Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.01.2022, Síða 46

Læknablaðið - 01.01.2022, Síða 46
46 L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 Allt að 20% barna undir 5 ára aldri fá niðurgang af völdum rótaveiru á hverju ári sem koma mætti í veg fyrir með bólusetningu. Þetta segir Valtýr Stefánsson Thors, barnalæknir. Hann hefur ekki áhyggjur af því að óöryggi margra við að bólusetja börn gegn COVID­19 dragi úr fólki að þiggja aðrar bólusetningar fyrir þau ■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Vill víðtækari bólusetningar barna hér á landi Bólusetja ætti íslensk börn með rótaveiru- bóluefnum, segir Valtýr Stefánsson Thors, barnasmitsjúkdómalæknir. „Rótaveira er meltingarfærasýking sem sýkir 10-20% allra barna undir 5 ára aldri á hverju ári. Hún er algengasta ástæða garnasýkinga hjá börnum á þessum aldri og veldur niðurgangi og uppköstum. Hún kemur í faröldrum og þá veikjast oft allir á heimilinu. Hún veldur fjarvistum foreldra frá vinnu,“ segir Valtýr en hann og læknarnir Íris Kristinsdóttir og Ásgeir Haraldsson gerðu rannsókn á sýkingunni. „Við höfum sýnt fram á að það væri verulega hagkvæmt að taka upp þetta bóluefni hér á landi.“ Þau hafi rætt við sóttvarnayfirvöld sem hafi tekið vel í mál- ið en það svo fallið í skugga COVID-19. „Það er algjörlega orðið tímabært að við tökum þessa bólusetningu upp.“ Valtýr segir árangur bólusetninga á Íslandi ríkan og nefnir sérstaklega ár- angur bólusetninga við meningókokkum C. „Við sjáum vart heilahimnubólgu og blóðsýkingar hjá börnum nú orðið, sem var býsna algengur sjúkdómur um alda- mótin.“ Einnig sé árangurinn frábær eftir bólusetningar gegn pneumókokkum sem teknar voru upp fyrir áratug. Valtýr bendir á að Alþjóðaheilbrigð- isstofnunin, WHO, hafi lagt til að öll börn í heiminum eigi að vera bólusett við lifrarbólgu B. „Ástæðan er að bóluefni við lifrarbólgu B hafa fyrirbyggjandi mátt gegn krabbameini,“ segir Valtýr. Lifrar- bólga B er algeng í Asíu. „Sjúkdómurinn er sjaldgæfur í íslensku samfélagi nema hjá börnum sem hafa flutt til landsins. Rökin hér hafa því verið að bólusetningin sé óþörf. En þetta er eitt- hvað sem mörg lönd í Evrópu gera. Einnig sum lönd í kringum okkur. Til að mynda er bólusett við lifrarbólgu B í Hollandi og Þýskalandi.“ Valtýr verður með erindi um bólusetn- ingar barna þann 21. janúar á Læknadög- um. Hann segir að þótt huga þurfi að því að fjölga bólusetningum barna hér á landi sé mikilvægt að fara varlega í það. Horfir hann til Hollands þar sem hann stundaði sérnám. „Hollendingar hika við að bæta bólu- efnum við af ótta við að það dragi úr þátt- tökunni. Ég hef í sjálfu sér ekki áhyggjur af því hér á landi því viðhorf foreldra er mjög jákvætt og 95% láta bólusetja börnin sín,“ segir hann. En telur hann að mótbár- ur við bólusetningu barna gegn COVID-19 dragi úr fólki almennt að láta bólusetja börnin sín? „Nei, ég held ekki. Við þekkjum að inflúensubólusetningar veita aðeins allt að 60% vörn. Málið er að koma í veg fyrir alvarleg veikindi. Það sama á við með COVID-19 bólusetningar.“ Þau bólusettu veikist minna. Um 4000 börn hafa smitast af SARS- COV-2 veirunni hér á landi. Fimm hafa verið lögð inn á sjúkrahús en öllum fylgt eftir í veikindum sínum. Þrjátíu hafa þurft aðstoð á spítalanum. „Þótt börnin verði ekki það veik að þau þurfi að leggj- ast inn á spítala glíma þau sum við fylgi- kvilla. Til að mynda bakteríusýkingar eða þetta svokallaða fjölkerfabólgufyrirbæri. Bólusetningar koma í veg fyrir það,“ segir Valtýr. „Þær koma væntanlega líka í veg fyrir langtímaeinkenni COVID-19.“ Bólusetn- ingin minnki útbreiðslu sýkingarinnar sem minnki líkur á að loka þurfi skólum og frístundastarfsemi. „Börnin geta þá lifað eðlilegu lífi, sem er afar mikil- vægt.“ En óttast hann að fylgikvillar bólu- efnanna komi fram síðar á lífsleiðinni? „Nei, það geri ég ekki. Þessi bóluefni hafa verið í gangi í heilt ár og ekkert komið fram sem veldur ugg,“ segir hann, en þó sé mikilvægt að skrá aukaverkanir. Bólu- efni séu almennt vel rannsökuð. Þau hafi oft víðtækari áhrif en á sjúkdóminn sem bólusett er fyrir. Áhrifin geti því orðið jákvæð gegn öðrum veirum líka. „Börn sem bólusett eru gegn misling- um, rauðum hundum og hettusótt með MMR-bólefni eru líka varin gegn marg- víslegum öðrum sýkingum. Við sjáum svipuð áhrif vegna bóluefna gegn berkl- um. Það hefur verndandi áhrif gegn öðr- um sýkingum líka.“ „Rótaveira er meltingarfærasýking sem sýkir 10-20% allra barna undir 5 ára aldri á hverju ári. Hún er algengasta ástæða garnasýkinga hjá börnum á þessum aldri og veldur niður- gangi og uppköstum. Hún kemur í faröldrum og þá veikjast oft allir á heimilinu.“ V I Ð T A L Valtýr Stefánsson Thors vill sjá börn á Íslandi bólusett fyrir rótaveiru. Hann hvetur einnig foreldra 5-11 ára barna til að bólusetja þau gegn COVID-19. Mynd/gag

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.