Læknablaðið - 01.01.2022, Blaðsíða 51
Læknir má ekki láta af hendi vottorð eða skýrslur um sjúkling án samþykkis hans, forráðamanns
eða nánustu vandamanna, sé sjúklingur ekki fær um að gefa samþykki, nema lög eða dómsúrskurður
bjóði svo.
III. Ákvæði um samskipti lækna, stéttvísi og heilbrigði í starfi
16. gr. Samskipti lækna
Læknar skulu hafa góða samvinnu sín á milli og við samstarfsfólk. Læknar skulu, eftir því sem við á,
leitast við að taka þátt í eða leiða þverfaglega samvinnu til aukins hags sjúklinga.
Læknum ber að auðsýna hver öðrum virðingu og háttvísi jafnt í viðtali sem umtali, ráðum sem
gerðum, í ræðu og riti. Læknir skal forðast að kasta rýrð á þekkingu eða störf annarra lækna, vekja
á sér ótilhlýðilega athygli eða gefa í skyn yfirburði sína með því að hampa eða láta hampa menntun
sinni, þekkingu, hæfni, afrekum, aðferðum eða vinsældum.
Einelti, áreitni eða kynbundið ofbeldi gagnvart starfsfélögum eða nemendum er læknum ekki
tilhlýðilegt.
17. gr. Heilsa lækna
Læknir skal huga vel að eigin heilsu og starfshæfni og leita sér aðstoðar ef starfsorka eða geta skerðist
svo það komi ekki niður á starfi hans.
Læknir skal leitast við að aðstoða lækni sem á við vanda að stríða og leiðbeina honum eftir því sem
við á.
18. gr. Fjöldaáskoranir
Lækni hlýðir ekki að eiga hlut að eða fallast á fjöldaáskoranir frá almenningi, samstarfsfólki eða starfs-
systkinum varðandi veitingu læknisstarfs, framgöngu í starfi eða önnur hlunnindi, hvort sem það
varðar hann sjálfan eða aðra lækna.
IV. Ákvæði um auglýsingar, kynningar og notkun lærdómstitils lækna
19. gr. Auglýsingar, kynningar og hagsmunatengsl
Læknir má auglýsa starfsemi sína að því marki sem landslög leyfa og siðareglur þessar segja til um.
Læknir skal við kynningu á læknisþjónustu eða nýjungum í fræðigrein veita nákvæmar og áreiðan-
legar upplýsingar um fagleg mál og hafa öryggi þeirra að leiðarljósi sem leita eftir þjónustunni. Hann
skal ekki afla sér viðskipta með ótilhlýðilegum eða villandi aðferðum.
Læknir skal gæta þess í ræðu og riti að haga umfjöllun sinni um lyf og sjúkravörur með þeim hætti
að hún feli ekki í sér auglýsingu. Ummæli læknis um lyf eða sjúkravörur í faglegu samhengi, í grein-
um eða fyrirlestrum, teljast ekki auglýsingar enda liggi fyrir upplýsingar um að ekki sé um ótilhlýði-
leg hagsmunatengsl eða óeðlilega umbun að ræða.
Þegar læknir tjáir sig í samtali, ræðu eða riti, sem fulltrúi félags, fyrirtækis eða stofnunar, skal hann
geta þess á hvers vegum hann er og tilkynna um þau tengsl sem kunna að valda hagsmunaárekstri.
20. gr. Notkun lærdómstitils
Læknir má ekki leyfa notkun á lærdómstitli eða faghlutverki sínu í auglýsingum um lyf, sjúkravörur
eða neinn þann varning sem talinn er lækna eða koma í veg fyrir sjúkdóma eða sjúkdómseinkenni.
V. Ákvæði um skyldur lækna við Codex og eftirlit LÍ
21. gr. Þekking á siðareglum og lögum
Læknir skal kynna sér lög, reglugerðir og reglur er gilda um störf lækna og starfsumhverfi; lög
um heilbrigðisstarfsmenn, um heilbrigðisþjónustu, um réttindi sjúklinga, leiðbeiningar Embætt-
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 51