Skessuhorn - 11.05.2022, Side 2
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 20222
Fiskmóttaka
fyrir alla
LEIÐRÉTT: Í frétt í síðasta
Skessuhorni var m.a. sagt frá
grillveislu sem Sæljón, félag
smábátaeigenda á Akranesi,
stóð nýverið fyrir við Akranes-
höfn. Í fréttinni var missagt að
Böðvar Ingvason væri starfs-
maður Fiskmarkaðs Snæfells-
bæjar. Svo er ekki lengur. Hið
rétta er að Böðvar rekur fisk-
móttöku á Akranesi og þjónar
þar hverjum þeim sem landa
vill fiski á Akranesi, óháð því
hvar viðkomandi selur afl-
ann. „Það stendur öllum til
boða að nota aðstöðuna hér á
Akranesi til löndunar og sölu á
fiski, en starfsemin er á vegum
fyrirtækis míns Emilíu AK-57
útgerð,“ segir Böðvar. Beðist
er velvirðingar á þessu. -mm
H veitingar
hættar í Food
Station
BORGARNES: H Veitingar
hafa hætt rekstri sínum í
Food Station við Digranes-
götu í Borgarnesi, en þar hef-
ur starfsemin verið frá síðasta
ári undir heitinu H Bistro &
Pizza. Samkvæmt heimild-
um Skessuhorns eru viðræð-
ur í gangi við nýjan rekstrar-
aðila í húsinu en ekki er hægt
að fara nánar út í það á þessu
stigi. Húsið er í eigu Borgar-
lands ehf sem aftur er í eigu
Kaupfélags Borgfirðinga. -gj
Kaupa eftirlits-
myndavélar
AKRANES: Bæjarráð Akra-
neskaupstaðar samþykkti á
fundi sínum 28. apríl sl. að
standa straum af kostnaði
vegna kaupa og uppsetningar
á eftirlitsmyndavélum við
Brekkubæjarskóla, Grunda-
skóla og leikskólann Teigasel.
Áætlaður kostnaður við verk-
efnið er um átta milljónir
króna. -vaks
Undirbjuggu leit
SNÆF: Björgunarsveitir um
vestanvert landið voru á fyrsta
tímanum aðfararnótt síðast-
liðins fimmtudags kallað-
ar út til leitar að ferðamanni
sem orðið hafði viðskila við
hóp á svæðinu milli Búða og
Hraunsmúla. Beiðni til sveit-
anna var síðan afturkölluð
um klukkustund síðar þegar
maður inn skilaði sér heill á
húfi. -mm
Jæja, það er komið að því! Á
laugardaginn verða tvær flug
ur slegnar í einu höggi því þá fer
ýmislegt á flug. Sveitarstjórnar
kosningar verða flögrandi yfir
manni allan daginn og um
kvöldið fer í loftið Evróvisjón
þar sem hent verður í snakk og
fljúgandi eðlu. Vonandi verð
ur ekki flogist á þegar líða tekur
á kveldið yfir pólítíkinni heldur
þvert á móti að gleðin verði alls
ráðandi og menn komist í flug
gírinn. Sama hvernig fer í kosn
ingunum eða Evróvisjón þá er
aðalmálið að muna að ef allt fer
á versta veg þá mun allt lagast
með hækkandi sól.
Á fimmtudag má búast við norð
an 813 m/s og slyddu eða snjó
komu, en stöku éljum suðvestan
til á landinu. Hiti 0 til 6 stig, kald
ast í innsveitum fyrir norðan. Á
föstudag er gert ráð fyrir norð
an 510, en 1015 með austur
ströndinni. Snjókoma eða slydda
á Norður og Austurlandi og hiti
í kringum frostmark. Bjartviðri
sunnan heiða með hita að 6 stig
um yfir daginn. Á laugardaginn,
kosningadag, er útlit fyrir
austan átt og rigningu með köfl
um á sunnanverðu landinu, en
þurrt fyrir norðan. Hlýnar smám
saman. Á sunnudag verður
suðlæg átt og rigning eða skúrir,
en úrkomulítið um landið norð
austan vert. Hiti 6 til 12 stig.
Í síðustu viku var spurt á vef
Skessuhorns: „Hversu oft er
heimilisbíllinn bónaður?“ 26%
sögðu „Ársfjórðungslega,“ 24%
sögðu „Tvisvar á ári,“ 17% sögðu
„Aldrei,“ 16% sögðu „Árlega,“
14% sögðu „Mánaðarlega“ og
4% sögðu „Á ekki bíl.“
Í næstu viku er spurt:
Hvað leynast mörg sokkapör í
skúffunni þinni?
Kristján Jóhannes Pétursson hef
ur fylgst af áhuga með Evró
visjón frá unga aldri og býr að
gríðarlegri þekkingu um keppn
ina. Kiddi Jói eins og hann er
kallaður er í viðtali í blaðinu í
dag og er Vestlendingur vikunn
ar í þetta skiptið.
Spurning
vikunnar
Til minnis
Vestlendingur
vikunnar
Veðurhorfur
Erfiðlega hefur að undanförnu
gengið að manna lausar stöð-
ur heilsugæslulækna á starfssvæði
Heilbrigðisstofnunar Vesturlands,
meðal annars í Borgarnesi. Jóhanna
Fjóla Jóhannesdóttir forstjóri
HVE segir í samtali við Skessu-
horn að Þórir Bergmundsson
framkvæmdastjóri lækninga hafi
að undanförnu lagt mikla vinnu
í að manna lausar stöður, en það
hafi gengið erfiðlega að fá lækna í
afleysingar.
Íbúar á starfssvæði HVE í Borgar-
nesi og á Akranesi hafa undanfarið
kvartað yfir langri bið eftir lækna-
tíma. Nýverið var eins mánað-
ar bið í Borgarnesi eftir almenn-
um læknistíma og nokkrar vikur
á Akranesi. Jóhanna Fjóla bend-
ir hins vegar á að áfram sé lögð rík
áhersla á að sinna brýnum erindum
sem leitað er með til heilsugæslu-
stöðva samdægurs eða innan sólar-
hrings eftir bráðleika. „Til fróð-
leiks þá sýna tölur að á árinu 2021
fengu 50% viðtal við lækni inn-
an 24 klukkustunda og 67% fengu
samband í síma við lækni innan 24
klst. á heilsugæslustöðvum HVE.
Auk lækna er einnig hægt að kom-
ast að hjá hjúkrunarfræðingum,“
bendir Jóhanna Fjóla á.
Aðspurð um ástandið í Borgar-
nesi sérstaklega upplýsir Jóhanna
Fjóla að í vetur hafi verið tve-
ir fastir læknar við störf þar auk
þess sem ein staða hefur verið leyst
með læknum í afleysingum. „Ann-
ar læknirinn hefur nú sagt upp og
hættir 31. júlí. Því er aðeins einn
fastur læknir frá þeim tíma mið-
að við stöðu dagsins. Tvær auglýs-
ingar eru í gangi á Starfatorgi, önn-
ur fyrir sérfræðing í heimilislækn-
ingum og hin fyrir yfirlæknisstöð-
una. Umsóknarfrestur um báðar
stöðurnar rennur út 16. maí næst-
komandi.
Hún segir að mikið álag sé á
heilsugæslustöðvum á starfssvæð-
inu og víða um landið. Biðtími eft-
ir viðtali hjá lækni er því víðar en í
Borgarnesi langur m.a. á Akranesi
og á höfuðborgarsvæðinu. „Áfram
er lögð áhersla á að sinna brýn-
um erindum sem leitað er með til
heilsugæslustöðva samdægurs eða
innan sólarhrings eftir bráðleika,“
segir hún að endingu.
mm
Kanínur hafa komið af og til í Álf-
holtsskóg í Skilmannahreppi á síð-
ustu árum væntanlega vegna þess
að eigendur þeirra losuðu sig við
þær með því að skilja þær eftir í
skóginum og síðan vonað hið besta.
Þær hafa síðan horfið úr skóginum
vegna þess að þær hafa ekki kom-
ist af vegna þess að villt dýr, ref-
ur eða minkur, hafa orðið þeim að
aldurtila. Fyrir tveimur til þrem-
ur árum urðu umsjónarmenn Álf-
holtsskógar varir við nokkrar kan-
ínur sem héldu sig nálægt húsum á
svæðinu. Þeim fór að fjölga og sáust
kanínuungar á kreiki.
Að sögn Reynis Þorsteinssonar,
eins af umsjónarmönnum skógar-
ins, hafa þeir staðið í ströngu í vetur
Ráðist verður í mótvægisaðgerðir
til að draga úr áhrifum verðbólgu
á lífskjör viðkvæmustu hópa samfé-
lagsins. Tillaga þess efnis var sam-
þykkt á fundi ríkisstjórnarinnar á
föstudaginn. Horft verður til sér-
tækra aðgerða með hækkun bóta
almannatrygginga, sérstökum
barnabótaauka til þeirra sem eiga
rétt á tekjutengdum barnabótum
og hækkun húsnæðisbóta. Þannig
hækka bætur almannatrygginga
um 3% frá 1. júní, húsnæðisbæt-
ur hækka um 10% frá 1. júní og
greiddur verður sérstakur barna-
bótaauki til þeirra sem fá tekju-
tengdar barnabætur að fjárhæð
20.000 kr. með hverju barni. Frum-
varp þess efnis verður lagt fram síð-
ar í þessum mánuði.
Verðbólga mældist 7,2% á árs-
grundvelli í apríl sl. og hefur Seðla-
bankinn brugðist við með hækkun
vaxta. „Þótt fjárhagsstaða heimila
sé almennt sterk og kaupmáttur sé
enn að aukast eru heimili í ólíkri
stöðu til að takast á við vaxta- og
verðlagshækkanir. Þess vegna er
sérstaklega horft til fyrrnefndra
hópa í mótvægisaðgerðunum eft-
ir ítarlega greiningu fjármála- og
efnahagsráðuneytisins,“ segir í til-
kynningu frá ríkisstjórninni.
Fram kom í viðtölum við forystu-
fólk ríkisstjórnarinnar um helgina
að ekki verður að þessu sinni gripið
til sértækra lausna til að mæta vax-
andi vanda skuldsettra heimila, t.d.
fyrstu kaupenda íbúðarhúsnæðis
sem skulda hátt hlutfall kaupverðs
eigna sinna.
mm
Kanínur á ferli í Álfholtsskógi og skemma tré
Hér má sjá tré í skóginum sem er illa farið eftir kanínurnar. Ljósm. rþ
í Álfholtsskógi. „Í desember tókum
við eftir því að eplatré á ákveðn-
um stað höfðu að því er virtist ver-
ið nöguð og sá verulega á þeim.
Við gerðum einfaldar ráðstafan-
ir og töldum málið leyst. Það var
síðan í febrúar eftir að snjóað hafði
verulega og 30 til 40 sentimetra lag
af snjó lagðist yfir svæðið að við
sáum merki um frekari skemmd-
ir. Alls höfum við nú séð yfir 40
tré sem orðið hafa fyrir alvarlegum
skemmdum sem er líklegt að leiði
trén til dauða er fram líða stundir.
Trén sem kanínurnar sækjast í eru
einkum það sem við köllum spari-
tré í skóginum, eplatré, reynitré,
gullregn, blæösp, alaskaepli og eru
tré sem hafa verið keypt sérstaklega
til að skreyta skóginn. Við höfum
ekki tekið eftir neinum skemmdum
fyrr en í vetur. Eina lausnin sem við
töldum skila árangri var að losna
við þær alfarið úr skóginum með
aðstoð minkabana. Þessi aðgerð
hefur skilað árangri, þannig að 15
liggja í valnum en talið að tvær til
þrjár séu enn á kreiki,“ segir Reyn-
ir.
Reynir segir að lokum að
umsjónarmenn skógarins mælist
eindregið til þessi að fólk finni aðr-
ar leiðir til að losa sig við kanín-
ur en að skilja þær eftir í skógin-
um. Þær eiga alls ekki heima þar og
verður lógað ef til þeirra sést. Þeir
gestir sem sjá kanínur í skóginum
eru beðnir um að láta Reyni vita í
síma 899-7454.
vaks
Sértækar aðgerðir fyrir
viðkvæmustu hópana
Bið eftir læknatímum að lengjast