Bændablaðið - 12.05.2022, Page 61
61Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 2022
LESENDARÝNI
Búnaðarsamband Suður Þing
eyinga fékk á árunum 1980–1982
stuðning úr Framleiðnisjóði
landbúnaðarins til að kanna
áhrif þess að sleppa sumaröldum
(47 cm) laxaseiðum í stöðuvötn
í héraði.
Birt var áfangaskýrsla um árangur
í Frey 1983, 7. tbl. bls. 265. Þáverandi
formaður stjórnar Framleiðnisjóðs,
Jóhannes Torfason á Torfalæk, sýndi
verkefninu skilning og velvilja en
hefur gagnrýnt greinarhöfund fyrir
að hafa ekki skilað lokaskýrslu um
verkefnið. Verður hér á eftir reynt að
bæta úr því þótt vissulega hefði það
mátt gerast a.m.k. 30 árum fyrr. Bót
er þó í máli að bæði vötnin og laxinn
eru enn til staðar. Þá kann að vera að
nú sé frekar grundvöllur fyrir nýrri
hugsun í ræktunarstarfi laxfiska en í
veiðisæld níunda áratugarins.
Í nefndri áfangaskýrslu kemur
fram að sleppt var öll þrjú árin í
átta vötn á svæðinu. Reynt var að
fylgjast með niðurgöngu seiða úr
hluta vatnanna með seiðagildrum
sem þó reyndist hvorki einfalt
né öruggt. Eigi að síður fengust
1982 eftirfarandi niðurstöður um
niðurgöngu, sjá töflu 1.
Þá veiddust 1983 um 230
laxaseiði í gildru við Másvatnsós,
eða um 3% af seiðum sl. 1981. Rétt
er að nefna að ofangreidar tölur eru
lágmarkstölur því hluti seiðanna
kann af ýmsum ástæðum að hafa
komist fram hjá seiðagildrunum.
Veiðar með fínriðnum netum
í ágúst 1982 staðfestu einnig að
laxaseiðin þrifust vel í Másvatni
og Botnsvatni en uxu hægar í
Ljósavatni. Niðurstöður veiða og
stærðarmælinga má sjá í töflu 2.
Í mörg ár eftir að hætt var að
sleppa laxaseiðum í Másvatn
veiddust þar í net laxar í uppvexti,
frekar ómerkilegir fiskar. Niður
staða athugunarinnar var því
raunar að laxaseiðin náðu fótfestu
og þrifust í vötnunum en virtust
eiga í erfiðleikum með að rata út.
Samkvæmt fyrirliggjandi upplýs
ingum (Tumi Tómasson 1986) er
það í samræmi við reynslu erlendis
af seiðasleppingum í vötn sem liggja
hátt yfir sjó og hafa lítið útrennsli.
Þau framleiða stór seiði sem fara
seint út en skila sér ekki til baka.
Ár renna í gegnum tvö af
vötnunum átta, þ.e. Vestmannsvatn
og Langavatn. Með lestri hreisturs af
veiddum löxum og athugun á þróun
veiði var reynt að meta árangur af
sleppingum laxaseiða í þau vötn enda
varð talningu niðurgönguseiða ekki
við komið. Þá var einnig laxateljari
í Eyvindarlæk 1983–1986. Rekstur
slíkra teljara er erfiður en þó sýndi
hann 565 laxa göngu 1984 og 714
laxa göngu 1986.
Hreisturlestur af vatnasvæði
Reykjadalsár benti til að um 34% af
veiði 1983, um 57% af veiði 1984 og
um 15% af veiði 1985 væri komin frá
seiðasleppingum í Vestmannsvatn
(mögulega að litlum hluta úr
Másvatni) eða um 330 laxar veiddir.
Þar við bætist að hreistursýni benda
til að verulegur hluti laxagöngu í
Reykjadalsá veiðist á göngu sinni
um Laxá. Leiddar hafa verið líkur
að því að þriðjungur smálaxa sem
veiddist í Laxá á þessum árum
sé upprunninn í Reykjadalsá eða
Mýrarkvísl. (Tumi Tómasson
1986) Gæti því heildarveiði af þeim
36.500 smáseiðum sem sleppt var
í Vestmannsvatn hafa verið 5600
laxar, eða nálægt 1,5% af slepptum
seiðum. Sé svo er það betra en
meðal veiðiárangur af sleppingu
gönguseiða í Laxá sem virðist
innan við 1%. Heimtur í veiði af
þeim smáseiðum sem sleppt var í
Vestmannsvatn 1975 virtust þó mun
betri (3%?) (Jón Kristjánsson, 1979).
Ekki lá fyrir hreistur af laxi sem
veidddur var í Mýrarkvísl á þessu
árabili (1983–1986) en meðalveiði
í Mýrarkvísl þau ár var 325 laxar.
Meðalveiði fjögurra ára þar á undan
(1979–1982) var 197 laxar og
meðalveiði næstu fjögurra ára þar á
eftir voru 242 laxar. Mætti því ætla
að slepping þeirra nálægt 25.000
seiða sem sleppt var í Langavatn og
Kringluvatn hafi skilað 3400 löxum
í veiði, eða nálægt 1,5%. Minna er
vitað um árangur sleppinga í þau þrjú
vötn sem falla til Skjálfandafljóts en
trúlega hefur hann verið lítill.
Hér má að lokum nefna að um
1940 var sleppt kviðpokaseiðum
laxa í Vestmannsvatn t.d. á drættina
í Hólkoti og Höskuldsstöðum með
þeim árangri að þar fóru að veiðast
laxar sem ekki hafði áður verið
(Garðar Jakobsson um 1990).
Sigurður Már Einarsson
fiskifræðingur hefur öðrum
Íslendingum frekar rannsakað
uppvöxt laxa í stöðuvötnum. Á
vef Hafrannsóknastofnunar (www.
hafogvatn.is) miðlun /útgáfa, er að
finna fróðlegar skýrslur hans og
fleiri um það efni.
Í skýrslu Sigurðar um uppeldi
laxaseiða í stöðuvötnum á
vatnasvæði Laxár í Leirársveit
(VMSTV/98010X) er í inngangi tek
inn saman fyrirliggjandi fróðleikur á
þessu sviði. Er inngangurinn birtur
hér á eftir með góðfúslegu leyfi
höfundar:
Laxaseiði hafa gegnum tíðina
einkum verið talin alast upp í
straumvatni auk þess sem lax
getur einungis nýtt sér straumvatn
til hrygningar (Keenleyside 1962,
Gibson 1965, Symons og Hedland
1978). Laxaseiði eru mjög vel
aðlöguð að dvöl í straumvatni
vegna lögunar og stærð á eyruggum
sem gerir þeim auðvelt að berjast
við strauminn. Laxaseiði hafa þar
yfirburði yfir urriðaseiði , en þar sem
straumur er minni, hafa urriðaseiðin
yfirhöndina vegna meiri grimmdar
(Gibson 1978, 1988, Gibson og
Cunjak 1986). Þar sem bleikja
kem ur fyrir á sama búsvæði og lax
og urriði lætur bleikjan undan síga
í samkeppni við hina laxfiskana
(Noaksen 1980), enda minnst hæf
af þessum tegundum til að berjast
við strauminn.
Hins vegar hefur komið í ljós
á síðari árum að laxaseiði nýta
sér einnig stöðuvötn sem búsvæði.
Fyrstu heimildir um slíkt eru frá
Nýfundnalandi (Pepper 1976,
Chadwick og Green 1985, Ryan, O
Connel og Pepper 1993) þar sem
algengt er að laxaseiði alist upp í
grunnum stöðuvötnum. Í Evrópu var
þessu fyrst lýst á Íslandi (Sigurður
Már Einarsson 1986, Sigurður
Már Einarsson og fl. 1990) en þá
kom í ljós að laxaseiði fundust
í miklu magni á strandsvæðum
Meðalfellsvatns í Kjós. Laxaseiðin
nýttu sér þar einkum grýtt svæði
meðfram strandlengjunni og
fundust þar allir aldurshópar
seiða allt frá vorgömlum seiðum
til seiða á þriðja ári (Sigurður
Már Einarsson og fl. 1990). Þá er
vitað að uppeldi laxaseiða virðist
algengt í íslenskum vötnum og hefur
m.a. verið lýst í Geitabergsvatni,
Glannastaðavatni og Eyrarvatni í
Svínadal (Sigurður Már Einarsson,
1994). Nýlegar rannsóknir í Noregi
(Halvorsen, 1986) á nítján norskum
stöðuvötnum sýndu að laxaseiði
fundust í fimmtán þeirra og voru
uppeldissvæðin takmörkuð við
grýtt strandsvæði og svæði með
hágróðri, en seiðin fundust lítið sem
ekkert á sendnum strandsvæðum.
Uppeldi laxaseiða í norskum
vötnum virðist því nátengt því að
hrygningarskilyrði séu fyrir hendi í
innrennslisám (Halvorsen 1996). Á
Íslandi virðast hrygningarskilyrði
í útföllum stöðuvatna einnig vera
mjög mikilvæg fyrir nýtingu þeirra
til seiðauppeldis (Sigurður Már
Einarsson 1996). (tilvitnun lýkur).
Af ofangreindu virðist ljóst að
mikil þekking innlend og erlend
liggur fyrir um möguleika laxa í
stöðuvötnum. Þekkinguna þarf að
nýta til að fjölga stangveiddum
löxum í íslenskum laxveiðiám sem
er brýnna en nokkru sinni fyrr.
Aðferðarfræðin er raunar einföld.
Laxinn þaf grófa möl og straum til að
tryggja hrognunum súrefni. Eftir að
seiðin hafa klakist út þurfa þau fyrst
og fremst skjól og fæðu sem vötnin
geta gefið. Hér gæti raunar að nokkru
verið um að ræða nýtt form hafbeitar
sem svipar til hafbeitar í Rangánum
að öðri leyti en því að laxinn nýtir
uppeldisskilyrði stöðuvatna í stað
uppeldis í eldisstöð. Það ætti að
gera hvert gönguseiði ódýrara auk
þess sem búast má við mun betri
endurheimtum vegna lengri dvalar
í náttúrulegu vatni svæðisins. Sé
hugað að hagnaðarvon af að sleppa
vorgömlum laxaseiðum í stöðuvötn
gæti niðurstaða verið eftirfarandi:
Seiðin munu í dag kosta um 50
kr/stk. Miðað við 1% endurheimtur
í veiði er því seiðakostnaður á
hvern veiddan lax um 5.000 kr. Í
ár virðast veiðimenn reiðubúnir
að greiða nálægt 100.000 kr. fyrir
hvern veiddan lax, fylgi veiðileyfinu
gott veiðihús, sem víða er nú fyrir
hendi. Takist seiðasleppingar í
vötn með verulegu gegnumrennsli
virðist því leitun að ábatasamari
starfsemi. Nýting slíkra tækifæra
þar sem möguleikar finnast er á
ábyrgð forsvarsmanna viðkomandi
veiðifélaga.Svo sem fram er komið
er urriðinn grimmari en laxinn og því
líklegt að í einhverjum vötnum þurfi
að velja milli urriða og laxa. Sé lax
valinn má ætla að í flestum tilfellum
þurfi þá að sleppa smáseiðum laxa
í hæfilegu magni á valda staði
í viðkomandi vatni. Þá virðist
mikilvægt að laxinn sé upprunninn af
viðkomandi vatnasvæði og seiðunum
sé sleppt í góðu ástandi áður en vötnin
hlýna um of.
Hrognagröftur við ósa í og
úr stöðuvötnum þar sem möl og
straumur eru til staðar virðist einnig
valkostur.
Tekið saman í apríl 2022
Ari Teitsson
Tafla 1 - Sleppingar
Sleppt árið 1980 Veidd árið1982 Veidd af slepptum
Vötn Fjöldi Fjöldi Hlutfall (%)
Kringluvatn 5.500 140 2,5%
Másvatn 5.000 128 2,5%
Kálfborgarárvatn 5.000 35 0,7%
Sandvatn 5.000 28 0,6%
Tafla 2 - Veiðar og stærðarmælingar
Másvatn 1 stk sl 1980 lengd 14,7 cm 15 stk sl 1981 meðallengd 11,3 cm
Ljósavatn 3 stk sl 1980 meðallengd 12,1 cm 7 stk sl 1981 meðallengd 9,4 cm
Vestmannsvatn. Mynd / Hörður Kristjánsson
Landssamband veiðifélaga minnir á áður auglýstan aðalfund
sem haldinn verður 3. og 4. júní 2022 að Sel Hóteli Mývatni,
og hefst dagskrá kl. 11:30 þann 3. júní.
Óskað er eftir því að aðildarfélög sendi framkvæmdastjóra
Landssambandsins tilkynningu um þátttöku á aðalfundinum
eigi síðar en 15. maí nk. Vinsamlegast sendið tilkynninguna á
netfangið gunnar@angling.is.
Nánari upplýsingar um dagskrá
og þátttöku á fundinum er að finna
á vef Landssambandsins á www.angling.is.
AÐALFUNDUR
LANDSSAMBANDS VEIÐIFÉLAGA 2022
Ari Teitsson.
Dreift í 32 þúsund eintökum
á yfir 420 dreifingarstaði
Smáauglýsingar 56-30-300
Hafa áhrif um land allt!