Skessuhorn


Skessuhorn - 11.05.2022, Blaðsíða 44

Skessuhorn - 11.05.2022, Blaðsíða 44
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 202244 Vörur og þjónusta H P Pípulagnir ehf. Alhliða pípulagnaþjónusta Hilmir 820-3722 Páll 699-4067 hppipulagnir@gmail.com S K E S S U H O R N 2 01 8 Fyrir alla vigtun Húsarafmagn Töflusmíði Iðnaðarrafmagn Bátarafmagn Bílarafmagn RAFMAGN vogir@vogir.is Sími 433-2202 VOGIR Bílavogir Kranavogir Skeifuvogir Pallvogir Aflestrarhausar Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Dreifi bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is - Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt. Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390. Ökuskóli allra landsmanna Klifur - tónlist - námskeið - afmæli - hópafjör Fjölskyldutímar á sunnudögum 11-14 Afþreyingarsetur á Akranesi smidjuloftid.is GJ málun ehf málningarþjónusta Akravellir 12 - Hvalfj arðarsveit sími 896 2356 301 Akranes gardjons@visir.is Garðar Jónsson málarameistari 1990-2020 30 ár Pennagrein Mikilvægi þriggja fasa rafmagns Borgarbyggð er dreifbýlt samfélag með þéttbýliskjarna á nokkrum stöðum og eru fyrirtæki í sveitar- félaginu mörg og mismunandi. Fyrir atvinnurekstur í sveitar- félaginu, svo sem landbúnað, ferðaþjónustu og hinn ýmsa iðnað er þriggja fasa rafmagn gríðar- lega nauðsynlegt svo uppbygging geti átt sér stað. Þriggja fasa raf- magn er einn af grunnþáttum þess að veita meira afhendingar- öryggi. Þrífösun rafmagns hefur verið í uppbyggingu úti á Mýr- um undanfarin ár og er það vel fyrir atvinnurekstur á svæðinu en betur má ef duga skal! Ennþá er á þónokkrum stöðum í sveitarfé- laginu aðeins í boði einfasa raf- magn. Þar er atvinnurekstur sem þyrfti á þriggja fasa rafmagni að halda og þurfa aðilar að taka á sig aukinn kostnað vegna þess. Það er hlutverk þeirra sem í sveitarstjórn komast að þrýsta á ríkisvaldið að þessi vinna verði kláruð alls staðar í sveitarfélaginu svo atvinnuupp- bygging hér geti haldið áfram að vaxa og dafna. Uppbygging vega og fjarskiptasamband eru líka lyk- ilstoðir þess að uppbygging geti átt sér stað og munum við í Sam- fylkingunni og Viðreisn í Borg- arbyggð beita okkur fyrir því að þessir innviðir verði bættir á næsta kjörtímabili. Ný byggðalína Landsnet hefur hafið undirbúning að mati á umhverfisáhrifum Holt- vörðuheiðarlínu 1 frá tengivirkinu á Klafastöðum í Hvalfirði að nýju tengivirki á Holtavörðuheiði. Til- gangur þeirrar framkvæmdar er að tryggja öruggara afhendingar- öryggi og er hluti af uppfærslu á núverandi byggðalínu. Áætlað er að þessar framkvæmdir hefjist í lok árs 2023. Í gangi er valkostagreining lagnaleiða þessarar línu og snert- ir það íbúa Borgarbyggðar með beinum hætti. Sá valkostur sem Landsnet telur vænlegastan gerir ráð fyrir að farið sé nokkurn veg- inn meðfram núverandi byggða- línu. Þá er gert ráð fyrir að eldri línan haldi sér og yrði það mikið lýti á sveitarfélaginu. Nýja byggða- línan er mun stærri en núverandi lína og allt öðruvísi uppbyggð, svo veruleg sjónmengun yrði af slíkri uppbyggingu. Ef af þessum áform- um verður mun það hafa neikvæð áhrif á meðal annars ferðaþjónustu í sveitarfélaginu, svo ekki sé talað um óþægindin sem af þessu hljótast fyrir íbúa. Fallegt umhverfi er eitt af lykilþáttum í ferðaþjónustu hér- aðsins og möstur sem þessi eru ekki til þess fallin að bæta ásýnd þess. Annar valkostur við upp- byggingu væri að fara með nýja línu um hálendið norður yfir Kjöl að Blöndu. Sú leið væri styttri og myndi ekki hafa sjónræn áhrif fyr- ir íbúa í Borgarbyggð. Landsnet leggur þessa tillögu ekki fram sem valkost þar sem línan myndi þá liggja fjarri svæðisflutningskerfi á Vesturlandi. Línan væri líka inni á miðhálendi og myndi það ekki samræmast stefnu stjórnvalda þar sem segir að ekki skuli leggja nýj- ar raflínur á hálendinu. Er betra að hafa þessi stóru möstur í byggð? Ef farið verður í lagningu þessar- ar nýju byggðalínu um Borgarfjörð er það lágmarkskrafa að eldri línan verði hengd utan á möstur þeirrar nýju, sett í jörð eða fjarlægð! Stöðugt framboð lóða forsenda uppbyggingar Grunnforsenda þess að atvinnu- uppbygging geti átt sér stað, með tilheyrandi fjölgun íbúa, er að íbúðarhúsnæði sé til staðar. Sam- fylkingin og Viðreisn í Borgar- byggð vilja að hugsað sé lengra fram í tímann. Að stöðugu fram- boði lóða sé viðhaldið svo ekki komi upp sú staða sem er núna, að nán- ast engar lóðir séu til úthlutunar í sveitarfélaginu. Spennandi verk- efni eru á hugmyndastigi um byggð handan Borgarvogs en ljóst er að nokkur ár eru þar til hægt verður að hefjast handa við uppbyggingu þar. Fram að þeim tíma þarf að líta til þéttingarmöguleika í Borgarnesi, sem og skoða kaup á því landi í Bjargslandi sem ekki er nú þegar í eigu sveitarfélagsins. Hefjast þarf handa strax í samstarfi við Land- búnaðarháskóla Íslands að skoða hvar næstu byggingarmöguleik- ar eru fyrir hendi á Hvanneyri. Spennandi uppbyggingarverkefni eru líka í farvatninu lengra í upp- sveitunum, svo sem við Reykholt sem þarf að fylgja vel eftir. Viðhöldum öflugri grunnþjónustu Grunnþjónusta er líka forsenda þess að fólk og fyrirtæki vilji flytjast í Borgarbyggð. Uppbygging hef- ur átt sér stað við Grunnskólann í Borgarnesi á liðnum árum sem og nýbygging leikskólans Hnoðra- bóls. Byggingarnefnd fyrir við- byggingu Grunnskóla Borgarfjarð- ar að Kleppjárnsreykjum hefur ver- ið sett af stað og mun sú nefnd í samvinnu við verkefnastjóra láta hanna bygginguna og bjóða verk- ið út. Mikilvægt er að þessu verk- efni verði hraðað eins og kostur er en jafnframt sé þetta unnið faglega. Við hönnun hússins er nauðsyn- legt að horfa fram á veginn og gera strax ráð fyrir stækkunar möguleik- um. Þegar sú uppbygging sem í farvatninu er í uppsveitunum verð- ur að veruleika er útséð að það þarf að stækka grunnskólann á Klepp- járnsreykjum enn frekar. Einnig er ljóst að huga þarf að stækkun eða byggingu á nýjum leikskóla í Borg- arnesi á næstu árum. Allir þessir þættir sem nefnd- ir hafa verið hér að ofan tengjast hver öðrum og haldast í hendur. Til þess að íbúum og fyrirtækjum í Borgarbyggð fjölgi og við höldum í núverandi íbúa þarf að hugsa til allra þeirra þátta sem nefndir voru hér að ofan. Við í Samfylkingunni og Viðreisn erum tilbúin að hugsa stórt og móta þá framtíðarsýn sem þarf að vera til staðar svo að eðli- legur vöxtur geti átt sér stað. Setjum X við A á kjördag fyrir skýr markmið og áreiðanleika! Logi Sigurðsson Höf. er búfræðingur og skipar 2. sæti á A-lista sameiginlegs framboðs Samfylkingarinnar og Viðreisnar í Borgarbyggð. Borgarbyggð þarf öflugt fólk með skýra framtíðarsýn

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.