Læknablaðið - 01.01.2022, Blaðsíða 4
4 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108
11
Hákon Björn Högnason, Vigdís Fjóla Stefánsdóttir, Eirný Þöll Þórólfsdóttir, Jón Jóhannes Jónsson,
Hans Tómas Björnsson
Aukin notkun á erfðaheilbrigðisþjónustu á Íslandi árin 2012-2017
Síðustu tvo áratugi hefur orðið bylting í erfðalæknisvísindum. Frá kapphlaupinu um
raðgreiningu erfðamengis mannsins við upphaf aldarinnar hefur framþróun í raðgrein-
ingartækni og erfðalæknisþjónustu verið hröð. Einnig hefur möguleiki á að geta haft áhrif
á samsetningu erfðamengisins með líftækni orðið að veruleika. Samhliða hefur túlkun
erfðaupplýsinga orðið sífellt flóknari. Erfðaráðgjöf hefur verið hluti af heilbrigðisþjónustu
allt frá miðri seinustu öld.
17
Hrönn Harðardóttir, Steinn Jónsson, Örvar Gunnarsson, Bylgja Hilmarsdóttir, Jurate Ásmundsson,
Ingibjörg Guðmundsdóttir, Vaka Ýr Sævarsdóttir, Sif Hansdóttir, Pétur Hannesson,
Tómas Guðbjartsson
Nýjungar í greiningu og meðferð lungnakrabbameins
Ár hvert greinast um 170 manns með lungnakrabbamein, flestir í kringum sjötugt.
Reykingar eru helsta orsök lungnakrabbameins og ýmis eiturefni í umhverfi geta einnig
valdið meininu, til dæmis asbest og mengun frá umferð. Nýgengi sjúkdómsins hefur farið
lækkandi síðasta áratug hjá báðum kynjum sem skýrist aðallega af minni reykingum.
Dánartíðni af völdum lungnakrabbameins fer minnkandi, en er engu að síður hæst allra
krabbameina hérlendis og leggur um 130 manns að velli árlega.
30
Erla Þórdís Atladóttir, Kristján Óskarsson, Páll Helgi Möller
Garnasmokkun á botnlanga: Sjúkdómstilfelli
Garnasmokkun er þegar hluti af görn dregst inn í aðlægan hluta garnar. Þetta er ekki al-
gengt vandamál en er algengasta ástæða garnastíflu hjá ungum börnum á aldrinum 4-10
mánaða. Smokkunin er oftast á mótum dausgarnar og ristils, en það svæði er mjög ríkt af
eitilvef hjá ungabörnum.
F R Æ Ð I G R E I N A R
1. tölublað · 108. árgangur · 2022
7
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir
Vísindi og framtíð
heilbrigðiskerfisins
á Íslandi – miklar
væntingar til nýs heil-
brigðisráðherra
Þjóð sem nýtur vaxandi
langlífis þarf að bregðast við
fjölþættari heilbrigðisvanda
með hækkandi aldri og fleira
heilbrigðisstarfsfólki.
9
Gunnar Thorarensen
Úr takti við tímann
Ísland er eina Norðurlanda-
þjóðin sem ekki hefur innleitt
sérstaka löggjöf um refsi-
ábyrgð starfsfólks í heil-
brigðisþjónustu vegna alvar-
legra atvika. Þetta er með
öllu úr takti við tímann.
L E I Ð A R A R
Botnlangabólga er algengasta orsök
skurð aðgerða meðal vestrænna þjóða.
Botnlangabólga er talin vera menningar-
sjúkdómur þar sem hún er óalgeng meðal
íbúa þjóða sem búa við kröpp kjör. Allir
geta fengið botnlangabólgu en hún er sjald-
gæfari hjá börnum yngri en 2 ára og eldra
fólki. Sjúkdómurinn er algengastur milli 20-
30 ára og er algengari meðal karla.
Af vísindavefnum.
Á FORSÍÐU
Botnlangabólga
Myndin sýnir botnlangabólgu með drepi
og rofi. Páll Helgi Möller skurðlæknir tók
myndina nýlega á Landspítala.