Bændablaðið - 12.05.2022, Page 64
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 202264
MATARKRÓKURINN
LÍF&LYST – BÆRINN OKKAR
Sævar Örn Sigurvinsson og
Louise Anne Aitken kaupa Arabæ
af Guðlaugi Guðmundssyni sum-
arið 2006 og við tóku breytingar
á fjósi í hesthús.
Fyrstu árin voru stundaðar miklar
tamningar, síðan samhliða því fóru
þau að rækta rófur lítillega sem hefur
aukist mikið ásamt ferðaþjónustu
síðustu árin og hestamennskan er
orðin meira áhugamál en atvinna.
Býli: Arabær.
Staðsett í sveit: Flóahreppi í
Árnessýslu. Gaulverjabæjarhreppi
hinum forna.
Ábúendur: Sævar Örn Sigurvinsson
og Louise Anne Aitken.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Við hjónin ásamt sex börnum;
Svandís Aitken, 15 ára, David Örn
Aitken, 14 ára, Axel Örn Aitken,
11 ára, Sóley Lindsay Aitken, 7
ára, Snæbjörn Örn Aitken, 4 ára,
Stella Robin Aitken, 3 ára og faðir
minn, Sigurvin Ólafsson. Svo erum
við með tíkina Ariel og kettina
Capucchino og Expresso.
Stærð jarðar? Um 50 hektarar.
Gerð bús? Rófurækt, ferðaþjón
usta, hross, nokkrar hænur, kanínur,
tvær endur og ein gæs.
Fjöldi búfjár og tegundir? 25
hross.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum?
Það þarf að koma börnum af stað í
skóla og leikskóla, svo þarf að fóðra
hrossin, hænurnar og öll hin dýrin.
Suma daga er rófuþvottur og flesta
daga þrif á húsum og rúmfötum,
skutla á fótbolta, glímu og íþrótta
æfingar og sækja á leikskóla.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin? það er ekkert starf
leiðinlegt bara misskemmtileg.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm
ár? Svipaðan, kannski bæta við sig
í grænmetisræktun.
Hvar teljið þið að helstu tækifærin
séu í framleiðslu íslenskra búvara?
Tækifærin eru alls staðar en líklega
mest í grænmetinu.
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk og smjör.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu? Hrossasnitzel.
Eftirminnilegasta atvikið við
bústörfin? Það voru mörg eftir
minnilega atvik við frumtamn
ingarnar.
Langeldað kjöt og bakaðar kartöflur í kjötsoði
Þegar fer að líða að sumri
er tilvalið að plana vina- og
fjölskylduhitting og þá er gott
að framreiða kjöt sem er búið
að vera í ofni í lengri tíma og
framreiða með fullt af íslensku
grænmeti þegar það kemur í
búðir. En þangað til þurfum við
víst þá að ferðast í huganum
á vorin og nota grænmeti frá
Miðjarðarhafi í bland við íslenska
grænmetið úr gróðurhúsum
með ferskum kryddjurtum.
Nautaskankar í rauðvínssósu
(Ossobuco)
› 4 stk. nautaskankar (sneiðar)
› 500 ml rauðvín
› 2 laukar
› 100 g grænmeti (t.d. gulrætur, rófur,
sellerí eða hvað sem er)
› olía
› salt og pipar
Hitum ofninn í 165 gráður. Hitum
olíuna í víðum þykkbotna potti sem
þolir að fara í bakarofn.
Kryddum skankana vel með salti og
pipar og brúnum þá á öllum hliðum.
Skerum nú laukana í sneiðar og
dreifum þeim á milli skankanna.
Hellið rauðvíni yfir. Kryddum með
lárviðarlaufum, hitum allt upp að
suðumarki, leggjum þá lok yfir
og setjum í ofninn. Látum réttinn
malla í 2½ klukkutíma. Bætum
grænmeti saman við og steikjum í
1520 mínútur í viðbót.
Smökkum soðið og bragðbætum
með pipar og salti eftir þörfum.
Berum kjötið fram með lauk, græn
meti og soði. Ofnbakaðar kartöflur
eða kartöflustappa bragðbætt með
hvítlauk fara mjög vel með þessu.
Það er gott að nota ítalskt krydd í
þennan rétt, t.d. lárviðarlauf, basi
líku eða rósmarín. Nautaskankar
eru enn betri ef maður setur þá í
10% saltlög í tólf klukkutíma og
svo ferskt vatn til að skola áður en
þeir eru eldaðir – verða bragðmeiri
og mýkri fyrir vikið.
Bakaðar kartöflur í kjötsoði
› 400 g kartöflur
› 400 ml kjötsoð (vatn og kraftur)
› 2 hvítlauksrif
› 50 ml smjör eða olía
› salt
Skrælum kartöflurnar og skerum
síðan í þær til hálfs með fínu bili
á milli skurðanna, það gefur bæði
fallegt útlit og gefur soðinu greiðari
aðgang að kartöflunum.
Merjum hvítlaukinn eða söxum hann
mjög fínt.
Setjum kartöflurnar í eldfast fat með
hvítlauk, smjöri og kjötsoði.
Bökum í ofni við 180 gráður í 4560
mínútur eða þar til kartöflurnar eru
orðnar brúnar, fallegar og mjúkar í
miðjunni.
Kryddum með salti eftir smekk (má
líka baka með skönkunum).
Gulrætur og laukur í olíu
› 5 gulrætur (100 g)
› 2-3 hvítlauksrif
› 1-2 tsk. kóríanderfræ
› 100 g skalottlaukur
› olía
› salt og pipar
Skerum gulrætur, hvítlauk og skalott
lauk í þunnar sneiðar. Eldum gulræt
ur, lauk, hvítlauk og kóríanderfræ í
olíu í potti við vægan hita.
Kryddum til með salti og pipar.
Það er mjög gott að bæta í þetta
góðri ólífuolíu og bragðgóðu ediki
eða sítrónusafa í lokin.
Lambabógur í sinnepslegi með
grænmeti
› 1 lambabógur
› 2 hvítlauksgeirar
› 2 msk. dijonsinnep
› 40 g púðursykur
› Vatn
› olía
› salt (jafnvel gróft salt)
› pipar
Byrjum á að pensla kjötið með olíu
og skerum svo nokkrar línur í kjötið
ásamt því að gera fínar holur í það
með litlum hníf. Troðum hvítlauk inn
í holurnar og nuddum honum um leið
aðeins á kjötið. Nuddum líka salti og
pipar á kjötið.
Færum lambið í sjóðheitan ofn eða
á grill til að fá góða brúningu á það.
Þegar lærið er orðið fallega gullbrúnt
allan hringinn lækkum við hitann vel
og hellum vatni yfir.
Leyfum nú herlegheitunum að dóla
á grillinu eða í ofninum í tvo tíma.
Blöndum nú saman púðursykri og
smávegis dijonsinnepi og berum
á allt lambið. Hækkum svo hitann
vel og steikjum kjötið í 23 mínútur
til að brenna það aðeins að utan.
Leyfum steikinni að jafna sig í 10
mínútur eftir að við tökum hana af
grillinu (úr ofninum) og berum hana
svo fram með uppáhaldsmeðlætinu
okkar, td. grænmeti sem er bakað í
lok eldunartímans.
Ofnbakað grænmeti
› 1 kúrbítur
› blandaðar paprikur
› 3 laukar
› 1 dós tómatar
› 1 eggaldin
› olía
› salt og pipar
Tökum endana af kúrbítnum og
eggaldininu og skerum kjötið í sneið
ar, smásöxum laukinn. Hitum olíuna
og ljósbrúnum eggaldinið, bætum í
tómötum, lauk og kúrbít, kryddum
til með salti og pipar.
Þetta sjóðum við svo við vægan hita
í potti. Gott er að setja smá ólífuolíu
yfir matinn fyrir framreiðslu.
Basil, notaðu annars það grænmeti og
þær kryddjurtir sem þú átt, til að ná
fram ólíku bragði.
Fallegt að framreiða á beði af
hrísgrjónum með grænmeti í kring.
Bjarni Gunnar Kristinsson
matreiðslumeistari
bjarnigk@gmail.com
Arabær