Skessuhorn - 11.05.2022, Síða 33
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2022 33
Grundarfjarðarbær
Auglýsing um kjörfund vegna
sveitarstjórnarkosninga
Kjörfundur vegna sveitarstjórnarkosninga í Grundarfirði verður
í Samkomuhúsi Grundarfjarðar, Sólvöllum 3,
laugardaginn 14. maí 2022.
Kjörfundur stendur yfir frá kl. 09:00 til kl. 22:00.
Kjósendur þurfa að framvísa persónuskilríkjum.
Kjörstjórn Grundarfjarðarbæjar
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Tímabókanir í síma 568 6880
VANTAR ÞIG
HEYRNARTÆKI?
Glæsibæ | Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Heyrnartaekni.is | 568 6880
Nýju MORE heyrnartækin eru þjálfuð til að þekkja hljóð. Innbyggt djúptauganet
skilar einstaklega nákvæmri hljóðvinnslu og skýrum hljómgæðum.
Árni Hafstað heyrnarfræðingur hjá Heyrnartækni verður í Borgarnesi
18. apríl við heyrnarmælingar, ráðgjöf og sölu heyrnartækja.
Hjónin Mykola Kravets og Olena
Sheptytska eru nýkomin til Íslands
en hafa sótt um alþjóðlega vernd
hér á landi. Þau eru nýbúin að
gifta sig og voru í brúðkaupsferð
í Tyrklandi þegar stríðið braust út
í heimalandi þeirra Úkraínu. Þau
leituðu allra leiða til að komast í
öruggt skjól sem þau fengu á end-
anum í Grundarfirði.
Bæði starfa þau Mykola og
Olena sem listamenn og hönnuð-
ir og unnu við það í Úkraínu. Eft-
ir að hafa sent fjölda skilaboða á
staði, sem bjóða upp á gistingu fyr-
ir listamenn, fengu þau loks svar
frá Thoru Karlsdóttur sem rekur
ArtAk350 í Grundarfirði. Thora
fór strax á stúfana og hafði sam-
band við Björgu Ágústsdóttur
bæjarstjóra um íbúð fyrir þau, en
gistingin sem Thora rekur er upp-
bókuð næstu mánuðina. Björg brást
skjótt við og fengu þau litla íbúð í
Grundarfirði. Svo var auglýst eft-
ir húsgögnum og húsbúnaði fyr-
ir þau á samfélagsmiðlum og voru
Grundfirðingar ekki lengi að taka
við sér en á þremur dögum var
búið að fá allt það helsta sem þurfti.
Thora vill koma sérstökum þökk-
um til Grundfirðinga og bæjaryfir-
valda fyrir liðlegheitin.
Hjónin Mykola og Olena voru
búsett í Kiev en eru nú að koma
sér fyrir og reyna að ná áttum í
nýju landi. Fjölskyldur þeirra eru
enn í Úkraínu og hafa þurft að flýja
heimili sín. Hjónin eru í sambandi
við ættingja sína daglega.
Vilja kynna sig til leiks
Hjónin voru búin að starfa saman
í fimm ár þegar þau fóru að stinga
saman nefjum. Þau eru bæði lista-
menn og hönnuðir og voru með
hópi fólks sem tók að sér að
setja upp listsýningar og hanna
skreytingar fyrir allskyns viðburði
og fyrirtæki bæði stór og smá. „Við
komum hingað til lands náttúru-
lega bara með hlutina sem við vor-
um að ferðast með, en við feng-
um flug til Íslands í gegnum Varsjá
þegar Thora svaraði tölvupóstin-
um okkar,“ segir Olena í spjalli við
fréttaritara, en bæði tala þau ágæta
ensku. „Það er ótrúleg velvild sem
hefur mætt okkur hérna og allir til-
búnir til að aðstoða okkur,“ en búið
er að útvega þeim helstu nauðsynj-
ar og meira að segja fengu þau öll
efni og áhöld hjá Verkfæralagern-
um til að iðka list sína, en þar fengu
þau frábærar móttökur og fengu að
velja sér allt sem þau þurftu til að
byrja að vinna að list sinni þeim að
kostnaðarlausu. „Okkur langar að
kynna okkur hérna og sýna hvað
við getum boðið uppá hér á Íslandi.
Við erum bæði mikið menntuð og
höfum bæði stundað nám í list-
greinum sem og hönnunarnám og
arkitektúr,“ segja þau. Miðað við
myndir af verkefnum sem þau hafa
komið að er ekki hægt að draga
það í efa. Einnig hafa þau unnið
við kennslu og vilja bæði vinna til
að koma fótunum undir sig á nýj-
um stað.
Tekur á
Hjónin reikna ekki með að kom-
ast heim í bráð enda lítið fyrir þau
að sækja þangað. „Það er ekkert
fyrir okkur að gera heima,“ seg-
ir Olena: „Enga vinnu að hafa og
ekkert fyrir okkur að gera og það
yrði bara hættulegt fyrir okkur,“
bætir hún við á meðan hún þurrkar
tár af hvarmi. Erfitt hefur verið að
Voru í brúðkaupsferð þegar stríðið skall á
Listamenn á flótta hafa nú komið sér fyrir í Grundarfirði
fylgjast með fréttum frá heima-
landinu bæði í fjölmiðlum og frá
vinum og ættingjum. „Þetta hef-
ur tekið á og er alveg hræðilegt
en okkur líður vel hérna og erum
örugg. Til dæmis fórum við í sext-
án kílómetra göngu í gær og nátt-
úran og umhverfið hérna er yndis-
legt,“ segja þau. „Einnig erum við
búin að prófa að fara í klifurhús
hérna í bænum og erum með pínu
strengi eftir það,“ bæta þau við og
brosa kímin til hvors annars. Þau
segjast bæði vera mjög virk í úti-
vist, klifri og hjólreiðum og því ætti
þeim ekki að leiðast hérna enda
mikið af gönguleiðum í nágrenninu
í Grundarfirði. „Það var oft erfitt
að draga fram lífið í Úkraínu enda
ekki mjög arðbært að starfa þar sem
listamaður. Vonandi gengur það
betur hérna en annars getum við
unnið við hvað sem er og vonandi
verður gott að búa hérna á Íslandi,“
segja þau að lokum.
Hægt er að skoða heimasíðuna
þeirra á vefsíðunni www.dyvyna.
com.ua og á fésbókarsíðunni www.
facebook.com/dyvyna21/
tfk
Listaverkin eru af öllum stærðum og
gerðum hjá þessum ungu hjónum en
hérna er Olena með einum af sam-
starfsmönnum þeirra hjóna.
Salbjörg Nóadóttir er hérna með þeim á myndinni en hún hefur verið ungu hjón-
unum innan handar við að koma sér fyrir í Grundarfirði.
Mykola og Olena í Verkfæralagernum þar sem þau fengu frábærar móttökur.
Hjónin Mykola Kravets og Olena Sheptytska í vinnustofunni í Grundarfirði.
Hérna má sjá hluta af þeim verkefnum sem þau hafa tekið að sér.