Skessuhorn


Skessuhorn - 11.05.2022, Blaðsíða 27

Skessuhorn - 11.05.2022, Blaðsíða 27
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2022 27 S K E S S U H O R N 2 02 2 Helstu verkefni og ábyrgðarsvið: • Aðalbókari ber ábyrgð á bókhaldi sveitarfélagsins, stofnana og fyrirtækja sveitarfélagsins. Eftirfarandi heyrir m.a. undir verkefna- og ábyrgðarsvið aðalbókara Hvalfjarðarsveitar: • Yfirumsjón með öllu bókhaldi sveitarfélagsins og undirstofnunum þess, afstemmingum og annarri bókhaldsvinnu. Ber ábyrgð á að skipulag bókhalds og vinnubrögð séu í samræmi við lög og viðurkenndar reikningsskilareglur þar um • Yfirumsjón með innheimtumálum • Yfirumsjón með skráningu reikninga og samþykktum þeirra • Umsjón með allri eignaskráningu sveitarfélagsins og uppfærslu hennar • Yfirumsjón með virðisaukaskattsmálum • Ýmis uppgjörs- og greiningarvinna í samráði við sveitarstjóra • Gerð rekstraryfirlita og skýrslugerð • Umsjón með bókhaldslykli sveitarfélagsins • Samskipti við endurskoðendur vegna ársreiknings sveitarfélagsins og stofnana þess • Þátttaka í áætlanagerð og innra eftirliti • Umsjón með öllu bókhaldi, afstemmingum og vinnu við uppgjör fyrir Vatnsveitufélag Hvalfjarðarsveitar sf. og Heilbrigðiseftirlit Vesturlands Aðalbókari ber ábyrgð á meðferð og varðveislu gagna, úrvinnslu og upplýsingagjöf, stefnumótun, þróun verklags og þjónustugæða. Almennt stjórnunarsvið: Aðalbókari starfar í samræmi við lög og reglugerðir sem gilda um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga, eftir lögum er varða opinbera þjónustu og stjórnsýslu, samkvæmt markmiðum sveitarstjórnar og í samræmi við fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar á hverjum tíma. Menntunar- og hæfniskröfur: • Viðskiptafræðimenntun er skilyrði • Veruleg reynsla og góð þekking af bókhaldi, áætlanagerð og fjármálastjórnun er skilyrði • Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er skilyrði • Reynsla og þekking af notkun á Navision bókhaldskerfinu er æskileg • Greiningarhæfni og færni í notkun upplýsingatækni • Færni í mannlegum samskiptum auk forystu- og skipulagshæfileika • Sjálfstæði í vinnubrögðum og rík þjónustulund • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti. Kjör: Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til og með 17. maí 2022. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsókn skal senda á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes eða á netfangið hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is Nánari upplýsingar um starfið veitir Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri í síma 433-8500 og á netfanginu linda@hvalfjardarsveit.is Hvalfjarðarsveit er öflugt sveitarfélag með 710 íbúa. Náttúrufegurð er mikil og möguleikar til að njóta fjölbreyttrar útiveru eru óþrjótandi. Hvalfjarðarsveit er dreifbýlt sveitarfélag með litlum íbúakjörnum. Þar er nægt lóðaframboð, fjölbreytt atvinnutækifæri, öflugur landbúnaður, vaxandi ferðaþjónusta og metnaðarfullt skólastarf. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á atvinnusvæðinu við Grundartanga með fjölbreyttum fyrirtækjum. Hvalfjarðarsveit er í nálægð við þéttbýli og í góðu samstarfi við nágrannasveitarfélög. Nánari upplýsingar má finna á www.hvalfjardarsveit.is Aðalbókari Laust er til umsóknar starf aðalbókara Hvalfjarðarsveitar. Um er að ræða 100% starf innan stjórnsýslu sveitarfélagsins. Leitað er að metnaðarfullum aðila til að sinna verkefnum aðalbókara sveitarfélagsins. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Hvalfjarðarsveit er öflugt sveitarfélag með tæplega 700 íbúa. Náttúrufegurð er mikil og möguleikar til að njóta fjölbreyttrar útiveru eru óþrjótandi. Hvalfjarðarsveit er dreifbýlt sveitarfélag með litlum íbúakjörnum. Þar er nægt lóðaframboð, fjölbreytt atvinnutækifæri, öflugur landbúnaður, vaxandi ferðaþjónusta og metnaðarfullt skólastarf. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á atvinnusvæðinu við Grundartanga með fjölbreyttum fyrirtækjum. Hvalfjarðarsveit er í nálægð við þéttbýli og í góðu samstarfi við nágrannasveitarfélög. Nánari upplýsingar má finna á www.hvalfjardarsveit.is. Snæfellsbær Auglýsing um kjörfundi vegna sveitarstjórnar- kosninga 14. maí 2022 Á kjördag, laugardaginn 14. maí, opna kjörfundir í Snæfellsbæ sem hér segir: Ólafsvíkurkjördeild: · Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum í Ólafsvík. · Kosning hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 22:00. Hellissands- og Rifskjördeild: · Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum á Hellissandi. · Kosning hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 22:00. Staðarsveitar- og Breiðuvíkurkjördeild: · Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum á Lýsuhóli. · Kosning hefst kl. 11:00 og stendur til kl. 20:00. Kosningarétt hafa allir sem eru 18 ára og eldri og eru á kjörskrá. Kjörstjórn minnir kjósendur á að hafa skilríki meðferðis á kjörstað. Talning atkvæða fer fram í húsnæði grunnskólans í Ólafsvík að loknum kjörfundi. Nánari upplýsingar um sveitarstjórnarkosningarnar má finna á upplýsinga- vefnum kosning.is f.h. yfirkjörstjórnar Snæfellsbæjar Hjálmar Kristjánsson SK ES SU H O R N 2 02 2 Við úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða í liðinni viku var Sif Matthíasdóttur veittur styrkur að upphæð tæpar 4,4 milljónir króna til að vinna skipulag, hönnun og merkingar vegna ferðamennsku á og við Drápuhlíðarfjall í Helgafellssveit. Nánar tilgreint felur styrkurinn í sér öflun upplýsinga, skipulagsvinnu, stik- un/merkingu gönguleiða og uppsetningu kynningar- spjalda við fjallið. Deiliskipulagstillaga verður unnin fyrir afmarkað svæði á láglendi, sem mun verða skil- greint sem útivistarsvæði/ skógræktarsvæði. Verk efnið hefur öryggi ferðamanna og náttúruvernd að leiðar- ljósi, því auk uppsetningar á skiltum með kynning- arefni og leiðbeiningar, verður svæðið stikað. Með þessu er stefnt að því að bæta öryggi ferðamanna, auk þess sem ónotaðir slóðar fá að gróa upp. „Verkefnið er prýðilegt innviðaverkefni enda snýr það að bættu öryggi, náttúruvernd á þessu sérstaka fjalli og er auk þess á áfangastaðaáætlun svæðisins,“ segir í niðurstöðu Framkvæmdasjóðs. Litríkt og sérkennilegt fjall Í lýsingu á Drápuhlíðarfjalli segir að það er 527 metra hátt, sérkennilegt og litskrúðugt fjall sem inniheldur bæði basalt og lípít og marga einstaka steina. „Einnig er hægt að finna surtarbrand á milli blágrýtislaga og steingerða trjáboli. Talið var að gull væri í fjallinu en magnið sem fannst þótti heldur lítið. Fjallið er eitt það litríkasta og fallegasta á Íslandi. Grjóttaka er algjörlega bönnuð í dag.“ mm Styrkur til að bæta aðgengi að Drápuhlíðarfjalli

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.