Skessuhorn - 11.05.2022, Síða 31
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2022 31
Laus störf hjá Grundarfjarðarbæ
Grundarfjarðarbær
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Starfsmaður áhaldahúss
Starfsmaðurinn sinnir fjölbreyttum verkefnum sem falla
undir fasteignaumsjón og áhaldahús. Um er að ræða almenn
viðhalds- og þjónustuverkefni tengd fasteignum bæjarins,
verklegar framkvæmdir og önnur þau verkefni sem yfirmaður
felur honum. Í tengslum við verkefnin þarf viðkomandi að vera í
samskiptum við stofnanir bæjarins, verktaka og þjónustuaðila.
Hæfniskröfur:
• Viðkomandi þarf að vera ábyrgur, lipur í samskiptum,
stundvís, hafa góða þjónustulund, vera sjálfstæður í
vinnubrögðum og sýna frumkvæði í starfi
• Hafa bílpróf og iðnmenntun eða góða verklega þekkingu
og reynslu
• Hafa góða íslenskukunnáttu og almenna tölvukunnáttu
þ.m.t. notkun póstforrita, ritvinnsla, töflureiknar, o.fl.
Starfsmaður starfar undir verkstjórn skipulagsfulltrúa/
byggingarfulltrúa.
Upplýsingar um starfið veita Fannar Þór Þorfinnsson,
byggingarfulltrúi, í síma 430 8500 eða bygg@grundarfjordur.is
og Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri í síma 898 6605 eða
bjorg@grundarfjordur.is
Starfsmaður á höfn
Starfsmaðurinn sinnir hafnarvörslu, vigtun sjávarafla,
hafnarvernd, ásamt almennum viðhalds- og
þjónustuverkefnum hafnarinnar og öðrum þeim verkefnum
sem yfirmaður felur honum. Gert er ráð fyrir að starfsmaðurinn
fari á námskeið til löggildingar vigtarmanns, ef hann hefur þau
réttindi ekki fyrir.
Hæfniskröfur:
• Viðkomandi þarf að vera ábyrgur, lipur í samskiptum,
stundvís, hafa góða þjónustulund, vera sjálfstæður í
vinnubrögðum og sýna frumkvæði í starfi
• Þarf að hafa bílpróf og góð íslenskukunnátta er skilyrði
• Enskukunnátta er æskileg
• Almenn færni í tölvum er skilyrði, einkum notkun
póstforrita, ritvinnsla, töflureiknar, o.fl.
Starfsmaður starfar undir verkstjórn hafnarstjóra.
Upplýsingar um starfið veitir Hafsteinn Garðarsson, hafnarstjóri,
í síma 438 6705 eða hofn@grundarfjordur.is
Launakjör starfanna eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Grundarfjarðarbær óskar eftir að ráða starfsmenn í afleysingar hið fyrsta til að sinna umsjón fasteigna og áhaldahúsi
annars vegar og hafnarvörslu hins vegar. Ráðið er í 100% störf tímabundið til sex mánaða eða skv. samkomulagi. Leitað
er að áhugasömum starfsmönnum með ríka þjónustulund og metnað til að skila góðu starfi.
Sótt er um störfin gegnum vef Grundarfjarðarbæjar,
www.grundarfjordur.is
Umsóknarfrestur er til og með miðvikudags 25. maí nk.
Dagur í lífi...
Nafn: Vilborg Guðný Valgeirs-
dóttir
Fjölskylduhagir/búseta: Gift
Gísla Jens Guðmundssyni og
saman eigum við þrjú börn.
Starfsheiti/fyrirtæki: Leikskóla-
stjóri á Leikskólanum Vallarseli.
Áhugamál: Ferðalög bæði innan-
lands og utan, saga, ættfræði og....
Dagurinn: Fimmtudagurinn 5.
maí 2022.
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Vaknaði klukkan 6. Næst
var það sturta, tannburstun og
vítamínin tekin.
Hvað borðaðirðu í morgunmat?
Borða ekki morgunmat.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Var mætt í vinnu klukk-
an 6.40 og ég fór á bíl.
Fyrstu verk í vinnunni? Opna
leikskólann Vallarsel og taka á
móti dásamlegum börnum sem
mæta svona snemma. Eftir það var
svo komið að því að skipuleggja
daginn og leysa fjarveru starfs-
manna þann daginn.
Hvað varstu að gera klukkan
10? Hlustaði á Bítið á Bylgunni
þar sem formenn flokka í fram-
boði á Akranesi fóru yfir helstu
mál.
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Borðaði hádegismat.
Hvað varstu að gera klukkan
14? Var á röltinu um leikskólann,
hitta börn og starfsfólk.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni? Hætti
klukkan 14.30 og það síðasta sem
ég gerði var að ganga frá öðrum
verkefnum sem bíða morgundags-
ins.
Hvað gerðirðu eftir vinnu?
Skutlaðist til Reykjavíkur fyrir
eiginmanninn.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Kjúklingalasagne a la Lís-
bet Hjörleifs.
Hvernig var kvöldið? Kvöldið
var ágætt, bara afslöppun og sjón-
varpsgláp.
Hvenær fórstu að sofa? Fór upp
í rúm klukkan 21.30, sofnuð svona
um klukkan 22.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
hátta? Gekk frá því sem þurfti að
ganga frá þann daginn og undirbjó
þann næsta.
Hvað stendur upp úr eft-
ir daginn? Já, bara þakklæti og
gleði fyrir að fá að vinna við það
sem ég elska mest, að eiga frábæra
fjölskyldu og vini og bestu börn í
heimi.
Eitthvað að lokum? Kurteisi og
góðmennska kostar ekkert. Njót-
um dagsins.
Leikskólastjóra á Akranesi
Í liðinni viku var tilkynnt hvaða
söfn eru tilnefnd til íslensku safna-
verðlaunanna 2022. Íslands-
deild alþjóðaráðs safna og Félag
íslenskra safna og safnmanna
standa saman að íslensku safna-
verðlaununum, sem er viðurkenn-
ing veitt annað hvert ár íslensku
safni fyrir framúrskarandi starf-
semi. Þetta er í tuttugasta og fyrsta
skipti sem verðlaunin verða afhent.
Í ár bárust vel á annan tug tilnefn-
inga, ýmist frá söfnunum sjálf-
um og almenningi. Verðlaunin
verða afhent við hátíðlega athöfn
á Alþjóðlega safnadaginn þann 18.
maí.
Tilnefningar valnefndar voru
eftirfarandi: Byggðasafnið í Görð-
um á Akranesi - ný grunnsýning,
Gerðarsafn í Kópavogi - nýjar
áherslur í miðlun, Hönnunarsafn
Íslands í Garðabæ - Í stafrænum
tengslum, Minjasafnið á Akureyri
- safn í tengslum við samfélagið og
Síldarminjasafn Íslands á Siglufirði
- framúrskarandi fræðsluverkefni.
vaks
Byggðasafnið í Görðum. Ljósm. vaks
Byggðasafnið í Görðum
hlýtur tilnefningu