Skessuhorn - 11.05.2022, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2022 27
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
02
2
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
• Aðalbókari ber ábyrgð á bókhaldi sveitarfélagsins,
stofnana og fyrirtækja sveitarfélagsins. Eftirfarandi
heyrir m.a. undir verkefna- og ábyrgðarsvið
aðalbókara Hvalfjarðarsveitar:
• Yfirumsjón með öllu bókhaldi sveitarfélagsins
og undirstofnunum þess, afstemmingum og
annarri bókhaldsvinnu. Ber ábyrgð á að skipulag
bókhalds og vinnubrögð séu í samræmi við lög og
viðurkenndar reikningsskilareglur þar um
• Yfirumsjón með innheimtumálum
• Yfirumsjón með skráningu reikninga og
samþykktum þeirra
• Umsjón með allri eignaskráningu sveitarfélagsins og
uppfærslu hennar
• Yfirumsjón með virðisaukaskattsmálum
• Ýmis uppgjörs- og greiningarvinna í samráði við
sveitarstjóra
• Gerð rekstraryfirlita og skýrslugerð
• Umsjón með bókhaldslykli sveitarfélagsins
• Samskipti við endurskoðendur vegna ársreiknings
sveitarfélagsins og stofnana þess
• Þátttaka í áætlanagerð og innra eftirliti
• Umsjón með öllu bókhaldi, afstemmingum
og vinnu við uppgjör fyrir Vatnsveitufélag
Hvalfjarðarsveitar sf. og Heilbrigðiseftirlit
Vesturlands
Aðalbókari ber ábyrgð á meðferð og varðveislu gagna,
úrvinnslu og upplýsingagjöf, stefnumótun, þróun
verklags og þjónustugæða.
Almennt stjórnunarsvið:
Aðalbókari starfar í samræmi við lög og reglugerðir
sem gilda um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga
sveitarfélaga, eftir lögum er varða opinbera þjónustu
og stjórnsýslu, samkvæmt markmiðum sveitarstjórnar
og í samræmi við fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar á
hverjum tíma.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Viðskiptafræðimenntun er skilyrði
• Veruleg reynsla og góð þekking af bókhaldi,
áætlanagerð og fjármálastjórnun er skilyrði
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er
skilyrði
• Reynsla og þekking af notkun á Navision
bókhaldskerfinu er æskileg
• Greiningarhæfni og færni í notkun upplýsingatækni
• Færni í mannlegum samskiptum auk forystu- og
skipulagshæfileika
• Sjálfstæði í vinnubrögðum og rík þjónustulund
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
Kjör:
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum
viðkomandi stéttarfélags og Sambands íslenskra
sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til og með 17. maí 2022. Æskilegt
er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í
starfið.
Umsókn skal senda á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar,
Innrimel 3, 301 Akranes eða á netfangið
hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is
Nánari upplýsingar um starfið veitir Linda Björk
Pálsdóttir sveitarstjóri í síma 433-8500 og á netfanginu
linda@hvalfjardarsveit.is
Hvalfjarðarsveit er öflugt sveitarfélag með 710 íbúa.
Náttúrufegurð er mikil og möguleikar til að njóta
fjölbreyttrar útiveru eru óþrjótandi. Hvalfjarðarsveit er
dreifbýlt sveitarfélag með litlum íbúakjörnum. Þar er
nægt lóðaframboð, fjölbreytt atvinnutækifæri, öflugur
landbúnaður, vaxandi ferðaþjónusta og metnaðarfullt
skólastarf.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað á atvinnusvæðinu
við Grundartanga með fjölbreyttum fyrirtækjum.
Hvalfjarðarsveit er í nálægð við þéttbýli og í góðu
samstarfi við nágrannasveitarfélög. Nánari upplýsingar
má finna á www.hvalfjardarsveit.is
Aðalbókari
Laust er til umsóknar starf aðalbókara Hvalfjarðarsveitar. Um er að ræða 100% starf innan stjórnsýslu
sveitarfélagsins. Leitað er að metnaðarfullum aðila til að sinna verkefnum aðalbókara sveitarfélagsins. Æskilegt
er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Hvalfjarðarsveit er öflugt sveitarfélag með tæplega 700 íbúa. Náttúrufegurð er mikil og möguleikar til að njóta fjölbreyttrar útiveru eru óþrjótandi. Hvalfjarðarsveit er dreifbýlt
sveitarfélag með litlum íbúakjörnum. Þar er nægt lóðaframboð, fjölbreytt atvinnutækifæri, öflugur landbúnaður, vaxandi ferðaþjónusta og metnaðarfullt skólastarf.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað á atvinnusvæðinu við Grundartanga með fjölbreyttum fyrirtækjum. Hvalfjarðarsveit er í nálægð við þéttbýli og í góðu samstarfi við
nágrannasveitarfélög. Nánari upplýsingar má finna á www.hvalfjardarsveit.is.
Snæfellsbær
Auglýsing um kjörfundi
vegna sveitarstjórnar-
kosninga 14. maí 2022
Á kjördag, laugardaginn 14. maí, opna kjörfundir
í Snæfellsbæ sem hér segir:
Ólafsvíkurkjördeild:
· Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum í Ólafsvík.
· Kosning hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 22:00.
Hellissands- og Rifskjördeild:
· Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum á Hellissandi.
· Kosning hefst kl. 10:00 og stendur til kl. 22:00.
Staðarsveitar- og Breiðuvíkurkjördeild:
· Kjörfundur verður haldinn í Grunnskólanum á Lýsuhóli.
· Kosning hefst kl. 11:00 og stendur til kl. 20:00.
Kosningarétt hafa allir sem eru 18 ára og eldri og eru á kjörskrá.
Kjörstjórn minnir kjósendur á að hafa skilríki
meðferðis á kjörstað.
Talning atkvæða fer fram í húsnæði grunnskólans í Ólafsvík að loknum
kjörfundi.
Nánari upplýsingar um sveitarstjórnarkosningarnar má finna á upplýsinga-
vefnum kosning.is
f.h. yfirkjörstjórnar Snæfellsbæjar
Hjálmar Kristjánsson
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Við úthlutun úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða í
liðinni viku var Sif Matthíasdóttur veittur styrkur að
upphæð tæpar 4,4 milljónir króna til að vinna skipulag,
hönnun og merkingar vegna ferðamennsku á og við
Drápuhlíðarfjall í Helgafellssveit. Nánar tilgreint felur
styrkurinn í sér öflun upplýsinga, skipulagsvinnu, stik-
un/merkingu gönguleiða og uppsetningu kynningar-
spjalda við fjallið. Deiliskipulagstillaga verður unnin
fyrir afmarkað svæði á láglendi, sem mun verða skil-
greint sem útivistarsvæði/ skógræktarsvæði. Verk efnið
hefur öryggi ferðamanna og náttúruvernd að leiðar-
ljósi, því auk uppsetningar á skiltum með kynning-
arefni og leiðbeiningar, verður svæðið stikað. Með
þessu er stefnt að því að bæta öryggi ferðamanna, auk
þess sem ónotaðir slóðar fá að gróa upp. „Verkefnið
er prýðilegt innviðaverkefni enda snýr það að bættu
öryggi, náttúruvernd á þessu sérstaka fjalli og er auk
þess á áfangastaðaáætlun svæðisins,“ segir í niðurstöðu
Framkvæmdasjóðs.
Litríkt og
sérkennilegt fjall
Í lýsingu á Drápuhlíðarfjalli segir að það er 527 metra
hátt, sérkennilegt og litskrúðugt fjall sem inniheldur
bæði basalt og lípít og marga einstaka steina. „Einnig
er hægt að finna surtarbrand á milli blágrýtislaga og
steingerða trjáboli. Talið var að gull væri í fjallinu en
magnið sem fannst þótti heldur lítið. Fjallið er eitt það
litríkasta og fallegasta á Íslandi. Grjóttaka er algjörlega
bönnuð í dag.“
mm
Styrkur til að bæta aðgengi
að Drápuhlíðarfjalli