Skessuhorn - 11.05.2022, Side 6
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 20226
Bæta aðgengi að
Bjarnarfossi
SNÆF: Framkvæmdasjóður
ferðamannastaða hefur úthlut-
að Snæfellsbæ um 3,7 milljón-
um króna í hönnunarstyrk til
að bæta vegvísun, upplýsinga-
gjöf og öryggi á áningarstaðn-
um við Bjarnarfoss. Verkefnið
á að koma í veg fyrir skemmd-
ir á náttúru og auka öryggi
ferðamanna. „Það bætir virkni
staðarins og fellur því vel að
áherslum Framkvæmdasjóðs
ferðamannastaða,“ segir í
umsögn. -mm
Klofið við
Stöngina
SÚGANDISEY: Stykkis-
hólmsbær hlaut í síðustu viku
15,8 milljóna króna styrk
úr Framkvæmdasjóði ferða-
mannastaða. Styrkurinn fer til
að fjármagna áframhaldandi
uppbyggingu við Súgandisey
í samræmi við vinningstillögu
hönnunarsamkeppni. Um er
að ræða uppsetningu á hand-
riði og minniháttar jarðvegs-
framkvæmdir austanmegin
á eyjunni sem gefa gest-
um eyjar innar kost á því að
skoða Stöngina, bergdrang-
ana sem standa austan við
eyjuna. Í sömu atrennu var
sótt um styrk fyrir handrið-
um norðan- og sunnanmegin
á eyjunni skv. deiliskipulagi.
Er þessi framkvæmd liður í
því að dreifa álagi á eyjunni
þegar margir sækja hana á
sama tíma og um leið tryggja
öryggi gesta. „Mjög verðugt
innviðaverkefni, sem byggir
á heilstæðri stefnumörkun í
kjölfar samkeppni. Verkefnið
stuðlar að auknu öryggi ferða-
manna og bættri umgengni
á viðkvæmu svæði,“ segir í
umsögn stjórnar FF. Myndin
er úr vinningstillögunni um
Fjöreggið. Sett verður upp
handrið sem gefur gestum
aðgang og tækifæri til að horfa
niður eftir stuðlabergsveggj-
unum, ofan í sjóinn og inn í
skoru í berginu þar sem sjá má
fugla. -mm
Hættuástand á
heiðinni
BORGARFJ: Á þriðjudags-
kvöld í liðinni viku myndað-
ist hættuástand á Holtavörðu-
heiði vegna mikillar hálku og
var auk þess farið að draga í
skafla. Nokkrir vörubílar voru
stopp og voru að keðja bílana
á meðan einn og einn fólks-
bíll var enn á sumardekkj-
um. Vegagerðin var látin vita
og sendi tæki á staðinn til að
ryðja veginn og halda honum
opnum. -vaks
Kaup á hitakassa
AKRANES: Á fundi Skipulags-
og umhverfisráðs 2. maí síðast-
liðinn var samþykkt að keypt-
ur yrði hitakassi undir mal-
bik vegna holuviðgerða á göt-
um bæjarins. Eins verði skoð-
að hagkvæmni þess að að kaupa
tæki til að sópa stéttar og götur
bæjarins. -vaks
Bæta aðgengi
að Glym
HVALFJ: Við úthlutun styrkja
úr Framkvæmdasjóði ferða-
mannastaða í síðustu viku kom
fram að Hvalfjarðarsveit hlýtur
3,5 milljónir króna. Styrkurinn
mun fara til að bæta aðgengi
og öryggi á gönguleiðinni að
fossinum Glym í botni Hval-
fjarðar. Eins og kunnugt er
slasa fjölmargir ferðamenn sig á
hverju ári við göngu að fossin-
um og því talið brýnt að bæta
aðstæður. Haldið verður áfram
með að vinna að bættu öryggi
á ferðamannastað samkvæmt
tillögum sem Björgunarfélag
Akraness hefur útfært og verður
verkið unnið með náttúrulegum
efnum af svæðinu. „Verkefnið
felst í að bæta innviði, sem rím-
ar vel við áherslur sjóðsins og er
á áfangastaðaáætlun svæðisins,“
segir í umsögn FF. -mm
Guðmundur Eyþór Már Ívarsson
hafnarvörður á Arnarstapa seg-
ir að þessa dagana sé mikið líf í
og við höfnina. Stöðugur straum-
ur ferðamanna er á svæðinu til þess
að fanga fegurðina og skoða sig
um í náttúrunni, svo sem að skoða
fugla af fjölmörgum tegundum og
fara í gönguferðir. Gönguleiðin frá
Arnarstapa að Hellnum er til að
mynda geysivinsæl auk þess sem
ferðamenn njóta veitinga á svæð-
inu.
Guðmundur bætir við að strand-
veiðar gangi mjög vel og ná strand-
veiðisjómenn skammtinum á
skömmum tíma enda eru feng-
sæl fiskimið skammt frá höfninni.
Núna eru 39 bátar í höfninni, sem
er frekar lítil frá náttúrunnar hendi,
en talsverðar framkvæmdir hafa þó
verið gerðar undanfarin ár en það
er stutt síðan höfnin var dýpkuð.
Þrátt fyrir allan þennan bátafjölda
segir Guðmundur að allt gangi
þetta vel og samvinna sjómanna sé
til fyrirmyndar. Sjómenn jafnt sem
starfsmenn eru því almennt sáttir
með gang mála.
af
Mikið líf á Arnarstapa
Pétur Pétursson skipstjóri á netabátnum Bárði SH að landa góðum afla af stór-
þorski sem fékkst stutt
Hafnarvörðurinn í löndun.
Fjöldi báta í höfninni
og allt vel skipulagt.
Mikið líf er í höfninni á Arnarstapa en þarna má sjá
netabátinn Bárð SH að landa.