Bændablaðið - 12.05.2022, Síða 60
60 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 2022
LÍF&STARF
LANDBÚNAÐARHÁSKÓLI ÍSLANDS
GNSS1 í landbúnaði:
Betri nýting áburðar með hjálp IceCORS
leiðréttingarkerfis Landmælinga Íslands
Eins og allir hafa orðið varir við
þá hefur áburðarverð hækkað
verulega á síðasta ári. Mikilvægi
þess að nýta vel þetta dýra
búrekstraraðfang hefur því aldei
verið meira. Einnig hefur það
óæskileg umhverfisleg áhrif að
spreða áburði ofan í skurð eða
bera á margfalt magn af honum
á svæði innan spildu því sá
áburður nýtist ekki, skolast burt
og skilar sér ekki í uppskeru og
fóðurgæðum.
Notkun GNSS (Global Navigat
ion Satellite System)1 leiðsagnar
við áburðardreifingar er ekki ný
tækni. Rannsóknir hafa sýnt að
áburðardreifingu má bæta verulega
með slíkri tækni. Spænsk rannsókn
frá 2011 sýndi fram á að einungis
59% af landsvæðinu sem borið var
á fékk rétt áburðarmagn (+/10%)
þar sem ekki var notast við GNSS
leiðsögn við áburðardreifingu en
89% svæðisins fékk rétt magn
þegar notast var við slíkan búnað
(AmiamaAres o.fl., 2011). Áætla
má að hægt sé að ná sama upp
skerumagni með 515% minna
áburðar magni vegna þessara áhrifa.
Ýmis búnaður er í boði til þess að
nýta við GNSS leiðsögn. Einfaldasti
og ódýrasti búnaðurinn eru ókeypis
smáforrit (öpp) fyrir farsíma eða
spjaldtölvur sem byggja á GNSS
merki sem símar/spjaldtölvur
útvegar. Flestir framleiðendur
áburðardreifara bjóða upp á eigin
kerfi sem samanstendur af skjá,
loftneti, móttakara og hugbúnaði.
Dráttarvélaframleiðendur eru
síðan margir farnir að bjóða upp á
innbyggðan búnað í dráttarvélum
með innbyggðu loftneti og
sjálfstýringarmöguleikum.
Nákvæmni GNSS
Þegar velja á GNSS tækjabúnað þá
er að ýmsu að hyggja, þ.e.a.s. GNSS
tæki er ekki það sama og GNSS
tæki. Tækin nota mismunandi
tækni og aðferðir til að ákvarða
staðsetninguna sem leiðir til þess að
þau skila notendunum misnákvæmri
staðsetningu. Ónákvæmustu tækin
eru að skila 8 – 15 metra staðsetningar
nákvæmni án leiðréttingar, meðan
þau nákvæmustu eru um 1 m. Sum
GNSStækin hafa þá eiginleika að
geta tekið á móti leiðréttingum sem
bætir nákvæmni staðsetningarinnar
verulega. Eitt algengt leiðréttingar
kerfi er EGNOS (The European
Geostationary Navigation Overlay
Service). Þessir aðilar gefa upp að
staðsetningin verði aldrei lakari en
1 m til 3 m en vegna legu Íslands
er merkið frá gervihnettinum ekki
aðgengilegt alls staðar á Íslandi.
Enn betri staðsetningarnákvæmni
er hægt að fá frá CORSkerfum
(Continuously Operating Reference
Stations). Landmælingar Íslands
(LMÍ) reka slíkt kerfi og kallast
það IceCORS og er aðgengilegt
öllum landsmönnum án gjaldtöku.
Kerfið saman stendur af 33
GNSS jarðstöðvum sem eru jafnt
dreifðar um landið sem hafa þann
aðaltilgang að vakta og viðhalda
hnitakerfi landsins. Með því að fá
leiðréttingu frá IceCORS kerfinu
getur notandinn búist við nákvæmni
betri en 5 cm. Til þess að
geta bætt staðsetningar
nákvæmnina með hjálp
IceCORS kerfisins verða
tækin að geta tekið á móti
RTCM leiðréttingarskrám
og að á vinnusvæðinu sé
þokkalegt GSM samband.
Þessar aðferðir eru
kallaðar RTKleiðrétting
(nákvæmust) eða DGPS
sem skilar ekki eins
nákvæmari staðsetningu.
Einfaldur búnaður
prófaður
Landmælingar Íslands, Landbún
aðar háskóli Íslands (LbhÍ) og
Hvanneyrarbúið tóku höndum
saman til að finna ódýra leið til að
nota IceCORS kerfið til að auka
hagkvæmni í áburðardreifingu.
Lykilatriði var að finna ódýran
GNSSbúnað og hugbúnað en
auk þess þarf spjaldtölvu með
símakorti (líka hægt að nota
spjaldtölvu og snjallsíma til að sjá
um internetsamskiptin).
Notast var við móttakara og
loftnet frá ArduSimple ásamt
ókeypis smáforritinu Field
Navigator frá Farmis. Búnaðurinn
frá ArduSimple kostar frá
framleiðanda 275 Evrur sem gerir
um 40.000 kr þegar þessi grein var
skrifuð. Spjaldtölva var notuð til að
keyra smáforritið. Þessi samsetning
skilaði fljótt og vel nákvæmu merki
og sýndi nákvæmni innan við
2,5 cm. Prufað var að keyra eftir
forritinu út á velli og gaf þessi
búnaður góða raun. Keyrt var með
8 m millibili skv. forritinu og það
sannreynt með mælingum. Þær
mælingar sýndu að innan við 20 cm
skekkja var á milli ferða. Sú skekkja
skýrist að hluta til af því að erfitt er
fyrir ökumann að fylgja fullkomlega
þeirri línu sem sett er upp milli ferða
en einnig geta önnur atriði valdið
skekkju eins og halli dráttarvélar.
Eins og sjá má á meðfylgjandi
mynd (mynd 2) sýnir forritið hversu
langt ökumaður er frá æskilegri
ökulínu út frá vinnslubreidd tækis
og sýnir það svæði sem búið er
að keyra yfir með ljósgrænum lit.
Ljóst er að 20 cm skekkja telst
vera lítil í þessum efnum og því
er hægt að mæla með þessum
búnaði til að auka hagkvæmni við
dreifingu. Með þessari nákvæmni
mætti nýta sér GNSS leiðsögn
við ýmis önnur landbúnaðarstörf.
Helst væri gagnsemin í störfum
þar sem vinnslubreidd tækja er
mikil og/eða erfitt er sjá bil á milli
ferða með góðu móti. Oft hættir
mönnum til í þess konar aðstæðum
að hafa skörun mikla til að skilja
ekki eftir svæði á milli og þá nýtist
vinnslubreidd tækja ekki sem
skyldi. Dæmi um slík verk væru
dreifing á búfjáráburði, skeljasandi
eða kalki, múgun, heydreifing og
ýmis jarðvinnsluverk.
LMÍ hafa útbúið leiðbeiningar
um hvernig tengja má ArduSimple
RTK Portable Bluetooth Kit við
Android búnað og uppsetningu
á rauntímaleiðréttingu. Þær
leiðbeiningar má nálgast hjá
Þórarni Sigurðssyni, LMÍ thorarinn.
sigurdsson@lmi.is Ef vakna
spurningar eða áhugi á að fá meiri
vitneskju um verkefnið þá er öllum
velkomið að hafa samband við
greinarhöfunda.
Vefslóð á búnaðinn má finna hér.
• ArduSimple RTK Portable
Bluetooth Kit
• https://www.ardusimple.com/
product/simplertk2blitebt
casekit/
• Field Navigator app
• https://play.google.com/
store/apps/details?id=lt.
noframe.farmisfieldnavigator.
free&hl=is&gl=US
• 1. GNSS (Global Navigation
Satellite System) er samheiti
yfir öll gervihnattakerfi í
heiminum í dag. Þetta eru t.d.
GPS amerískt, GLONASS
rússneskt, Galileo evrópskt
o.s.frv.
Egill Gunnarsson
Hvanneyrarbúinu,
Jóhannes Kristjánsson
Landbúnaðarháskóla Íslands,
Þórarinn Sigurðsson
Landmælingum Íslands,
Guðmundur Valsson
Landmælingum Íslands.
Heimildir:
• AmiamaAres, C., Bueno
Lema, J., AlvarezLopez, C.
J., & RiveiroValiño, J. A.
(2011). Manual GPS guidance
system for agricultural
vehicles. Spanish Journal of
Agricultural Research, 9(3),
702. https://doi.org/10.5424/
sjar/2011090335310
• Manfred Bauer (2018);
Vermessung und Ortung mit
Satelliten. Wichmann Verlag
Berlin 2018, Germany
Guðmundur Valsson.Þórarinn Sigurðsson.Egill Gunnarsson. Jóhannes Kristjánsson.
Mynd 1. Búnaðurinn frá ArduSimple er ekki fyrirferðarmikill.
Mynd 2. Viðmót Field Navigator smáforritsins.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is
Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600
DRIFSKÖFT
OG DRIFSKAFTAEFNI
Landmælingar Íslands, Landbún aðar háskóli
Íslands (LbhÍ) og Hvanneyrarbúið tóku höndum
saman til að finna ódýra leið til að nota IceCORS
kerfið til að auka hagkvæmni í áburðardreifingu.