Bændablaðið - 12.05.2022, Side 59
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 2022 59
...frá heilbrigði til hollustu
Merking nautgripa – leiðbeiningar
Að gefnu tilefni vill Matvæla
stofnun vekja athygli á
þeim reglum sem gilda um
merkingar nautgripa. Sendar
voru út leiðbeiningar til allra
sláturleyfishafa síðastliðið haust
og þeir beðnir um að koma þeim
til sinna viðskiptavina til þess
að skýra hvaða reglur eru í gildi
varðandi merkingar nautgripa og
hvernig þær eru túlkaðar.
Ástæða þessara leiðbeininga voru
athugasemdir sem eftirlitsmenn ESA
(eftirlitsstofnun EFTA) gerðu við
eftirlit í sláturhúsum haustið 2019
sem varð til þess að reglur voru
hertar varðandi merkingar nautgripa
við komu í sláturhús.
Á Íslandi gildir reglugerð nr.
916/2012 um merkingar búfjár
og er markmið reglnanna að
tryggja rekjanleika búfjárafurða
frá upprunahjörð og/eða fæðingu
viðkomandi dýrs til sölu afurða
og skapa með því grundvöll að
markvissu matvæla- og búfjáreftirliti,
eftirliti með flutningum dýra,
skráningu búfjársjúkdóma og
meðhöndlun þeirra, sbr. 1. gr.
reglugerðarinnar.
Í 6. gr. reglugerðarinnar er
gerð krafa um að nautgripir
skuli merktir með forprentuðu
plötumerki í bæði eyru innan 20
daga frá fæðingu. Bæði framhlið
og bakhlið merkja (þ.e. báðar
blöðkurnar) skulu vera forprentuð.
Samkvæmt ákvæðinu skulu
eftirfarandi upplýsingar koma fram á
merkjunum: 1) YD-einkennismerki
Matvælastofnunar, 2) IS-einkennis-
merki Íslands, 3) búsnúmer og 4)
gripanúmer. Þá segir í 4. gr. að
umráðamaður búfjár beri ábyrgð
á að allt búfé sem alið er á hans
vegum sé merkt innan tilskilins
tíma með viðurkenndu merki, sem
fylgja á dýrinu alla ævi. Samkvæmt
ákvæðinu ber umsjónarmanni að
panta nýtt forprentað plöntumerki
þar sem fram koma sömu upp-
lýsingar og áður og setja í viðkom-
andi grip ef merkið dettur úr
gripnum. Framleiðandi merkjanna
hefur upplýst að afgreiðslufrestur
sé 7 til 10 dagar.
Forpentuð plötumerki eru því
aðeins lögleg að allar ofangreindar
upplýsingar séu prentaðar á
merkið. Ekki er leyfilegt að ein
blaðka merkisins sé handskrifuð.
Ef umráðamenn nautgripa vilja
handskrifa nafn eða aðrar upplýsingar
verður að gera það á forprentuðu
blöðkurnar, gjarnan á bakhlið
einhverrar blöðkunnar, þannig að
handskrifuðu upplýsingarnar skyggi
ekki á þær forprentuðu. Krafan er
að upplýsingarnar á merkjunum
séu óafmáanlegar og ekki er litið
svo á að handskrifaður texti á
merki sé óafmáanlegur. Það á alltaf
að vera hægt að sjá forprentuðu
upplýsingarnar á merkjunum, hvort
heldur sem er framan frá eða aftan
frá. Samþykkt er að gripir séu sendir
til slátrunar með löglegt merki í öðru
eyranu og gat í hinu.
Athygli er vakin á því að svokölluð
neyðarmerki/bráðabirgðamerki, þ.e.
merki með forprentuðu búsnúmeri,
en þar sem gripanúmerið vantar, eru
ekki lögleg merki. Tilgangur þeirra
er að nota þau í gripi sem týnt hafa
merki á meðan að beðið er eftir
endurprentun á forprentaða merkinu.
Er þetta til þess að koma í veg fyrir
að ruglingur verði á gripum ef fleiri
en einn gripur í stíu týnir merki á
sama tíma.
Mögulegt er að veita undanþágu
frá 6. gr. reglugerðarinnar, en beiðni
um slíkt þarf að vera send með
a.m.k. eins sólarhrings fyrirvara
til héraðsdýralæknis í umdæmi
viðkomandi sláturhúss og í beiðninni
verður að koma fram: 1) Nafn og
bú innleggjanda, 2) búsnúmer og
einstaklingsnúmer viðkomandi
grips, 3) lýsing á gripnum eins og hún
er í Huppu og/eða mynd af gripnum.
Þá þarf að koma fram skýring á
því hvers vegna nauðsynlegt er að
sækja um undanþáguna. Fyrirvarinn
er notaður af hálfu starfsmanna
Matvælastofnunar til að skoða,
meta og skjalfesta upplýsingar
um hvort viðkomandi gripur er
skráður í Huppu, hvort hann komi
frá viðkomandi búi innleggjanda og
hvort gripurinn sé á afurðarfresti, þ.e.
hvort hann hafi verið meðhöndlaður
með lyfjum sem koma í veg fyrir
að hægt sé að nýta afurðir af
gripnum til manneldis. Jafnframt er
fyrirvarinn notaður til að meta hvort
fyrirliggjandi undanþágubeiðni eigi
rétt á sér – en til þess að hægt sé að
fallast á að ómerktir gripir eða gripir
sem ekki eru merktir í samræmi við
regluverkið fari í matvælakeðjuna
þurfa að liggja fyrir einhverjar
málefnalegar ástæður. Ef gripur
týnir báðum merkjum er í flestum
tilfellum litið svo á að hann geti beðið
næsta skráða sláturdags og bóndinn
sendir annan grip af sláturlistanum
í staðinn. Ef fullvaxið naut týnir
merkjum og ekki er til tökubás eða
annar samsvarandi tækjabúnaður
til þess að endurmerkja nautið á
tryggan hátt á viðkomandi bæ er
gjarnan veitt undanþága þegar bóndi
sækir um slíkt í fyrsta (eða annað)
skipti. En séu menn að ala naut til
slátrunar má gera ráð fyrir að þeir
komi sér upp aðstöðu til þess að
sinna þeim gripum til framtíðar.
Frekari upplýsingar er hægt að fá
á heimasíðu Matvælastofnunar, mast.
is, undir Bændur – Nautgriparækt –
Merking og skráning.
Sigurbjörg Ólöf Bergsdóttir,
sérgreinadýralæknir nautgripa
og sauðfjár.
Freydís Dana Sigurðardóttir,
fagsviðsstjóri eftirlits
búfjárafurða.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
HAUGSUGU-
DÆLUR
6,500 - 9,500
11,000 - 13,500 lítra
HAUGSUGUHLUTIR
VARAHLUTIR
Næsta blað kemur út 25. maí
sést oft einna best á því að þegar
kálfahópar eru skoðaðir, t.d. við 5-6
mánaða aldur, þá skera oft sumir sig
úr hópnum vegna stærðar og aðrir
vegna smæðar. Til þess að setja
kálfaeftirlitinu fastar skorður mæli
ég með því að vigta alla kálfa aftur
þegar þeir eru 6 mánaða gamlir og
svo, ef hægt er, við fyrstu sæðingu.
Að síðustu væri gott að fá þunga við
burð, ef þess er nokkur kostur.
Hvernig á að vigta?
Ég veit vel að það er alls ekki
skemmtilegt verk, né létt, að vigta
gripi og þar sem ekki er um þeim
mun fleiri gripi að ræða er vafasamt
að verja miklum fjármunum í að
tæknivæða þennan þátt búskaparins.
Þar sem bú eru stærri, og kálfar
margir, er sjálfsagt að skoða þar
til þess gerðan vigtunarbúnað sem
fæst í dag bæði hálfsjálfvirkur og
nánast alsjálfvirkur þ.e. hálfgerðir
tökubásar þar sem hægt er að vigta,
mæla og holdastiga. En þar sem
flest bú á Íslandi eru með færri
burði en 100 á ári væri fjárfesting
í slíkum búnaði varla verjandi þó
það sé auðvitað undir hverjum og
einum komið hvernig hugað er að
fjárfestingum. Þannig má t.d. fá
einfaldar iðnaðarvigtar sem ná upp
í 100 kg sem henta ágætlega fyrir
þetta verk. Einnig má nota afar
einfaldan búnað til þess að mæla
fæðingarþunga kálfanna eins og sjá
má á meðfylgjandi myndum. Það
þarf hvort sem er að eyrnamerkja
kálfinn og skrá niður margs konar
upplýsingar, því ekki að vigta hann
í leiðinni?
Það eru til ýmsar gerðir af
stórgripavigtum, sumar sérstaklega
gerðar til þess að vigta gripi. Það
fer auðvitað fyrst og fremst eftir
aðstæðum á hverju búi, hvaða
búnaður hentar best t.d. hvort það
er svona gangvigt eins og sést á
meðfylgjandi mynd eða sérstök
stórgripavigt. Að síðustu má
svo auðvitað nefna hið klassíska
málband þar sem ummál gripsins
er mælt. Þessi aðferð hefur verið
stunduð í áratugi og gefur afar
góða mynd af þunganum þó svo að
hún sé vissulega ekki eins örugg og
hefðbundin mæling.
Þegar reynsla er komin á
mælingarnar má nota óbeinar
mælingar einnig, til þess að efla
gæðaeftirlitið með vexti kálfanna.
Þannig setja margir bændur merki,
t.d. með málningu, á framhlið
átgrindar. Þetta merki eða strik er
þá sett til þess að sýna hvað kálfarnir
ættu að vera háir á herðakamb að
jafnaði við ákveðinn aldur. Hver stía
er þá með sitt strik sem sýnir mjög
auðveldlega sé kálfur að dragast
aftur úr í samanburði við hina.
Hvernig á að bregðast við?
Algengasta spurningin sem ég fæ,
þegar þungamælingar ber á góma, er
hvernig á að bregðast við ef gripur
eða gripir eru að dragast aftur úr.
Það er erfitt að gefa ráð heilt yfir
og þarf alltaf að skoða aðstæður og
bústjórn í hverju tilfelli fyrir sig. Það
er nefnilega ýmislegt sem getur skýrt
það af hverju gripir vaxa of hægt.
Ef þungamælingar við 7-8 vikna
aldur sýna að kálfurinn vex of
hægt þarf að grandskoða hvernig
mjólkurfóðruninni er háttað og með
hvaða hætti kjarnfóður er kynnt fyrir
kálfinum. Honum er eðlislægt að
taka vel til fóðurs á þessum aldri
og að vaxa hratt svo ef það er ekki
tilfellið er kálfinum einfaldlega
of naumt eða ranglega skammtað.
Þá getur skýringin einnig legið í
sjúkdómum, streitu eða öðru slíku
sem hefur angrað kálfinn á þessu
mikilvæga skeiði í lífi hans. Þetta
þarf allt að skoða vel, sé tilfellið að
vöxturinn sé undir væntingum. Þess
má reyndar geta að sé fæðingarþungi
kálfa lágur, er erfitt að ætla kálfinum
að vaxa mjög hratt sem segir enn og
aftur að skoða þarf aðstæður hverju
sinni áður en unnt er að fullyrða um
ástæður skorts á vexti.
Næsta mæling fer fram við
hálfsárs aldur og fram að því þarf
reyndar að fylgjast einkar vel með
kálfunum. Hér segir útlit þeirra og
stærð mikið um hvernig gengur og
á þessu tímabili er mikilvægt að
flokka kálfana eftir stærð en ekki
aldri. Það sem allt of oft gerist
er að bændur flokka kálfana eftir
aldri en ekki stærð. Það kallar
nánast undantekningarlaust á það
að einhverjir kálfar lenda undir í
valdabaráttunni og dragast enn
frekar aftur úr. Svona kálfa þarf
að fjarlægja úr stíum og setja með
yngri gripum, sem passa betur í hæð
og stærð. Enn fremur þarf oft að
bæta hægvaxnari gripum upp með
bættu fóðri.
Útigangurinn
Ég held að ég geti fullyrt að oftast
þegar ég sé koma afturkipp í vöxt
á kvígum þá er það þegar þær eru
hafðar úti og oft jafnvel nánast
eftirlitslausar í einhverjum úthaga.
Það getur enginn bóndi ætlast til
þess að kvígur haldi kraftmiklum
vexti á úthagabeit.
Kvígur sem eru úti þurfa að vera
á kraftmikilli beit með góðu aðgengi
að steinefnum og skjóli. Þá þarf
rýmið að vera gott svo það sé ekki
mikið um áflog en átök gripa snar-
dregur úr vexti þeirra þar sem bæði
orka fer í það atferli auk þess sem
það veldur taugaveiklun sem bitnar
á átinu. Enn fremur er mikilvægt að
taka kvígurnar snemma á hús og
áður en veðrið verður óheppilegt
fyrir át og góðan vöxt.
Slagveður og kuldi hefur auðvitað
ekki stór líkamleg áhrif á nautgripi,
en veldur þó því að það dregur úr áti
og þá kemur afturkippur í vöxtinn.
Meirapróf
Nýi Ökuskólinn - Kle�agörðum 11 - 104 Rvík - meiraprof.is - meiraprof@meiraprof.is
Ré�ndin gilda
í Evrópu
Auknir atvinnumöguleikar
Íslensk og ensk námskeið
D-D1-C-CE-C1-C1E-B/FarKíktu á meiraprof.is og skráðu þig á námskeið