Bændablaðið - 12.05.2022, Side 55
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 2022 55
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.lci.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
ZETOR
VARAHLUTIR
Landbúnaðartæki, björgunartæki og búnaður.
Svansson ehf
Sími : 697-4900 ● sala@svansson.is ● www.svansson.is
Eftir margra ára vinnu, blóð og
svita kemur að því að bændur
bregði búi og snúi sér að öðru.
Ástæður þess geta verið margar og
oftar en ekki er það vegna aldurs
eða að það sé einfaldlega komin
tími til þess.
Hver sem ástæðan er þá er það
alltaf krefjandi að skilja við búskap
og jafnvel bernskuheimili. Bændur
hafa þó val um hvernig þeir vilja
skilja við búskapinn og hægt er að
fara nokkrar ólíkar leiðir. Til að
mynda er hægt að selja til næstu
kynslóðar. Þá er möguleiki fyrir
fráfarandi bændur að finna sér land í
nærumhverfi og halda áfram búskap
í smærri mynd eða taka frá landskika
fyrir sig og hjálpa jafnvel til.
Svo er hægt að selja og flytja í
næsta þéttbýli og vera þannig nær
þjónustu og annarri atvinnu. Þetta
eru aðeins dæmi um hvað hægt sé
að gera. Undanfarin ár hefur færst
í aukana að bændur selji stærri
innviði úr rekstri bújarða, svo sem
greiðslumark og dýr. Tilgangur
þess er oft að halda áfram búskap
í smærri mynd á sömu bújörð sem
hélt eitt sinn uppi myndarlegum
rekstri eða jafnvel það eitt að búa
í íbúðarhúsi á jörðinni. Afleiðingar
slíkra aðgerða hafa afgerandi áhrif
á framtíð þessara jarða og í raun
nærumhverfi þeirra.
Bændur búa þá á þessum bú-
jörðum, huga að sínum dýrum
og vinna jafnvel með, en hvað
svo? Þegar kemur að því að loks
eigi að selja jörðina þá er hún oft
ekki fýsileg til rekstrar. Þá er til að
mynda mikið land sem komið er úr
ræktun, lítið af dýrum ef einhver
eru og húsakostur jafnvel kominn
í niðurníðslu. Bújarðir gætu jafnvel
farið í eyði við slíkar aðstæður,
séstaklega ef margir eigendur eru
að bújörðinni eða ef bændur kynnu
að falla frá skyndilega.
Þetta er landlæg þróun sem
hefur átt sér stað í mörg ár en upp
á síðkastið hefur þessi þróun verið
að sækja í sig veðrið. Auðvitað hafa
bændur rétt á þessu og geta gert
hvað sem þeim sýnist með sitt land.
Undirritaður er ekki hér til að skipa
bændum fyrir heldur til þess að láta
bændur vita að það er önnur leið.
Árlega útskrifast um 30 búfræð-
ingar úr Landbúnaðarháskóla
Íslands. Þetta nám er vinsælt og
ekki komast allir að sem vilja, slíkur
er áhuginn, og við erum ótrúlega
heppin að búa yfir slíkum mannauð.
Allt þetta fólk er fullt af áhuga og
bjartsýni yfir því að hefja búskap.
Auk þeirra er einnig mikið af ungu
fólki sem ekki hefur farið í nám en
er samt tilbúið að taka við keflinu.
Það gefur því auga leið að það
er hafsjór af ungu fólki sem er í leit
að bújörð, ýmist jörð sem stendur
undir fjölskyldu eða jörð sem
þarfnast aðeins meiri vinnu svo það
sé hægt. Sú menntun og reynsla sem
unga fólkið okkar býr yfir er beinn
afleggjari af starfi íslenskra bænda
og kjörið að nota krafta þess. Ungt
fólk er vel í stakk búið til að taka við
keflinu og halda áfram blómlegum
landbúnaði í sveitum landsins.
Við erum ótrúlega heppin að búa
yfir slíkum mannauð. En staðan er sú
að þegar ungt fólk ætlar að finna sér
bújörð þá er lítið í boði. Ef bændur
athuga fasteignavefi sjá þeir að úrval
jarða í rekstri er takmarkað og í raun
tíðindi ef fleiri en ein bújörð er
til sölu.
Það eru þó vissulega margar
hliðar á viðskiptum með jarðir,
eldri bændur hafa ef til vill sett
allt sitt í búskapinn og þurfa því fé
fyrir það sem á eftir kemur. Ungir
bændur standa frammi fyrir því
að fjármagna kaup á jörð, standa
undir og byggja upp búrekstur
auk þess að sækja fram til að ná
þeim markmiðum sem við setjum
okkur í landbúnaði almennt. Eins
og þekkt er með afkomu margra
búgreina er það enginn leikur. Það
er þó margt nýtt í farvatninu hvað
varðar búgreinar, nýsköpun og
landnýtingu með bindingu kolefnis
en kannski óljósara hverju það mun
skila. Samhliða þessu er ungt fólk í
sumum tilfellum í samkeppni við
auðugri einstaklinga sem sækjast oft
á tíðum í hlunnindajarðir.
Nú þegar matvælaframleiðsla
er alltaf að verða mikilvægari þá
er enn meiri þörf á því að bújarðir
haldist í rekstri. Ísland þarf að búa
við fæðuöryggi og slíkt gerist ekki
nema eðlileg kynslóðaskipti eigi sér
stað í landbúnaði.
Endurnýjun fólks í dreifbýli
er síðast en ekki síst undirstaða í
samfélögum til sveita. Það er því
einnig þarft að hvetja verðandi
sveitarstjórnarfulltrúa til að hlúa að
búsetuskilyrðum fyrir það fólk nú
sem endranær.
Góð þjónusta og mannlíf er
forsenda blómlegrar byggðar.
Jónas Davíð Jónasson,
frá Hlöðum.
Höfundur er gjaldkeri
Samtaka ungra bænda og
formaður Félags ungra bænda
á Norðurlandi
LESENDARÝNI
Arfleifð bújarða
Jónas Davíð Jónasson.
Nú þegar matvælaframleiðsla er alltaf að verða mikilvægari þá er enn meiri
þörf á því að bújarðir haldist í rekstri.