá Alþjóða-
bankanum (Commodity Markets
Outlook – April 2022) er dregin
upp svört mynd af stöðunni
á hrávörumörkuðum og þeim
áhrifum sem hækkanir munu hafa
á matvælaverð. Fátækustu þjóðir
heimsins munu finna mest fyrir
þessari hækkun, enda eru þær
oft og tíðum háðar innflutningi á
matvælum. Alþjóðastofnanir hafa
síðustu mánuði varað við hættu á
aukinni hungursneyð í heiminum.
Alþjóðabankinn gaf út yfirlýsingu
fyrir nokkru síðan, þar sem kom
fram að fyrir hvert prósentustig sem
matvælaverð hækkar í heiminum
fjölgar um 10 milljónir manna í hópi
þeirra sem lifa við mikla fátækt.
Hér á landi er verðhækkun á
landbúnaðarvörum ekki komin
fram nema að litlu leyti. Ef litið
er á vísitölu neysluverðs hafa
mjólkurvörur hækkað um 8,4%
síðustu 12 mánuðina og kjötvörur um
6,9%. Á sama tíma hefur verðbólga
verið 7,2%. Vissulega eru þetta
miklar hækkanir. Sérstaklega í ljósi
þess að enn sér ekki fyrir endann
á hækkun á fóðurvörum og áburði.
Unnsteinmn Snorri Snorrason
-
100
200
300
400
500
600
700
2021.jan 2021.mar 2021.maí 2021.júl 2021.sep 2021.nóv 2022.jan 2022.mar 2022.maí
US
$/
mt
Maís Hveiti Soja
0
50
100
150
200
250
2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022
Ind
ex
Verðþróun á áburði
Mynd 1 sýnir verðþróun á maís, hveiti og soja frá janúar 2021–apríl 2022.
Á tímabilinu hefur maís hækkað um 64%, hveiti um 66% og soja um 36%
(Heimild: Alþjóðabankinn).
Mynd 2 sýnir verðþróun á áburði 2011–2022. Frá upphafi árs 2021 hefur
heimsmarkaðsverð á áburði hækkað um 186% (Heimild: Alþjóðabankinn).
Dreift í 32 þúsund eintökum á yfir 420
dreifingarstaði og lögbýli á Íslandi
Smáauglýsingar 56-30-300
4,9%
8,1%
18,8%
27,0%
41,9%
0,0%
5,0%
10,0%
15,0%
20,0%
25,0%
30,0%
35,0%
40,0%
45,0%
Viðskiptablaðið Stundin Morgunblaðið Fréttablaðið Bændablaðið
Meðallestur prentmiðla
á landsbyggðinni
Samkvæmt prentmiðlamælingu Gallup
á fjórða ársfjórðungi 2021
4,9%
8,1%
18,8%
30,1%
27,2%
0,0%
5,0%
10,0%
15,0%
20,0%
25,0%
30,0%
35,0%
Viðskiptablaðið Stundin Morgunblaðið Fréttablaðið Bændablaðið
Meðallestur prentmiðla
á landinu öllu
Samkvæmt prentmiðlamælingu Gallup
á fjórða ársfjórðungi 2021