Morgunblaðið - 16.04.2022, Síða 19

Morgunblaðið - 16.04.2022, Síða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 2022 i í vesturbyggð DAGMÁL Andrés Magnússon Stefán Einar Stefánsson Mikill uppgangur hefur verið í Vest- urbyggð undanfarin ár eftir nokkra lægð áratugina á undan. Verkefni sveitarfélagsins miðast mjög við það að stuðla að skynsamlegri uppbygg- ingu innviða í samræmi við upp- ganginn og frekari vöxt, sem í vænd- um er. Þau Jón Árnason, oddviti N- listans, og Anna Vilborg Rúnars- dóttir, sem er í 2. sæti Sjálfstæð- isflokks og óháðra, leggja bæði áherslu á að framboðin hafi ekki beina skírskotun til landsmála- stjórnmála, framboðin séu um fólk en ekki hugmyndafræði.. Verkefnin fyrir næsta kjörtímabil segja þau felast í því að hlúa að íbú- um og innviðum, svo það haldist í hendur við þróttmikla atvinnu- uppbyggingu undanfarinna ára. Hún hafi haft mikil áhrif á mannlífið, fólk sé farið að flytjast í bæinn og mörg ný atvinnutækifæri skapast. Samgöngur í brennidepli Enn fremur sé brýnt að horfa til samgangna innan svæðisins. Í bí- gerð sé að taka upp heimastjórnir, eins og gert hafi verið með ágætum árangri í Múlaþingi. Liður í því kunni að vera frekari sameiningar og þar horfa menn fyrst til Tálkna- fjarðar. Þar sé mikil samvinna fyrir og aðstæður ekki með sama hætti og þegar Tálknfirðingar höfnuðu sam- einingu á liðinni öld. Jón telur að í kjölfar sameiningar náist ekki aðeins markmið um sam- legðaráhrif, heldur einnig á sviði samgangna og nefnir jarðgangagerð í því samhengi, þar hafi svæðið setið eftir. Anna Vilborg samsinnir því og telur að um of sé horft á íbúafjölda í því samhengi. Nær sé að horfa til umferðarinnar og þeirra verðmæta, sem streyma um samgönguæðarnar. Þau nefna fleiri vaxtaverki sveit- arfélags í miklum vexti, þar sem húsnæðismálin séu ofarlega á blaði. Þar hafi ekki staðið á sveitarfé- laginu, en vandasamara hafi reynst að laða að verktaka til uppbyggingar íbúðarhúsnæðis. Þar að baki búi ýmsar ástæður, sem tæplega hverfi í bráð. Þrýstingurinn sé ekki minni vegna aukinna atvinnuumsvifa, en hýsa þurfi aðvífandi iðnaðarmenn, sem þangað komi tímabundið til starfa. Eins megi nefna innviði á borð við leikskóla, sem sé aðeins nokkurra ára gamall, en samt sprunginn. Þrátt fyrir að vöxturinn und- anfarin ár hafi verið mest áberandi í fiskeldi og kalkþörungum standi hin gamla burðarstoð, sjávarútvegurinn, enn fyrir sínu, eins og sjá megi af komu nýs togara til Patreksfjarðar fyrir skömmu. Ekki horfa menn þó síður til þess að enn séu ýmis atvinnutækifæri ónýtt. Ekki sé óvarlegt að gera ráð fyrir því að ferðaþjónusta aukist á næstu árum og eins sé verulegt rými til aukinna umsvifa í fiskeldi sé litið til útreiknaðs burðarþols lífríkisins. Morgunblaðið/Brynjólfur Löve Patreksfjörður Fiskiskip Odda, Patrekur BA64, kemur til hafnar en sjávarútvegur er ein helsta stoð atvinnulífsins. Uppbygging innviða í takt við uppsveiflu - Samgöngubætur innan svæðisins forsenda frekari vaxtar Morgunblaðið/Brynjólfur Löve Vesturbyggð Bæjarfulltrúarnir og frambjóðendurnir Jón Árnason og Anna Vilborg Rúnarsdóttir í viðtali við kosningahlaðvarp Dagmála vestra. Patreksfjörður● ●Bíldudalur REYKHÓLA- HREPPUR ÍSAFJARÐARBÆR SÚÐAVÍKUR- HREPPUR TÁLKNA- FJÖRÐUR Látrabjarg FRIÐLAND Í VATNSFIRÐI FRIÐLAND Á LÁTRUM Rauðisandur Arnarfjörður Patreksfjörður Tálknafjörður Vatnsfjörður Dýrafjörður Flatey Breiðafjörður Vesturbyggð Staðsetning, helstu staðreyndir og kosningaúrslit ÍBÚAR 1.131 AFGANGUR* -266 m.kr. HEILDARSKULDIR 2022 2,3 ma.kr. SKULDAHLUTFALL** 2022: 131% 2025: ˜131% KYNJASKIPTING ALDURSSKIPTING ÍBÚAR 18 ÁRA & ELDRI 905 FLATARMÁL 1.336 km² 55% Karlar Konur 45% *Áætlanir um A- og B-hluta 2022 **Áætlanir um A- og B hluta. 0 50 100 150 200 250 300 350 > 7051-7031-5018-30< 18 Vesturbyggð varð til 1994 við sameiningu Barðastrandarhrepps, Rauðasandshrepps, Bíldu- dalshrepps og Patrekshrepps, en Tálknfirðingar afþökkuðu gott boð. Hefðbundinn sjávar- útvegur er grunnstoð atvinnulífs, en kalkþörungavinnsla og fiskeldi hafa skotið nýjum og sterkum stoðum undir það, auk þess sem ferðaþjónusta blómstrar í rómaðri náttúrufegðurð. •Þingeyri •Tálknafjörður •Hrafnseyri Brjánslækur•Birkimelur• Flókalundur• Úrslit í síðustu sveitarstjórnarkosningum* Kosið var 26. maí 2018 Kjörskrá: Atkvæði: Kjörsókn: 698 573 82% N-listinn er með hreinan meirihluta Bæjarstjóri: Rebekka Hilmarsdóttir Forseti bæjarstj.: Iða Marsbil Jónsdóttir (N) ■ D Sjálfstæðisflokkur og óháðir 45,7% 3 ■ N Ný sýn 54,3% 4

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.