Bændablaðið - 12.05.2022, Qupperneq 66
Bændablaðið | Fimmtudagur 12. maí 202266
Snemma á áttunda áratugnum kom
í heiminn stúlkubarnið Stella.
Dóttir Bítilsins fræga, Pauls
McCartney og bandaríska
ljósmyndarans heitins,
Lindu McCartney.
Fjölskyldan var
hlynnt öllu því sem
tengist dýra- og
umhverfisvernd og því
má nærri geta, er stúlkan
óx úr grasi, að gildi
uppvaxtarins fylgdu
henni út lífið.
Leið hennar lá
á fatahönnunar-
braut Central Saints
Martins skólans í
London og má segja
að ferill hennar sem
fatahönnuður hafi
farið af stað árið
1995, strax er hún
útskrifaðist, en
sem lokaverkefni
fékk hún vinkonur
sínar, súpermódelin
Kate Moss og
Naomi Campbell, til að sýna
fatnað sem hún hafði hannað.
Fimm árum síðar hlaut hún
verðlaun VH1/Vouge sem
hönnuður ársins og fór hróður
hennar stigvaxandi síðan.
Hafa gagnrýnendur
gjarnan skotið því
að, að eftirnafnið
hennar hafi átt þátt
í velgengninni, en
ekki er hægt að líta
fram hjá hversu gott auga hún hefur
fyrir því að blanda saman hátísku og
stíl heimavinnandi húsmæðra.
Í lið með Gucci
Árið 2001 hóf Stella McCartney
samstarf við tískuveldið Gucci en
þar fékk hún tækifæri til að þróa
eigið merki sem andlit alþjóðlegrar
lúxusvöru. Eftir henni var haft: „Með
Gucci hef ég fundið samstarfsaðila
sem hefur þau gildi og ímynd að ég
get komið mínu fyrirtæki farsællega
á framfæri. Mig hefur alltaf langað
til að stofna mitt eigið lúxusmerki og
mér finnst ég vera tilbúin í áskorunina
þegar kemur að samvinnu við risa
eins og Gucci.“
Til viðbótar við Gucci hefur
hún tekið höndum saman við önnur
fyrirtæki, þar á meðal H&M og Adidas.
Í samstarfi við Adidas kom Stella til
starfa meðal annars sem skapandi
stjórnandi fyrir fatnað Ólympíuliðs
Bretlands árið 2012 og hvað varðar
samstarf hennar við H&M seldust þær
flíkur upp á nokkrum klukkustundum.
Árið 2014 kynnti hún svo „sjálfbæra“
kvöldfatalínu sína eins og hún var
kynnt, eða Stella McCartney Green
Carpet Collection – en þar notaði hún
meðal annars lífræn og endurunnin
efni.
Í desember 2018, í samvinnu við
Sameinuðu þjóðirnar, kynnti McCartney
nýjan sáttmála tísku- iðnaðarins
varðandi loftslagsaðgerðir þar sem
fyrirtæki eru hvött til að tileinka sér
sjálfbæra viðskiptahætti.
Samstarf við Bolt Threads
Í dag er Stella McCartney heimsfrægur
fatahönnuður sem hefur alla tíð verið
á móti notkun leðurs og skinna enda
alla tíð haft í hávegum þau gildi
uppvaxtar síns er áður voru nefnd.
Árið 2017 hóf hún samstarf við Bolt
Threads en þá sköpuðu þau það sem
kallast vegan silki, Microsilk, en það
er svokallað lífgerviefni, framleitt með
því að blanda erfðaefnum úr köngulóm,
gerjuðu vatni/sykri og geri. Samkvæmt
vísindamönnunum er stóðu að sköpun
efnisins segja þeir að „að búa
til gervi-kóngulóarsilki felur í
sér nokkur einföld hráefni
og mjög nákvæm
vísindi. Sykur, vatn
og ger, í bland við
erfðaefni kóngulóar
er sameinað og
látið gerjast í stórum
ryðfríum stáltönkum.
Blandan er síðan skilin
í skilvindu, hreinsuð í
duft og blönduð saman
við leysi. Fljótandi
silkipróteinið sem
myndast, lítur út eins
og lím og er í sama
náttúrulega ástandi
og fljótandi próteinið
sem raunverulegar
köngulær þrýsta úr
silkikirtlum sínum
og mynda síðan
í trefjar.“
Silkipróteinið er
síðan dregið út með
spunavél og spunnið
á sama hátt og trefjar á
borð við akrýl og önnur
þess háttar gerviefni.
Hingað til hefur
Microsilk einungis
verið notað í frumgerðir
tískuvarnings, þar
á meðal í tak-
mörkuðu upplagi
af prjónabindum
svo og í samstarfi
við fyrirtæki Stellu,
kjól fyrir Nútímalistasafn New York,
en kostir Microsilk eru þeir að efnið er
sterkara en silki, afar létt og hlýrra en
ull til dæmis.
Áframhaldandi samstarf Bolt
Threads og Stellu hefur vakið hrifningu
og nú í sumar kynnti Stella McCartney
sumarlínu sína, SS22, en þar má finna
meðal annars handtöskur úr sveppaleðri
er bera nafnið Frayme Mylo. (Mylo er
mjúkt og efnismikið „leður“ gert úr
sveppaþráðum). En öll efni er Stella notar
í hönnun sína er Mylo, vottað lífrænt,
aðallega gert úr endurnýjanlegum
hráefnum sem finnast í náttúrunni í
dag. Vísindamenn hjá Bolt Threads
hafa í raun komið af stað nýjum flokki
efnisvísinda með því að endurskapa
það sem gerist undir skógarbotninum,
þar sem sveppavefurinn vex best, í
rannsóknarstofu með moltu, lofti og
vatni. Slíkt ferli er hannað til að hafa
lágmarks umhverfisáhrif og tekur
daga, ekki ár eins og að ala nautgripi
– hjálpar til við að spara vatn, losun
gróðurhúsalofttegunda og verndar
lífsnauðsynleg vistkerfi eins og Amazon
fyrir eyðingu skóga.
Móðir jörð í aðalhlutverki
Opnunarkynning Stellu á tískupöllum
Parísarborgar á dögunum hófst með
frásögn sveppafræðingsins fræga,
Paul Stamets, en brautryðjendastarf
hans með sveppi hefur opnað fyrir ný
sjónarhorn af ýmsum toga. Sýningin
var sett undir tónlist frá listamanninum
MycoLyco, sem heitir réttu nafni
Noah Kalos, sem er sveppafræðingur,
eða líffræðingur sem sérhæfir sig
í sveppafræði og er með aðsetur í
Norður-Karólínu.
Tengir sá meistari sveppa við
hljóðgerla og eru þannig einkennishljóð
hans knúin áfram af sveppum. Nærri má
geta að stemningin var ógleymanleg, en
að auki kynnti Stella þarna enn betur
framtíðarsýn sína:
„Við munum halda áfram samstarfi
við Bolt Threads með Mylo til að skapa
ekki aðeins betra efni, heldur búa til
tískuiðnað sem er vingjarnlegri við allar
verur og móður jörð.“ /SP
Loðfeldir hafa sjaldan notið jafn
lítilla vinsælda og á undan- förnum
árum. Árið 2018 voru þeir bannaðir
á tískupöllum tískuvikunnar í
London og nú hefur mikill fjöldi
hönnuða aftekið notkun felda.
Má þar á meðal nefna tískuveldi
á borð við Gucci, Chanel, Versace,
Armani, Coach og Prada. Slíkar
ákvarðanir hafa einnig litað allt frá
almenningi til áhrifavalda og þaðan
alla leið til bresku krúnunnar.
Kim Kardashian nokkur,
áhrifavaldur sem flokkast reyndar
neðar en breska konungsfjölskyldan,
sendi frá sér þá tilkynningu árið
2019 að hún hefði losað sig við alla
sína loðfeldi og látið endurgera þá
úr gervifeldum. Önnur, tiginborin,
Elísabet Bretlandsdrottning, var
á sama báti sama ár og forbað sér
nokkur kaup á loðfeldum í árlegri
verslunarferð er farin er til að
uppfæra fataskáp hennar hátignar.
Jafnvel Anna Wintour, ritstjóri
bandaríska Vouge, sem þekkt hefur
verið fyrir dálæti sitt á refa- og
minkafeldum lætur nú ekki sjá sig
í öðru en gervifeldum, þá helst úr
smiðju Stellu McCartney eða Gucci.
Talsmaður felda og fjörs
Tískurisinn LVMH (Louis Vuitton
og Moët Hennessy), sem tóku
seinna við sér er kemur að málefnum
loðdýra, sendu frá sér þá yfirlýsingu
á dögunum að nú væri í kortunum að
breyta um stefnu.
Þetta vekur nokkra athygli enda
hóf Fendi, eitt fyrirtækja innan
veggja LVMH, feril sinn með áherslu
á loðfeldi og leður, fyrir rétt tæpum
100 árum. Meira að segja hefur
Karl Lagerfeld, einn helsti listræni
stjórnandi Fendi, látið hafa eftir
sér að þegar hann hannaði merki
fyrirtækisins, sem samanstendur
af tveimur F-um, hafi það átt að
standa fyrir Fur & Fun. (Sem gæti
þá íslenskast sem Feldir & fjör).
Karl Lagerfeld, sem var stór
hluti Fendi fyrirtækisins í 54 ár,
var mjög hlynntur loðfeldum og
hélt meðal annars „haute fourrure“
sýningar í 2-3 skipti þar sem
feldur var í forgrunni – þá í stað
haute couture sýninga sem þýðir
í raun hátískusýningar. Hélt hann
fyrstu Haute Fourrure sýninguna í
tilefni hálfrar aldar starfsferils síns,
8. júlí árið 2015.
Var það fyrsta skinn- og
feldsýningin sem nokkurn tíma
hefur verið staðið fyrir í sögu
tískusýningarpalla Parísarborgar og
hlaut sýningin mikið lof enda afar
áhrifamikil og glæsileg í alla staði.
Breytingar í vændum
En nú, sjö árum síðar, lýsa forsvars-
menn LVMH því yfir að framtíðarsýn
þeirra sé að breytast og stíga í
hóp þeirra hönnuða og listrænu
stjórnenda tískuheimsins sem
komnir eru fjær því framleiðsluferli
er á sér stað í loðdýraiðnaði.
Jákvætt er að segja frá því
að Fendi, þetta fyrrum veldi
loðdýraskinna, hefur nú hafið
samstarf við listaháskólana Central
Saint Martin og Imperial College
í London – en innan þeirra veggja
er staðið fyrir rannsóknum á þeim
möguleika að rækta hár eða feld sem
byggt er úr keratíni líkt og alvöru
hár, í stað plasts eins og gjarnan er
nýtt í gervifeldi, en þá væri, ef vel
tækist til, keratín-feldur nýr sjálfbær
valkostur í heimi loðfatnaðar.
Markmiðið er að útkoman verði
sem líkust alvöru loðskinni, því
jafnvel þótt gæði gervifelda hafi
batnað æ meira með árunum eru
þeir ekki á pari við alvöru feldi. Þó
ætlar Fendi sér ekki að stíga skrefið
að fullu, heldur minnka notkun sína
á dýraskinnum verulega.
Lífrænn valkostur
leðurs og loðfelda
Áhugi er mikill á þróun þessa lífræna
valkosts og horfur eru á því að
keratínfeldir muni skipta sköpum í
tískuiðnaði framtíðarinnar.
Samstarfið er eitt fjölmargra
verkefna sem fellur undir þá nýsköpun
sem á sér stað um þessar mundir -
að nota plöntutengda líftækni til
að skapa útgáfur dýraafurða sem
notaðar hafa verið - reyndar bæði
í tísku og svo matvælaiðnaði. Við
framleiðslu lífræns tísku- varnings
má þá helst nefna gerð leðurs og
loðfelda, en sífellt fleiri fyrirtæki
beina sjónum sínum þangað.
Til dæmis má nefna Hermès,
sem hefur verið í samstarfi
við Mycoworks, framleiðanda
leðurs byggðu á mycelium eða
sveppaþráðum, fyrirtækið Stella
McCartney hefur hannað flíkur í
samstarfi við Bolt Threads sem
einnig stendur í slíkri framleiðslu
á meðan móðurfyrirtæki Tommy
Hilfiger, PVH, ásamt danska
fyrirtækinu Bestseller hófu samstarf
með fyrirtækinu Ecovative, sem
sérhæfir sig í lífrænni framleiðslu
varnings, þá helst úr afurðum sveppa.
Á sama tíma hefur fjöldi
tískumerkja og smásala sem hætt
hafa kaupum og notkun skinnfelda
í áföngum – eða skuldbundið sig
til að gera það – aukist hratt, en
nýlega var tilkynnt að bæst hefðu
í hópinn Mytheresa, Oscar de la
Renta, Burberry, Neiman Marcus,
Coach, Miu Miu og Canada
Goose svo einhverjir séu nefndir.
Lúxusveldið Kering, sem á meðal
annars Balenciaga, Bottega Veneta,
Gucci, Alexander McQueen og
Yves Saint Laurent, toppaði svo allt
saman og hét því á síðasta ári að
útrýma loðfeldum innan allra sinna
vörumerkja.
Árangur væntanlegur
innan fáeinna ára
Einhver bið verður á því að
keratínfeldir sjáist á tískupöllunum
en áætlað er að árangur
ræktunarverkefnisins komi í
ljós eftir tvö ár. Samt sem áður
eru samstarfsaðilar og þeir er að
tilrauninni standa fullvissir um
jákvæða framvindu.
Hver svo sem útkoman verður
eftir árin tvö er ljóst að allt eru þetta
skref sem tekin eru í ljósi vaxandi
þarfar almennings eftir sjálfbærum
kosti sem fellur undir siðferðilegan
ramma nútímans – í bland við
framfarir í lífverkfræði almennt og
þá sérfræðiþekkingu sem gefur kost
á þessari þróun. /SP
Framtíðarsýn LVMH & annarra tískuvelda:
Ræktun „loð“felda
Loðfeldir hafa löngum gefið ímynd velmegunar og valds. Núorðið er þó eftirspurn eftir alvöru loðfeldum á undanhaldi
og keppast vísindamenn við að koma á markaðinn vönduðum gervifeldum.
Hér má sjá Önnu Wintour, ritstjóra
bandaríska Vouge á ferðum sínum
- íklædda skósíðum gerfifeld
úr smiðju Stellu McCartney.
Kemur myndin af instagramsíðu
tískuhönnuðarins sem mærir
ritstjórann fyrir þá ákvörðun sína.
Stella McCartney:
Hægri hönd
móður jarðar
UTAN ÚR HEIMI
Gulur og glaðlegur kjóll úr
smiðju þeirra Bolt Threads og
Stellu McCartney sem hangir á
Nútímalistasafninu í New York.