Skessuhorn - 11.05.2022, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2022 19
Við höfum aðstoðað tugi fyrirtækja og sótt styrki yfir 100 milljónir
Umsóknartímabil: Ágúst 2021 – Mars 2022
Umsóknarfrestur: Júní 2022
Hafðu samband og
við könnum rétt þinn
Umsóknarfrestur hefur verið
framlengdur
S: 554 5414 | upplysingar@ferdavefir.is | ferdavefir.is
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
vidspyrnustyrkir_loka copy.pdf 1 22.4.2022 16:49
Fyrsta minningin mín um sigur-
vegara í keppninni er svo þegar
Bobbysocks vann árið 1985,“ seg-
ir hann. „Þetta er svo skemmti-
legt. Ef maður heldur með fót-
boltaliði heldur maður bara með
því liði sjáðu til. En ef maður er
áhugamaður um Söngvakeppnina
„Eurovision“ er þetta svo fjölþætt
og þú getur líka skipt um skoðun
á hverjum þú heldur með og hefur
ein fjörutíu lönd til þess að styðja.“
Þýðing keppninnar
Söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva er alþjóðlegt verkefni sem
var upprunalega stofnað af Sam-
bandi evrópskra sjónvarpsstöðva
til að sameina þjóðir Evrópu eftir
seinna stríð.
„Fyrirmynd „Eurovision“ er
keppni sem haldin er á Ítalíu og
heitir San Remo lagakeppnin.
Hún er ennþá í gangi. Upphaflega
kepptu sjö lönd árið 1956,“ seg-
ir Kiddi Jói og telur auðvitað upp
öll þessi lönd. Blaðamaður spyr nú
hvort þetta áhugamál sé honum
einungis gleði í fáa mánuði á ári.
„Nei, alls ekki,“ segir hann. „Þetta
er í gangi allt árið með hlustun og
samskiptum innan fylgjendahóps
keppninnar sem og að fylgjast með
öllum undankeppnunum úti. Svo
þegar fer að færast nær er þetta frá-
bært geðlyf í skammdeginu. Það er
líka þessi fallega hugsjón, að sam-
eina Evrópu eftir seinni heimsstyrj-
öldina,“ segir Kiddi Jói. Hann segir
að aðal baráttan sé að Systur kom-
ist núna áfram í keppninni (Skessu-
horn var farið í prentun þegar úrslit
gærkvöldsins lágu fyrir) og keppi til
úrslita. Hann segir lagið hafa sér-
stöðu, það sé ekta tónlist og mjög
fallega flutt. „Það er sagt að Ítalir
séu mjög hrifnir af systrunum, enda
hafa þær mikla útgeislun. Þær eru
líka svo vel gerðar, þær tóku því
t.d. aldrei sem sjálfsögðum hlut að
vinna, það sá maður greinilega eftir
úrslitin í Gufunesinu,“ segir Kiddi
Jói hlýlega.
Uppáhaldslögin 2022
Kiddi Jói hefur sterkt álit á keppninni
í ár. „Lagið hennar Lay Low er uppá-
haldslagið mitt og líka norska lagið. En
ég tel að Ítalía eigi góða möguleika á að
vinna aftur í ár, lagið er gott og textinn
er góður. Ég hef hlustað mikið á Lit-
háen og Serbíu, það land er með mjög
gott lag og mikilvægan texta. Laga-
textar skipta miklu máli, það er ekki
bara tónlistin, þetta er ein heild,“ seg-
ir Kiddi Jói brosandi. „En ég móta mér
samt aldrei endanlega skoðun fyrr en
ég sé keppnina á sviði.“
Ísland er núna númer fjórtán í röð-
inni í flutningi og Kiddi Jói segir að
það geti skipt máli hvar rólegt lag lendi
svo það falli ekki í skuggann á fjörugra
lagi. „En svo má ekki gleyma því að
keppnin getur orðið pólitísk, við vit-
um að það er alltaf atkvæðasamband
milli Grikklands og Kýpur, en líka
milli Íslands og Danmerkur. En Ísland
gaf líka Úkraínu tólf stig árið 2004 og
Lordi frá Finnlandi tólf stig árið 2006.
Ég veit ekki hvort þetta kallast ein-
hverfa eða hvað, en nú er ég búinn að
fylgjast með þessu í um þrjátíu ár. Það
var svo mjög indælt að kynnast Krist-
ínu og eiga hana að vinkonu, nú höf-
um við farið í nokkur skipti saman út.
Svo er bara svo gaman að vera með-
limur í þessum hópi og taka þátt í alls
konar Eurovision hópum á Facebook.
Hér á Íslandi er breiddin ótrúlega mik-
il í aðdáendahópi keppninnar, þetta
fólk kemur úr öllum stigum samfélags-
ins. Það er svo mikil vinátta og fjöl-
skyldufílingur í FÁSES. Það er mikil-
vægt að hafa gott áhugamál. Það gefur
lífinu lit og er svo gaman,“ segir Kiddi
Jói að lokum. gj. Ljósm. úr einkasafni
Kiddi ásamt Steinunni B. Bragadóttur, Kristínu og Reyni Þór Eggertssyni á leiðinni í Eurovision höllina í Lissabon, þau kölluðu
sig Hinar fjórar júrófrænkur.
Tekið í hitanum í Lissabon. F.v: Kiddi Jói, Kristín Kristjánsdóttir, Steinunn B.
Bragadóttir, Reynir Þór Eggertsson, Heiður Maríudóttir og Antranig Shokayan
vinur þeirra frá Ástralíu.
Kiddi Jói ásamt Ara Ólafssyni sem tók
þátt fyrir Ísland í Lissabon árið 2018.