Skessuhorn - 11.05.2022, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2022 37
Pennagrein
Pennagrein
Pennagrein
Pennagrein
Það er hverju sveitarfélagi nauðsyn-
legt að stækka og vaxa eigi það
að halda velli og því mikilvægt að
sveitarstjórn Borgarbyggðar hugi
vel að þeim málum. Til þess að
fólk og fjölskyldur vilji flytja á nýj-
an stað þarf ýmislegt að ganga upp.
Oftast horfir fólk fyrst til skólamála
og gæða þeirra því börnin okk-
ar eru jú framtíðin. Börnin okk-
ar munu taka við okkar störfum og
skapa ný, samfélaginu til heilla og
því er mikilvægt að hlúa vel að mál-
efnum barna. Borgarbyggð er eitt
fárra sveitarfélaga á landinu sem
státar af öllum skólastigum; leik-
skóla, grunnskóla, menntaskóla
og háskóla. Hér er lögð áhersla á
menntun barna, unglinga og full-
orðinna með sterkum og fram-
sæknum skólum. En við getum
ekki látið þar við sitja. Við verðum
að halda áfram í þróun skólastarfs
og vera framsækin og vel upplýst.
Við í Samfylkingunni/Viðreisn
leggjum mikla áherslu á fræðslu-
og tómstundamál og er það stefna
okkar að gera leikskóla gjaldfrjálsa í
raunhæfum skrefum, með það fyrir
augum að jafna aðstöðumun barna
og fjölskyldna.
Við viljum auka áherslu á upplýs-
ingatækni, upplýsingalæsi, ábyrga
netnotkun og stafræna borgaravit-
und í grunnskólunum. Einnig
þarf að efla stoðþjónustu í leik-
og grunnskólum og auka tækni-
væðingu grunnskólanna. Stöðugt
er verið að tala um að verið sé að
undirbúa nemendur undir störf
framtíðarinnar sem við vitum ekki
hver verða, því ætti ein tölva/tæki
á nemanda í unglingadeild að vera
eðlileg krafa.
En skólamálin eru ekki það eina
sem fjölskyldur horfa til þegar hug-
að er að flutningi í nýtt sveitar-
félag. Atvinnu- og húsnæðismál
þurfa að vera í góðum gír og þar
þarf Borgarbyggð að spýta í lóf-
ana. Hér þurfa að vera störf fyr-
ir íbúa, nýja jafnt sem þá sem fyrir
eru. Fjölbreytt atvinnutækifæri svo
allir finni áhuga sínum, menntun
og metnaði góðan farveg. Við þurf-
um að efla atvinnusköpun í sveitar-
félaginu, laða til okkar fyrirtæki,
stór og smá og vera þá tilbúin með
húsnæði og/eða lóðir til byggingar
atvinnuhúsnæðis. Einnig þarf að
hlúa vel að þeirri atvinnusköp-
un sem fyrir er í héraðinu og má í
því sambandi taka sem dæmi land-
búnað, garðyrkju og ferðaþjónustu
og mikilvægt er að standa vörð um
hagsmuni þeirra. Svo þarf húsnæði
og lóðir til húsbygginga að vera til
staðar og því viljum við að lokið
verði við gerð deiliskipulags fyrir
öll svæði í Borgarnesi á næstu fjór-
um árum. Að auki þarf að skoða
möguleika á uppbyggingu annarra
þéttbýliskjarna í sveitarfélaginu.
Samfylkingin/Viðreisn ætlar einnig
að styðja við frumkvöðlastarf og
nýsköpun og móta framtíðar-
sýn varðandi íbúafjölgun, fjölg-
un atvinnutækifæra, þjónustu við
ferðamenn og ánægju íbúa.
Heilsa og vellíðan íbúa og auk-
in lífsgæði skiptir að sjálfsögðu
höfuðmáli þegar við veljum okk-
ur sveitarfélag til að búa í. Borg-
arbyggð er heilsueflandi samfélag
og við í Samfylkingunni/Viðreisn
horfum til þess að auka sjálfstæði og
vitundarvakningu íbúa í lýðheilsu-
málum, útvíkka frístundastyrkinn
svo börn og fjölskyldur geti notað
hann í hvaða tómstundir sem er,
hvar sem er á landinu og styðja vel
við ungmennastarf. Bygging nýs
íþróttahúss í Borgarnesi í samvinnu
við íþróttahreyfinguna og íbúa er
einnig stór þáttur í heilsueflingu
og aukinni vellíðan íbúa. Að því
sögðu ætlum við í Samfylkingunni/
Viðreisn að þrýsta á ríkið að taka
málefni heilsugæslunnar til gagn-
gerrar endurskoðunar. Hér þarf að
fjölga fastráðnum læknum og skapa
heilbrigðisstarfsfólki ákjósanlegan
vinnustað til lengri tíma. Mikilvægt
er að haft sé samráð við þjónustu-
þega um mótun stefnu í þeirra mál-
um og efla samstarf Borgarbyggð-
ar og HVE með velferð íbúa að
leiðarljósi.
Stolt hvers sveitarfélags tengist
oftar en ekki menningu. Menn-
ing hefur bæði félagslegan og efna-
hagslegan ávinning og skapandi
greinar verða sífellt meira áberandi
í atvinnulífinu og við það bætist að
eftirspurn eftir hvers konar list er
stöðugt að aukast. Mikilvægt er að
styðja vel við þá menningarstarf-
semi sem fyrir er hvar sem er í hér-
aðinu og auka sýnileika hennar, sem
og að gefa nýju listafólki tækifæri á
að sýna og sinna list sinni hér. Sam-
fylkingin/Viðreisn vill að starfsemi
Safnahússins sé efld og bókasafnið
sé gert að vinsælum íverustað barna
og fullorðinna. Að stutt sé við sam-
vinnu milli þeirra aðila og félaga-
samtaka sem starfa í listum og
menningu í sveitafélaginu og kanna
möguleikann á stofnun varðveislu-
seturs fyrir safnmuni í samstarfi við
nágrannasveitarfélög.
Þetta og margt fleira ætlum við í
Samfylkingunni/Viðreisn að vinna
að fáum við kjörgengi þann 14.
maí næstkomandi. Við ætlum að
vinna að hag Borgarbyggðar í öll-
um skilningi þess orðs, við ætlum
að vinna fyrst og fremst fyrir Borg-
arbyggð. Settu X við A!
Anna Helga Sigfúsdóttir
Höf. er leikskólakennari og skipar
4. sæti sameiginlegs framboðs Sam-
fylkingarinnar og Viðreisnar í Borg-
arbyggð.
Borgarbyggð -
samkeppnishæft
sveitarfélag
Á Akranesi er hlutfall eldri borgara
hátt og er fyrirséð að þessi flotti hóp-
ur á eftir að stækka talsvert á kom-
andi árum. Með hækkandi aldri má
alveg búast við að færni fari minnk-
andi, þó hraðinn á því ferli sé mjög
einstaklingsbundinn og flestir vilja
lifa sjálfstæðu lífi á sínu heim-
ili. Margir geta verið lengi og jafn-
vel ævina á enda heima. Þá er hægt
að nýta stuðning félagsþjónustu og
heimahjúkrunar ef þörf er á því. Það
er þó ekki úrræði sem hentar öll-
um. Einhverjir einstaklingar þurfa að
komast á hjúkrunarheimili. Biðlist-
inn er langur í varanlega vistun á
Höfða og margir einstaklingar í mik-
illi þörf. Á Höfða eru 74 rými og tvö
hvíldarpláss. Um 40 einstaklingar eru
á bið eftir varanlegri vistun og milli
50-60 einstaklingar eiga samþykki
fyrir allt að 6 vikum á ári í hvíldar-
pláss. Það að komast í hvíldarinnlögn
er úrræði sem styður vel við einstak-
linga og fjölskyldur þeirra og verður
oft til þess að fólk fær lengri tíma á
heimili sínu. En svo er það hópurinn
sem er á milli. Einstaklingarnir sem
þurfa talsverða aðstoð, stuðning og
félagsskap en þó ekki svo mikinn að
þörf sé á hjúkrunarrými.
En hvað getum við gert
og hvað verður að gera?
Ég tel mikilvægt að Akranes geri sér
framtíðarstefnu í öldrunarmálum.
Mikilvægt er að á Akranesi verði far-
ið í byggingu þjónustuíbúða. Búset-
uform í þeirri mynd eykur lífsgæði
margra einstaklinga. Þjónustuíbúð-
ir þar sem hægt er að fá aðstoð við
athafnir daglegs lífs, félagsskap og
öryggi. Efla þarf starf félagsþjón-
ustu, ráða inn fleiri fagaðila og byrja
að nýju að sinna þessari þjónustu alla
daga ársins.
Við á Akranesi erum heilsueflandi
samfélag og tel ég mikilvægt að koma
af stað verkefni sem stuðlar að auk-
inni líkamlegri færni og styrk. Nokk-
ur sveitarfélög hafa innleitt Janus
heilsueflingu með góðum árangri.
Það verkefni snýst um að koma á
fót mark-
vissri heilsu-
eflingu með
lýðheilsutengdu inngripi og má líta
á það sem forvarnarverkefni. Ávinn-
ingurinn af slíku verkefni hefur ver-
ið sá að einstaklingar geta tekist á við
athafnir daglegs lífs lengur en ella og
þannig getað búið lengur í sjálfstæðri
búsetu. Þá eru lífsgæði meiri og ein-
hverjir hafa haft tækifæri til að vera
lengur á vinnumarkaði.
Fjöldi einstaklinga sem greinist
með heilabilun hefur aukist mikið og
aldur við greiningu hefur farið lækk-
andi. Þetta er hópur sem þarf sértæk-
ari úrræði og mikilvægt er að styðja við
þessa einstaklinga og fjölskyldur þeirra.
Ég óska eftir ykkar stuðning í
komandi sveitarstjórnarkosningum.
Gerum Akranes að framúrskarandi
bæ fyrir alla að búa í, unga sem aldna.
XD- fyrir Akranes
Ragnheiður Helgadóttir
Höf. er hjúkrunarfræðingur og skip-
ar 6. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á
Akranesi.
Flestir vilja lifa lengi, en
enginn vill verða gamall
Velferðarmál er málaflokkur sem í eðli
sínu snertir alla íbúa sveitarfélaga. Mál-
efni fatlaðra eru þar á meðal en það var
árið 2011 sem sá málaflokkur fluttist
frá ríki til sveitarfélaga. Frá fyrsta degi
hafa Akurnesingar sinnt þessum mála-
flokki af fremsta megni og í samræmi
við skyldur okkar og gott betur. Besti
mælikvarðinn á þá góðu þjónustu er
allt það góða fólk sem flutt hefur til
Akraness til þess að njóta okkar góðu
þjónustu. Vissulega er það krefjandi
verkefni að mæta öllum þeim ólíku
þörfum sem þarf að sinna en það hef-
ur okkur tekist. Ekki síst vegna okkar
góða og hæfa starfsfólks.
Við yfirfærslu málaflokksins fylgdu
ákveðnar tekjur frá ríkinu til sveitar-
félaganna. Reynslan síðan yfirfærslan
átti sér stað hefur hins vegar leitt í ljós
að tekjurnar hafa ekki verið í takti við
þau verkefni sem færð voru yfir og þau
verkefni og kröfur sem hafa bæst við
síðar. Sú umræða má hins vegar aldrei
beinast að þeim sem þurfa á þjónust-
unni að halda. Þetta er verkefni sem
þarf að leysa og það gera Skagamenn.
Mörg verkefni bíða okkar og skal þar
fyrst nefna uppbyggingu Samfélags-
miðstöðvar og frekari uppbyggingu
íbúða fyrir fatlað fólk.
Um þau skref hefur náðst góð sam-
staða í bæjarstjórn. Það má hins vegar
alltaf gera betur og í þessum málaflokki
megum við ekki
sofna á verðin-
um. Okkur getur greint á um leiðir en
markmiðið verður alltaf að velja farsæl-
ustu leiðina. Málefni fatlaðs fólks mega
aldrei verða pólitískt bitbein.
Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjót-
andi að hafa sem fulltrúi í Velferðar- og
mannréttindaráði unnið að málefnum
fatlaðs fólks og það mun ég gera áfram
fái ég til þess stuðning.
Þess vegna óska ég þess kjósandi
góður að þú setjir X við D – fyrir Akra-
nes.
Einar Brandsson
Höf. skipar annað sætið á lista Sjálf-
stæðismanna á Akranesi.
Velferðarmálin verða
ætíð í öndvegi
Síðustu ár hefur uppbygging verið
mikil í Hvalfjarðarsveit og samfélag-
ið okkar stækkað ört. Mikil eftirspurn
er eftir lóðum til nýbyggingar í þétt-
býlisstöðum sveitarfélagsins og ásamt
því höfum við verið að sjá aukningu
í nýbyggingum í dreifbýlinu. Sé rétt
haldið á spilunum getur þessi þróun
svo sannarlega haldið áfram og gert
það að verkum að sveitarfélagið okk-
ar stækki og dafni vel á næstu kom-
andi árum. Íbúafjölgun hefur verið
þónokkur síðustu ár en þó má greina
það að stór hluti þeirra sem velja að
setjast hér að er fólk sem er að búa sig
undir að setjast í helgan stein, fólk sem
velur rólegt umhverfi í nálægð við þá
fallegu náttúru sem Hvalfjörður hef-
ur að bjóða. Við sjáum þetta vel í því
að fjölgun í leik- og grunnskólanum
hefur ekki verið í samræmi við fjölgun
íbúa síðustu ár, þessu þarf svo sannar-
lega að breyta.
Fyrir eðlilega íbúaþróun vantar
mikið upp á að fólk á aldrinum 20 -
35 ára hafi möguleika á því að setjist
að í Hvalfjarðarsveit. Hingað til hef-
ur það verið nánast ómögulegt fyrir
fólk á þessum aldri að finna sér hús-
næði, enda lítið annað í boði en að
kaupa sér lóð og byggja einbýlishús. Í
flestum tilfellum hefur ungt fólk sem
er að stofna fjölskyldu ekki burði eða
getu til að fara út í slíka framkvæmd.
Hvalfjarðarsveit þarf að gera betur
í lóðaframboði, við þurfum að geta
boðið ólíka kosti til nýbygginga bæði
minni og stærri lóðir, fyrir minni og
stærri íbúðir og að þannig skapist frek-
ari möguleikar fyrir fjölbreytni íbúa í
þéttbýliskjörnunum okkar.
Getur verið að ástæða þess að ungt
fólk hverfi frá því að velja Hvalfjarðar-
sveit sem góðan búsetukost sé sú að
fjarlægð frá þéttbýli að grunnskóla er
mikil?
Grunnskólinn okkar og sú þjónusta
sem byggist gjarnan upp í kringum
skólasamfélag svo sem að íþróttahús er
ekki til staðar í Melahverfi, umræðan
um að skólinn okkar sé ekki á réttum
stað innan sveitarfélagsins, hefur auk-
ist síðustu ár. Því er ég sammála.
Mín skoðun er sú að það eigi að
vinna að því á næstu 10 - 15 árum að
koma allri grunnþjónustu í Melahverf-
ið. Byrja á að byggja nýjan leikskóla,
í framhaldinu verði byggt íþróttahús,
svo verði byggður skóli og að lokum
bætt við sundlaug. Ákjósanlegt væri að
þetta yrði allt í
frekar einföld-
um en hent-
ugum eining-
um sem tengd-
ust saman. Með
þessu myndast stór og sterk eining og
mikil samlegðaráhrif væru til staðar, til
að mynda eitt mötuneyti.
Þetta eru stórar og miklar hug-
myndir en ég er sannfærð um að Hval-
fjarðarsveit hafi alla burði til að stefna
að þessu með skynsamlegum hætti á
næstu árum.
Ég vil horfa til framtíðar, hætta að
horfa í baksýnisspegilinn og tala sífellt
um hvað hefði mátt betur fara.
Við íbúar Hvalfjarðarsveitar þurf-
um að horfa fram á veginn, hugsa um
hvernig samfélag við viljum að byggist
upp fyrir börnin, barnabörnin okkar
og komandi kynslóðir. Ég er tilbúin að
vinna þessum málum framgang ásamt
öðrum þeim málum sem þarf að huga
að til að gera gott samfélag enn betra.
Saman getum við meira.
Ég óska eftir stuðning þínum þann
14. maí.
Elín Ósk Gunnarsdóttir, Belgsholti
í Hvalfjarðarveit.
Framtíðin er björt!