Skessuhorn - 11.05.2022, Side 44
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 202244
Vörur og þjónusta
H P Pípulagnir ehf.
Alhliða pípulagnaþjónusta
Hilmir 820-3722
Páll 699-4067
hppipulagnir@gmail.com
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Fyrir alla vigtun
Húsarafmagn
Töflusmíði
Iðnaðarrafmagn
Bátarafmagn
Bílarafmagn
RAFMAGN
vogir@vogir.is Sími 433-2202
VOGIR
Bílavogir
Kranavogir
Skeifuvogir
Pallvogir
Aflestrarhausar
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Dreifi bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
- Meirapróf - Fjarnám - Aukin ökuréttindi
Verkleg kennsla/próf; Akranes - Reykjavík,- valkvætt.
Upplýsingar á aktu.is og í síma 892-1390.
Ökuskóli allra landsmanna
Klifur - tónlist - námskeið - afmæli - hópafjör
Fjölskyldutímar á sunnudögum 11-14
Afþreyingarsetur á Akranesi
smidjuloftid.is
GJ málun ehf
málningarþjónusta
Akravellir 12 - Hvalfj arðarsveit sími 896 2356
301 Akranes gardjons@visir.is
Garðar Jónsson
málarameistari
1990-2020 30 ár
Pennagrein
Mikilvægi þriggja
fasa rafmagns
Borgarbyggð er dreifbýlt samfélag
með þéttbýliskjarna á nokkrum
stöðum og eru fyrirtæki í sveitar-
félaginu mörg og mismunandi.
Fyrir atvinnurekstur í sveitar-
félaginu, svo sem landbúnað,
ferðaþjónustu og hinn ýmsa iðnað
er þriggja fasa rafmagn gríðar-
lega nauðsynlegt svo uppbygging
geti átt sér stað. Þriggja fasa raf-
magn er einn af grunnþáttum
þess að veita meira afhendingar-
öryggi. Þrífösun rafmagns hefur
verið í uppbyggingu úti á Mýr-
um undanfarin ár og er það vel
fyrir atvinnurekstur á svæðinu en
betur má ef duga skal! Ennþá er
á þónokkrum stöðum í sveitarfé-
laginu aðeins í boði einfasa raf-
magn. Þar er atvinnurekstur sem
þyrfti á þriggja fasa rafmagni að
halda og þurfa aðilar að taka á sig
aukinn kostnað vegna þess. Það er
hlutverk þeirra sem í sveitarstjórn
komast að þrýsta á ríkisvaldið að
þessi vinna verði kláruð alls staðar
í sveitarfélaginu svo atvinnuupp-
bygging hér geti haldið áfram að
vaxa og dafna. Uppbygging vega
og fjarskiptasamband eru líka lyk-
ilstoðir þess að uppbygging geti
átt sér stað og munum við í Sam-
fylkingunni og Viðreisn í Borg-
arbyggð beita okkur fyrir því
að þessir innviðir verði bættir á
næsta kjörtímabili.
Ný byggðalína
Landsnet hefur hafið undirbúning
að mati á umhverfisáhrifum Holt-
vörðuheiðarlínu 1 frá tengivirkinu
á Klafastöðum í Hvalfirði að nýju
tengivirki á Holtavörðuheiði. Til-
gangur þeirrar framkvæmdar er
að tryggja öruggara afhendingar-
öryggi og er hluti af uppfærslu á
núverandi byggðalínu. Áætlað er að
þessar framkvæmdir hefjist í lok árs
2023. Í gangi er valkostagreining
lagnaleiða þessarar línu og snert-
ir það íbúa Borgarbyggðar með
beinum hætti. Sá valkostur sem
Landsnet telur vænlegastan gerir
ráð fyrir að farið sé nokkurn veg-
inn meðfram núverandi byggða-
línu. Þá er gert ráð fyrir að eldri
línan haldi sér og yrði það mikið
lýti á sveitarfélaginu. Nýja byggða-
línan er mun stærri en núverandi
lína og allt öðruvísi uppbyggð, svo
veruleg sjónmengun yrði af slíkri
uppbyggingu. Ef af þessum áform-
um verður mun það hafa neikvæð
áhrif á meðal annars ferðaþjónustu
í sveitarfélaginu, svo ekki sé talað
um óþægindin sem af þessu hljótast
fyrir íbúa. Fallegt umhverfi er eitt
af lykilþáttum í ferðaþjónustu hér-
aðsins og möstur sem þessi eru ekki
til þess fallin að bæta ásýnd þess.
Annar valkostur við upp-
byggingu væri að fara með nýja
línu um hálendið norður yfir Kjöl
að Blöndu. Sú leið væri styttri og
myndi ekki hafa sjónræn áhrif fyr-
ir íbúa í Borgarbyggð. Landsnet
leggur þessa tillögu ekki fram sem
valkost þar sem línan myndi þá
liggja fjarri svæðisflutningskerfi á
Vesturlandi. Línan væri líka inni
á miðhálendi og myndi það ekki
samræmast stefnu stjórnvalda þar
sem segir að ekki skuli leggja nýj-
ar raflínur á hálendinu. Er betra að
hafa þessi stóru möstur í byggð?
Ef farið verður í lagningu þessar-
ar nýju byggðalínu um Borgarfjörð
er það lágmarkskrafa að eldri línan
verði hengd utan á möstur þeirrar
nýju, sett í jörð eða fjarlægð!
Stöðugt framboð lóða
forsenda uppbyggingar
Grunnforsenda þess að atvinnu-
uppbygging geti átt sér stað, með
tilheyrandi fjölgun íbúa, er að
íbúðarhúsnæði sé til staðar. Sam-
fylkingin og Viðreisn í Borgar-
byggð vilja að hugsað sé lengra
fram í tímann. Að stöðugu fram-
boði lóða sé viðhaldið svo ekki komi
upp sú staða sem er núna, að nán-
ast engar lóðir séu til úthlutunar í
sveitarfélaginu. Spennandi verk-
efni eru á hugmyndastigi um byggð
handan Borgarvogs en ljóst er að
nokkur ár eru þar til hægt verður að
hefjast handa við uppbyggingu þar.
Fram að þeim tíma þarf að líta til
þéttingarmöguleika í Borgarnesi,
sem og skoða kaup á því landi í
Bjargslandi sem ekki er nú þegar í
eigu sveitarfélagsins. Hefjast þarf
handa strax í samstarfi við Land-
búnaðarháskóla Íslands að skoða
hvar næstu byggingarmöguleik-
ar eru fyrir hendi á Hvanneyri.
Spennandi uppbyggingarverkefni
eru líka í farvatninu lengra í upp-
sveitunum, svo sem við Reykholt
sem þarf að fylgja vel eftir.
Viðhöldum öflugri
grunnþjónustu
Grunnþjónusta er líka forsenda
þess að fólk og fyrirtæki vilji flytjast
í Borgarbyggð. Uppbygging hef-
ur átt sér stað við Grunnskólann í
Borgarnesi á liðnum árum sem og
nýbygging leikskólans Hnoðra-
bóls. Byggingarnefnd fyrir við-
byggingu Grunnskóla Borgarfjarð-
ar að Kleppjárnsreykjum hefur ver-
ið sett af stað og mun sú nefnd í
samvinnu við verkefnastjóra láta
hanna bygginguna og bjóða verk-
ið út. Mikilvægt er að þessu verk-
efni verði hraðað eins og kostur er
en jafnframt sé þetta unnið faglega.
Við hönnun hússins er nauðsyn-
legt að horfa fram á veginn og gera
strax ráð fyrir stækkunar möguleik-
um. Þegar sú uppbygging sem í
farvatninu er í uppsveitunum verð-
ur að veruleika er útséð að það þarf
að stækka grunnskólann á Klepp-
járnsreykjum enn frekar. Einnig er
ljóst að huga þarf að stækkun eða
byggingu á nýjum leikskóla í Borg-
arnesi á næstu árum.
Allir þessir þættir sem nefnd-
ir hafa verið hér að ofan tengjast
hver öðrum og haldast í hendur.
Til þess að íbúum og fyrirtækjum
í Borgarbyggð fjölgi og við höldum
í núverandi íbúa þarf að hugsa til
allra þeirra þátta sem nefndir voru
hér að ofan. Við í Samfylkingunni
og Viðreisn erum tilbúin að hugsa
stórt og móta þá framtíðarsýn sem
þarf að vera til staðar svo að eðli-
legur vöxtur geti átt sér stað.
Setjum X við A á kjördag fyrir
skýr markmið og áreiðanleika!
Logi Sigurðsson
Höf. er búfræðingur og skipar 2.
sæti á A-lista sameiginlegs framboðs
Samfylkingarinnar og Viðreisnar í
Borgarbyggð.
Borgarbyggð þarf öflugt fólk
með skýra framtíðarsýn