Skessuhorn - 11.05.2022, Side 18
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 202218
Evrópska söngvakeppnin er
haldin undir sérstökum for-
merkjum í ár vegna stríðsins í
Úkraínu og samstöðunnar sem
það hefur kallað fram með-
al íbúa álfunnar. En það hef-
ur reyndar alltaf verið sérstök
stemning í kringum keppnina
og þá ekki síst á forsendum tón-
listarinnar sem er jú alþjóðleg í
eðli sínu. Skessuhorn hafði upp
á manni sem býr að gríðarlegri
þekkingu um keppnina og hef-
ur fylgst með henni af áhuga frá
unga aldri. Hann heitir Kristján
Jóhannes Pétursson, oftast kall-
aður Kiddi Jói, og býr í Borgar-
nesi.
Ný vinna og nám
„Ég er borinn og barnfæddur
Borgnesingur,“ segir Kiddi Jói. Ég
er ættaður héðan líka, átti afa og
ömmu í húsi við Egilsgötuna sem
alltaf er kallað Arabía og á stóra ætt
kennda við Ferjubakka. Ég gekk
hér í grunnskóla, fór svo í Fjöl-
brautaskólann á Akranesi, en fann
þá að það hentaði mér ekki. Eftir
tíu ár í grunnskóla var ég þreyttur
á sálinni. Svo ég fór að vinna og
hef síðan unnið á ýmsum stöð-
um, lengst af í Nettó. Núna vinn
ég í Geirabakaríi en er í námi með,
er að læra til bókara og klára það
um næstu áramót. Ég tek þetta í
staðarnámi og við erum mjög góð-
ur hópur í þessu. Þetta er búið að
taka mjög á, stundum ansi mikið að
gerast. En það urðu sem sagt mikl-
ar breytingar hjá mér í haust, ný
vinna og nýtt nám, þetta eru ágæt-
ar áskoranir,“ segir hann kíminn á
svip.
Fyrstu minningarnar
um tónlistina
„Mér er sagt að þegar ég var þriggja
ára hafi ég verið lagður af stað nið-
ur í Kaupfélag til að kaupa snakk
fyrir áhorfið á keppnina. Þetta var
árið 1983,“ segir Kiddi Jói. En
fyrsta minningin mín um tónlistina
er þegar ég var fimm ára og keppn-
in 1985 hafði verið í gangi. Amma
mín Gyða Magnúsdóttir átti árið
1984 á vídeóspólu sem ég hafði oft
horft á. Ég á svo góðar minningar
um það að vera hjá henni að hlusta
á tónlist. Það má segja að það hafi
eiginlega verið hún sem gaf mér þá
gjöf að kunna að njóta tónlistar og
meta hana. Hún tók líka upp keppn-
ina árið 1986,“ segir hann brosandi.
„Ég græddi margt á þessari hlust-
un og fékk meiri skilning á tungu-
málum eins og ensku, frönsku og
þýsku. Ég pældi nefnilega mik-
ið í textunum líka og fann seinna
að það kom mér til góða þegar ég
var í náminu í Fjölbrautaskólan-
um. Þegar ég var orðinn unglingur
hélt ég áfram að fylgjast með þessu.
Ég man t.d. þegar Nína var valin
sem sigurlag í keppninni hérna
heima árið 1991. Ég hafði verið
ánægðari með lagið, Í dag, sem var
með Helgu Möller, Ernu Þórarins-
dóttur, Arnari Frey Gunnarssyni
og Kristjáni Gíslasyni. Ég man að
ég var gráti nær yfir því að það lag
skyldi ekki vinna,“ segir Kiddi Jói
og raular laglínuna.
Lögin, flutningurinn
og textarnir
„Árið eftir fór Stjórnin eða Heart
2 Heart, eins og hún var kölluð þá
út og ég var mjög sáttur við það,
enda lentu þau í sjöunda sæti. Svo
gleymi ég aldrei þegar við fengum
núll stig árið 1989. Ég var líka mjög
ánægður þegar Sigga Beinteins og
Grétar voru valin til að vera full-
trúar okkar ásamt Stjórninni árið
1990, en jafn ósáttur þegar Halla
Margrét söng Hægt og hljótt árið
1987. Í það skiptið vildi ég held-
ur hafa séð lagið Lífið er lag taka
þátt. Ég var samt bara sjö ára en
hafði svona ákveðnar skoðanir. Sem
dæmi um hvað ég var mikill nörd í
þessu var að ég rak einu sinni aug-
un í það í Kaupfélaginu sem þá stóð
við Egilsgötu, að þar var hljómplata
með hljómsveitinni Módel þar sem
m.a. þetta lag var. Ég stökk út og
ræddi við ömmu mína um hvort
hún gæti ekki gefið mér plötuna
í afmælisgjöf, sem hún og gerði.
Þetta var samt í júlí og ég á afmæli
í október! Ég hafði alltaf mjög
gaman af söngvakeppninni, og svo
breyttist hún mikið frá árinu 1993.
Balkanlöndin fóru að koma inn eft-
ir að Júgóslavía sundraðist sem og
fleiri lönd frá Austur Evrópu og
gömlu Sovétríkjunum, tungumála-
reglan var að detta út, þ.e. löndin
réðu hvort þau flyttu lögin sín á
frummálinu eða á ensku, og undir-
spilið var allt að fara frá stórhljóm-
sveitinni og yfir á „playback“ og
það varð meiri áhersla á líflega
sviðsframkomu heldur en endilega
lögin. Þetta varð meira danslaga-
keppni upp úr þessu, en núna snýst
þetta aftur meira um lögin, flutn-
inginn og textana,“ segir Kiddi Jói.
Félagið
Hann nefnir félagsskap sem hefur
skipt hann miklu máli. „Það breytti
miklu fyrir mig að Félag áhugafólks
um Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva var stofnað á Íslandi
árið 2011. Það heitir OGAE
International á alþjóðavísu og kall-
ast FÁSES hérna heima. Þá fyrst
komst maður að því að maður var
ekki einn um að vera svona heillað-
ur af þessu fyrirbæri. Þetta er mjög
virkur hópur. Ég fór í fyrsta sinn
út til að fylgjast með keppninni í
Stokkhólmi árið 2000 og fannst
ég þá vera einn í heiminum. Selma
hafði lent í öðru sæti árið áður og
mig langaði til að sjá þetta í fram-
kvæmd. Ég var tvítugur þá. Það var
mikil upplifun. En ég sannfærðist
líka um það að hefði Ísland unnið
árið áður hefðum við Íslendingar
aldrei getað haldið keppnina jafn
glæsilega og nauðsynlegt var.“
Út á næsta ári
Kiddi Jói á sér góðan félaga í þessu
áhugamáli. „Áður var ekki kom-
ið neitt YouTube, maður hlustaði á
þetta hálf bjagað. En árið 2000 var
fyrsta árið sem lögin voru gefin út á
geisladiski. Það ár fór ég út og ætl-
aði svo að fara aftur árið 2010, en
fékk ekki miða. Svo ég komst ekki
út fyrr en árið 2014 til Köben. Ég á
svo góða vinkonu í þessu sem heit-
ir Kristín Halldóra Kristjánsdóttir.
Við kynntumst árið 2010 og geng-
um í FÁSES árið 2012. Við erum
bæði í félaginu og köllum okkur
Borgarnesútibúið. Við fórum bæði
ásamt öðrum í Gufunesið þegar
forkeppnin var haldin þar í ár. Það
sem kom á óvart þar var að Systur
skyldu vinna, það héldu allir að það
yrðu Reykjavíkurdætur, en ég var
mjög sáttur við niðurstöðuna. Við
höfum farið á þessar forkeppnir, s.s.
árið 2015 þegar María Ólafsdótt-
ir vann, síðan 2016 í Laugardals-
höllina þegar Gréta Salome sigr-
aði. Ég var hins vegar úti í Dan-
mörku í helgarferð árið 2017 þegar
forkeppnin var haldin hér heima
og komst ekki. Ári seinna vann
Ari Ólafs og það ár fórum við með
honum út til Lissabon. Árið 2019
gat ég ekki farið; það var of dýrt að
fara til Ísrael. Svo fór ég ekki næstu
tvö ár út út af Covid, en við ætluð-
um annars út til Rotterdam árið
2020. Núna komst ég ekki til Tor-
ino út af náminu, en ætla endilega
að fara út á næsta ári.“
Efstu löndin
á hreinu öll árin
„Þetta áhugamál eða hugðar-
efni bókstaflega heltekur mann,“
útskýrir Kiddi Jói. „Ég get nán-
ast talið upp alla sem voru í fyrstu
tíu til tuttugu sætunum í keppn-
inni erlendis og heima öll árin. En
þegar ég fer ekki út er ég heima að
horfa með vinum og fjölskyldu og
Kristín vinkona mín kemur gjarnan
líka. OGAE er alþjóðlegur hópur
fólks í öllum löndunum. Það hitt-
ist á keppnunum og er á Facebook
og fleiri samfélagsmiðlum. Félagar
hafa líka oft forgang um miðakaup
og þeir nýta sér það sem eru mestu
nördarnir,“ segir Kiddi Jói.
Aðspurður hvort honum hafi
ekki líkað við sigurlagið eitthvert
árið svarar hann: „Jú, það var sigur-
lagið árið 2018, frá Ísrael. Lista-
maðurinn var frábær, en lagið
féll ekki að mínum smekk. Ég var
hrifnari af laginu sem lenti í öðru
sæti.“ Þegar hér er komið sögu læt-
ur blaðamaður í ljós einlæga aðdá-
un sína á stálminni Kidda Jóa sem
þylur upp flytjendur og stig mörg
ár aftur í tímann. „Þetta er bara
eins og að fylgja fótboltaliði,“ segir
hann og hlær.
Celine Dion
Eitt eftirminnilegt uppáhaldslag
Kidda Jóa var flutt í keppninni árið
1988 af Celine Dion. Það markaði
upphaf glæsilegs ferils Dion sem er
í dag ein skærasta poppstjarna ver-
aldar. „Þá var ég átta ára krakki.
Eurovision er besta geðlyfið
Rætt við Kidda Jóa um evrópsku söngvakeppnina sem verður á laugardaginn
Kiddi Jói á stórt plötusafn með Eurovision lögum. Ljósm. gj.
Kristín og Kiddi Jói mætt á keppnina í Laugardalshöllinni 2020, korteri fyrir Covid.
Kiddi Jói með Niamh Kavanagh, virtri
írskri söngkonu sem sigraði keppnina
árið 1993 með laginu In Your Eyes.
Kiddi með plötuna sem hann keypti í
Kaupfélaginu. Ljósm. gj.
Kiddi Jói fór á íslensku forkeppnina í Gufunesi í ár ásamt systur sinni og bróður,
Margréti Hildi og Ólafi Magnúsi.